Morgunblaðið - 21.03.2002, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 21.03.2002, Qupperneq 29
LEIKRIT Erich-Emmanuels Schmitts, Gesturinn, hefur nú ver- ið sýnt vel á annan mánuð á Litla sviði Borgarleikhússins við ágæta aðsókn. Í byrjun var það Ingvar E. Sigurðsson sem fór með hlutverk gestsins, sem kannski er sjálfur himnafaðirinn, kannski geðsjúkl- ingur eða kannski aðeins hugarfóstur gestgjafans. Ingvar deilir nú hlutverkinu með öðrum leikara, Birni Hlyni Haraldssyni, og skipta þeir sýn- ingunum á milli sín. Nokkuð er síðan Björn Hlynur þreytti frumraun sína í hlutverkinu en undirritaðri gafst ekki tækifæri á að sjá hann leika fyrr en síðastliðið laugardagskvöld. Á þeirri sýningu fór reyndar leik- stjórinn sjálfur, Þór Tulinius, með hlutverk Gestapó-lögreglumanns- ins sem annars er leikinn af Krist- jáni Franklín Magnús. Björn Hlynur er ungur leikari sem útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands í fyrravor. Hann á því ekki mörg hlutverk að baki í atvinnu- leikhúsi en vakti verðskuldaða at- hygli fyrir frammistöðu sína í Englabörnum Hávars Sigurjóns- sonar hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu síðastliðið haust. Þá fer hann einn- ig með hlutverk í Lykill um háls- inn eftir Agnar Jón Egilsson sem sýnt er um þessar mundir í Vest- urporti. Það er vafalaust ekki auðvelt fyrir svo ungan og óreyndan leik- ara að deila hlutverki með eins færum og reyndum leikara og Ingvari E. Sigurðssyni, en Björn Hlynur leysir þá þraut ágætlega Björn Hlynur Haraldsson LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2002 29 Antikhúsgögn og listmunir Antik Kuriosa Grensásvegi 14 s. 588 9595 og 660 3509 Opið mán-fös. frá kl. 12-18 Lau. frá kl 12-17 SLEÐADAGAR Sími: 594 6000 Frábært verð kr. 1.000.000 YAMAHA SXR 700 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S BL O 17 13 4 03 /2 00 2 Blómstrandi Páskaliljur í potti 299 kr. Blómstrandi Páskagreinar 2 stk. 299 kr. Páskabegonia 599 kr. Páska-krýsi 499 kr. Reykjavík sími 580 0500 Selfossi sími 480 0800 www.blomaval.is Heimsækið Páskalandið. Ís og lítið páskaegg m. málshætti, 99kr. Páskar og var hvergi að merkja neitt óör- yggi í fasi hans né framkomu. Gesturinn er afar tvíræð persóna frá hendi höfundar og sú tvíræðni er undirstrikuð með búningi hans og öllu látbragði. Hann er klæddur eins og töframaður, í kjól og hvítt, með svarta efnismikla skikkju sveipaða um sig – og hefur meira að segja sprota í hendi. Spurningin um það hvort hann beiti blekk- ingum í málflutningi sínum er spurning sem áhorfendur verða sí- fellt að glíma við ekki síður en gestgjafinn, Sigmund Freud. Björn Hlynur túlkaði gestinn af einlægni og einkenndist allt fas hans af rólyndri yfirvegun. Kannski hefði hann mátt skerpa dálítið þá tvíræðni sem býr í hlut- verkinu og veita meiri íroníu inn í túlkun sína. Reyndar gildir það sama um túlkun Gunnars Eyjólfs- sonar á Freud, þar hefði einnig mátt skerpa íroníuna og efann nokkuð á kostnað trúarþarfarinnar sem greinilega er sterkasti þátt- urinn í túlkun Gunnars. En þetta er líklega spurning um hvaða skilning leikstjórinn leggur í verk- ið og leið Þórs Tuliniusar er sjálfri sér samkvæm, þótt hún dragi óneitanlega nokkuð broddinn úr verkinu. Þór fór kunnáttusamlega með hlutverk Gestapólögreglumannsins þótt ekki sópaði eins að honum og Kristjáni Franklín í sama hlut- verki. Leikur hans var hófstilltari og umsnúingurinn, þegar hann skiptir frá sókn yfir í vörn, því ekki eins afgerandi. Verkið er allrar athygli vert, þótt deila megi um túlkun og efn- istök höfundar á lífi sögulegrar persónu eins og Sigmunds Freuds. Deilan um tilvist Guðs er þó ekki útkljáð í eitt skipti fyrir öll í því – og verður vafalaust seint. Hlutverkaskipti í Gestinum LEIKLIST Þíbylja Leikarar: Gunnar Eyjólfsson, Björn Hlynur Haraldsson, Jóna Guðrún Jónsdóttir og Þór Tulinius. Litla svið Borgarleikhússins 16. mars GESTURINN Soffía Auður Birgisdóttir NÚ stendur yfir myndlistarsýning Hrannar Eggertsdóttur í anddyri Sjúkrahússins og heilsugæslustöðv- arinnar á Akranesi en Hrönn er listamaður marsmánaðar á stofnun- inni og sýnir 27 stórar og smáar olíu- myndir á striga. Sýningin er liður í 50 ára afmælishaldi SHA en í hverj- um mánuði þetta ár sækir nýr lista- maður stofnunina heim. Hrönn útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskólanum 1974 og hefur annast myndmenntakennslu við Brekkubæjarskóla á Akranesi nán- ast óslitið síðan samhliða listsköpun sinni. Hún hefur haldið fjölda einka- sýninga á Akranesi og víðar um land og tekið þátt í samsýningum heima og að heiman. Sýnir á Akranesi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.