Morgunblaðið - 12.02.2002, Qupperneq 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 35
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR, BORGARFULLTRÚI
Ég hef ákveðið að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar og
gefa kost á mér til forystu á Reykjavíkurlistanum við borgar-
stjórnarkosningar í vor.
Árið 1994 stofnuðum við Reykjavíkurlistann og gengum til
kosninga undir kjörorðinu „tími til að breyta“. Knúin áfram af
bjartsýni, réttlætiskennd og vilja til verka þótti okkur tími til
kominn að umbylta forgangsröðun verkefna í borginni, staðráðin
í að móta samfélagið í anda jafnaðarstefnu, réttlætis og
jafnréttis kynjanna. Í átta ár hef ég starfað með samhentum
hópi Reykjavíkurlistafólks að því ögrandi markmiði að gera
Reykjavík að betri borg, borg þar sem fólk kýs að búa og fær þá
þjónustu sem það þarf á að halda í nútímasamfélagi.
Þjónusta borgarinnar og stjórnskipulag hafa tekið miklum
framförum í tíð Reykjavíkurlistans. Nú þarf að halda áfram og
byggja á þeim góða grunni sem lagður hefur verið. Framundan
eru fjölmörg krefjandi verkefni og með stuðningi ykkar mun ég
mæta þeim af bjartsýni og krafti.
Ég heiti á stuðningsfólk Samfylkingarinnar að taka þátt í
prófkjörinu og velja sigurstranglegan lista til að vinna að
framgangi stefnumála okkar að loknum borgarstjórnar-
kosningum í vor.
REYKJAVÍK Á FRAMTÍÐINA FYRIR SÉR
www.steinunnvaldis.is
Reykjavík á að halda áfram að
dafna sem umhverfis- og
fjölskylduvæn borg, miðstöð
stjórnsýslu, menningar og mennta,
viðskipta og þjónustu þar sem
einkenni höfuðborgarinnar og
sögulegur arfur fær notið sín.
réttlætismál heldur getur yfirferð
yfir próf með kennara verið þáttur í
því að auka skilning nemanda á við-
fangsefninu.
Vaka leggur áherslu
á málefnin
Vaka leggur fjölmargar aðrar úr-
bætur í kennslumálum til. Má nefna
breytingar á kennslukönnunum,
aukin samskipti í gegnum Netið,
bætta aðstöðu til kennslu o.s.frv.
Við munum á næstunni kynna hug-
myndir okkar á göngum skólans og
í útgáfu okkar. Stúdentum er einnig
bent á að skoða heimasíðu félagsins,
www.vaka.hi.is, þar sem má finna
upplýsingar um kosningabaráttuna
og stefnumál Vöku. Að lokum skora
ég á stúdenta að kynna sér þau mál-
efni sem fylkingarnar setja á oddinn
og taka afstöðu út frá þeim.
Stúdentaráð
Eitt sameiginlegt
hagsmunamál stendur
ofar öðrum, segir
Sigþór Jónsson. Þess
vegna setur Vaka
kennslumál á oddinn.
Höfundur er viðskiptafræðinemi
og skipar 1. sæti á lista Vöku til
stúdentaráðs.
ekki tryggðir við vinnu sína. Að
frumkvæði Röskvu var starfshópur
skipaður sem fór yfir málið, for-
ystumenn stúdentaráðs funduðu
með heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra og í vetur samþykkti rík-
isstjórnin tillögu heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra sem hafði
verið unnin í samstarfi við forystu-
menn stúdentaráðs. Tveggja ára
baráttu Röskvu lýkur með sigri.
Jafnrétti til náms
Röskva gaf út í vikunni ítarlegan
árangursbækling þar sem árangur
síðasta starfsárs er kynntur.
Röskva hefur sýnt það með verkum
sínum að staðið er við þau loforð
sem gefin eru. Kosningar til stúd-
entaráðs og háskólaráðs snúast um
brýnustu hagsmunamál okkar
stúdenta. Röskva vill efla Háskóla
Íslands og standa vörð um jafnrétti
til náms. Á næstu dögum mun
Röskva kynna stórhuga hugmyndir
sem við viljum koma í framkvæmd
á næsta ári. Við sækjumst eftir um-
boði þínu til að gera þær að veru-
leika.
Höfundur skipar 1. sæti á lista
Röskvu til stúdentaráðs.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni