Morgunblaðið - 21.03.2002, Page 24

Morgunblaðið - 21.03.2002, Page 24
ERLENT 24 FIMMTUDAGUR 21. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Freistandi sértilboð! Gríptu verkfærið 20 - 40% afsláttur af öllum verkfærum fram að páskum. á meðan það gefst Mán. til fös. kl. 8 - 18. Einnig opið í Borgartúni á laugardögum kl. 10 - 14. Bílanaust er opið: Borgartúni, Reykjavík. Bíldshöfða, Reykjavík. Bæjarhrauni, Hafnarfirði. Hrísmýri, Selfossi. Dalbraut, Akureyri. Grófinni, Keflavík. Lyngási, Egilsstöðum. Álaugarvegi, Hornafirði. www.bilanaust.is Sími 535 9000 Robert Abplanalp, sinni því hlut- verki. Hafa þær Eisenhower og Cox verið ósammála um það allt frá því að Nixon dó, og ákveðið var að skipa formlega stjórn til að stýra Nixon-stofnuninni, hvernig stjórnin ætti að vera skipuð. Eis- enhower vildi óháða stjórn en Cox að Nixon-fjölskyldan hefði þar töglin og hagldirnar. Eisenhower hafði um síðir bet- ur en fréttaskýrendur segja Cox hafa séð tækifæri til að seilast til áhrifa í málefnum Nixon- stofnunarinnar er fréttist um gjöf Rebozos. Sögð reyna að reka fleyg milli systranna Lögmaður Cox sakaði stjórn Nixon-stofnunarinnar um það á þriðjudag að reyna að reka fleyg milli Nixon-systranna í því skyni að koma höndum yfir peninga Rebozos. Eisenhower sagðist hins vegar harma að deilur þeirra systra skyldu nú hafa færst inn í rétt- arsal. „Þetta er afar dapurlegt því ég elska systur mína mjög mikið,“ sagði hún á þriðjudag. Kunnugir segja hins vegar að ósætti þeirra systra sé engan veginn nýtt af nálinni og að þær hafi vart ræðst við um árabil. Á ÞEIM átta árum sem liðin eru frá því að Richard M. Nixon lést hafa dætur hans tvær, Julie Nix- on Eisenhower og Tricia Nixon Cox, deilt hart um hvernig best sé að halda nafni forsetans fyrr- verandi á loft. Fara þessar deilur nú í fyrsta sinn fram fyrir opnum tjöldum í kjölfar þess að stjórn Nixon-stofnunarinnar í Kaliforníu ákvað að höfða mál fyrir dóm- stólum í því skyni að tryggja yf- irráð stjórnarinnar yfir fjár- munum sem ánafnaðir voru Nixon-bókasafninu. Eisenhower er fylgjandi málflutningi stjórn- arinnar en Cox vill hins vegar að fjölskyldan hafi sjálf síðasta orðið um ráðstöfun peninganna. Deilan snýst um arf sem gamall vinur forsetans, milljónamæring- urinn Bebe Rebozo, skildi eftir sig og vildi að yrði nýttur til upp- byggingar Nixon-bókasafnsins í Kaliforníu. Rebozo ánafnaði safninu um 65% eigna sinna, þ.e. um tuttugu milljónir Bandaríkjadala, eða um tvo milljarða ísl. króna. Vill Eis- enhower að stjórn Nixon- stofnunarinnar hafi yfirumsjón með peningunum en Cox telur hins vegar að virða beri óskir Rebozos um að þriggja manna nefnd, sem í sætu Cox, Eisenhow- er og annar gamall vinur Nixons, Dætur Nixons í hár saman Los Angeles Times. Hafa ekki ræðst við í mörg ár *=<!=!%!'>?&&=&(+        !  "# $ !%%%&'# (($  )  * #  !"  + * ##$$ %$ * #&'( $ &'  *!%%%#*+,-$.  & * #/0 + ,!# 1 . %   !  " $ $   +-# $ $     . /. .!     MÖLTU hefur verið neitað um undanþágu frá hinni sameiginlegu sjávarútvegsstefnu Evrópusam- bandsins (ESB). Þetta kemur fram í frétt netmiðilsins Euobserver.- com. Malta, sem nú á í aðildarvið- ræðum við ESB, hafði farið fram á að mörkuð yrði 25 sjómílna lög- saga umhverfis eyjuna þar sem allar veiðar útlendinga yrðu bann- aðar. Þar yrði sjómönnum frá Möltu einungis leyft að veiða og þá undir eftirliti stjórnvalda á Möltu. Talsmaður Günthers Verheug- ens, sem fer með málefni stækk- unar ESB á vettvangi fram- kvæmdastjórnar sambandsins, segir í samtali við Euobserver.com að stjórnvöldum á Möltu hafi þeg- ar verið greint frá því að á þetta geti ESB ekki fallist. „Vilji Möltu- búar fá aðild að Evrópusamband- inu þurfa þeir að viðurkenna bæði þau réttindi og þær skyldur sem aðild fylgja,“ sagði talsmaðurinn. Evrópusambandið er tilbúið til að fallast á ákveðnar verndarað- gerðir innan 25 sjómílna við Möltu en þær lúta að möskvastærð og fleiru til að hlífa smáfiski. Slíkar aðgerðir myndu hins vegar ekki duga til þess að halda erlendum sjómönnum frá veiðum innan 25 mílna við Möltu. Lögsaga Möltu er nú 12 mílur og innan þeirra mega einungis sjó- menn þaðan stunda fiskveiðar. Þessa lögsögu vill Malta nú stækka um 13 mílur með þeim rökum að stjórnlausar veiðar Möltubúa sjálfra myndu auk ágangs erlendra skipa eftir inn- göngu í ESB ganga að stofnum við eyjuna dauðum. Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins Möltu neitað um undanþágu Halastjarna verður sýnileg á næstu vikum Cambridge. AP. STJARNFRÆÐINGAR segja að halastjarna, sem síðast sást frá jörðu árið 1661, muni skína sem skærast á himninum á næstu vikum. Halastjarnan er nefnd Ikeya-Zhang, í höfuðið á mönnunum sem fyrstir komu auga á hana, hvor í sínu lagi, fyrsta febrúar sl. Greint var frá uppgötvuninni í tímaritinu Sky & Telescope nýverið. Kaoru Ikeya, stjörnuskoðari í Japan, kom auga á stjörnuna lágt á himni skömmu eftir sólsetur; um það bil hálfri annarri klukku- stund síðar kom Daqing Zhang, sem býr í Henan-héraði í Kína, auga á sömu halastjörnuna. Sérfræðingar telja að um sé að ræða sömu halastjörnu og heim- ildir eru um frá 1661, sem myndi þýða að hún hefði verið 341 ár að fara braut sína í geimnum. Jap- anskt dagblað greindi frá upp- götvun Ikeyas undir fyrirsögn- inni: „Getur verið að þetta sé sama halastjarnan og samúræj- arnir sáu?“ Sést lágt á vestur- himni eftir sólsetur Á norðurhveli jarðar er Ikeya- Zhang sjáanleg lágt á vestur- himni rétt eftir sólsetur. Í byrjun apríl mun hún sjást rétt fyrir dögun þegar hún fer að sveigja framhjá jörðinni á braut sinni út í geiminn aftur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.