Morgunblaðið - 11.05.2002, Blaðsíða 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002 15
Gefðu
mömmu
blóm á
morgun
sími 462 2900
Blómin
í bænum
við göngugötuna
á Akureyri
Upplýsingar í síma 860 8832.
Til leigu 84 fm
verslunarhúsnæði Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
ⓦ
vantar
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600.
í Innbæinn
HIÐ árlega 1. maí hlaup Ung-
mennafélags Akureyrar fór fram
sl. fimmtudag. Hlaupið, eins og
nafnið bendir til, átti að fara fram
1. maí sl. en var þá frestað vegna
veðurs. Hlaupið fór fram í ágætis
veðri á fimmtudag og tóku rúmlega
400 manns þátt, flestir af yngri
kynslóðinni. Hlaupið var í nokkrum
flokkum og þremur mismunandi
vegalengdum, 2 km, 4 km og 10 km.
Rásmarkið var við Glerártorg en
endamarkið við Greifann, þar sem
þátttakendum var boðið upp á
pítsusneið og drykk.
Fjölmenni í síðbúnu hlaupi
Morgunblaðið/Kristján
Einbeittir hlauparar í síðbúnu 1. maí-hlaupi Ungmennafélags Akureyrar á fimmtudag.
D-LISTINN býður eldri borgurum
á Akureyri til kaffisamsætis á Hótel
KEA sunnudaginn 12. maí kl. 15-17.
Ávörp flytja Kristján Þór Júlíusson
bæjarstjóri og bæjarfulltrúarnir
Þóra Ákadóttir og Þórarinn B. Jóns-
son. Söngur og upplestur.
Vakin er athygli á því að boðið er
upp á akstur til og frá Hótel KEA á
sunnudaginn og þurfa þeir sem vilja
nýta sér þá þjónustu að hafa sam-
band við kosningaskrifstofuna.
Kaffisamsæti
eldri borgara
SORPEYÐING Eyjafjarðar
hefur leitað að hentugu svæði
fyrir sorpurðun, en starfsleyfi
núverandi urðunarstaðar á
Glerárdal ofan Akureyri lýk-
ur árið 2003. Allt sorp af
Eyjafjarðarsvæðinu er nú
urðað á Glerárdal. Erfiðlega
hefur gengið að ná samstöðu
um nýjan urðunarstað í Eyja-
firði og því voru sorpmálin
ekki inni í tillögu að svæði-
skipulagi Eyjafjarðar 1998–
2018.
Sveinn Jónsson athafna-
maður í Ytra-Kálfsskinni og
formaður stjórnar Sorpeyð-
ingar Eyjafjarðar sagði að nú
væru tveir staðir í Eyjafirði
til skoðunar sem báðir séu
nokkuð álitlegir. Hann vildi
þó ekki gefa upp hvaða staðir
þetta væru, enda er málið
mjög viðkvæmt. Hann sagði
að ítarlegar rannsóknar færu
fram á efni frá umræddum
svæðum áður en til ákvörð-
unar kæmi en sú vinna tekur
einhverjar vikur.
„Þetta á ekki að verða
neinn ruslahaugur, heldur
sorpvinnsla, þar sem hlutirnir
verða gerðir með sómasam-
legum hætti, þannig að við
þurfum ekki að skammast
okkar fyrir. Okkur er uppá-
lagt á minnka sorpmagnið og
því verðum við hlíta. Það
verður því að flokka sorpið,
taka úr því t.d. lífrænan úr-
gang og koma því sem hægt
er í aðra farvegi,“ sagði
Sveinn.
Urðun sorps af
Eyjafjarðarsvæðinu
Tveir
staðir til
skoðunar
FYRSTA nemendasýningin frá
Myndlistarskóla Arnar Inga á þessu
vori verður á morgun, sunnudaginn
12. maí. Hún verður haldin í Kletta-
gerði 6 og stendur yfir frá kl. 14 til
18.
Á sýningunni verða um 50 olíumál-
verk unnin með fjölbreyttum aðferð-
um, en um 20 manns eiga myndir á
sýningunni. Tvær útskriftarsýning-
ar verða frá skólanum í næsta mán-
uði.
Nemenda-
sýning
Myndlistarskóli
Arnar Inga
RÚSSNESKI togarinn Omnya
verður dreginn frá Akureyri í dag
laugardag ef veður leyfir. Til stóð að
skipið færi í gær og var Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri mættur niður
á Fiskihöfn til að leysa landfestar
skipsins en þegar til kom var brott-
för frestað um sólarhring vegna veð-
urs. Pólskur dráttarbátur, Atlas II
frá Gdansk, mun draga Omnya til
Lettlands.
Togarinn hefur legið við bryggju á
Akureyri frá því í byrjun september
1997 en til stóð að ráðast í umfangs-
miklar endurbætur á skipinu. Af því
varð ekki og hefur skipið legið við
bryggju á Akureyri frá þeim tíma,
mörgum til mikils ama.
Kristján Þór sagði að það væri
alltaf gaman að fá góða gesti en að þó
væru takmörk fyrir öllu. Því væri
bæði útlitslega og sálarlega mjög
gott að losna við skipið. Bæjarstjóri
vildi þakka starfsmönnum hafnar-
innar fyrir mikla þrautsegju í máli
þessu, sem og þeim aðilum lögðu sitt
af mörkum til að losna við skipið.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðið hafa öll gjöld vegna veru
skipsins á Akureyri verið greidd.
Gott að
losna við
skipið út-
litslega og
sálarlega
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri var mættur til að losa land-
festar rússneska togarans í gær og að sjálfsögðu með rétta höfuðfatið.
Skipið var þó aðeins fært til en ráðgert er að það fari frá Akureyri í dag.
Rússneski togarinn Omnya á leið frá Akureyri
NÁMSKEIÐ um persónuvernd og
meðferð persónuupplýsinga verður
haldið á vegum símenntunar í Þing-
vallastræti 23 hinn 17. maí nk. Þar
mun Sigrún Jóhannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri Persónuverndar,
fjalla um lög 77/2000.
Tekin verða fyrir helstu nýmæli
samkvæmt lögunum, s.s. tilkynning-
ar í stað leyfisumsókna og vernd ein-
staklinga í tengslum við meðferð
persónuupplýsinga. Einnig verður
rætt um verksvið og hlutverk Per-
sónuverndar, persónuverndarfull-
trúa o.fl. Skráning er hjá Rann-
sóknastofnun Háskólans á Akureyri
og lýkur á mánudag, 13. maí.
Persónuvernd
og meðferð
upplýsinga
NÁMSKEIÐ um athyglisbrest með
ofvirkni verður haldið á vegum sí-
menntunar Háskólans á Akureyri í
Þingvallastræti 23 dagana 16. og 17.
maí nk.
Kennarar á námskeiðinu eru 9
sérfræðingar frá EIRÐ sem er
fræðsluþjónusta um uppeldi og geð-
heilsu barna og unglinga.
Á námskeiðinu verður fjallað um
fjölmarga þætti varðandi ofvirkni,
s.s. greiningu, framvindu og horfur,
orsakir, lyfjameðferð, fjölskyldu,
kenningar og fleira. Skráning á nám-
skeiðið er hjá Rannsóknastofnun
Háskólans á Akureyri og lýkur á
mánudag.
Námskeið um
ofvirkni
STJÓRN Fasteigna Akureyrarbæj-
ar hafnaði tilboðunum þremur sem
bárust í byggingu tveggja þjónustu-
húsa á tjaldstæðinu á Hömrum en
þau voru öll yfir kostnaðaráætlun.
Stjórnin fól framkvæmdastjóra að
ganga til viðræðna við Stíganda á
Blönduósi um smíði á einu húsi en
fyrirtækið átti lægsta tilboð í verkið
en það var 111% af kostnaðaráætlun.
Samkvæmt útboði átti hvort þjón-
ustuhús að vera um 65 fermetrar að
stærð, með salernum, sturtum og
þvottaaðstöðu, auk 45 fermetra yf-
irbyggðrar verandar. Stígandi bauð
27,7 milljónir króna í verkið en
kostnaðaráætlun Fasteigna Akur-
eyrarbæjar hljóðaði upp á 25 millj-
ónir króna.
Bygging þjónustu-
húsa á Hömrum
Samið verði
við Stíganda
um eitt hús
ÁRNI Steinar Jóhannsson alþingis-
maður mætir á opinn fund um um-
hverfismál á kosningaskrifstofu
vinstrigrænna í göngugötunni við
Hafnarstræti í dag, laugardaginn 11.
maí. Fundurinn stendur frá kl. 13 til
15.
Ræða um-
hverfismál
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
M O N S O O N
M A K E U P
lifandi litir