Morgunblaðið - 28.02.2002, Blaðsíða 40
MINNINGAR
40 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Elsku afi minn. Þú
hefðir orðið 79 ára í
dag. Af því tilefni lang-
ar mig að minnast þín
með nokkrum orðum.
Það var erfitt að horfa upp á þig
veikjast og sjá hvernig þér fór aftur
með hverjum deginum uns veikindin
náðu yfirhendinni og þú lést.
Við töluðum mikið saman í síma,
að minnsta kosti einu sinni í viku og
oftar eftir að þú veiktist. Umræðu-
efnin voru oftast bílar, sjónvörp og
alls kyns önnur tæki. Á sumrin kom
ég í heimsókn til ykkar ömmu í
Brekku, nokkra daga í senn, og voru
GUÐMUNDUR
TÓMAS ARASON
✝ GuðmundurTómas Arason
fæddist á Heyklifi
við Stöðvarfjörð 28.
febrúar 1923. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 11. nóvem-
ber síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Stöðvarfjarðar-
kirkju 17. nóvember.
það skemmtilegir dag-
ar. Við sátum saman og
horfðum á sjónvarpið.
Þú fræddir mig um
hvernig gervihnatta-
diskar virkuðu og
hvernig þú fórst að því
að ná stöðvum út um
allan heim. Tæknin átti
hug þinn allan. Einnig
sagðir þú mér ýmsar
sögur af þér og alls
konar ævintýrum sem
þú hafðir lent í. Við fór-
um líka oft í bíltúr. Þá
tókum við einn hring
um þorpið og síðan fór-
um við einn hring út á Meleyri þar
sem ég tók við stjórn bílsins. Þar
keyrðum við og þú sýndir mér
hvernig hægt væri að ná færeyskri
útvarpsstöð, sem næst á þessu
svæði.
Afi minn, ég þakka þér allar
stundirnar sem við áttum saman. Nú
verða minningarnar um góðan og
elskulegan afa að duga.
Þinn sonarsonur,
Valgeir Mar.
Fyrir rúmu einu ári
féllu frá tveir bræður
frá Sólbergi á Höfn
með mánaðar millibili,
Ólafur Guðjón, f. 1948 og Jóhann
Heiðar, f. 1961. Enn er hoggið í
hópinn og nú er næstyngsti bróð-
irinn Bragi látinn, langt um aldur
fram, aðeins 51 árs að aldri. Elstur
bræðranna er Jón Birgir, f. 1941.
Þegar ég frétti lát Braga ætlaði
ég vart að trúa því að sorgin hefði
enn á ný knúið dyra hjá fjölskyld-
BRAGI
ÁRSÆLSSON
✝ Bragi Ársælssonfæddist á Höfn í
Hornafirði 1. desem-
ber 1950. Hann lést í
Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi í
Fossvogi sunnudag-
inn 17. febrúar síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Foss-
vogskirkju 26. febr-
úar.
unni. Þegar ég minn-
ist Braga Ársælssonar
kemur upp í huga
minn traust og heið-
arleiki. Bragi var
vandaður maður til
orðs og æðis, eins og
bræður hans. Hann
var rólegur og þægi-
legur maður í allri
umgengni. Reyndar
var hann frekar dulur
og flíkaði ekki tilfinn-
ingum sínum. Hann
var viðræðugóður og
sló á létta strengi þeg-
ar maður hitti hann á
Höfn eða hjá Óla bróður hans í
Reykjavík, sem var oft í gegnum
árin.
Margar ánægjulegar minningar
á ég um Braga frá því að ég dvaldi
sumarlangt á Höfn 1991 en ég bjó
þá í Sólbergi, í íbúðinni fyrir neðan
Braga og Birnu. Vinátta og velvilji
þeirra til að greiða götu mína á all-
an hátt var ótakmarkaður á meðan
við bjuggum undir sama þaki. Það
mun seint gleymast. Oft var mér
boðið í mat á efri hæðinni, bæði þá
og síðar. Til Braga og Birnu var
ávallt gott að koma, þar réð gest-
risni og glaðværð ríkjum. Einnig á
ég góðar minningar um Braga á
heimili foreldra hans, Jónínu og
Ársæls á Austurbraut 4 á Höfn. Sá
ég þá hve ræktarsamur Bragi var
við foreldra sína en hann kom þar
nær daglega. Það var oft glatt á
Hjalla í eldhúsinu hjá Jónínu um
leið og notið var rausnarlegra veit-
inga. Mikið er lagt á Jónínu að sjá
eftir þremur sonum sínum á svo
skömmum tíma. Þá get ég aldrei
gleymt ánægjulegum samveru-
stundum í sumarbústað fjölskyld-
unnar í Lóni þar sem allt var gert
til að gestinum liði vel. Ég tel það
mikla gæfu að hafa kynnst Jónínu
og Ársæli og sonum þeirra og fjöl-
skyldum. Fyrir það er ég ævinlega
þakklátur.
Ég sendi Birnu og fjölskyldu,
Jónínu, Birgi og öðrum aðstand-
endum dýpstu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Braga Ársæls-
sonar.
Ingimar F. Jóhannsson.
✝ Ralph BallardArcher Smith
fæddist í Cheshire á
Bretlandseyjum 20.
nóvember 1914.
Hann lést á heimili
sínu 14 The Bye-
way, 11. janúar síð-
astliðinn. Ralph var
yngsta barn for-
eldra sinna, Archer
Varden Smith og
Mary Tothill Smith.
Systkini Ralphs
voru Eileen Eggle-
ton Smith og Tomas
Gregory Smith.
Ralph kynntist árið 1943 konu
sinn Þórdísi Kristjánsdóttur Wii-
um Smith frá Fagradal í Vopna-
firði, f. 23. maí 1910. Hún er dótt-
ir hjónanna Oddnýjar Sveins-
dóttur frá Seyðisfirði, f. 26.5.
irlaun. Ralph var virkur íþrótta-
maður alla tíð og spilaði bæði
chricket og rugby fives, fyrir lið
Englandsbanka, og starfaði við
skjalasafn bankans, í the Bank of
England Sport Club, Roehampton
í fimm ár, eftir að hann hætti
störfum við Englandsbanka, eða
til ársins 1979. Ralph var m.a.
kosinn heiðursvaraformaður
klúbbsins og gegndi því starfi til
dauðadags. Ralph var virkur fé-
lagi í the City of London Carpen-
ters Livery Company, í rúm sex-
tíu ár. Carpenters vann að
góðgerðarmálum, og stóð m.a. að
rekstri heimila fyrir aldraða,
auknum tækifærum fyrir ung-
linga, svo og úthlutun náms-
styrkja til efnilegra námsmanna.
Ralph var við stjórn þess 1983 og
1984. Hann gekk í breska sjóher-
inn í byrjun seinni heimsstyrjald-
ar og var ritari ýmissa kapteina
og starfaði mestmegnis á Ítalíu, í
Sierra Leone og á Íslandi.
Útför Ralphs fór fram frá
Mortlake Crematorium í London
25. janúar síðastliðinn.
1884, d. 2.5. 1976, og
Kristjáns Wiium Niel-
sen frá Njarðvík í
Borgarfirði eystri og
síðar bónda í Fagra-
dal í Vopnafirði, f.
23.4. 1880, d. 1.6.
1930. Þau gengu í
hjónaband í London
árið 1945, og hafa bú-
ið í East Sheen, Lond-
on SW14, öll sín sam-
búðarár. Dóttir
þeirra er Inga Mary
Smith, f. 30.3. 1947.
Ralph stundaði við-
skiptanám við Dul-
wich College, og útskrifaðist árið
1934 og fluttist síðar til London.
Ralph hóf störf við Englands-
banka, í hjarta Lundúnaborgar
að loknu námi, og starfaði þar til
ársins 1974, að hann fór á eft-
Elsku Ralph frændi. Ég er þér
og Doddu frænku ávallt þakklát
fyrir allar góðu stundirnar sem við
áttum saman á Byeway og seinna
á heimili mínu í Berkshire. Kímni-
gáfa þín og hæverska voru eins-
konar samnefnarar persónuleika
þíns og þú varst ávallt með bros á
vör. Þú gafst lítið út á afrek þín og
það var ekki auðvelt að fá þig til
að viðurkenna öll þín góðu verk í
þágu annarra, og allra síst íþrótta-
afrek þín á yngri árum, sem ég
fyrir örfáum árum sá skrásett í
annálum Englandsbanka. Þú
vannst fyrir betri tækifærum
ungra kynslóða, gegnum starf þitt
við Carpenters Livery Company,
þar sem þú kvattir til góðra verka
og betra lífs.
Þú elskaðir að vinna að ávaxta-
trjánum þínum, vínviðnum og
grænmetisgarðinum, og naust þess
að vera úti í garðinum ykkar á
Byeway, sem alltaf skartaði sínum
fegursta skrúða. Áhugi þinn fyrir
klassískri tónlist, jazz og cricket,
var óþrjótandi, og ég minnist
margra góðra stunda í íþrótta-
klúbbnum þínum í Roahampton,
þar sem þú kvattir lið þitt, af
þrótti og áhuga. Ég minnist enn
þann dag í dag, jazztónleika Duke
Ellington, í Royal Festival Hall,
sem við sóttum saman sumarið
1973. Minning þín er mér skærust
í leit minni að þessum sérstaka
tóni jazzins, sem er svo einkenn-
andi, en samtímis einstaklega per-
sónulegur í túlkun hvers áheyr-
anda.
Ég þakka þér fyrir jákvæðni
þína og traust á mér, er ég steig
mín fyrstu skref á breskum at-
vinnumarkaði, og seinna, er ég hóf
nám við listaskólann í Berkshire.
Þú varst ávallt stoltur af frænku
þinni, af öllum hennar áformum og
verkefnum. Einnig, er hún í ákafa
sínum um leiklistarlífið í London,
„uppgötvaði“ ný leikhús, sem þú
hafðir ekki heyrt um áður. „Old
Vic“ skyndilega breittist í „Young
Vic“, sem á sjöunda áratugnum
setti upp verk Tom Stoppards,
„Rozenkrantz and Guildenstern
are Dead“.
Ef ég man rétt, varð verkið að
dagskrárlið yfir sunnudagsmatn-
um á Byeway, einn heitan sum-
ardag í júlí.
Þú varst hetjan hennar Doddu
frænku, sem þú, af þinni einstöku
einlægni kallaðir „Dísu“.
Dísin þín á eftir að sakna ástar
þinnar, styrks þíns og vináttu, þó
svo að árin dragi úr minni hennar.
Mega geislar sólarinnar verma
minningu þína, elsku frændi.
Margrét S. Wiium.
RALPH BALLARD
ARCHER SMITH
! "
##
!$
%
!
&
'
'
" " #$
%&&$
%' () *
+ ,-.,/
+ 0)
( "
)
#(
(+1
+20+! *
1 (+3 ! *
+20 !1 4( ( (* *
+2 20 !
)
''
15
&1
#
6'!(77
**
#
*
' %
##++
,
"-$
"
+
(7( ( 1 *
1 8+19
4 19* ( +
(
+19
19: + 19 2 + *
+
(7( ( 19: + # *
;
('
+6+ # !
&&<# ";# $=$
3 +0>?
$(6 '
%
#. /%
"$0$
1
0%
$
2' '
2
0
+20 ; 3
+20
$ + ((* 0+& ( (
4 23 # 0 *
( 3 ; 3*
: + ( + 2(; 3*
4(60
+20 ; 3
4 < +'0 ( ; 3
4 2( +0 (+
*
*<
: *
<
: *!
)
'
'
5@
&"A
2 *
6++ +((77
0
3 4 %
2" 0
4 *
# (0++* ; + 3
+
+'( *+* #B( 4 1
) * (
*
2 20 +2 2 20 !