Morgunblaðið - 17.03.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 17.03.2002, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 17. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. f í t o n / s í a www.bi.is Þú fellur aldrei á tíma í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans SKOÐANAKÖNNUN Samtaka iðn- aðarins um viðhorf landsmanna til hugsanlegrar aðildar að Evrópusam- bandinu hefur vakið athygli í Noregi. Í könnuninni kemur fram að 91% svarenda er fylgjandi því að teknar verði upp viðræður við ESB þar sem kannað verður hvaða kostir bjóðast. Um leið og Ísland sækir um aðild að Evrópusambandinu hrynur samn- ingurinn um Evrópska efnahags- svæðið. Þá neyðist Noregur til að hefja umsóknarferlið, segir Gunnar Bolstad, framkvæmdastjóri Evrópu- hreyfingarinnar í Noregi. Er þetta haft eftir honum í netútgáfu norska blaðsins Dagsavisen. Norski utanríkisráðherrann, Jan Petersen, segir í Aftenposten að Norðmenn fylgist vel með ESB-um- ræðunni á Íslandi og aðild Íslands að ESB myndi þýða endurskoðun mála í Noregi. Aðstæður verði aðrar í Nor- egi ef Ísland lendi hinum megin borðsins og aðild Íslands muni hafa afleiðingar fyrir norskan sjávarútveg. Gunnar telur að síðasta skoðana- könnun hérlendis sýni þá kröfu al- mennings að hefja beri viðræður við ESB. Vísar hann þar í skoðanakönn- un á vegum Samtaka iðnaðarins þar sem fram kemur að rúmlega helm- ingur þjóðarinnar sé hlynntur aðild að ESB og að 91% vilji hefja viðræður til að kanna hvað Íslandi standi til boða með aðild. Þá telur Gunnar held- ur ekki ólíklegt að Íslendingar og ESB finni málamiðlun um sjávarút- vegsmálin. Hann segir ógerlegt að halda EES-samningnum áfram án Ís- lands, þá verði Noregur einn eftir fyr- ir utan Liechtenstein sem standi að eftirlitsstofnuninni og það muni ESB ekki samþykkja. Gunnar Bolstad tel- ur líklegt að ESB-umræða á Íslandi hefjist fyrir alvöru eftir kosningarnar á næsta ári og þá muni hún einnig hefjast á ný í Noregi. Talsmaður norsku hreyfingarinnar „Nei við ESB“, Sigbjörn Gjelsvik, segir hins vegar í sama miðli að Ís- land muni ekki ganga í ESB á næstu árum, of mikið beri í milli í fiskveiði- málunum. Hann segir einnig að þó að Íslendingar sæki um aðild þurfi Norðmenn ekki endilega að gera það einnig. Ný könnun Samtaka iðnaðarins vekur athygli í Noregi EES hrynur ef Ís- land sækir um ESB FOSSINN Gljúfrabúi undir Eyjafjöllum getur tekið á sig ýmsar myndir í vetrarbúningnum. Er Morgunblaðsmenn voru þarna á ferðinni nýlega varpaði sterk sólin skemmtilegri birtu niður á vatnsfallið, sem er rétt innan við Seljalandsfoss og skammt frá veginum á leið inn í Þórsmörk. Ganga þarf inn á milli hamrabjarga til að nálg- ast fossinn og þá getur blasað við þessi ægifagra sjón. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gljúfrabúi í vetrarbúningi ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Col- umbia, dótturfyrirtæki Sony Music, hyggst á næstunni gefa út hljómdisk með upptöku af tónleikum Quarashi og Sinfón- íuhljómsveitar Íslands, sem haldnir voru í Háskólabíói 25. október sl., að sögn Sölva Blön- dal og Ómars Arnar Hauksson- ar, meðlima hljómsveitarinnar Quarashi. Columbia gefur jafn- framt út plötuna Jinx sem er fyrsta breiðskífa Quarashi sem kemur út á erlendri grund. Columbia gefur út Quarashi og Sinfóníuna  „Ánægðir ...“/B2 KJARANEFND hefur úrskurðað að vinna lækna vegna vottorða teljist hluti af aðalstarfi þeirra. Nefndin hefur nú til úrlausnar ósk heilbrigð- isráðuneytisins um að hún endur- skoði laun heilsugæslulækna vegna reglugerðar sem heilbrigðisráðherra setti um síðustu áramót um að greiðslur til lækna vegna vottorða skuli renna til heilsugæslustöðva. Úrskurður kjaranefndar var kveð- inn upp sl. fimmtudag. Þórir B. Kol- beinsson, formaður Félags ísl. heim- ilislækna, segir úrskurðinn áfanga í því verkefni nefndarinnar að endur- skoða laun heilsugæslulækna. Hann kveðst ekki ánægður með að vinna heimilis- og heilsugæslulækna við vottorð skuli skilgreind sem hluti af aðalstarfi þeirra. Vinna við vottorð, nema þau allra einföldustu, hafi yf- irleitt verið unnin utan venjulegs dagvinnutíma og læknar fengið sér- staklega greitt fyrir vottorðin. Vinna við vottorð hluti af aðalstarfi lækna HÆSTIRÉTTUR hefur hafnað kröfu gæsluvarðhaldsfanga um að honum verði heimilt að fá heimsóknir og fylgjast með fjölmiðlum. Staðfesti Hæstiréttur úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur. Fyrir héraðsdómi benti lögregla á að ekki væri útilokað að fleiri gætu tengst brotunum. Telur lögreglan að gæsluvarðhaldsfanginn hafi ekki að fullu greint frá þætti sín- um í þeim afbrotum sem hann hafi játað og að aðdragandi þeirra sé ekki að fullu skýrður. Fanginn var handtekinn 18. febr- úar vegna gruns um innbrot og mann- dráp. Játaði hann brotin þann dag og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan með þeim takmörkunum sem lög heimila. Eru einungis gerðar undan- tekningar með sérstöku samþykki lögreglu, þ.e. að hann fái að hitta for- eldra sína og barnsmóður og fái að taka við pósti frá ættmennum og vin- um. Hann hefur þó verið opnaður og lesinn yfir af lögreglu. Verjandi mannsins mótmælti þess- um takmörkunum og var þess krafist að fanganum yrði heimilað að fá heimsóknir, lesa dagblöð og fylgjast með útvarpi og sjónvarpi. Hann hefði greint frá þætti sínum og engin rök fyrir því að hann gæti haft áhrif á rannsóknina. Héraðsdómur Reykja- víkur hafnaði 8. mars kröfu fangans um að aflétt yrði takmörkunum og staðfesti Hæstiréttur þann úrskurð. Aðdrag- andi brota talinn óskýrður Hæstiréttur staðfestir úrskurð vegna gæslu- varðhaldsfanga SKIPTAFUNDUR fór fram fyrir helgi í þrotabúi Samvinnuferða- Landsýnar. Alls var hátt í 900 millj- ónum króna lýst í búið sem almenn- um kröfum og að sögn Ragnars H. Hall, skiptastjóra þrotabúsins, stefnir allt í að ekkert muni fást upp í þær kröfur. Gerði Ragnar kröfu- höfum grein fyrir þessu á skipta- fundinum. Launakröfur 100 milljónir Launakröfur, sem eru forgangs- kröfur, eru hátt í 100 milljónir króna og segir Ragnar ágreining vera uppi um hve mikið af þeim kröfum verði viðurkennt. Til að fjalla um þann ágreining og aðrar kröfur verður annar skiptafundur í þrotabúinu nk. föstudag. Einnig er deilt um veðréttindi Landsbankans, sem er langstærsti kröfuhafinn í bú- ið. Aðrir stórir kröfuhafar eru Ís- landsbanki, Flugleiðir, innlendar og erlendar ferðaskrifstofur og erlend flugfélög. Ragnar segir að enn sé talsverður hluti krafna, sem Samvinnuferðir- Landsýn áttu á hendur öðrum, óinn- heimtur. Því sé óljóst hversu mikið fæst upp í forgangskröfur en eins og staðan er núna segir Ragnar að þrotabúið eigi ekki inneign nema fyrir hluta af launakröfum. Ekkert fæst upp í almenn- ar kröfur 900 milljóna kr. kröfur í þrotabú SL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.