Morgunblaðið - 17.03.2002, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 17.03.2002, Blaðsíða 45
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MARS 2002 45 Viðskiptatækifæri Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050 www.hofdi.is Frábært tækifæri fyrir samhenta fjölskyldu til að skapa sér skemmtilega vinnu. Um er að ræða sölu á rótgrónu og þekktu veitingahúsi sem staðsett er á Höfðuborgarsvæðinu. Mikil bjór og matsala. Allar nánari upplýsingar á Fasteignasölunni Höfða. EIGNIR ÓSKAST  Sérbýli á Seltjarnarnesi ósk- ast. Höfum kaupanda að einbýlis-, rað- eða parhúsi á Seltjarnarnesi fyrir traustan viðskiptavin sem flytur til landsins nk. haust. Mjög góðar greiðslur í boði. Vest- urbær og Fossvogur koma einnig til greina. Upplýsingar gefur Þorleifur. EINBÝLI  Aratún - einlyft einbýlishús - laust. Glæsilegt einlyft um 187 fm einbýlishús auk um 35 fm sólstofu. Húsið hefur tölu- vert mikið verið standsett, m.a. gólfefni, nýtt þak o.fl. Góð upphituð hellulögð innkeyrsla. Húsið er laust nú þegar. V. 21,9 m. 2219 Sunnubraut Frábærlega vel staðsett einlyft 155 fm einbýlishús auk 24 fm bílskúrs sem stendur niður við sjóinn. Eignin skiptist m.a. í forstofu, snyrtingu, hol, borðstofu, eldhús, búr, þvottahús, bókastofu, bað- herbergi og þrjú herbergi. Falleg lóð, góð aðkoma. Húsið þarfnast einhvers viðhalds og endurnýjunar. V. 18,9 m. 2201 Bláskógar Vorum að fá í sölu gott tvílyft einbýlishús í Seljahverfinu. Húsið er 220 fm með innbyggðum bílskúr. Ný eldhúsinnrétt- ing, arinn og ný sólstofa. Fallegur og gróinn garður. V. 24,9 m. 2183 Laufásvegur - einbýli. Um er að ræða steinsteypt einbýli á tveimur hæðum á einum besta stað í Þingholtunum, húsið er í dag um 105 fm en með því fylgja samþ. byggingarnefndarteikningar sem heimila stækkun upp í 167 fm. V. 13,5 m. 1861 HÆÐIR  Aragata. Rúmgóð 190 efri sérhæð í virðulegu steinhúsi ásamt 27 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað sem skiptist í stóra stofu, borðstofu, sólstofu, eldhús, baðher- bergi. Arinn í stofu, parket á gólfi, rúm- góð herbergi, allt sér. Íbúðin er laus fljót- lega. V. 22,0 m. 2212 4RA-6 HERB.  Ljósheimar. Falleg 4ra herbergja 97 fm íbúð á 8. hæð með sérinngangi af svölum og glæsilegu útsýni. Eignin skiptist m.a. í stofu, þrjú herbergi, eldhús og baðherbergi. Blokk- in er öll nýtekin í gegn. Mjög góð íbúð. V. 12,3 m. 2213 Hraunbær - rúmgóð. 4ra herb. um 110 fm falleg íbúð á 2. hæð. Parket á gólfum. Baðherb. flísl. í hólf og gólf. Mjög hagstætt verð. Ákv. sala. V. 10,9 m. 2224 Engihjalli - glæsileg íbúð. Mjög falleg 4ra herb. 114 fm íbúð á 8. hæð með frábæru útsýni. Íbúðin skiptist m.a. í hol, þrjú herbergi, góða stofu, eld- hús og nýstandsett baðherbergi. Nýtt eikarparket á gólfi. Blokkin er nýviðgerð og máluð. Gervihnattasjónvarp. V. 12,3 m. 2226 2JA OG 3JA HERB.  Núpalind m. bílskýli - skipti á 2ja herb. 3ja herb. 114,5 fm glæsil. íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu. Mjög stórar stofur. Sérþvottahús. Skipti á 2ja herb. íbúð í lyftuhúsi æskileg. 2225 Veghús - laus strax. 3ja herb. falleg og björt íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi. Íb. skiptist í gang, baðherbergi, tvö svherbergi, stofu, eldhús og þvotta- herbergi. Fallegt útsýni. V. 9,7 m. 2217 Arnarsmári Falleg 4ra herbergja 104 fm íbúð á jarð- hæð á þessum vinsæla stað. Eignin er í dag nýtt sem 3ja herbergja og skiptist m.a. í stofu, borðstofu, eldhús, baðher- bergi og tvö herbergi. Góð eign. 2221 Rjúpnasalir 6-8, Opið hús í dag milli kl. 13-16.00 Nú eru eftir aðeins eftir nokkrar glæsilegar íbúðir í þessum fallegu og vönduðu fjölbýlishúsum. Aðeins sex íbúðir í hvoru húsi. Möguleiki að kaupa bílskúr. Íbúðirnar eru 4ra herbergja, 120 fm og afhendast full- búnar með vönduðum innréttingum, skápum og tækjum en án gólf- efna. Tvennar svalir á miðhæðum. Hagstætt verð eða 15,3 m. Seljandi tekur á sig afföll af húsbréfum. Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu. Frábær staðsetning rétt við óspillta náttúru í skjóli Rjúpna- hæðarinnar. Fallegt útsýni. Í húsinu eru nú þegar tilbúnar tvær sýn- ingaríbúðir sem hægt er að skoða í dag. Sölumenn og byggingaraðili verða á staðnum. 1198 Glæsileg ca 92 fm 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi. Tvö góð svefnherbergi og björt og falleg stofa og borðstofa með útgengi út á góðar svalir. Parket og flísar á gólfum og þvottahús í íbúð. Frábært útsýni. Áhv. ca 6,0 millj. Verð 12,9 millj. Bryndís og Hermann taka vel á móti fólki milli kl. 14 og 17 í dag. Arnarsmári 22 - Opið hús í dag www.holtfasteign.is Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali, Suðurlandsbraut 54, 108 Rvík. Sími 568 2444, fax 568 2446. Netfang asbyrgi@asbyrgi.is RÉTTARHÁLS 1.300 FM VERSLUNARHÚSNÆÐI Til sölu mjög gott ca 1.300 fm verslunarhúsnæði við Réttarháls nr. 2 við hliðina á Rekstrarvörum. Húsnæði hefur mikið auglýsingargildi og býður upp á ótal nýtingarmöguleika, svo sem verslunarhús, þjónustu, lager eða iðnað. Mikil lofthæð og stórir gluggar. Stórar innkeyrsludyr. Húsnæðið er í mjög góðu ástandi, m.a. með góðu loftræstikerfi, vönduðum skrifstofum, kaffistofu með innréttingu o.fl. Stórt malbikað bílaplan. Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali, Suðurlandsbraut 54, 108 Rvík. Sími 568 2444, fax 568 2446. Netfang asbyrgi@asbyrgi.is BARÐASTAÐIR 37, 39 og 43 SÖLUSÝNING Í DAG KL. 14-16 3 glæsileg 225,6 fm raðhús á tveimur hæðum með tvöföldum innbyggum bílskúr. Húsin seljast fullfrágengin að utan, steinuð og með aluzikjárni á þaki, en í fokheldu ástandi að innan. Á neðri hæð er að auki 40 fm gluggalaust rými. Húsin eru til afhendingar strax. SELT KRINGLUNNI 4-12, s. 800 6000 OPIÐ HÚS Í DAG GRETTISGATA 27 - MIÐBÆR MÖGULEIKI AÐ ÚTBÚA AUKAÍBÚÐ! Í sölu mikið endurnýjað 153,2 fm einbýlishús með stórum garði. Nýtt járn og nýtt rafmagn. Sex svefnherbergi. Verð 17,9 millj. Áhv. 8,3 millj. LAUST FLJÓTLEGA! Þau Frank og Margrét bjóða ykkur velkomin til sín í dag á milli kl. 15 og 18. Eldri borgarar skora á ríki og borg Vilja hækka grunn- lífeyri AÐALFUNDUR Félags eldri borgara í Reykjavík var haldinn ný- lega í félagsheimili félagsins, Ás- garði, Glæsibæ. Á fundinum, sem var mjög fjölmennur, voru sam- þykktar samhljóða að beina eftir- farandi tillögum til ríkisvaldsins: „1. Að grunnlífeyrir hækki til samræmis við þær hækkanir sem átt hafa sér stað á verkamanna- launum frá 1995 til 2001 og fylgi síðan alm. launavísitölunni. 2. Að frítekjumörk almanna- trygginga og skattleysismörk verði alltaf látin fylgja almennri launaþróun í landinu. 3. Að gera verulegt átak til að fjölga hjúkrunarrýmum fyrir aldr- aða bæði til langtíma og skamm- tímavistunar og bæta þannig úr neyð þeirra mörgu sem eru á bið- listum. 4. Að efla heimahjúkrun og auka samvinnu við heimaþjónustu.“ Félagið samþykkti einnig að beina því til Reykjavíkurborgar að afnema nú þegar eignaskatt á íbúð- ir sem eigendur búa í og að hækka aldursskilyrði fyrir úthlutun á styrkjum til bifreiðakaupa fyrir hreyfihamlaða. Félagið skoraði einnig á borg- arstjórn að fjölga þjónustuíbúðum á vegum Reykjavíkurborgar og koma á samskonar þjónustu í fjölbýlis- húsum í eigu aldraðra. Einnig vildi hatti fundurinn borgina til að auka samvinnu á milli heimaþjónustunn- ar og heimahjúkrunar. Og að síð- ustu skoruðu eldri borgarar á borg- arstjórn að beita sér nú þegar fyrir lækkun fargjalda með strætisvögn- um til ellilífeyrisþega til jafns við fargjöld öryrkja. Í stjórn voru kosin: Margrét Margeirsdóttir, María H. Guð- mundsdóttir, Marías Þ. Guðmunds- son, Stefán Ólafur Jónsson, Sólveig Pálmadóttir, Þórir Daníelsson og Þórunn Lárusdóttir. Fyrir eru í stjórn: Baldvin Tryggvason, Bryn- dís Steinþórsdóttir, Halldóra H. Kristjánsdóttir, Helga Gröndal, Jón Jónsson, Pétur Guðmundsson og Sigfús J. Johnsen. Í varastjórn voru kosin: Halldór Þorsteinsson, Guðmundur Jóhannsson og Arnljót- ur Sigurjónsson, fyrir eru: Þórunn Pálsdóttir, Sigurður Pálsson og Ol- geir Möller. Formaður félagsins er Ólafur Ólafsson. Íslenska fisk- veiðistjórn- unarkerfið NÁMSKEIÐIÐ um íslenska fisk- veiðistjórnunarkerfið verður haldið miðvikudaginn 20. og fimmtudaginn 21. mars kl. 16.30-19 hjá Endur- menntun HÍ. Fjallað verður um helstu þætti fiskveiðistjórnunarkerfisins, m.a. um úthlutun veiðiheimilda, framsal og nýtingu þeirra, vigtun og skrán- ingu afla og reglur um hvernig afli er reiknaður til kvóta. Helstu hug- tök sem notuð eru í umræðu um stjórnun fiskveiða verða skýrð og fjallað um mikilvægustu ákvæði laga og reglugerða á þessu sviði. Kennarar: Árni Múli Jónasson að- stoðarfiskistofustjóri og Guðmund- ur Kristmundsson sjávarútvegs- fræðingur. Verð: kr. 18.200. Nánari upplýs- ingar og skráning: http://www.end- urmenntun.hi.is, eða í síma hjá Endurmenntun HÍ, segir í frétta- tilkynningu. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.