Morgunblaðið - 28.02.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 28.02.2002, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2002 31 YFIRVÖLD í Bandaríkj-unum og í Evrópu telja sighafa unnið áfangasigur íbaráttu sinni fyrir því að leysa upp net vopnasmygls sem full- yrt er að sé eitt hið stærsta sem starfandi er um þessar mundir. Leið- togi vopnasmyglaranna er sagður vera fyrrverandi foringi í sovéska hernum en hann mun hafa selt talib- önum og al-Qaeda hryðjuverka- samtökunum í Afganistan vopn, sem og Abu Sayyaf-hreyfingunni á Fil- ippseyjum og ýmsum uppreisn- arhópum í ríkjum Afríku. Skv. frétt The Washington Post hefur bandaríska leyniþjónustan undanfarin þrjú ár reynt að grafa undan starfsemi Victors Bout, sem var áður yfirmaður í sovéska hern- um, en hann rekur vopnasmyglveldi sitt frá Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum. Starfsemi Bout er sögð einstök í sinni röð fyrir þá sök að enginn annar gæti hugsanlega flutt birgðir af fullkomnustu vopnum til nánast hvaða staðar sem er í heim- inum. „Það er til fullt af fólki sem getur flutt vopn til Afríku eða Afganistan en það má telja á fingrum annarrar handar þá menn sem geta afhent meiriháttar vopnakerfi með litlum fyrirvara,“ sagði Lee S. Wolosky, fyrrverandi fulltrúi hjá Öryggisráði Bandaríkjanna. „Victor Bout er efst- ur á þeim lista manna.“ Bout á yfir 60 flugvélar, þ.m.t. risastórar rússneskar flutninga- vélar, og hæfileikar hans til að fela slóð sína og hins raunverulega farms vélanna þykja engu öðru líkir. Bout mun hafa sérhæft sig í því að komast framhjá þeim vopna- sölubönnum sem í gildi eru víða í veröldinni. Er haft eftir fulltrúum Sameinuðu þjóðanna og bandarískra og breskra yfirvalda að hann kaupi jafnan þau vopn, sem hann síðan sel- ur áfram, í ýmsum fyrrum komm- únistaríkjum, einkum Búlgaríu og Rúmeníu. Ber þó að geta þess að stjórnvöld í Rúmeníu hafa hafnað þessum stað- hæfingum og segjast raunar hafa neitað að eiga viðskipti við Bout í fyrra er hann falaðist eftir slíku. Samstarfsmaður handtekinn Bout er 35 ára gamall, ef marka má skýrslu öryggisráðs SÞ frá því í apríl 2001. Hann fæddist í Dushanbe í Tadjíkistan, sem áður tilheyrði Sov- étríkjunum, og útskrifaðist frá mála- deild Moskvuskóla sovéska hersins. Talar hann sex tungumál reiprenn- andi, ef marka má skýrsluna. Hann er jafnframt sagður hafa verið for- ingi í sovéska flughernum og hann mun hafa í fórum sínum sex vega- bréf, sem gera honum kleift að fara frjáls ferða sinna. Bout er gjarnan kallaður „einfarinn“ enda ræður hann að mestu einn ríkjum yfir vopnasmyglsveldinu. En þó að Bout sé einfari gerðist það fyrr í þessum mánuði að belg- íska lögreglan handtók mann sem sagður er einn allra helsti samstarfs- maður hans. Hefur hann reynst sam- vinnuþýður og mun hafa veitt upp- lýsingar um það hvernig vopnasmyglsnetið virkar. Samstarfsmaðurinn, Sanjivan Ruprah, hafði raunar átt í leyni- legum samskiptum við bandarísku leyniþjónustuna undanfarin misseri, og sá hann henni fyrir upplýsingum, að því er bandarískir stjórnarer- indrekar og lögmaður Ruprahs full- yrða. Var bandarískum yfirvöldum ekki kunnugt um að Belgar hygðust handtaka hann. Engir samningar munu þó hafa verið gerðir við Rupr- ah um niðurfellingu saka og Banda- ríkjamenn segjast gjarnan vilja fá hlutdeild í þeim upplýsingum sem hann hefur veitt Belgunum frá því hann var handtekinn. Er hann þar sagður hafa rætt um vopnasölu til al-Qaeda og talibana en í viðræðum sínum við Bandaríkja- menn hafði hann ávallt neitað því að um slík viðskipti hefði verið að ræða. Leiddar eru líkur að því að það hafi hann gert sökum þess að hann skynjaði að í kjölfar atburðanna 11. september sl. yrðu þau viðskipti litin sérstaklega alvarlegum augum vestra. The Washington Post segist reyndar hafa komist yfir fjögurra ára gamla belgíska leyniskýrslu þar sem því er haldið fram að Bout hafi hagnast um 50 milljónir dollara vegna vopnasmygls til talibana. Aðr- ir heimildarmenn efast þó um að Bout hafi grætt þetta mikið á við- skiptum sínum við talibana og al- Qaeda hreyfinguna þar sem hann hafi á sama tíma séð stjórnarand- stæðingum í Afganistan fyrir vopn- um, en nokkrir þeirra munu hafa verið persónulegir vinir hans. Dældi vopnum til Afríku Ruprah, sem er Kenýamaður, er sagður hafa verið milligöngumaður Bouts í viðskiptum hans við ýmis Afríkuríki. Bæði Ruprah og Bout voru í fyrra settir á lista SÞ yfir ein- staklinga sem ekki mættu ferðast milli landa en þá þótti hafa verið sýnt fram á óvefengjanleg tengsl þeirra við RUF-uppreisnarhreyfinguna í Sierra Leone og við Charles Taylor, forseta Líberíu. Þykir fullvíst að Bout sá uppreisn- armönnum UNITA í Angóla og rík- isstjórn Taylors fyrir miklum fjölda- vopna, sem og ýmsum þeim hópum sem þátt hafa tekið í borgarastríðinu í Kongó. Hafa SÞ þó samþykkt bann um sölu vopna til allra þessara aðila. Í viðskiptum Bouts við Afríkuríkin mun Ruprah hafa verið honum afar mikilvægur því hann hafði tengsl við einstaklinga sem stóðu í ólöglegum viðskiptum með demanta. Bjó hann svo um hnútana að Bout fékk greitt í demöntum fyrir þau vopn sem hann seldi til Sierra Leone, Kongó og Angóla. Hvað vopnasölu til Taylor, forseta Líberíu, varðar skipulagði Ruprah, skv. skýrslu SÞ, þrjár flugferðir til Líberíu í júlí og ágúst 2000 og fékk Taylor þar afhentar tvær fullkomnar átakaþyrlur, flugskeyti sem skjóta má af jörðu niðri, brynvarða bíla, hríðskotabyssur og næstum milljón umganga af skotfærum. Allur þessi varningur mun hafa átt uppruna sinn í Búlgaríu. Þá mun Bout hafa selt Abu Sa- yyaf-skæruliðasamtökunum á Fil- ippseyjum vopn, sem og Moammar Gaddafi, forseta Líbýu. Horfinn með allt sitt hafurtask Bandarísk stjórnvöld báðu yf- irvöld í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum árið 2000 að stöðva starf- semi Bouts, að sögn heimildarmanna The Washington Post. Sögðust þar- lend yfirvöld engar sannanir hafa í höndunum um að Bout hefði gerst sekur um glæpsamlegt athæfi. Engu að síður munu þau hafa lagt ýmsa steina í götu Bouts og er fullyrt að það hafi hjálpað mjög til við að fletta ofan af starfsemi hans. Samstarfs- menn Bouts í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja hann reyndar á bak og burt og hafði hann með sér allt sitt hafurtask. Kváðust þeir enga hugmynd um hvert hann hefði farið. Eftir er því að hafa hendur í hári Bouts en stjórnarerindrekar telja að tekist hafi að þrengja mjög að mögu- leikum hans til frekari vopnasölu. Á hælum mesta vopnasala samtímans Fyrrverandi foringi í sovéska hernum er sagður selja hryðju- verkamönnum víða um heim vopn. Þriggja ára viðleitni til að grafa und- an starfsemi hans virðist nú vera að bera árangur. Reuters Liðsmenn Norðurbandalagsins munu hafa keypt vopn af Bout, einnig talibanar og al-Qaeda-hreyfingin. ’ Bout er gjarnan kallaður „einfarinn“ ‘ samning ð þessu réttindi u sam- i að auk gginga- nú eftir álfstætt Síðar- því vera Að mati smanna brot á krárinn- ögum. astofum tarfandi eða um gjast nú í gjaldi Trygg- iðað við nna ára, á tíma- Á sama hækkað naður á 33%. Í í gær % gjald- væru öfur um u aukist da á að stofu sé r króna, að húsnæðiskostnaði undanskild- um. Alls koma árlega um 25 þús- und manns til meðferðar hjá þeim. „Verið að mismuna fólki“ Adda Sigurjónsdóttir, formað- ur Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara, segir að deilan við Tryggingastofnun snúist í raun ekki um launakjör sjúkraþjálfara heldur rekstrargrundvöll þeirra stofa sem þeir halda úti. Farið sé fram á að rekstrarumhverfi þeirra sé í samræmi við sam- keppnislög og önnur lög sem gildi í landinu. Aðspurð um helstu rök fyrir því að sjúkraþjálfun verði greidd niður í meira mæli en gera á frá 1. mars bendir Adda á að til þessa hafi almenningur fengið sjúkraþjálfun niðurgreidda um helming og öryrkjar, ellilífeyris- þegar og langveik börn um 75%. Þetta haldi áfram ef viðkomandi einstaklingar fari til sjúkraþjálf- ara inni á heilbrigðisstofnunum. „Ef fólk fer til sjálfstætt starf- andi sjúkraþjálfara gilda allt í einu önnur lög um þá sjúklinga. Okkur finnst ekki rétt að heil- brigðisráðuneytið og Trygginga- stofnun beiti fyrir sig sjúklingum í kjarabaráttu og brjóti þarmeð jafnræðislög á því fólki,“ segir Adda og tekur þvínæst dæmi um mann sem lendir í vinnuslysi. Til þessa hafi hann átt rétt á 100% endurgreiðslu í sjúkraþjálfun vegna tryggingar vinnuveitand- ans. Eftir 1. mars muni sami maður væntanlega ekki fá endur- greiðslu fari hann til sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara. Adda segir að vissulega sé það pólitískt mál hversu mikið ríkið greiði niður sjúkraþjálfun eða aðra heilbrigðisþjónustu. Aðalat- riðið í huga sjúkraþjálfara sé að stjórnvöld fari að lögum og gæti jafnræðis. Með breytingunum sem taka eigi gildi 1. mars sé verið að mismuna fólki. Ekki endurgreitt nema samningur sé fyrir hendi Hjá Tryggingastofnun fengust þau svör að stofnunin ætlaði sér að miða endurgreiðslur við gild- andi lög og þar sem sjúkraþjálf- arar sögðu upp samningum hefði Tryggingaráð þurft að setja nýj- ar reglur. Undir þetta tók for- maður ráðsins, Bolli Héðinsson, sem sagði að Tryggingastofnun væri ekki heimilt að endurgreiða sjúklingum sjúkrakostnað nema samningur væri í gildi. Með regl- unum hefði Tryggingaráð verið að koma til móts við þá sem helst þyrftu á sjúkraþjálfun að halda og hefðu minnst svigrúm til að greiða fullt verð, líkt og öryrkja og langveik börn. Helstu rök gegn því að greiða sjúkraþjálf- unina meira niður eftir 1. mars væru því fyrst og fremst þau að samningar hefðu ekki tekist við sjúkraþjálfara. Vonaðist Bolli til þess að deiluaðilar settust niður til að semja. Ekki náðist í for- mann samninganefndar heil- brigðisráðuneytisins, Garðar Garðarsson lögmann, sem hefur verið í viðræðum við sjúkraþjálf- ara fyrir hönd ríkisins. Spurður um viðbrögð við þeim sjónarmiðum sjúkraþjálfara að nýjar reglur Tryggingastofnunar samræmdust ekki samkeppnis- lögum og jafnræðisreglu stjórn- arskrárinnar sagðist Bolli ekki geta tjáð sig um það. Tryggingaráði hefði ekki borist erindi eða greinargerð í þessa veru. Ef fram kæmu gild rök hjá sjúkraþjálfurum yrði reglum ekki haldið úti sem ekki stæðust lög. júkraþjálfunar taka gildi 1. mars r segja tekjur nað um 26% Morgunblaðið/Ásdís greiðslur vegna sjúkraþjálfunar taka gildi . mars. Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar ði mismunað eftir því hvort þeir fari í með- sjúkrastofnunum. Myndin er tekin við end- á Grensásdeild Landspítalans. þekking ir vinna markað- sé afar að fær í a sé allt “ sagði r hvern- ngi. skoðun- arfélag- bótarlíf- dregið arfélag- mi. „Ég gera sér grein fyrir því að sveitarfélögin greiða ekki viðbótarframlag séu ekki eins áhugasamir um þetta sparnaðarform og hinir sem eiga kost á framlagi frá vinnuveitanda. En ég hef bent fólki, sem hringt hefur til okkar, á að þó að það fái ekki þessi 1 eða 2% sem samið hef- ur verið um á almenna markaðin- um og ríkið hefur samið um sé það engu að síður skynsamleg ákvörð- un að vera í séreignarsparnaði.“ Sjöfn Ingólfsdóttir sagðist einnig kannast við að sumir starfsmenn sveitarfélaganna hefðu staðið í þeirri trú að sveitarfélögin greiddu iðgjöld í viðbótarlífeyrissparnað. Hún sagðist hafa verið óánægð með afstöðu sveitarfélaganna í þessu máli. Reykjavíkurborg hefði verið ófáanleg til að fallast á að greiða þetta iðgjald sem ríkið og vinnu- veitendur á almennum vinnumark- aði hefðu samið um að greiða. Að vísu hefði Reykjavíkurborg fallist á að setja inn í bókun við samninginn að viðræður yrðu teknar upp um lífeyrismál ef breytingar yrðu gerðar í lífeyrismálum annarra fé- laga. Málið hefði verið rætt við Samband íslenskra sveitarfélaga en ekkert hefði komið út úr þeim viðræðum. „Við lítum á þetta sem leið til að auka almennan sparnað í landinu. Fyrir nokkrum árum var stofnaður Lífeyrissjóður starfsmanna sveit- arfélaga, en það var gert að tilhlut- an sveitarfélaganna og þeirra sem hjá þeim starfa. Sjóðurinn starfar í mörgum deildum, m.a. í séreignar- sparnaðardeild, og okkur finnst dá- lítið furðulegt að menn skuli ekki vilja efla þann sjóð með því að gera þetta mögulegt. Frá sjónarhóli BSRB er þessu máli alls ekki lokið. Við munum sækja á um þennan rétt,“ sagði Sjöfn. afi samið um viðbótarlífeyrissparnað ar telja félögin gjaldið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.