Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 28
LISTIR
28 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
A
RNDÍS Halla Ásgeirsdóttir sópr-
ansöngkona og Holger Groschopp
píanóleikari halda söng- og píanó-
tónleika í Salnum í kvöld kl. 20.00
Arndís Halla býr í Berlín, hefur
verið fastráðin við Neustrelitz-óperuna en er
nú á gestasamningi bæði þar og við Komische
Oper í Berlín. En hvað á að syngja í Salnum?
„Ég ætla að byrja á Hermit Songs eftir
Samuel Barber. Þetta er lagaflokkur saminn
við texta eftir óþekktan miðaldamunk, þar sem
hann fjallar um lífið og tilveruna og er með alls
konar heimspekilegar vangaveltur. Það virðast
allir þekkja lagið um Pangúr, kött munksins;
þetta eru létt og skemmtileg lög, þótt viðfangs-
efnið sé á heimspekilegri nótunum. Ég ætla
ekki að syngja öll lögin, bara nokkur vel valin.
Holger leikur svo þrjár píanóprelúdíur eftir
Gershwin, og ég tek svo undir með þrjú sönglög
Gershwins: But not for me úr Girl Crazy, Soon
og Summertime úr Porgy og Bess. Þótt fyrri
lögin tvö séu bæði um ástina eru þau mjög ólík.
Summertime þekkja svo allir. Eftir hlé verðum
við svo með atriði úr óperum. Ég syng þrjár
stórar aríur; Una voce poco fa úr Rakaranum í
Sevilla eftir Rossini, fyrri aríu Luciu úr Lucia
di Lammermoor eftir Donizetti, og svo aríu
Elvíru, Qui la voce sua soave, úr I puritani eftir
Bellini. Meðan ég skrepp svo fram til að anda á
milli aríanna spilar Holger fyrst tvær útsetn-
ingar eftir Liszt; fyrst á Spunakórnum úr Hol-
lendingnum fljúgandi eftir Wagner, og svo út-
setningu á atriðum úr Rigoletto eftir Verdi.
Þannig verður þetta, blanda af söng og píanó-
leik.“
Miklar konur og miklar aríur
Þær þrjár kvenpersónur óperubókmennt-
anna sem Arndís Halla glímir við á tónleikun-
um eru ekki beinlínis líkar; en eiga þó sitthvað
sameiginlegt. Rosina og Elvíra eiga það sam-
eiginlegt í sínum aríum, að hvor um sig heyrir
rödd mannsins sem hún elskar; Rosina rödd
Lindoros, sem reyndar er Almaviva greifi í dul-
argervi, en Elvíra heyrir í huga sér rödd brúð-
guma síns, Artúrs, sem þurfti að leggja á flótta
á brúðkaupsdag þeirra og er nú eftirlýstur lífs
eða liðinn. Elvíra á það svo sameiginlegt með
Luciu, að báðar eru þær að missa vitið af ang-
ist; Elvíra, eins og fyrr segir, af ótta um afdrif
unnusta síns, en Lucia vegna þess að hún er
þvinguð til að giftast öðrum manni en hún elsk-
ar. Á brúðkaupsdaginn myrðir hún svo sinn
ólukkulega tilvonandi mann, til að þurfa ekki að
ganga á bak heita sinna við þann sem hún elsk-
ar, en missir vitið um leið. Þetta er ekki lítið að
glíma við. „Nei, þetta eru allt miklar konur og
ólíkar hver annarri, og aríur þeirra eru stórar
og mjög krefjandi. Þarna er mikill kóloratúr og
mikið flúr; það er nokkuð sem hefur alltaf legið
vel fyrir mér; þetta er erfitt en skemmtilegt að
glíma við það.“
Draumur að syngja Luciu
Arndís Halla er ekki óvön kóloratúr-söng.
Hún söng hlutverk Næturdrottningarinnar á
nokkrum sýningum í Töfraflautunni í Íslensku
óperunni í haust, og söng eina af tónleikaaríun-
um, Una voce poco fa, eftirminnilega í sjón-
varpsþættinum Milli himins og jarðar. „Ég hef
verið að syngja þetta hlutverk talsvert mikið
úti að undanförnu, en einnig Marzellínu í Fidel-
io eftir Beethoven og Díönu í Orfeusi í undir-
heimum eftir Offenbach.“
En allar söngkonur eiga sín draumahlutverk.
„Það er draumur að syngja einhvern tíma Luc-
iu di Lammermoor. Annars er það svo margt
sem ég hef gaman af að syngja. Mozart á vel við
mig, og mér finnst mjög gaman að syngja bar-
rokktónlist. Þó að Lucia sé draumahlutverk
held ég að ég geti sagt að ég sé meira fyrir það
sem er létt og kátt en hitt sem er alvarlegt – það
er meira minn karakter; sprellið á vel við mig.“
Arndís Halla er um þessar mundir upptekin
við að syngja fyrir óperuhús ytra; þetta er sá
árstími sem söngvarar leggjast í víking milli
óperuhúsa til að láta í sér heyra. „Það er orðin
gríðarleg samkeppni í þessum bransa. Maður
er boðaður í prufusöng, og situr kannski innan
um hinar „fimmtíu“ sópransöngkonurnar, og
fær þrjár mínútur til að syngja og sanna að
maður sé sú besta. Þetta er hin hliðin á glans-
myndinni sem fólk ímyndar sér að þetta starf
sé.“
Áhugaverður píanóleikari
Holger Groschopp, sem leikur með Arndísi
Höllu á tónleikunum, er Berlínarbúi og nam pí-
anóleik í Listaháskólanum þar í borg. Auk pí-
anónáms lagði hann stund á tónsmíðar undir
leiðsögn eins þekktasta tónskálds samtímans,
Isangs Yun, og söngtúlkun hjá öðrum vel
þekktum listamönnum, Aribert Reimann og
Dietrich Fischer-Dieskau. Hann sótti einnig
meistaranámskeið, meðal annars hjá píanóleik-
aranum Gyorgy Sebök, sem er íslenskum pí-
anóleikurum að góðu kunnur, en tengsl hans
við Ísland voru mikil, allt þar til hann lést fyrir
fáeinum árum. Á námsárunum tók Groschopp
virkan þátt í ýmiss konar tónleikahaldi, sem
hefur leitt til þess að hann hefur gert víðreist
og leikið í fjölmörgum borg-
um í Evrópu, Austurlönd-
um nær, Kóreu, Suður-Am-
eríku og Bandaríkjunum.
Hann hefur komið fram á
ýmsum tónlistarhátíðum,
bæði sem einleikari og þátt-
takandi í kammerhópum,
og hefur þá gjarnan leikið
sjaldheyrð verk og nútíma-
tónlist. Á efniskrá Grosch-
opps eru gjarnan einleiks-
verk eftir Bach, Mozart og
Beethoven, Liszt, Rachm-
aninov, Tchaikovsky og
Gershwin, Messiaen og Hans Werner Henze.
Hvað kammermúsíkina áhrærir hefur Grosch-
opp leikið með fjölmörgum virtum tónlistar-
mönnum og vinnur náið með tónlistarfólki úr
Berlínarfílharmóníunni. Holger Groschopp
hefur hlotið ýmis verðlaun á ferli sínum; meðal
annars í Brahms-píanókeppninni í Hamborg.
Fyrsti einleiksdiskur hans kom út síðasta
haust, en þar leikur hann píanóumritanir eftir
Ferrucio Busoni, en diskurinn fékk afar góða
dóma og er á lista BBC-tónlistartímaritsins yfir
efni sem tónlistarunnendur eru eindregið
hvattir til að hlusta á. Holger Groschopp býr og
starfar í Berlín.
Munkurinn, ástin og
harmþrungnar kvenhetjur
Arndís Halla Ásgeirsdóttir sópransöngkona.
Morgunblaðið/Kristinn
Holger
Groschopp
píanóleikari.
ÞAÐ er auðséð í hverju smáat-
riði í sýningu leiklistarhóps Umf.
Eflingar á Fiðlaranum á þakinu að
fólkið í þessum afskekkta íslenska
dal stendur nærri fólkinu í Anat-
evka sem er yrkisefni verksins.
Svo eðlileg og áreynslulaus var
persónusköpun flestra og svo inni-
leg mörg atriðin að það mátti
næstum trúa að einmitt þarna hafi
þetta þorp staðið rétt fyrir bylt-
ingu og þrjóskir og íhaldssamir
karlarnir verið þingeyskir bændur
en ekki rússneskir gyðingar. Þessi
tilfinning er hinn stóri styrkur
sýningarinnar og á stærsta þáttinn
í að gera hana að ákaflega áhrifa-
mikilli leikhúsupplifun.
Það spillir auðvitað ekki fyrir að
verkið er frábær smíð, einhver
elskulegasti söngleikur sem Broad-
waymaskínan hefur getið af sér.
Og hjarta verksins slær í Tevye,
mjólkurpóstinum með lærdóms-
draumana sem getur ekki frekar
en aðrir stöðvað tímans þunga nið
og verður að læra að bogna til að
brotna ekki þegar dætur hans hver
af annarri brjóta aldagamlar hefðir
við val á maka. Tvær gildrur gapa
við hverjum leikara sem glímir við
Tevye; að gera hann fyndinn með
því að undirstrika einfeldni hans
og að beita afli við að gera hann
aðlaðandi, sem er lenska í söng-
leikjauppfærslum um allan heim.
Jón Friðrik Benónýsson fellur í
hvoruga gryfjuna og uppsker ríku-
lega. Hann er algerlega trúverð-
ugur sem þessi erfiðismaður sem
reynir að glíma við vandamálin
með eigin brjóstviti og er þess
vegna nógu stór til að brjóta hefðir
sem nágrannarnir og forfeðurnir
gátu ekki. Og af því Jón er trú-
verðugur er Tevye auðvitað aðlað-
andi – og fyndinn. Við hlæjum að
honum og grátum með honum.
Fleiri eiga stjörnuleik. Jóhanna
M. Stefánsdóttir er Jóni verðugur
mótleikari sem eiginkonan Golda.
Motel klæðskeri verður hlægilegt
grey hjá Karli Ingólfssyni og ekki
minnist ég þess að hafa heyrt
„kraftaverkasönginn“ betur sung-
inn. Aðalbjörg Pálsdóttir er óborg-
anleg sem hjúskaparmiðlarinn
Yenta og besta dæmið um það sem
ég sagði í upphafi um hvernig
Reykdælir hafa gert verkið að
sínu.
En þrátt fyrir þessi einstak-
lingsframlög er sýningin sigur
hópsins og leiðtoga hans, galdra-
karlanna þriggja, Arnórs Benónýs-
sonar, Jans Alavere og Valmars
Väljaots. Arnór hefur laðað fram
styrkleika hvers einasta leikara.
Helst saknaði ég skýrari með-
höndlun á hinni dökku hlið verks-
ins, samskiptum söguhetjanna við
rússneska kúgarann. Og halinn
sem hefur verið prjónaður á verkið
þótti mér ekki góð hugmynd.
Vissulega mátti finna hnökra á
sumum tónlistaratriðunum, en
vegna þess að sýningin er einlæg
og raunsæ og áherslan er ekki á
„sjó“ verður það ekki til að spilla
ánægjunni til neinna muna. Og
sum þeirra eru hreint frábær, svo
sem fyrrnefndur söngur Motels,
kveðjusöngur Hodel hjá Hönnu
Þórsteinsdóttur, ástarjátning
Goldu og Tevyes og tvö erfiðustu
stórnúmerin, upphafssöngurinn og
draumur Tevyes. Fjórði stórmeist-
arinn er svo Þórarinn Hjartarson,
en þýðing hans er snilldarverk og
hljómar auðvitað best með norð-
lenskum hreim.
Með sýningunni á Fiðlaranum
eru tekin af öll tvímæli um að leik-
listarhópur Umf. Eflingar er um
þessar mundir eitt sterkasta
áhugaleikfélag landsins. Þau hafa
tekist á við vandasamt og við-
kvæmt verk og skila því með hjart-
anu beint í hjarta áhorfenda. Það
er mikið á sig leggjandi til að sjá
þessa sýningu.
Trúir þú á kraftaverk?
LEIKLIST
Leiklistarhópur Umf. Eflingar
Höfundar: Joseph Stein, Jerry Bock og
Sheldon Harnick byggt á sögum eftir
Sholem Aleichem. Þýðandi: Þórarinn
Hjartarson. Leikstjóri: Arnór Benón-
ýsson. Tónlistarstjórn: Jaan Alavere og
Valmar Väljaots. Breiðumýri í Reykjadal,
föstudaginn 8. febrúar 2002.
FIÐLARINN Á ÞAKINU
Þorgeir Tryggvason
Hafnarborg, Hafnarfirði
Sýning á verkum ljósmynd-
arans Ásgeirs Long, Svona var
Fjörðurinn og fólkið, er fram-
lengd til mánudags.
Þá verður kvikmyndin
„Hafnarfjörður fyrr og nú“ eft-
ir Ásgeir og Gunnar Róberts-
son Hansen sýnd aftur í Bæj-
arbíói á sunnudag kl. 17 og er
aðgangur ókeypis.
Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11–17.
Sýning
framlengd
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUNUM í
Norræna húsinu á morgun, mið-
vikudag, kl. 12.30, leika Guðrún S.
Birgisdóttir á flautu og Pétur Jón-
asson á gítar verk eftir Heitor
Villa-Lobos, Svein Lúðvík Björns-
son og Mauro Giuliani.
Tónleikarnir taka um það bil
hálfa klukkustund. Aðgangseyrir
er 500 kr. Ókeypis er fyrir hand-
hafa stúdentaskírteina.
Pétur Jónasson og Guðrún Birgisdóttir.
Verk fyrir
flautu og gít-
ar í hádeginu