Morgunblaðið - 12.02.2002, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SKÖMMU eftir atkvæðagreiðslu á
Alþingi í gær, þar sem frumvarp um
að heimila ólympíska hnefaleika að
nýju hérlendis var samþykkt, tóku
áhugamenn um þessa íþrótt til við
æfingar af kappi. Ein fyrsta löglega
æfingin fór þá fram í líkamsrækt-
arstöðinni Ræktinni á Seltjarnar-
nesi þar sem efnilegir hnefaleika-
kappar hafa komið saman að
undanförnu, ungir sem aldnir. Á
myndinni heldur Ólafur Guð-
laugsson á svonefndum „fókus-
púða“ og tekur við föstum höggum
frá Salvari Björnssyni en ásamt Sig-
urjóni Gunnsteinssyni hafa þeir ver-
ið meðal forsprakka íþróttarinnar
hér á landi.
Í Ræktina hafa komið hátt í fjöru-
tíu manns að jafnaði en að sögn Sig-
urjóns er talið að um þrjú hundruð
manns æfi hnefaleika í dag, einkum
í Reykjavík, Keflavík, Akureyri og á
Akranesi. Sigurjón sagði við Morg-
unblaðið að gærdagurinn hefði ver-
ið mikill gleðidagur fyrir áhuga-
menn um hnefaleika. Næsta skref
væri að undirbúa stofnun formlegra
hnefaleikafélaga og skipuleggja æf-
ingar og keppni í samráði við ÍSÍ.
Morgunblaðið/Golli
Hnefaleik-
ar leyfðir
að nýju
Samþykkt/10
ALDREI hafa fleiri slökkviliðsmenn
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
verið frá störfum í einu vegna fæð-
ingarorlofs, en alls eru fjórir liðs-
menn í orlofi og sá fimmti á leiðinni í
orlof. Þá er sjötti slökkviliðsmaður-
inn nýbúinn í fæðingarorlofi. Allt eru
þetta karlmenn sem eru í 110 manna
útkallsliði slökkviliðsins. Í liðinu eru
þrjár konur en engin þeirra hefur
hins vegar farið í fæðingarorlof.
Að sögn Halldórs Halldórssonar,
fjármála- og starfsmannastjóra
SHS, kemur þetta óvenjulega ástand
ekki niður á þjónustu slökkviliðsins.
„Við tökum inn menn í aukavinnu
þegar svona háttar til og erum yf-
irmannaðir til að mæta fjarvistum
s.s. vegna veikinda og fæðingaror-
lofs,“ segir Halldór.
Karlar í slökkviliðinu, sem og aðr-
ir, hafa rétt á tveggja mánaða feðra-
orlofi og þriggja mánaða sameigin-
legu orlofi með mæðrum.
Halldór segir að staðan sé óneit-
anlega óvenjuleg hjá slökkviliðinu
um þessar mundir, enda hafi það
ekki hent áður að hver karlmaðurinn
á fætur öðrum hafi heimsótt sig á
skrifstofu sína til að tilkynna fæðing-
arorlof.
Aldrei fleiri
slökkviliðs-
menn í fæð-
ingarorlofi
Þetta var ógleymanleg/6
DJÚP lægð, sem var við Nýfundna-
land í gær, er á hraðri leið að landinu
og samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Íslands má búast við að
sunnanstormur skelli á í nótt með
rigningu og vindhraða um 20–25
metrum á sekúndu. Hitinn mun
hækka upp í 6–8 stig.
Að sögn veðurfræðings mega
þetta teljast talsverð veðrabrigði
miðað við frost og snjókomu víða á
landinu á þorranum að undanförnu.
Útisamkomur vegna öskudagsins á
morgun eru hins vegar í hættu.
Á morgun er síðan spáð sunnan
15–20 metrum á sekúndu víða um
land, rigningu eða slyddu vestantil
en hægari og þykknar upp austantil.
Að kvöldi miðvikudags á vindáttin að
snúast í vestan- og suðvestanátt.
Spáð er hægari vestlægri átt og élj-
um á fimmtudag.
Sunnan-
stormur
í aðsigi
TVÍLEMBINGAR, hrútur og
gimbur, komu nýlega í heiminn
á bænum Torfunesi í Ljósa-
vatnshreppi, en Baldvin Kristinn
Baldvinsson bóndi þar rak upp
stór augu þegar ein ærin var að
sinna tveimur lömbum á þeim
tíma þegar mjög langt er í
venjulegan sauðburð.
Vissulega var þetta óvænt
ánægja enda er Baldvin mikill
áhugamaður um sauðfjárrækt.
Torfunesbúið er eitt afurða-
hæsta bú í Suður-Þingeyjarsýslu
og skilaði hver ær þar 31,6 kíló-
um á síðasta ári. Þar fara fram
afkvæmarannsóknir fyrir sæð-
ingastöðvar og hefur féð þar
vakið athygli búnaðarráðunauta
fyrir bakvöðvamælingar í ómsjá.
Markmiðið með rannsókn-
unum er að taka hrúta á sæð-
ingastöð til framhaldsræktunar,
en hrútar frá Torfunesi hafa
farið á allmarga bæi og komið
mjög sterkt inn sem af-
urðaskepnur. Í gangi eru sam-
anburðarrannsóknir á heima-
hrútum og aðkomuhrútum og
munu niðurstöður liggja fyrir í
haust.
Gimbrin og hrúturinn dafna
vel og eru strax farin að éta hey
ásamt móður sinni og lætur
Baldvin vel af þessum óvænta
félagsskap í fjárhúsunum.
Nýfædd lömb
á þorranum
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Baldvin Kristinn Baldvinsson, bóndi í Torfunesi, með tvílembingana.
Laxamýri. Morgunblaðið.
LÖGREGLAN í Reykjavík fékk að
morgni síðasta laugardags tilkynn-
ingu um vatnsleka frá íbúð við Skúla-
götu. Reynt var að hringja í húsráð-
endur þeirrar íbúðar sem lekinn kom
frá en enginn svaraði.
Lögreglumenn fóru þá inn í íbúð-
ina, hittu þar fyrir konu sem ekki
vildi ræða við þá. Kvaðst hún þó hafa
verið að þvo sokka, að því er fram
kemur í dagbók lögreglunnar um
helstu atburði helgarinnar í höfuð-
borginni. Skemmdir í íbúðinni voru
hverfandi litlar að sögn lögreglu.
Vatnsleki
vegna
sokkaþvotts
Brutu rúður/47
♦ ♦ ♦
NETAVEIÐISKIPIÐ
Gunnþór GK strandaði
í innsiglingunni við
Sandgerði upp úr
klukkan tíu í gærkvöldi.
Skipið var að koma úr
róðri og fór upp í fjöru
sunnan við hafnar-
mynnið. Átta manns
voru um borð og sakaði
engan þeirra. Að sögn
Gunnars Svavarssonar
skipstjóra urðu engar
skemmdir á skipinu og
þegar rætt var við hann
skömmu áður en Morg-
unblaðið fór í prentun
sagði hann að til stæði
að ná Gunnþóri á flot
þegar flæða myndi að í
nótt. Veður var gott
þegar óhappið átti sér
stað, nánast logn og stilltur sjór.
Björgunarsveitarmenn frá Sigur-
von í Sandgerði voru í viðbragðs-
stöðu í landi en skipverjar óskuðu
ekki eftir aðstoð þeirra.
Gunnþór, sem er 269 brúttó-
tonna stálskip, var á leið til hafnar í
Sandgerði en í stað þess að beygja
inn í höfnina hélt skipið áfram suð-
ur með hafnargarðinum og strand-
aði 20–30 metrum frá
landi. Hallaðist það um
tíu gráður að sögn
sjónarvotta.
Dreginn til hafnar
fyrr um daginn
Gunnar skipstjóri
var í brúnni við stýrið
og í samtali við Morg-
unblaðið kvaðst hann
hafa gleymt að beygja
inn í höfnina. Hann
sagði engar skemmdir
sjáanlegar á skrokki
skipsins, reynt hefði
verið að bakka en það
setið fast.
Þess má geta að
Gunnþór kom í togi til
hafnar í Sandgerði um
miðjan dag í gær þar
sem hann hafði fengið net í skrúf-
una. Skipið hélt síðan aftur til veiða
að lokinni viðgerð og var að koma
úr þeim róðri þegar það strandaði
við innsiglinguna.
Gunnþór GK á strandstað skammt undan landi við Sand-
gerðishöfn í gærkvöldi. Vonast var til að hægt yrði að ná
skipinu á flot í nótt en eins og sjá má hallaðist það örlítið.
Morgunblaðið/ Hilmar Bragi
Gunnþór GK strand-
aði við Sandgerði
Skipstjórinn segist hafa gleymt að beygja