Morgunblaðið - 21.03.2002, Blaðsíða 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2002 45
✝ Jón Valgeir Guð-mundsson, f. 19.
janúar 1920 í Múla
við Suðurlandsbraut
19. janúar 1920.
Hann lést 8. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Guðmund-
ur Kjartan Jónsson
frá Kotlaugum í
Hreppum, f. 27. jan-
úar 1885, d. 6. nóvem-
ber 1964, og Guðríð-
ur Pálína Jónsdóttir
frá Breiðholti, f. 3.
nóvember 1885, d. 4.
september 1935. Þau
bjuggu í Múla við Suðurlands-
braut. Börn þeirra eru: Svanhild-
ur, f. 4. apríl 1912, d. 28. apríl
1996, Jóna Björg, f. 17. júlí 1915,
Guðmundur Kjartan, f. 25. júní
1923, og Sigurður, f. 1925, dó á 1.
ári. Jón Valgeir kvæntist 23. ágúst
1941 Unni Rögnu Benediktsdótt-
ur, f. 7. október 1922. Foreldrar
hennar voru Benedikt Sveinsson
og Una Pétursdóttir frá Sauðár-
króki. Börn Jóns Valgeirs og Unn-
ar Rögnu eru: 1) Benedikt Reynir,
f. 30. maí 1941, kvæntur Huldu
Karlsdóttur, f. 13. mars 1943.
Börn þeirra eru a) Unnur Ragna,
f. 1962, maki Guðmundur Ingi-
mundarson, börn þeirra eru Bene-
dikt Karl, Guðrún Hulda og Jón
Valgeir; b) Benný Hulda, f. 1972,
maki Guðmann Ísleifsson, sonur
þeirra er Ísleifur. 2) Guðríður Þor-
björg, f. 24. ágúst 1946, gift Gunn-
ari Birgi Gunnarssyni,
f. 9. nóvember 1943.
Börn þeirra eru a) Val-
gerður, f. 1967, maki
Leifur Bragason, börn
þeirra eru Þorbjörg
Ásta og Þorgeir Bragi,
b) Ragna, f. 1971 maki
Guðmundur Árnason,
synir þeirra eru Árni
og Gunnar Birgir, c)
Birgir, f. 1974, maki
Karen Erlingsdóttir,
sonur þeirra er Erling-
ur Örn, d) Guðmundur
Valgeir, f. 1977, maki
Björg Jóhannsdóttir.
Jón Valgeir lærði múrverk hjá
föðurbróður sínum Sigurði Jónssyni
múrarameistara. Hann starfaði við
smíðar aðalbyggingar HÍ frá upp-
hafi og við ýmsar aðrar byggingar í
Reykjavík. Hann hóf vörubílaakstur
1942 og stundaði akstur við Reykja-
víkurhöfn og síðar hjá Kveldúlfi þar
sem faðir hans var verkstjóri. 1943
hóf Jón Valgeir akstur hjá Vita- og
hafnamálastofnun og ók með gas-
birgðir, kost og efni í vita- og hafn-
argerð víða um land. Hann varð síð-
ar birgðavörður hjá Vita- og
hafnamálastofnun og sinnti því
starfi í 17 ár eða þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Jón Val-
geir var ávallt mikill áhugamaður
um hestamennsku og gekk í Hesta-
mannafélagið Fák 1937.
Útför Jóns Valgeirs fer fram frá
Áskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Þú átt skilið þökk og hrós,
þú átt framtíð bjarta.
Ef þú verður eilíft ljós
inn í Valgeirs hjarta.
(Gunnar Kristinsson.)
Elsku eiginmaður minn, Jón Val-
geir Guðmundsson, kvaddi þetta líf
8. mars en þá var ég á sjúkrahúsi.
Langar mig að kveðja hann og
þakka fyrir 60 ára hjónaband. Hann
var yndislegur maður sem var öllum
góður. Níu langafabörn kveðja hann
og óska honum Guðs blessunar.
Mýktu sjúka og sára und,
svo ég ylinn finni.
Gef þú mér nú góðan blund
Guð af miskunn þinni.
(Ingþór Sigurbjörnsson.)
Farðu í Guðs friði, elsku Valli
minn.
Þín eiginkona,
Unnur Ragna (Agga).
Á rennur að ósi, svo er einnig um
líf Valgeirs. Það hefur runnið skeið
sitt á enda þessa heims.
Valgeir var alla tíð mikill gæfu-
maður. Ólst upp í sveit, í Múla við
Suðurlandsbraut, sem þá var í út-
jaðri Reykjavíkur. Þar vann hann
öll hefðbundin sveitastörf frá unga
aldri. Guðmundur í Múla var með
vagnhestaútgerð og þurfti Valli
ungur að axla þar ábyrgð við vinnu.
Það trúa því sennilega fáir sem eiga
börn í dag, að 12 ára gamall var
hann að aka möl í Suðurlandsbraut-
ina á hestvagni. Karlarnir í tippnum
kvörtuðu að vísu yfir þessum litla
ökumanni því það hefur eflaust
þurft að hjálpa honum að sturta
mölinni úr vagninum. Þegar við fé-
lagarnir vorum á ferð í Fossvogi nú
í vetur benti hann mér á túnskika
sem hann hafði verið að slá með
hestasláttuvél þegar loftfarið Graf
Zeppelin sveif yfir og fældi hestana
fyrir þessum unga pilti sem þá var
aðeins á tólfta ári. Þessi eldskírn og
önnur ábyrgð sem lögð var á herðar
hans gerðu hann sjálfstæðan og
atorkusaman.
Valli missti móður sína á við-
kvæmu aldursskeiði, aðeins 15 ára
gamall. 18 ára komst hann á samn-
ing í múrverki hjá föðurbróður sín-
um. Stríðið brast á og mikil atvinna
var í boði, sérstaklega hjá þeim sem
höfðu tæki til umráða. Valli sá
þarna möguleika og tókst með harð-
fylgi að verða sér úti um vörubíl árið
1942. Ári síðar fer hann að keyra
fyrir Vita- og hafnamálastjórn og sá
um að þjónusta þá stofnun það sem
eftir var starfsævinnar, flutti að-
föng í vita og hafnir um allt land;
síðast starfaði hann sem birgða-
stjóri. Á þessum ferðum eignaðist
hann stóran vinahóp, þar sem glað-
lyndi hans og skopskyn fékk að
njóta sín til hins ítrasta.
Laugardalurinn var á þessum
tíma sveit. Múlaprinsinn var sendur
til að plægja á Upplandi (þar sem
nú er Háaleitisbraut). Þar kynntist
hann glæsilegri ungri heimasætu,
Unni Rögnu. Þeirra kynni urðu góð
og löng, en þau áttu 60 ára brúð-
kaupsafmæli sl. sumar og eiga í dag
17 afkomendur og þann 18. á leið-
inni.
Valli hafði alla tíð gaman af hest-
um. Hann gekk í hestamannafélagið
Fák 1937 og var félagsmaður alla
tíð síðan. Hann hafði gott auga fyrir
gæðingum og hefur átt þá nokkra
um ævina. Hann hleypti iðulega á
kappreiðum Fáks sem ungur mað-
ur. Skeiðhestar voru í miklu uppá-
haldi og naut hann þess að smella
frá sixpensaranum og taka gæð-
ingana til kostanna. Það gerði hann
síðast núna í byrjun árs. Ég hef
grun um að hann Hamur hans horfi
oft spurnaraugum til dyranna og
bíði þess að húsbóndi hans komi til
að þeir geti hleypt undir loftsins
þök.
Þegar ég kom í inn í fjölskylduna
fyrir tæpum 40 árum varð ég að við-
urkenna að þótt gott hafi verið að
alast upp í vesturbænum, þá var
Sigtúnið og þá helst heimili þeirra
Öggu og Valla eitt ævintýri. Gatan
var ekki malbikuð og Brúnstaða-
túnið með hestum á beit beint á
móti húsinu. Ekki nóg með það
heldur höfðu þau innréttað bílskúr-
inn sem hesthús fyrir 3 hesta. Við
Gauja kynntumst fyrir tilstuðlan
hestanna. Það var ekki alltaf komið
í heimsókn á Willys ’46. Stundum
kom maður ríðandi og við þeystum
Laugardalinn og út í víðáttuna sem
þá var.
Það er nú einu sinni svo að því
meira sem maður hugsar um þá
gæfu sem yfir okkur hvílir, að vera
heilbrigð, eiga yndisleg börn vel af
Guði gjörð, góða fjölskyldu og öll
þessi dásamlegu barnabörn, þá
skynjar maður að þetta er ekki
sjálfgefið en þakkar í lotningu fyrir
hverja stund sem varir.
Fyrst höggva þurfti í þennan hóp,
gat vart verið sanngjarnara en að
taka þann elsta. En þótt Valli væri
orðin 82 ára var hann alls ekki gam-
all í okkar huga, kvikur í hreyfing-
um og léttur í spori. Lífsgleðin og
starfsorkan óbiluð. Þótt starfsdeg-
inum væri lokið hafði hann alltaf
nóg fyrir stafni. Þessi vinsæli og
skemmtilegi maður átti allstaðar
vini. Þau hjónin nutu þess að fara í
heimsóknir eða vera samvistum við
ástvini. Valli var einstaklega barn-
góður. Þegar síðasti lífsneistinn
virtist vera að slokkna var honum
rétt yngsta langafabarnið í fangið
og þar brosti hann sínu hinsta brosi.
Stundum er talað um að fólk upp-
skeri eins og það sáir og það gerði
Valli svo sannarlega. Síðustu vik-
urnar var hann umvafinn fjölskyld-
unni heima í Sigtúni. Allir lögðust á
eitt við að gera dagana sem bæri-
legasta og stytta honum stundir
með nærveru sinni.
Þær minningar sem hann lætur
eftir hjá ástvinum – og öllum sem til
hans þekktu – munu verða langlífar
og bera honum verðskuldað vitni.
Gunnar B. Gunnarsson.
Við systkinin vorum svo heppin
að alast upp í mikilli samveru með
ömmu og afa. Þau héldu til í ,,kof-
anum“ öll sumur og iðulega gistu
eitt eða fleiri barnabörn hjá þeim.
Það var líka algjör lúxus að gista,
hvort sem var þar eða í Sigtúninu
því auðvitað var allt látið eftir okkur
og okkur dillað eins og hægt var. En
ef það var eitthvað sem þurfti að
gera í sveitinni og ungdómurinn sof-
andi í kofanum, átti hann það til að
vekja mann og spyrja hvort maður
ætlaði að sofa út.
Margir voru útreiðartúrarnir
sem við fórum með afa og amma var
líka nokkuð liðtæk í útreiðunum. Afi
lagði mikið upp úr því að vera vel
ríðandi og þó hann væri komin yfir
áttrætt reið hann út eins og herfor-
ingi í Víðidalnum eða Flóanum og
oftast með tvo til reiðar. Alltaf var
hann flottur, með bindi og í jakka og
klárarnir vel snyrtir og klipptir.
Hann var nefnilega létt pjattaður
og svo var honum líka kalt ef hann
var ekki með bindi. Á sumrin var
hann iðulega búin að ríða út í 1–2
tíma þegar hann kom heim í morg-
unkaffi. Afa þótti ekki leiðinlegt að
velja sér fola úr stóðinu heima á
Arnarstöðum sem hann fór svo með
í bæinn til að temja.
Afa þótti ómögulegt ef hann gat
ekki hjálpað til ef eitthvað var um
að vera. Það varla brást ef eitthvað
stóð til í sveitinni að þá var afi
mættur, fyrstur út og síðastur inn,
þó svo hann væri kannski nokkra
daga að jafna sig. Oftar en ekki kom
hann með einhverjar græjur til að
létta verkið. Það skipti ekki máli
hvort það var girðingavinna,
hrossasmölun, barnapössun, eða út-
réttingar. Alltaf boðinn og búinn að
létta undir.
Stundum lá við að amma þyrfti að
koma með rútunni austur, því bíll-
inn var fullur af dóti. Fannst honum
illa nýtt ferðin ef ekki var eitthvað
að flytja. Toppferð ef bíllinn var svo
fullur að amma rétt kæmist fyrir
fram í með ný vínarbrauð og snúða í
fanginu.
Afi kallaði þá drengi, sem voru að
sniglast utan í dætrunum í fjöl-
skyldunni, snigla. Alveg þangað til
að Agga elsta barnabarnið fór að
vera með sveitapilti frá Brekku, þá
þótti það ekki viðeignandi að kalla
hann Brekkusnigil og var því breytt
yfir í Jósep. Þótti Afa bara ágætt að
geta kallað kærastana alla Jósep
fyrstu árin, en hann fór ekki að
kalla þá sínum nöfnum fyrr en hann
sá fram á að þeir væru til frambúð-
ar.
Við erum um margt ríkari eftir að
hafa alist upp með honum afa og
þökkum við fyrir það. Ekki hefði
hann viljað eitthvað vol og kvein-
stafi, þannig að nú er bara að brosa
framan í heiminn og fara að gera
eitthvað af viti.
Valgerður, Ragna, Birgir
og Guðmundur Valgeir.
Valli langafi hefur kvatt þennan
heim. Mér fannst alltaf svo gaman
að kíkja upp á ykkur ömmu að ég
skríkti og iðaði allur í stiganum á
leiðinni upp. Þú varst mikill barna-
karl og fannst eins og mér gaman
þegar ég kom upp. Þú fylgdist vel
með mér og nýjustu uppátækjunum
mínum. Yfirleitt fékk ég að sitja í
fanginu á þér og var alsæll með að
fá að toga í bindið þitt eða skoða töl-
urnar á skyrtunni þinni. Síðustu
vikurnar varstu orðinn mikið veik-
ur, en alltaf fékk ég bros og koss á
vangann. Hvíl í friði.
Kveðja, litli sólargeislinn þinn í
kjallaranum,
Erlingur Örn.
Þá er hann Valgeir vinur minn og
frændi dáinn. Mér finnst það alveg
ótrúlegt, því þegar hann leit inn til
mín nýlega var hann mjög hress og
hraustlegur. Ég sakna hans mikið.
Við vorum náskyldir, þar eð móð-
ir mín Guðrún J. Erlings og faðir
hans Guðmundur Jónsson voru
systkin. Ég hef þekkt Valgeir frá
því hann var barn og ég unglingur,
en ég var nær tíu árum eldri. Hann
hefur alla tíð verið mjög hjálplegur
fólki, liðlegur og harðduglegur mað-
ur. Hann var birgðastjóri hjá Vita-
og hafnamálastofnun og ók vörubíl
fyrir þá stofnun um þvert og endi-
langt landið og út á hin ystu annes
með gashylki og annað fyrir vita
landsins, sem nokkuð víst er að ekki
hefur verið auðvelt starf þar sem
þeir voru langt úr alfara leið og veð-
ur válynd.
Oft hefur hann hjálpað mér um
dagana og man ég vel eftir því þeg-
ar ég fyrst bað hann um að aka fyrir
mig nokkrum sekkjum með fugla-
fóðri á fáeina staði, aðallega innan-
bæjar, og var það auðsótt mál.
Það var árið 1948 sem Guðrún,
móðir mín, ákvað á sjötugsafmæli
sínu að stofna sjóð í minningu eig-
inmanns síns, Þorsteins Erlings-
sonar, föður míns. Henni hafði tek-
ist, með ýmsum ráðum, að safna
nokkurri fjárupphæð, sem hún
færði Dýraverndarfélaginu að gjöf,
og vildi að það yrði upphaf sjóðs,
sem hlyti nafnið Sólskríkjusjóður.
Sjóðurinn skyldi kaupa korn handa
smáfuglunum ár hvert í vetrarbyrj-
un og átti það að fara til sem flestra
barnaskóla á landinu og voru börnin
látin dreifa því á hjarnið. Nokkru
síðar hóf verksmiðjan Katla að
framleiða maískurl og seldi það í
þrjátíu kílóa sekkjum. Ég áleit að í
einum slíkum sekk væri hæfilega
mikið handa hverjum skóla. Ég
samdi við verksmiðjustjórnina um
kaup á nokkrum slíkum sekkjum
fyrir hóflegt verð og vil geta þess
hér, sem ef til vill var mest um vert,
að þeir létu 5% af útsöluverði kurls-
ins, sem þeir seldu meðal annars í
verslunum, renna til sjóðsins.
Ég ætla ekki að orðlengja þetta
frekar, en segja frá því að Valgeir
blessaður tók að sér að annast flutn-
inga fyrir sjóðinn, eftir því sem
hann gat, en það mun hafa verið
nokkru eftir lát móður minnar árið
1960. Fyrstu árin bauðst okkur
ókeypis flutningur kornsins flug-
leiðis. það var vel þegið og fyrstu
pokarnir, sem Valgeir sótti til
Kötlu, fóru með flugi til snjó-
þyngstu staðanna á Norðurlandi.
Annars ók hann flestum sekkjunum
á vörubílastöðvarnar, en þaðan fóru
þeir út á landsbyggðina. Sjálfur ók
hann korninu til skólanna á höfuð-
borgarsvæðinu og í nærsveitum.
Þessi hjálp frænda míns var alveg
ómetanleg og sýndi hversu góðan
dreng hann hafði að geyma.
Það urðu mörg ár, sem Valgeir
starfaði við þetta fyrir Sólskríkju-
sjóðinn, síðast nú í byrjun þessa
vetrar. Ekkja Valgeirs, frú Unnur
Benediktsdóttir, mikil ágætis kona,
hefur einnig verið mjög hjálpleg við
þessa starfsemi.
Þau hjónin komu alloft heim til
okkar Þórdísar, Toddu, og við til
þeirra á afmælum og við önnur há-
tíðleg tækifæri, en því miður hefur
samgangur milli heimila okkar ekki
verið mikill síðustu árin.
Þegar ég fékk hina sorglegu
fregn um lát Valgeirs frænda míns
hafði ég samband við ekkju hans og
fjölskyldu til að samhryggjast þeim.
Þá ræddi ég sérstaklega við Bene-
dikt son þeirra um Sólskríkjusjóð-
inn og starf föður hans fyrir sjóðinn.
Mér skildist á honum að vel kæmi til
greina að hann gæti sjálfur annast
það og vona ég sannarlega að sú
verði raunin, því hann er mikill
mannkostamaður eins og faðir
hans.
Valgeir var mjög tryggur,
ábyggilegur og mikið prúðmenni.
Hann átti hesta alveg frá barnsaldri
og fór afar vel með þá, enda var
hann dýravinur svo af bar. Ég er
honum, blessuðum frænda mínum,
innilega þakklátur fyrir einstaka
vináttu og alla hjálpina með fugla-
fóðrið og fjölda margt annað.
Ég og fjölskylda mín sendum fjöl-
skyldu Valgeirs og öðrum vanda-
mönnum okkar innilegustu samúð-
arkveðjur og biðjum honum
Guðsblessunar á þeim leiðum sem
hann nú hefur lagt út á.
Erlingur Þorsteinsson.
JÓN VALGEIR
GUÐMUNDSSON
+
(
(
14 56
& ')"!,"! ( &$+
&,+$' 7 $'
4'!2 ! 89
$'
"
( ,() ()
-
.
( %
()
//
0 11
2
(
.
(
1&(' $'(
$( :' 1+' $ 1 )$$ 1 " (
$ 1+' $ +! 2 + &7$'(
% $ 1+( $+, ;+$#'' $
!$$ 0 1+' $ ' $$ <7,(
+ 2 $2) $
!
=>= 0 .6%6
& 7 ' "
;- 2 ! 8?
%)$(! '
"()
-
.
.
( 2)
/3
0 11
+ "! 3+#''(
3+#' + "! $+!$$ . 2) $ 1(!
+ &)'(!