Morgunblaðið - 21.03.2002, Side 32
UMRÆÐAN
32 FIMMTUDAGUR 21. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
V O R / S U M A R 2 0 0 2
verð kr. 5.990
st. 36-41- svartir/brúnir/rauðir
verð kr. 5.990
st. 36-41 - svartir/brúnir/ljósbláir
verð kr. 6.990
st. 36-41 - ljósir
verð kr. 7.990
st. 41-46 - drapplitir
verð kr. 7.490
st. 40-47 - brúnir
verð kr. 6.990
st. 41-47 - ljósbrúnir
Kringlan 8-12, sími 568 6211
Skóhöllin, Bæjarhrauni 16, Hf., sími 555 4420
VIKUNA 16.–22.
mars verður verkja-
vika á vegum Verkja-
fræðafélags Íslands
og Siðfræðistofnunar.
Af því tilefni vil ég
leggja lóð mitt á vog-
arskálarnar og tala
um sársauka og
verkjalyf, sem eru svo
stór þáttur í mínu lífi
og margra annarra
sem ég þekki vegna
mjög þjáningarfulls
sjúkdóms sem hefur
fylgt mér í óendanlega
mörg ár.
Verkjateymi er til
við Landspítala – há-
skólasjúkrahús. Það er hópur fag-
fólks, sem leitast við að leysa
verkjavandamál. Þarna eru verkja-
læknar og sérgreinalæknar, hjúkr-
unarfræðingar, lyfjafræðingur, sál-
fræðingur og félagsráðgjafi.
Þar sem ég hef persónulega góða
reynslu af samskiptum mínum við
þetta teymi langar mig að vekja at-
hygli á tilveru þess. Ég hef notað
sterk verkjalyf án sérstakra vand-
ræða og er alltaf fegnust, þegar ég
þarf ekki að nota þau. En ég er
sannfærð um að ég væri ekki hér í
dag að skrifa á tölvuna ef ég hefði
ekki fengið hjálp. Sjálf er ég á
þeirri skoðun að verkjabraut sé
eins og árfarvegur, þeim mun leng-
ur sem verkur hefur varað og verið
verri, þeim mun dýpri er þessi far-
vegur og erfiðara að losna við sárs-
aukann. Þess vegna
borgar sig að rjúfa
þennan vítahring sem
fyrst. Ég skora á fólk
að tileinka sér um-
burðarlyndari hugsun-
arhátt gagnvart krón-
ískum verkjum og
lyfjum og reyna að
gera lífið þess virði að
lifa því.
Orðið verkur hefur
margar merkingar.
En krónískur (lang-
varandi) verkur, sem
er til staðar dag og
nótt, vikum, mánuðum
og jafnvel árum sam-
an, er sérstakt fyrir-
bæri, sem verður að taka á. Slíkur
verkur, sem ekki er hægt að mæla
eða sýna, hefur yfirþyrmandi áhrif
á allt líf einstaklingsins, sálarlíf,
efnahag, félagslega stöðu, fjöl-
skyldu, tómstundir, já bókstaflega
allt líf hans í öllum skilningi. Er þá
ekki kominn tími til að gera eitt-
hvað raunhæft fyrir þennan ein-
stakling?
Nei, helst ekki. Í gangi er goð-
sögn, sem hefur reynst ótrúlega líf-
seig, að verk megi reyna að halda í
skefjum með sem vægustum lyfj-
um, sem geta hugsanlega dregið
eitthvað úr, á eins litlum skammti
og hægt er og best er auðvitað að
læra bara að lifa við þetta ástand.
Sumir trúa því jafnvel að fólk losni
ekki við verk af því að hann þjóni
einhverju hlutverki fyrir viðkom-
andi einstakling, svo sem athygli,
lausn frá atvinnuþátttöku, vímu,
bótum. Að þegja um vanlíðan og
bera sig vel er „þjóðarkarakter“,
eins og við vitum, og auk þess geta
menn orðið fíklar ef þeir nota sterk
verkjalyf. Læknar vita (sumir) að
þetta er ekki rétt, þetta eru góð lyf,
sem gera gagn og þolast mörg bet-
ur en þau, sem hægt er að kaupa
án lyfseðils. Betra er að sjúkling-
urinn fái rétta lyfið og rétta
skammtinn, því langvarandi þján-
ingum fylgja margvísleg vandamál,
svo sem þunglyndi, atvinnuleysi,
örvænting og vonleysi. Margir þola
vantrú og höfnun frá umhverfi og
jafnvel læknum og baráttan við
kerfið er erfið. Almennt eru menn
ekki fíklar og reynsla verkjalækna
er sú að sjúklingar sækist ekki eft-
ir vímu, heldur lausn frá verk.
Ef ekki er hægt að lækna er
hægt að líkna. Enginn ætti að
þurfa að lifa við óþolandi verki
endalaust. Einstaklingurinn með
verkinn er sá eini sem getur lagt
mat á hann (þar til tæknin getur
mælt sárauka). Verkur er aldrei
sýnilegur, hann dregur úr lífsgæð-
um, veldur þunglyndi, örvæntingu
og oft einangrun. Það er sárt að
horfa á ástvini þjást, það er sárt að
vera byrði á öðrum og munum að
það er betra að bæta lífi við árin en
árum við líf, sem er óþolandi. Sætt-
um okkur ekki við óbærilega verki,
það er engin dyggð.
Þjáningar
og verkir
Sigríður
Gunnarsdóttir
Heilsa
Enginn, segir Sigríður
Gunnarsdóttir, ætti að
þurfa að lifa við óþolandi
verki endalaust.
Höfundur er talsímavörður.
BANDARÍKJASTJÓRN er í
vígahug. Dick Cheney, varaforseti
Bandaríkjanna, hefur verið á ferða-
lagi um Miðausturlönd
til þess að afla stuðn-
ings hugmyndum
stjórnarinnar um árás
á Írak. En það er sama
hvar Cheney hefur
drepið niður fæti, alls
staðar brennur Palest-
ínumálið heitast á ráða-
mönnum og hvergi er
frjór jarðvegur fyrir
nýju stríði á svæðinu.
Stríðið í Afganistan
hefur nú staðið í 5 mán-
uði og virðist flestum
gleymt. Osama bin
Laden er enn ófundinn
og ekki hefur tekist að
uppræta al-Kaída
hryðjuverkasamtökin. Ekki hefur
heldur gengið eins vel og ráð var fyr-
ir gert að afla fjár til uppbygging-
arinnar í Afganistan. Hjaðningavíg-
um Ísraels- og Palestínumanna
linnir ekki, og á þessari stundu er
óljóst hvort Ísraelsstjórn muni
draga her sinn til baka frá Gaza og
Vesturbakkanum þótt varaforseti
Bandaríkjanna hafi lagt hart að Ar-
íel Sharon að verða við þeirri kröfu.
Bandaríkjastjórn segist vilja stilla til
friðar í Ísrael og Palestínu en fulltrúi
hennar hefur ekki séð
sér fært að ræða við
forseta Palestínu-
manna í ferð sinni.
Hættan á
stórstyrjöld
Saddam Hussein er
hættulegur harðstjóri
og að margra áliti rakið
illmenni. Um það er
engum blöðum að
fletta. Írakar hafa
þjáðst undir stjórn
hans áratugum saman.
Viðskiptabann SÞ hef-
ur enn aukið á hörm-
ungar þjóðarinnar. Á
níunda áratugnum var
Saddam Hussein í liði Bandaríkja-
stjórnar gegn klerkaveldinu í Íran.
Innrásin í Kúveit árið 1990 breytti
því. Íraksstjórn býr yfir eiturvopn-
um og hefur notað þau gegn eigin
þegnum. Því hefur lengi verið haldið
fram að þar í landi sé verið að þróa
kjarnorkuvopn en engar handfastar
sannanir eru fyrir því. Í Miðaustur-
löndum og á Indlandsskaga má hins
Verður
ráðist á Írak?
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
ATHYGLISVERÐ
grein eftir Kristján G.
Guðmundsson birtist í
Morgunblaðinu 8.
mars sl. Í umræddri
grein er undirritaður
tekinn heldur betur
fyrir nesið og fær það
óþvegið. Ekki er laust
við að ákveðinna þver-
sagna gæti í grein
Kristjáns þar sem
hann í upphafi grein-
arinnar leiðir líkum að
því að ég hafi ekki þor-
að að opna kjaftinn
síðustu 10 árin en ör-
lítið aftar segist hann
hafa gert sér vonir um
að með komu minni í stól forseta
væri mættur traustur og staðfastur
maður.
Sumt í greininni er þó að mínu
mati jákvætt s.s. upprifjun Krist-
jáns á skoðunum mínum varðandi
verðmyndun á fiski. Þar segir að
verðmyndun á fiski sé fullkomlega
á skjön og í raun algört stílbrot við
þá frjálsræðisstefnu sem stjórnvöld
framfylgja á flestum sviðum at-
vinnulífsins. Það er ekki spurning í
mínum huga að verð sjávarfangs
mun á endanum myndast á fisk-
mörkuðum. Hvenær það gerist veit
ég ekki en þegar sá dagur rennur
upp mun um leið myndast grunnur
að mun heilbrigðara umhverfi fyrir
sjávarútveginn þar sem fiskurinn
bærist sjálfkrafa til þeirra sem
mesta hæfni hefðu til að gera úr
honum verðmæti. Í framhaldinu
finnst mér fremur ólíklegt að menn
læsu greinar í blaði allra lands-
manna þar sem haldið er uppi vörn-
um fyrir handónýtu lítillækkandi
leiguliðakerfi sem er til skammar
fyrir þá sem skópu það. Á maður að
trúa því að það sé vilji hjá stórum
hluta sjómanna að púkka upp á
slíkt. Fram kemur sú gáfulega
skýring að þar sem
forystumenn sjó-
manna hafi ekki náð
markmiðinu með allan
fisk á markað hafi þeir
ákveðið, svona frekar
en að gera ekki neitt,
að slá sig til riddara og
höggva í eigin raðir
(raðir sjómanna).
Ég skoðaði sam-
þykktir síðustu
þriggja þinga FFSÍ,
þ.e.a.s. ’97, ’99 og 2001.
Öll þessi þing skipuð
fulltrúum allra félaga
skipstjórnarmanna á
Íslandi fordæma fram-
sal á mjög afgerandi
hátt. Hefur maðurinn ekki fylgst
neitt með fyrr en nú? Kristján spyr
hvort það sé í verkahring FFSÍ að
ákvarða stærð fiskiskipaflotans.
Hann líkir þeim afskiptum við að
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
kæmi fram með þá kröfu að fækka
verslunum og færu þannig fram
gegn hluta umbjóðenda sinna. Heyr
á endemi. Heldur hann að VR, sem
er eitt sterkasta stéttarfélag lands-
ins, sæti undir því aðgerðarlaust ef
einhverjir verslunareigendur
neyddu starfsfólk sitt til að taka
þátt í vöruinnkaupum sem síðan
Inn við beinið
Árni
Bjarnason
Sjómenn
Það hlýtur að vera
meginhlutverk
stéttarfélaga, segir
Árni Bjarnason, að
sjá til þess að gildandi
kjarasamningar séu
í heiðri hafðir.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r