Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 1
127. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 1. JÚNÍ 2002
SENEGALAR sigruðu Frakka í
fyrsta leik heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu er fram fór í
Suður-Kóreu í gærmorgun. Eina
mark leiksins gerði Pape Bouba
Diop. Úrslitin komu mjög á óvart
enda eru Frakkar nú bæði Evrópu-
og heimsmeistarar. Afríkuríkið
Senegal var áður frönsk nýlenda og
fjöldi Senegala býr í Frakklandi.
Hér sjást nokkrir þeirra fagna ár-
angrinum í París í gær, í baksýn er
þekkt bygging, Arche de la Defense.
Reuters
Kvittað fyrir nýlenduskeið
Okkar stærsta/B1
BANDARÍKJAMENN telja að vís-
bendingar séu um að stjórnvöld í
Pakistan séu farin að hindra ferðir
hermdarverkamanna frá landinu inn
í indverska hluta Kasmír-héraðs.
Enn sé þó ekki hægt að fullyrða að
stjórn Pervez Musharrafs forseta
hafi staðið við loforð um að stöðva al-
gerlega ferðir hermdarverkamann-
anna. Indverjar sögðu hins vegar að
ekki hefði orðið nein breyting í þess-
um efnum. Bandaríkjamenn og
Bretar hafa gefið flestum stjórnar-
erindrekum sínum í Indlandi leyfi til
að yfirgefa landið vegna stríðshætt-
unnar og margar aðrar þjóðir hvetja
einnig borgara sína á svæðinu til að
hafa sig á brott.
Indverjar hafna
beinum viðræðum
Indverjar hafa neitað að sam-
þykkja beinar viðræður um deiluna
á væntanlegum leiðtogafundi nokk-
urra Asíuríkja í Kazakhstan í næstu
viku en þar hyggst Vladímír Pútín
Rússlandsforseti reyna að miðla
málum. George Fernandes, varnar-
málaráðherra Indlands, virtist þó í
gær reyna að draga úr stríðsótta.
„Ég tel ekki að ástæða sé til að hafa
af því áhyggjur núna hvað kunni að
gerast,“ sagði hann og taldi ástandið
vera „stöðugt“.
Liðlega þúsund milljónir manna
búa í Indlandi og um 140 milljónir í
Pakistan. Bæði Indverjar og Pakist-
anar ráða yfir kjarnorkuvopnum og
telja sérfræðingar bandaríska varn-
armálaráðuneytisins að á fyrstu vik-
um átaka milli þjóðanna tveggja
gætu 9-12 milljónir manna fallið ef
slíkum vopnum yrði beitt. Er þá ekki
reiknað með óbeinu manntjóni síðar
af völdum mengunar, sjúkdóma og
hungurs. Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, fer
eftir helgina í ferð til umræddra
landa til að reyna að hindra átök.
Pakistanar eru mikilvægur
bandamaður í átökum vesturveld-
anna við liðsmenn al-Qaeda, sam-
taka Osama bin Ladens, í Afganist-
an. Musharraf hefur hótað að flytja
herlið frá afgönsku landamærunum
vegna hótana Indverja en þá gæti
baráttan gegn al-Qaeda orðið tor-
veldari. „Öll pakistanska þjóðin
stendur þétt að baki hernum sem er
reiðubúinn að verja ættjörðina ef til
stríðs kemur,“ sagði Musharraf í
gær.
Óttast stríð milli Pakistana og Indverja
Útlendingar
hvattir til
að forða sér
Washington, Nýju Delhí, Islamabad. AP, AFP.
Hættulegasti/28
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra átti fund með Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í
höfuðstöðvum hans í Ramallah í
gær. Hann segir fundinn hafa ver-
ið mjög góðan og að hann hafi
fundið meiri friðarvilja hjá Arafat
en hann hafi kannski átt von á.
„Hann er ákaflega elskulegur
maður og ég hafði ánægju af því að
tala við hann,“ sagði Halldór í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðsins
sem er í Ramallah. „Hann talaði
mikið um sitt líf og sína reynslu og
ég tel að hann hafi verið einlægur.“
Ísraelar réðust í gærmorgun
með skriðdrekum inn í flótta-
mannabúðir við borgina Nablus á
Vesturbakkanum og létu, að sögn
AFP-fréttastofunnar, vopnaða
verði gæta hundraða karlmanna úr
búðunum meðan sprengt var upp
hús sjálfsmorðssprengjumanns er
lét til skarar skríða fyrr í vikunni.
Síðdegis í gær réðust hermenn
einnig inn í Tulkarem og flótta-
mannabúðir við borgina.
Lét í
ljós frið-
arvilja
Morgunblaðið/Sigrún Birna Ákaflega elskulegur/4
MÖRG fyrirtæki í Evrópu hyggjast
reyna að koma í veg fyrir minni
framleiðslu meðan á heimsmeist-
aramótinu í knattspyrnu stendur í
Suður-Kóreu og Japan með því að
bjóða starfsfólki sínu upp á sveigj-
anlegan vinnutíma. Verður fólki
boðið að horfa eins og það lystir á
þá leiki, sem háðir eru á vinnutíma,
gegn því að það bæti fyrirtækinu
upp þær vinnustundir sem glatast.
Í rannsókn sem Barclaycard lét
gera fyrir sig kemur fram að ef
enska landsliðið í knattspyrnu
kæmist alla leið í úrslitaleik HM
myndi það kosta breska hagkerfið
fimm milljarða vinnustunda. Þá
sýndi könnun að 11% verkamanna á
Spáni væru að hugleiða þann mögu-
leika að tilkynna veikindi til að geta
horft á fótboltann.
Franski farsímarisinn SFR hefur
sent þau skilaboð út til millistjórn-
enda, að þeir sýni sveigjanleika.
„Ef einhver mætir seint í vinnuna
vegna þess að viðkomandi var að
horfa á leik sem hófst kl. 8.30, eða
það hefst leikur snemma í eftirmið-
daginn, viljum við að yfirmenn sýni
því skilning,“ sagði talsmaður SFR.
HM og fyrirtækin
Sveigjan-
legur
vinnutími
París. AFP.
ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service lækkaði í
gær lánshæfiseinkunn Japans í ann-
að sinn á hálfu ári vegna mikilla
skulda japanska ríkisins. Samkvæmt
nýja matinu er Japan, annað stærsta
hagkerfið og land stærstu lánar-
drottna heims, í sama lánshæfis-
flokki og Kýpur, Grikkland og Lett-
land.
Annað matsfyrirtæki, Standard &
Poor’s, lækkaði lánshæfiseinkunn
Japans í síðasta mánuði og sagði að
Japanir hefðu ekki gert nóg til að
grynnka á skuldunum.
Adam Posen, sérfræðingur við Al-
þjóðahagfræðistofnunina (IIE) í
Washington, segir að horfur séu á
efnahagskreppu í Japan innan hálfs
árs verði ekki ráðist í stórfelldar um-
bætur á fjármálakerfinu. „Kreppa í
Japan myndi hafa alvarlegar afleið-
ingar fyrir landið og efnahag alls
heimsins.“
Lánshæfi
Japana
lækkar
Tókýó. AP, AFP.