Morgunblaðið - 11.05.2002, Blaðsíða 25
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002 25
Sími 525 3000 • www.husa.is
Laugardagur í
Skútuvogi
Nú er tími til að grilla.
Tilboð í verslun
Skútuvogi 16 í dag.
Opið 10-16
fyrir hamborgara
fyrir fisk
Grillgrind 990 kr. (1.975)
Kolagrill 42 cm 3.595 kr. (áður 8.625)
Grillgrind 1.295 kr. (1.875)
INNGANGA í Evrópusambandið
gæti leitt til þess að dýrara yrði að
fjármagna kaup á íbúðarhúsnæði,
að því er sagði í Markaðsyfirliti
Landsbanka Íslands í gær, enda
þyrfti þá líklega að afnema ríkis-
ábyrgð á Íbúðalánasjóði og gera
arðsemiskröfu til þess fjármagns
sem bundið er í útlánastarfseminni.
Í Markaðsyfirliti Landsbankans
er vitnað í skýrslu hnattvæðingar-
nefndar um meginkosti þess að taka
upp evruna, annars vegar aukin ut-
anríkisviðskipti og fjárfestingar er-
lendra aðila. Hins vegar er möguleg
lækkun vaxta á skuldabréfamarkaði
um 1,5–2%.
„Það má velta vöngum yfir því
hvort upptaka evrunnar muni hafa
minni áhrif á vaxtakjör heimilanna
en hnattvæðingarnefnd heldur
fram. Ástæða þessa er sú að upp-
taka evrunnar mun hugsanlega hafa
lítil áhrif á kjör íbúðalána sem eru
nú um 50% af heildarskuldum ein-
staklinga. Við inngöngu í Evrópu-
sambandið er líklegt að afnema
þyrfti ríkisábyrgð á Íbúðalánasjóði
og gera arðsemiskröfu til þess fjár-
magns sem bundið er í þeirri útlána-
starfsemi. Þetta gæti leitt til þess að
dýrara yrði að fjármagna kaup á
íbúðarhúsnæði og er hugsanlegt að
þessi hækkun vegi upp þá vaxta-
lækkun sem gæti átt sér stað við
upptöku evru. Ef þessi röksemda-
færsla stenst gætu áhrif upptöku
evru á þennan þátt vaxtakostnaðar
heimilanna orðið lítil sem engin, í
versta falli til hækkunar á vaxta-
kostnaði heimilanna,“ segir í Mark-
aðsyfirlitinu.
Innganga í ESB gæti
leitt af sér vaxta-
hækkun á íbúðalánum
BÁTASMIÐJAN Trefjar í Hafn-
arfirði afhenti nýverið nýjan Cleo-
patra 38-bát til Grænlands. Þetta er
fyrsti Cleopatra-báturinn sem
Trefjar afgreiða til Grænlands.
Kaupandi bátsins er Ludvig Lund-
blad, útgerðarmaður frá höf-
uðstaðnum Nuuk á Grænlandi. Lud-
vig rekur útgerðina Looqi og
Sønner ásamt sonum sínum. Bát-
urinn hefur hlotið nafnið Looqi L.
Hann er 11,3 metra langur og
mælist 14,9 brúttótonn en Trefjar
hafa nú gert lítilsháttar breytingar
á Cleopatra 38-bátnum til samræm-
is við nýsamþykkt lög um króka-
aflamarksbáta. Báturinn, sem gerð-
ur verður út frá svæðinu í kringum
Nuuk, er sérútbúinn til veiða á snjó-
krabba og hefur þegar hafið veiðar.
Í lest bátsins er rými fyrir fjórtán
380 lítra fiskikör. Báturinn er útbú-
inn með borðsal í lúkar fyrir fjóra
menn. Þar er svefnpláss fyrir fjóra
ásamt eldunaraðstöðu með eldavél
og örbylgjuofni. Salernisrými með
vatnssalerni er einnig í lúkar. Að-
alvél bátsins er af gerðinni Scania
og er 575 hestöfl. Siglingatæki eru
af gerðinni Simrad.
Trefjar selja bát til Grænlands
HAGNAÐUR Kers hf. (áður Olíufé-
lagsins hf.) nam 313 milljónum króna
á fyrsta fjórðungi ársins en hagnaður
alls ársins í fyrra nam 378 milljónum.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði nam 269 milljónum króna
nú en 1.550 milljónum króna allt árið
2001.
Rekstrartekjur samstæðunnar
námu 3,5 milljörðum króna á fyrsta
ársfjórðungi og hreinar rekstrar-
tekjur námu rúmum milljarði. Fjár-
magnsliðir eru nú jákvæðir um 222
milljónir en voru neikvæðir um 888
milljónir króna allt árið í fyrra.
Eigið fé var 7,3 milljarðar króna og
hefur hækkað um 25 milljónir á
fyrstu þremur mánuðum ársins. Eig-
infjárhlutfall var 37% í lok mars.
Stjórnendur félagsins eru, að því er
segir í tilkynningu bjartsýnir á að ár-
ið verði félaginu hagstætt, miðað við
núverandi aðstæður. Þó verði að hafa
í huga að gengi íslensku krónunnar
og heimsmarkaðsverð á olíu getur
haft veruleg áhrif á afkomu ársins.
Ekki er tekið tillit til áhrifa verð-
lagsbreytinga í árshlutareikningn-
um. Hefði verðleiðréttum reiknings-
skilum verið beitt áfram hefði
hagnaður samstæðunnar fyrir fyrsta
ársfjórðung aukist um 17,1 milljónir
króna eftir skatta og eigið fé verið
hærra um 84,9 milljónir króna.
Hagnaður Kers hf.
313 milljónir króna
SKAGSTRENDINGUR hf. var rek-
inn með 97 milljóna króna hagnaði
fyrstu þrjá mánuði ársins 2002, sam-
anborið við 33 milljóna króna tap fyr-
ir sama tímabil 2001. Betri afkomu
má einkum rekja til gengishagnaðar
af skuldum félagsins og til hærra af-
urðaverðs mælt í íslenskum krónum.
Rekstrartekjur félagsins námu
706 milljónum króna fyrstu þrjá
mánuði ársins 2002 en voru 600 millj-
ónir árið áður. Hagnaður félagsins
án afskrifta og fjármagnsliða nam
145 milljónum króna eða 20,6% af
rekstrartekjum samanborið við 99
milljónir og 16,5% fyrir sama tímabil
2001. Fjármagnsliðir voru jákvæðir
um 42 milljónir en voru neikvæðir
um 84 milljónir á sama tíma í fyrra.
Veltufé frá rekstri nam á tíma-
bilinu 138 milljónum eða 19,5% af
rekstrartekjum. Til samanburðar
nam veltufé frá rekstri 62 milljónum
í fyrra eða 10,4% af rekstrartekjum.
Aukningin nemur 54%.
Í árshlutareikningi félagsins er
tekið tillit til áhrifa verðlagsbreyt-
inga. Hefði það ekki verið gert hefði
hagnaður tímabilsins verið um 8,8
milljónum króna lægri.
Hagnaður Skagstrend-
ings 97 milljónir króna
HAGNAÐUR Vinnslustöðvarinnar
í Vestmannaeyjum fyrstu þrjá mán-
uði ársins nam 545 milljónum króna
samanborið við 255 milljónir á sama
tímabili í fyrra. Þetta er betri af-
koma en áætlað var og skýrist það,
að sögn félagsins, af 125 milljóna
króna gengishagnaði.
Framlegð félagsins, hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði,
nam tæpum 550 milljónum króna
og jókst um 2% frá fyrra ári. Var
hún samt ívið lakari en rekstrar-
áætlanir tímabilsins gerðu ráð fyr-
ir. Framlegðarhlutfall hækkaði úr
40,4% í fyrra í 41,5% í ár
Heildartekjur félagsins voru
1.325 milljónir króna og voru 10
milljónum króna lægri en á sama
tímabili fyrir ári. Þess má geta að
fyrsti ársfjórðungur er sá tími sem
tekjur Vinnslustöðvarinnar eru
jafnan hvað mestar. Fjármagns-
gjöld voru 311 milljónum króna
lægri í ár en í fyrra og munar þar
mestu um 125 milljóna króna geng-
ishagnað en á sama tíma í fyrra var
gengistap upp á 148 milljónir
króna.
Heildarskuldir félagsins jukust
um 215 milljónir króna frá upphafi
árs til marsloka en nettóskuldir
lækkuðu um 595 milljónir króna.
Skýringarinnar er aðallega að leita
í 814 milljóna króna aukningu
veltufjármuna.
Vinnslustöðin hf. beitir verð-
bólgureikningsskilum í uppgjörinu.
Án þeirra væri hagnaður félagsins
513 milljónir króna eða 32 milljón-
um króna lægri.
Gert er ráð fyrir að framlegð fé-
lagsins verði 1 milljarður króna á
árinu 2002 og hagnaður ársins verði
liðlega 350 milljónir króna, ef ekki
er tekið tillit til gengishagnaðar.
Afkoma Vinnslu-
stöðvarinnar betri
en áætlað var