Morgunblaðið - 17.03.2002, Side 58

Morgunblaðið - 17.03.2002, Side 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 17. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ 20 % afsláttur til páska Litun - Strípur - Permanent Hársnyrtistofan Mýrún Kleppsvegi 150 - Sími: 5 888 505 Marion McGreevy Margrét Þorsteinsdóttir Munið líka ljósabekkina okkar MARGIR hafa lýst tilkomu Fidel í ís- lenska „tónlistarbransann“, sem ferskum andvara. Nú sé loksins farið að rokka á ný... og syngja! Munið þið eftir því? Það má nefnilega spyrja sig hvort djúpt og dreymandi síðrokk sveita eins og Tortoise, Mogwai og God- speed You Black Emperor! sé á leið- inni út? Vinsældir „hei, gerum það bara!“ hljómsveita eins og Strokes, Hives og Black Rebel Motorcycle Club renna einhverjum stoðum undir þessa stað- hæfingu og klárt mál að Fidel horfi fremur til spriklandi, rokkandi neð- anjarðarsveita eins og Les Savy Fav, The Dismemberment Plan og ...And You Will Know Us by the Trail of Dead fremur en til værðarsveitanna sem voru nefndar áðan. Ætli það sé að rætast enn og aftur það sem Bryan Adams kvað: „Hvert sem þú ferð, þar krakkar vilja rokk!“ Breiðskífa Fidel heitir því athygl- isverða nafni Good Riddance = New Entrance og er gefin út af undirmerki Eddu – miðlunar og útgáfu, Hitt Re- cords í góðu samstarfi við útgáfu Fid- el-manna, Kill Fuck Die Records. Fyrir u.þ.b. ári gekk til liðs við Fidel ungur maður að nafni Andri Freyr Viðarsson, en hann hefur verið með virkari mönnum í neðanjarðarsenu Íslands undanfarin ár. Hans varð fyrst vart sem gítarleikara í hinni frá- bæru Bisund, sem hafnaði í öðru sæti Músíktilrauna árið 1998. Þá hefur hann unnið markvisst að kynningu neðanjarðarrokks í gegnum útvarps- þátt sinn, Karate, og þá lék hann á tímabili með gæðasveitinni Botn- leðju. Með tilkomu Andra í Fidel breytt- ist svipmót hennar töluvert. Þeir pilt- ar hófu að hefja upp raustina og ...ja...bara rokka feitt. Hér á eftir svarar Andri fyrir sig og sveitina, eins og honum einum er lagið. Ekki erfitt að opna sig Segðu mér nú aðeins frá sögu hljómsveitarinnar Fidel? „Humm...já...hún byrjaði sem tríó fyrir þremur árum. Þá var hún alger- lega án söngs og það bar fremur lítið á henni. Ég kom inn í þetta fyrir um það bil einu og hálfu ári. Ég átti þá að vera gestur í einu lagi á tónleikum en þetta gekk bara svo vel að ég var tek- inn inn í bandið. Svo höfum við verið að prófa hinar og þessar stefnur og erum í rauninni ennþá að því.“ Ertu ánægður með plötuna? „Ég er það já. Ég er mjög ánægð- ur. Þarna er mikið af gömlum lögum sem við vildum koma frá okkur og efnið á plötunni er töluvert frábrugð- ið því sem við erum að gera í dag.“ Og platan var tekin upp með er- lendum upptökumanni? „Já. Hann heitir Swell og kemur frá Sviss. Hann bjó hér í hálft ár og þá spiluðum við saman, ég, hann, Frosti í Mínus og Einar í Singapore Sling. Það efni fór nú aldrei út fyrir bílskúr- inn. Swell flutti svo aftur út og við höfum haldið góðu sambandi síðan.“ Að hverju er svo stefnt í ár? „Við förum sennilega til Frakk- lands og Sviss í júní ásamt Stjörnu- kisa. Við ætlum svo að senda plötuna út á hin og þessi fyrirtæki og reyna fyrir okkur erlendis.“ En hvað finnst þér um aðrar ís- lenskar sveitir sem eru á svipaðri línu og þið? „Mér finnst þetta allt saman stefna í rétta átt. Ég heyrði í hljómsveit sem heitir Kimono fyrir stuttu, en hún hét áður Kaktus. Nú eru þeir farnir að syngja og tralla. Svo finnst mér Úlpa vera að gera vel. Einnig Sofandi og Graveslime.“ Er söngurinn að koma aftur inn? „Jaaaá ... manni sýnist það. Per- sónulega finnst mér skemmtilegra að hafa söng.“ Og hvað fjalla textarnir þá um? „Bara svona ... það fer bara eftir því hver semur þá. Ég veit t.d. ekkert hvað Búi er að syngja um. Þetta er voðalega persónulegt allt saman.“ En er ekki erfitt að opna hjarta sitt svona? „Nei, í rauninni ekki. Þegar maður er með þremur gaurum sem maður þekkir alveg út í gegn er það frekar einfalt. Ég held líka að sárafáir séu að pæla í því hvað textarnir fjalla um.“ Kann ekkert á gítar En eruð þið farnir að njóta kven- hylli? „Nei! (ákveðið). Það stendur eitt- hvað á sér. Ég er að vona að það fari að hrökkva í gang hvað úr hverju. Ég auglýsi hér með eftir því.“ Já, þetta er skrýtið. Ég hélt að þetta kæmi náttúrlega með rokklíf- erninu. „Já, ég hélt það líka. Þess vegna byrjaði maður nú í þessu á annað borð. Maður var alltaf að heyra að þetta væri aðalmálið. En svo bara, viti menn! Gengur ekki neitt.“ Er það stefna hjá þér að lifa af tón- listinni? „Það væri náttúrlega best en mað- ur sér það í fjarska. Það er ekki beint markmið hjá manni en það væri alveg magnað.“ Þetta er þá ekki þannig að þú sért í hljómsveitaleik áður en þú skellir þér í lögfræðina? „Alls ekki. Ég er bara að spila á gít- ar og verð örugglega að því það sem eftir er.“ Gætir þú þá hugsað þér að spila á börum í framtíðinni? Renna þér í gegnum „Hard Day’s Night“ og fleiri slagara fyrir saltinu? „Aldrei. Það kemur ekki til mála. Aldrei. Og án gríns, þá kann ég ekki eitt einasta lag, nema þau sem ég hef samið sjálfur. Ég kann eiginlega ekk- ert á gítar.“ Hangið þið mikið saman, hljóm- sveitin? „Já, við gerum það reyndar.“ Verðið þið þá ekkert þreyttir hver á öðrum? „Nei, nei. Í rauninni ekki. Við erum allir svo helv... magnaðir.“ En er einhver svona sáttasemjari í sveitinni? „Nei, en það mætti alveg vera þar sem við gerum mikið af því að baktala hver annan. Þannig að það mætti al- veg vera einhver svona trúnaðarmað- ur innanborðs.“ Með þessum orðum kveðjum við hann Andra og gerum fastlega ráð fyrir því að Good Riddance = New Entrance sé til í öllum betri hljóm- plötuverslunum. Dreptu, taktu, deyðu Morgunblaðið/Jim Smart Fidel: F.v. Andri Freyr Viðarsson, Frosti Jón Runólfsson, Jón Atli Helgason og Búi Bendtsen. Rokksveitin Fidel hefur vakið athygli fyrir óþvingað og kæruleysislega skemmtilegt rokk. Arnar Eggert Thoroddsen rakti garnirnar úr Andra Frey Viðarssyni, söngvara og gítarleikara, í tilefni af fyrstu breiðskífu sveitarinnar. arnart@mbl.is Fidel gefur út Good Riddance = New Entrance Í SPANDEXIÐ, reima Nike-skóna og hárið úr fléttunni. Nú eru hvorki meira né minna en tvær nýjar plötur væntanlegar frá þaulsetnu þungarokks- veitinni Iron Maiden sem starfað hefur óslitið síðan 1976! Í fyrsta lagi er um að ræða end- urútgáfu á einu vinsælasta lagi Maiden, „Run to the Hills“, og kem- ur það út mánudaginn 11. mars. Um tvær smáskífur er að ræða og er tilefnið að safna fé til styrktar sjóði sem Clive Burr, upprunalegi trommuleikari Maiden sem starfaði með sveitinni árin ’77 til ’82, stofn- setti til að berjast mót MS- sjúkdómnum illvíga. Sjálfur þjáist hann af sjúkdómnum. Maiden mun svo halda tvenna tónleika í London í sama tilgangi, 21. og 22. mars. Smáskífan verður gefin út í tak- mörkuðu upplagi og í tveimur út- gáfum. M.a. verður að finna tón- leikaupptöku frá Rokk í Ríó tónleikunum sem haldnir voru í janúar á síðasta ári. Einnig verður að finna áður óútgefið efni frá þeim tíma er Burr trommaði með sveit- inni. 25. mars kemur svo á markað ný, tvöföld tónleikaplata með Maiden, sem tekin var upp á áðurnefndum tónleikum í Rio. 250.000 manns börðu sveitina þá augum og hefur hún aldrei spilað fyrir svo marga í einu á ferlinum! Platan er tvöföld og inniheldur alla þekktustu slagara Maiden eins og „Iron Maiden“, „Number Of The Beast“, „Hallowed Be Thy Name“, „Sanctuary“ og „Run To The Hills“. Einnig eru þarna nýrri lög, m.a. af síðustu plötu, lög eins og „The Wic- ker Man“, „Blood Brothers“ og „Ghost Of The Navigator“. Iron Maiden í árdaga. Clive Burr er lengst til vinstri. Aftur upp á hæðina Nýtt frá Iron Maiden

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.