Morgunblaðið - 11.05.2002, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002 67
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert fagurkeri og fæddur
listamaður, en getur verið
dulur um eigin málefni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að verja talsverð-
um tíma í að eyða misskiln-
ingi sem hefur komið upp,
því þér hefur ekki tekist að
flytja mál þitt sem skyldi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Varastu að láta aðra fara í
taugarnar á þér. Það
skemmir bara fyrir þér dag-
inn en með þolinmæði leiðir
þó allt til betri vegar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú finnur til samkenndar
með öðrum og vilt leggja
þitt að mörkum. Láttu í þér
heyra og þá færðu næg
tækifæri til að sýna hvað í
þér býr.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Fátt jafnast á við glaða
stund í góðra vina hópi en
mundu að vináttan er ekki
bara á aðra hönd heldur þarf
hún að vera gagnkvæm.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það má sjá margt í spaugi-
legu ljósi í dag svo láttu ekki
smáóhapp koma þér úr jafn-
vægi. Njóttu dagsins í faðmi
fjölskyldunnar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það má búast við breyting-
um og þótt nokkurs kvíða
gæti máttu ekki láta hann ná
tökum á þér því breytingar
geta reynst þér mikil gæfa.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú kemst ekki lengur hjá
því að gera áætlanir fyrir
framtíðina. Brjóttu odd af
oflæti þínu og farðu eftir
þeim.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ættir að reyna að þoka
málum áleiðis í dag. Það er
bara þegar menn hætta að
reyna sem leikurinn er tap-
aður.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er nauðsynlegt að halda
sig á mottunni, hvað fjárút-
lát varðar. Láttu gylliboð
lönd og leið og leggðu til
hliðar allt sem þú mátt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það getur verið varasamt að
fara um ókunnar slóðir án
nokkurs undirbúnings. Leit-
aðu í smiðju þeirra sem hafa
áður lagt leið sína þarna um.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú skaltu gera ferðaáætlun
og þegar staðurinn hefur
verið ákveðinn skaltu fræð-
ast um hann svo þú njótir
ferðarinnar til fulls.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er gott ráð að gera sjálf-
um sér glaðan dag við og við.
Það þarf ekki að kosta mikið
að lífga upp á tilveruna með
einhverjum hætti.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
NAUT OG LÓA
Naut, sérðu lóuna létta,
hún líður í bláhimins sal,
jafnlendis jörðu við slétta
þú jórtrandi liggur í dal.
Þér lízt ekki á lóuna smáu
né létta himnaför,
né sönginn í sölunum bláu
og sumargleðinnar fjör.
Þú baular með öskrinu illa,
ýskrandi segirðu þá,
að vænna sé vömbina að fylla
og velta sér jörðinni á.
- - -
Steingrímur Thorsteinsson
FYRRA verkefni dagsins
er að spila sex hjörtu í
sveitakeppni. Andstæðing-
arnir hafa ekkert blandað
sér í sagnir og vestur hittir
á óþægilegt útspil – laufníu:
Norður
♠ KDG7
♥ 732
♦ Á62
♣Á43
Suður
♠ --
♥ ÁKD10965
♦ DG3
♣DG7
Fyrir siðasakir er rétt að
skoða kerfiskort mótherj-
anna og þar stendur að þeir
spili út „öðru hæsta frá
brotinni röð“, eða tíunni frá
K109. Þar með minnka lík-
urnar á því að útspilið sé
frá laufkóngi og nían virðist
vera frá tvíspili eða hrein-
lega ein á ferð. Hvernig er
best að spila í því ljósi?
Stunguhættan er veruleg
og því er líklega skást að
taka á laufás og trompsvína
strax fyrir spaðaásinn. Það
er ekkert svigrúm til að
trompa spaða fyrst í rann-
sóknarskyni, og ekki borg-
ar sig að taka trompin, því
það er alls ekki öruggt að
hjartasjöa blinds sé inn-
koma. Með þessu móti
vinnst spilið ef spaðaásinn
er réttur og ennfremur
þegar vestur á eitt lauf og
tígulkóng.
Spilið kom upp í aðaltví-
menningi Bridsfélags
Reykjavíkur á þriðjudags-
kvöldið og leit allt svona út:
Norður
♠ KDG7
♥ 732
♦ Á62
♣Á43
Vestur Austur
♠ Á865 ♠ 109432
♥ G4 ♥ 8
♦ K10974 ♦ 85
♣98 ♣K10652
Suður
♠ --
♥ ÁKD10965
♦ DG3
♣DG7
Þeir sem sögðu slemm-
una fengu yfirleitt spaðaás-
inn út og unnu þar með sex
eða sjö eftir atvikum. Hitt
var algengara að vestur
hitti á laufútspil gegn fjór-
um hjörtum. Og þá er það
síðara verkefni dagsins:
Hvernig á að spila fjögur
hjörtu í tvímenningi með
laufníu út?
Hvað segja menn um
þessa hugmynd: Taka á
laufás og spila spaðakóng.
Þegar austur fylgir með
smáspili má telja fullvíst að
hann eigi ekki ásinn. Spaða-
kóngur er því trompaður.
Svo er ÁK í hjarta spilað og
slagur gefinn á laufkóng. Ef
austur spilar ekki tígli um
hæl, heldur laufi eða spaða,
rennur upp þvingun á vest-
ur í lokastöðunni. Vestur á
spaðaás og fimmlit í tígli og
það er meira en hann ræður
við að valda.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
100ÁRA afmæli. Ídag, laugardaginn
11. maí, verður hundrað ára
Kristín Guðmundsdóttir,
Álfaskeiði 64 a5, Hafnar-
firði. Af því tilefni mun
Kristín taka á móti ættingj-
um og vinum á afmælisdag-
inn kl. 14–16 í Stjörnuheim-
ilinu, Garðabæ.
1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. e4 d5 4.
exd5 exd5 5. d4 Be7 6. Rf3
0–0 7. Be2 Rbd7 8. 0–0 dxc4
9. Bxc4 Rb6 10. Bb3 c6 11.
He1 Bf5 12. Re5 Rfd5 13.
Df3 Be6 14. Re4 f6 15. Rd3
Bf7 16. Rec5 Dc8 17. Bd2
Rd7 18. Re4 R5b6 19. Rf4
Rc4 20. Rh5 Rdb6 21. Bf4
Bd5 22. Dg3 Hf7 23. Bh6 Df8
24. Bc2 Kh8 25. Bc1 Bb4 26.
He2 He8 27. a3 Bd6
28. Bf4 Bxe4 29.
Hxe4 Hxe4 30. Bxe4
g5 31. Bxd6 Dxd6 32.
Dc3 De6 33. He1 He7
34. He2 Rd6 35. Rg3
Dc4 36. Dd2 Da2 37.
f3 Rbc4 38. Dc3 Rb5
39. Db4 He8
Staðan kom upp á
Reykjavíkurskák-
mótinu sem lauk í
mars. Normundus
Miezis (2.498) hafði
hvítt gegn Arnari
Gunnarssyni
(2.322). 40. Bxc6!
Db1+ Ekki gekk upp að seil-
ast eftir manninum þar sem
þá yrði svartur mátaður. Í
framhaldinu verður svartur
peði undir án nægra bóta.
41. Kf2 Hxe2+ 42. Rxe2
Rbd6 43. Bxb7 a5 44. Dc5
Dxb2 45. Bd5 Dxa3 46. Dc7
De3+ 47. Kf1 Db3 48. Dd8+
Kg7 49. De7+ Kg6 50. Kf2
Db8 51. h4 Dh8 52. h5+ Kh6
53. Bxc4 Rxc4 54. Kg3 g4
55. f4 og svartur gafst upp
enda fátt til varnar eftir t.d.
55. ...a4 56. Kh4 a3 57. Rg3
og hvítur mátar.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Svipmyndir – Fríður
BRÚÐKAUP. Gef-
in voru saman 6.
apríl sl. í Bústaða-
kirkju af sr. Pálma
Matthíassyni Lín-
ey Sigurðardóttir
og Atli Már Jó-
hannesson. Heim-
ili þeirra er í Búð-
argerði 4.
EDEN HVERAGERÐI
Bjarni Jónsson, listmálari,
hefur opnað sýningu í Eden.
Sýningin stendur til 20. maí.
Mikið af þjóðlegum myndum.
Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 551 8439
Líföndun
Guðrún Arnalds verður með helgarnámskeið
í líföndun helgina 25. og 26. maí.
Djúp öndun hreinsar líkama og sál, eykur bjartsýni og lífsorku og
blæs burtu kvíða og kvillum.
Jóga mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30 v/Háaleitisbraut
„Tíminn er líf og lífið býr í hjartanu“
EINKATÍMAR: HÓMÓPATÍA - NUDD - LÍFÖNDUN
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is. Einn-
ig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
85 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 11.
maí, er 85 ára Bergþóra
Guðlaugsdóttir, Garðvangi,
Garði, áður Skólavegi 4,
Keflavík. Hún tekur á móti
ættingjum og vinum í dag kl.
15–19 á Garðvangi, Garði.
HIN árlega fuglaskoðunarferð
Ferðafélags Íslands, Hins íslenska
náttúrufræðifélags og Fuglavernd-
arfélags Íslands verður farin laug-
ardaginn 11. maí.
Fuglaskoðunarferðirnar hafa átt
miklum vinsældum að fagna allt frá
árinu 1970 og til er skrá yfir alla
fugla sem sést hafa á þessum ferð-
um, samtals 79 tegundir. Þar á með-
al eru allar algengustu tegundirnar
en líka sjaldséðir fuglar, svo sem
skeggþerna, hringdúfa og gaukur.
Meðal viðkomustaða í ferðinni eru
Álftanes, Hafnarberg og Garðskagi
en á öllum þessum stöðum er fuglalíf
mjög fjölbreytt. Gott er að hafa með
sér sjónauka og sjálfsagt að taka
með fuglabókina. Þátttakendur fá
lista yfir þær tegundir sem sést hafa
og merkja við þá fugla sem sjást í
þessari ferð og leggja þannig sitt af
mörkum til bókhaldsins. Leiðsögu-
maður og fararstjóri verður Einar
Ólafur Þorleifsson náttúrufræðing-
ur. Verð kr. 1.700/2.000. Brottför frá
BSÍ kl. 9 með viðkomu í Mörkinni 6.
Fuglaskoð-
unarferð
með leiðsögn
BLÓMASTOFAN Eiðistorgi er með
sýningu alla helgina á brúðarvönd-
um, skreytingum og öllu sem við-
kemur brúðkaupum og veislum.
Einnig sýnir Guðbjörg Kr. Ingv-
arsdóttir í Aurum skart og Ásta
Guðmundsdóttir í Kirsuberjatrénu
brúðarkjól. Allir velkomnir.
Brúðarsýning
á Eiðistorgi
KYNNING á stefnuskrá Sjálfstæð-
isflokksins í sveitarfélaginu Árborg
fer fram á kosningaskrifstofu D-
listans á Austurvegi 22, Selfossi,
laugardaginn 11. maí nk. kl. 14.
Íbúum Árborgar er boðið að líta
inn og kynna sér málin og hitta
frambjóðendur. Boðið er upp á kaffi
og kökur, auk góðgætis fyrir yngstu
kynslóðina.
Ungir sjálfstæðismenn bjóða í
pizzaveislu um kvöldið þar sem ungt
fólk er hvatt til að koma saman,
spjalla og kynna sér málin.
Kosningaskrifstofan er opin kl.
16-20 virka daga og frá kl. 11 um
helgar og
er alltaf heitt kaffi á könnunni fyr-
ir gesti og gangandi.
Kynning á
stefnuskrá D-
listans í Árborg
D-LISTI sjálfstæðismanna í Kópa-
vogi opnar kosningaskrifstofur sínar
formlega í dag, laugardaginn 11.
maí, í Bæjarlind 12 og sunnudaginn
12. maí í Hamraborg 1, 3. hæð. Opn-
un kosningaskrifstofunnar í Bæjar-
lind hefst klukkan 16.00 með ávarpi
Gunnars I. Birgissonar oddvita
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.
Boðið verður upp á léttar veitingar
ásamt lifandi tónlist.
Opnun kosningaskrifstofunnar í
Hamraborg hefst klukkan 14.00 með
ávarpi Sigurrósar Þorgrímsdóttur,
sem skipar fjórða sæti listans. Í til-
efni mæðradagsins eru mæður sér-
staklega boðnar velkomnar. Boðið
verður upp á léttar veitingar.
Kosningaskrifstofurnar verða
opnar frá klukkan 14.00-20.00 virka
daga og frá klukkan 10.00-17.00 um
helgar. Alltaf heitt á könnunni.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.xdkop.is.
D-listi opnar
kosninga-
skrifstofur B-LISTI framsóknarmanna í Kópa-vogi opnar kosningaskrifstofu á
Salavegi 2 sunnudaginn 12. maí.
Kosningaskrifstofan á Salavegi
verður opnuð klukkan 14 með ávarpi
Sigurðar Geirdals, oddvita Fram-
sóknarflokksins í Kópavogi. Boðið
verður upp á léttar veitingar.
Íbúar Kópavogs eiga þess kost að
spjalla við frambjóðendur um mál-
efni komandi sveitarstjórnarkosn-
inga. Kosningaskrifstofan á Salavegi
verður opin fyrst um sinn kl. 17-20
virka daga. Jafnframt er rétt að
minna á að kosningaskrifstofan á
Digranesvegi 12 er opin kl. 13-18 alla
virka daga og frá kl. 11-18 um helg-
ar.
Opna kosninga-
skrifstofu í
Kópavogi
FRÉTTIR
FRAMHALDS-bílskúrssala verður
í bílskúrnum á Hávallagötu 16
sunnudaginn 12. maí kl. 11.30–17.
Allir ágóði af sölunni rennur í Við-
haldssjóð orgels Kristskirkju,
Landakoti.
Bílskúrssala til
styrktar orgeli
DAGANA 15. til 18. maí og kosn-
ingadaginn 25. maí nk. mun merkja-
sala Blindrafélagsins fara fram um
land allt.
Sala á merkjum Blindrafélagsins
er mikilvæg til fjármögnunar á
starfsemi félagsins. Starfsemin er að
mestu leyti fjármögnuð með frjáls-
um framlögum frá einstaklingum,
fyrirtækjum og félagasamtökum.
Félagið vill hvetja almenning til að
aðstoða við sölu á merkjum og styðja
félagið með því að kaupa merki af
sölufólki, segir í fréttatilkynningu.
Merkin verða seld á fimmhundruð
krónur.
Merkjasala
Blindrafélagsins