Morgunblaðið - 17.03.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 17.03.2002, Síða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 17. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ FORSTJÓRI Landssímans, Óskar Jósefsson, benti á í ræðu sinni á að- alfundi Símans sl. mánudag að leit- ast yrði við að ná fram leiðréttingu á verðskrá á ákveðnum þáttum í rekstrinum sem í dag væru seldir undir kostnaðarverði. Heiðrún Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Sím- ans, sagði í samtali við Morgunblað- ið að hugsanlegt væri að bæði yrði um hækkanir og lækkanir að ræða en ekkert væri enn ákveðið í þess- um efnum, enda hefði forstjóri verið að benda hluthöfum á hugsanlega möguleika á tækifærum innan fé- lagsins til að ná fram frekari arð- semi. Heiðrún segir að ekki sé gert ráð fyrir hækkunum í rekstraráætlun- um Símans eins og fram hefði kom- ið í ræðu forstjórans á aðalfund- inum. „Síminn starfar í viðkvæmu sam- keppnisumhverfi og því er skýr að- greining á milli einstakra rekstr- areininga. Eðli málsins samkvæmt greiðir Síminn ekki suma þætti nið- ur með öðrum en ljóst er að eining- arnar eru misarðsamar, og er það atriði sem líta þarf til.“ Heiðrún segir að helst megi nefna að þrátt fyrir þær hækkanir sem orðið hafa á afnotagjaldi á fastlínu skili sá hluti rekstrarins ekki við- unandi niðurstöðu. „Þar sem Síminn er markaðsráðandi félag þá er í lög- um lögð á félagið alþjónustukvöð sem felur m.a. í sér að fyrirtækið verður að bjóða vissa þjónustu á sanngjörnu verði um allt land, burt- séð frá því hvort að það myndi skila viðunandi arði í öllum tilvikum. Gert ráð fyrir 1.800 milljóna hagnaði í ár Við tökum þátt í að rauða strikið haldi og höfum tekið á okkur hækk- anir og náð fram sparnaði. Forstjór- inn benti líka á að markmið Símans væri að lækka kostnað fyrirtækisins um 3% og er þegar hafin vinna vegna þessa markmiðs,“ segir Heið- rún og bendir á að ný stjórn muni fá það verkefni að huga að leiðum í þessu sambandi. Meðal grunnþátta Símans sem skila mestum hagnaði er rekstur farsímakerfisins, að sögn Heiðrún- ar, en mesta veltan kemur frá fast- línukerfinu. „Á Íslandi er að finna lægsta símakostnað meðal OECD-ríkja, og á það bæði um farsíma og hefð- bundna símaþjónustu. Sá árangur er ekki síst því að þakka að Síminn hefur á undanförnum áratugum byggt upp öflugt og öruggt fjar- skiptanet um allt land með hag- kvæmum hætti. Síminn skilaði rétt um milljarði í hagnað í sl. ári eða um 7,8% arð- semi á eigin fé. Ekki er óeðlilegt að tilvonandi hluthafar og fjárfestar geri 12–15% arðsemiskröfu á eigið fé. Síminn verður að uppfylla þá arðsemiskröfu. Til að uppfylla þá kröfu verður stöðugt að endurskoða kostnað og leita að nýjum tekju- og hagræðing- armöguleikum. Gera áætlanir ráð fyrir að arðsemi á eigin fé á þessu ári verði 12 til 13%. Þrátt fyrir óvægna umræðu undanfarnar vikur er Síminn góður fjárfestingarval- kostur og áhættulítill og góðir möguleikar eru innan fyrirtækisins að ná fram frekari hagnaði. Á þessu ári er gert ráð fyrir að hagnaður fé- lagsins verði um 1.800 milljónir,“ segir Heiðrún að lokum. Verðbreytingar ekki ákveðnar hjá Símanum Hugsanlega bæði hækkanir og lækkanir VIKAN10/3 –16/3 ERLENT INNLENT NÝTT hverfi er fyr- irhugað á Garðaholti á Álftanesi en skipulag svæðisins gerir ráð fyrir um 8 þúsund manna byggð. Það myndi þýða að íbúafjöldi í Garðabæ tvö- faldast. LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi tillaga til þings- ályktunar um úttekt á óhreyfðum skipum í höfn- um landsins. Einnig verði kannaður fjöldi strand- aðra skipa og skipsflaka nálægt landi. Þá verði og kannaður kostnaður við að fjarlægja skipin eða flökin og láta endurvinna þau. EITT hundrað milljóna króna segull í 150 milljóna króna segulómtæki eyði- lagðist á miðvikudag þeg- ar hann slitnaði úr bönd- um þegar hífa átti hann af bílpalli. Tækið er í eigu Hjartaverndar sem þarf þó ekki að bera tjónið en verður fyrir óþægindum. SAMTÖK verslunar- innar hafa kært auglýs- ingu til siðanefndar Sam- bands ísl. auglýsingastofa. Er það dagskrárauglýsing frá Sýn þar sem bent er á veikindadaga í sambandi við íþróttaviðburði sem á dagskrá eru í miðri viku. Þykir samtökunum aug- lýsingin hvetja til lög- brota. HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt að forsætisráðu- neytinu beri að veita Ör- yrkjabandalagi Íslands að- gang að minnisblaði sem fylgdi skipun starfshóps í kjölfar svonefnds ör- yrkjadóms. Norsk Hydro vill fresta álveri NORSK Hydro vill fresta byggingu ál- vers á Reyðarfirði. Forráðamenn fyr- irtækisins hafa gefið íslenskum stjórn- völdum það til kynna og jafnframt að þeir séu ekki reiðubúnir að setja fram nýja tímaáætlun. Ekki er vitað hversu lengi þeir vilja fresta framkvæmdum en ráðgert var að taka ákvörðun um byggingu álvers með haustinu. Banaslys í umferðinni orðin 9 TVÖ banaslys urðu í umferðinni. Ann- ars vegar lést 12 ára stúlka í árekstri tveggja jeppa og fólksbíls ofarlega í Lögbergsbrekku á Suðurlandsvegi. Hins vegar lést 69 ára karlmaður er bíll hans lenti í árekstri við gámaflutninga- bíl við Móa á Kjalarnesi. Það sem af er árinu hafa orðið níu banaslys í umferð- inni. Öll urðu þau utan þéttbýlis. Eimskip eykur hlut í sjávarútvegsfyrirtækjum EIMSKIP hefur aukið hlut sinn í Út- gerðarfélagi Akureyringa í 55,3% og Skagstrendingi í 40,7%. Kaupverð hins aukna hlutar er samanlagt um 1,4 milljarðar króna. Kaupin hafa í för með sér breytingu á skipulagi Eimskips sem verður nú rekið á þremur meg- insviðum: flutningastarfsemi, fjárfest- ingum og sjávarútvegi. Alvarlegt flugatvik rannsakað FLUGATVIK við Gardermoen-flug- völl norðan við Osló 22. janúar er Flug- leiðaþota hætti skyndilega við lendingu og tók aukahring er til rannsóknar hjá Rannsóknastofnun flugslysa í Noregi. Atvikið er talið alvarlegt en þotan var nálægt 300 fetum frá jörðu þegar hún hækkaði flugið á ný. Mestu hernaðarað- gerðir Ísraela í 20 ár ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna samþykkti á þriðjudag ályktun þar sem það ljær í fyrsta sinn máls á stofnun palestínsks ríkis. Bandaríkja- menn lögðu ályktunina fram og er þar hvatt til þess að Ísraelar og Palest- ínumenn búi „í friðsemd í ríkjum inn- an viðurkenndra landamæra“. Palest- ínumenn fögnuðu ályktuninni. Tugir Palestínumanna biðu bana í árásum sem Ísraelsher hóf á mánu- dag á flóttamannabúðir og fleiri skot- mörk á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu. Voru þetta mestu hernaðar- aðgerðir Ísraela í tvo áratugi, eða frá innrásinni í Líbanon 1982. Ísraelskir hermenn fóru frá Ramal- lah og fleiri bæjum á Vesturbakkan- um á föstudag eftir að Anthony Zinni, sendimaður Bandaríkjastjórnar, hóf viðræður við leiðtoga Ísraela og Pal- estínumanna um vopnahlé. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísr- aels, tilkynnti á mánudag að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, væri frjáls að fara hvert sem hann vildi á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum en ekki til annarra landa án leyfis Ísr- aela. Arafat hafði verið haldið í herkví í Ramallah í þrjá mánuði. Kjöri Mugabes hafnað YFIRVÖLD í Zimbabve sögðu á mið- vikudag að Robert Mugabe forseti hefði verið endur- kjörinn í kosning- unum um síðustu helgi. Andstæðing- ur Mugabes, Morg- an Tsvangirai, hafnaði úrslitunum og sakaði hann um kosningasvik. Nokkrar eftirlits- nefndir, sem fylgdust með kosningun- um, sögðu að þær hefðu ekki verið frjálsar og lýðræðislegar. Robert Mugabe  STJÓRNVÖLD í Serb- íu og Svartfjallalandi undirrituðu á fimmtudag sögulegan sáttmála um endurskipulagningu sam- bandsríkisins Júgóslavíu í því skyni að koma í veg fyrir upplausn þess. Verð- ur það nefnt Serbía og Svartfjallaland en heitið Júgóslavía hverfur lík- lega á vit sögunnar með haustinu.  RÉTTARHÖLD hófust á þriðjudag í máli Rahmis Sahindals, innflytjanda í Svíþjóð sem sakaður er um að hafa myrt dóttur sína, Fadime. Saksókn- arinn í málinu krafðist þess að Sahindal yrði dæmdur í lífstíðarfang- elsi.  GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti skoraði í ræðu, sem hann flutti á mánudag, á ríki heims að hvika hvergi í baráttunni gegn hryðjuverka- starfsemi. Hálft ár var þá liðið frá hryðjuverkunum 11. september og var þess minnst með ýmsum hætti um allt landið, ekki síst í New York.  PADDY Ashdown, fyrrverandi leiðtogi Frjálslyndra demókrata í Bretlandi, bar vitni fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag á fimmtudag. Sagði hann að Slobodan Milos- evic, fyrrverandi leiðtogi Serba, og Franjo Tudjm- an, fyrrverandi forseti Króatíu, hefðu gert leyni- legt samkomulag um að skipta Bosníu á milli sín en þar er hátt í helmingur íbúa múslímar. Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is Thailand í tísku! FÁIÐ NÁNARI FERÐALÝSINGU Á SKRIFST. PÖNTUNARSÍMI: 56 20 400 Thailandsferðir einst. 9 d. flug og gist. frá kr. 111.100! Óviðjafnanlegar skipulagðar ferðir m. fararstjórn. 17 d. Undra Thailand- 17. apríl - 3. maí dýrðardagar í ævintýra- heimi: BANGKOK-AYUTTHAYA- JOMT- IEN PÁLMASTRÖND - Lága verðið! Um- mæli farþega: „Við spurðum okkur sjálf, hvað við hefðum getað gert í Evrópu fyrir þennan pening? Við hefðum eytt meiru í vikuferð til London!“ „Veðrið, fegurðin, fjöl- breytnin, þjónustan og gæðin léku við okkur sem aldrei fyrr á ferðalögum.“ Síðasti pönt- unardagur mán. 18. mars! Stóra Thailandsferðin- 29. maí - 14. júní 17 d. Glæsiferð, sýnir allt það besta í Thailandi Bangkok-River Kwai-Pitsanuloke-Sukuthai-Chiang Mai-Chiang Rai og í lokin yndisleg stranddvöl á PHUKET eða JOMTIEN. Síðustu brottfarir að sinni á frábærum kjörum. Grípið tækifærið - upplifið töfra hins aust- urlenska heims með Heimsklúbbnum, sér- fræðing í ferðum á fjarlæga staði. Tryggið ykkur ferð á lága verð- inu strax! Thailandsferðir Alveg ótrúlegar nýjar Heimsklúbbsins - Príma CAPE SUN HÓTEL SAMBAND ungra framsókn- armanna hyggst næstu tvær vik- urnar vekja athygli á því sem það nefnir stærsta heilbrigðisvandamál ungs fólks á Íslandi, þ.e. málum sem tengjast kynlífi í víðum skilningi. Var málið kynnt á blaðamanna- fundi á biðstofu húð- og kyn- sjúkdómadeildar Landspítalans. Um leið nýtti framkvæmdastjórn SUF sér þjónustu deildarinnar með því að fara í viðtal hjá hjúkr- unarfræðingi. Ungir framsóknarmenn segja kynningu sína snúa einkum að kyn- sjúkdómum, ótímabærum þung- unum og fóstureyðingum. „Af ein- hverjum orsökum hafa þessi mál ekki verið svo áberandi á dagskrá stjórnmálanna á Íslandi en við von- umst til þess að koma þessu máli á dagskrána með því að vekja máls á því og hversu alvarlegt það er og benda jafnframt á leiðir til úrbóta,“ segir m.a. í frétt frá SUF. Þá er sett fram eins konar réttindaskrá þar sem bent er á nauðsyn þess að fræð- ast um kynlíf, réttinn til að taka ákvarðanir um eigið kynlíf, rétt til varna gegn óæskilegum fylgi- fiskum þess og rétt til heilbrigð- isþjónustu. Vilja um- ræðu um kynlífsmál Morgunblaðið/Sverrir Ungir framsóknarmenn nýttu sér þjónustu húð- og kynsjúkdómadeildar Landspítala í tengslum við herferð sína um kynlífsmálefni. NÝJAR reglur innan Evrópusam- bandsins um sérstök gjöld á flugfélög sem njóta góðs af ríkisstyrkjum munu ekki hafa áhrif á EES og þar með ekki hér á landi að mati sam- gönguráðuneytisins. Í Morgunblaðinu á miðvikudaginn var kom fram að framkvæmdastjórn ESB hefur lagt drög að nýjum reglum sem myndu gera henni kleift að leggja sérstök gjöld á flugfélög frá Bandaríkjunum, Sviss og fleiri ríkjum utan ESB teljist þau njóta góðs af rík- isstyrkjum í samkeppni við flugfélög frá löndum Evrópusambandsins. Ragnhildur Hjaltadóttir, skrif- stofustjóri í samgönguráðuneytinu, sagði, aðspurð hvort þessar reglur gætu haft áhrif hér á landi, að fyrstu viðbrögð ráðuneytisins væru þau að þessar reglur hefðu ekki áhrif á Evr- ópska efnahagssvæðinu, þ.e.a.s. á Ís- landi, Noregi og í Liechtenstein. Ástæðan væri sú að á Evrópska efna- hagssvæðinu giltu sömu samkeppnis- reglur og innan Evrópusambandsins og þess vegna yrðu þessi gjöld ekki lögð á flugfélög frá löndum á EES. Gjöld á flugfélög utan ESB Hafa ekki áhrif á EES- svæðinu ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.