Morgunblaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 67
DAGBÓK
HUGLEIÐSLUTÍMAR
„Sólskin fyrir hugann“
4., 11., 18. og 25. júní kl. 20-21.30
með Gen Nyingpo
Allir velkomnir
Nánari uppl. í s. 554 0937
www.karuna.is – Bankastræti 6, 4. hæð
VOR • SUMAR 2002
Rauðagerði 26, sími 588 1259
á vönduðum dömu- og herrafatnaði
í Rauðagerði 26 í dag,
laugardag, frá kl. 10 til 18
25–70% afsláttur
Stærðir 36–48
Útsala • Útsala
Verið
velkomin
Alúðar þakkir fyrir hlýjar kveðjur og góðar
gjafir á 90 ára afmæli mínu sunnudaginn
5. maí sl. Ég bið Guð að blessa vini og vanda-
menn nær og fjær. Hittumst næst fagnandi og
glöð 5. maí 2012.
Sigurjón Sæmundsson.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
ER draumalegan til staðar?
Yfirleitt ekki, segir Bob
Hamman, og hefur því miður
rétt fyrir sér. En þar fyrir er
óhætt að láta sig dreyma.
Magnús Eiður Magnússon
hélt á spilum suðurs hér að
neðan og við honum blasti
það draumaverkefni að spila
sex spaða:
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ D75
♥ Á9
♦ K952
♣K942
Suður
♠ KG10964
♥ 4
♦ Á1086
♣ÁG
Spilið kom upp á landsliðs-
æfingu um helgina. Félagi
Magnúsar í norður var Ás-
mundur Pálsson, en í AV
voru Steinar Jónsson og
Stefán Jóhannsson:
Vestur Norður Austur Suður
Steinar Ásmundur Stefán Magnús
-- -- Pass 1 spaði
3 hjörtu 4 hjörtu 5 hjörtu Pass
Pass Dobl Pass 5 spaðar
Pass 6 spaðar Allir pass
Ekki vantar nema tígul-
gosann til að gera slemmuna
þokkalega, en án hans virðist
vörnin eiga líklegan slag á
tígul til hliðar við trompás-
inn. Magnús fékk út hjarta-
drottningu. Hvernig myndi
lesandinn spila?
Magnús drap á hjartaás og
spilaði strax laufi á gosann.
Hvað vakti fyrir honum?
Norður
♠ D75
♥ Á9
♦ K952
♣K942
Vestur Austur
♠ 8 ♠ Á32
♥ DG10862 ♥ K753
♦ D72 ♦ G4
♣D108 ♣8753
Suður
♠ KG10964
♥ 4
♦ Á1086
♣ÁG
Þetta var EKKI legan sem
Magnús var að sverma fyrir.
Hann var að vonast til að
austur ætti drottningu fjórðu
í laufi og þrjá tígla. Laufgos-
inn verður þá ellefti slagur-
inn, en síðan lendir austur í
láglitaþvingun í endastöð-
unni. Alls ekki ólíkleg lega,
en eins og Hamman segir –
draumar verða sjaldnast að
veruleika.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert glaðvær og átt auð-
velt með að geðjast öðrum.
Á sama tíma ertu raunsær
og lætur ekki leika á þig. Á
árinu muntu leggja áherslu
á náin sambönd.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú finnur til hlýju og örlætis
gagnvart öllum sem verða á
vegi þínum í dag, sérstaklega
systkinum þínum, ættingjum
og nágrönnum. Láttu ekki
tækifæri til góðverka fram
hjá þér fara.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það hvarflar að þér að þú
værir fullnægðari ef starf þitt
gagnaðist öðrum. Þú ættir að
íhuga að verja fé til líknar-
mála.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þig langar til að flýja áhyggj-
ur hversdagsins. Þig langar
til að fara langt í burtu og
gera eitthvað spennandi og
örvandi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú verður líklega beðinn um
að vinna fyrir aðra í dag.
Taktu það að þér því þú munt
finna til mikillar fullnægju við
að vinna þetta verk.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú sérð vin þinn eða maka í
nýju og jákvæðu ljósi í dag.
Þú sérð kosti þessa einstak-
lings og það gleður þig að
þekkja hann.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Íhugaðu hvar þú ert staddur í
lífinu og hversu vel þér geng-
ur að uppfylla andlegar og
veraldlegar þarfir þínar.
Hvað þarftu að gera til að
auðga líf þitt enn frekar?
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Rómantískar hugsjónir ríkja
í huga þínum í dag. Þetta er
indælt því það gerir þig fær-
an um að meta fegurðina í
kringum þig á nýjan hátt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú átt auðvelt með að setja
þarfir fjölskyldu þinnar í fyr-
irrúm í dag. Þú þekkir hring-
rás lífsins og veist að hjálp
sem þú veitir öðrum í dag á
eftir að skila sér til þín síðar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Dagurinn hentar vel til sam-
ræðna. Þú átt óvenju auðvelt
með að skilja hvað aðrir eru
að ganga í gegnum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Góðmennska þín hvetur þig
til að gera einhverjum í
vinnunni greiða í dag. Þú
þarft að gæta þess að fólk
misnoti ekki velvild þína.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur sterka löngun til
listsköpunar. Láttu það eftir
þér að gera eitthvað skapandi
því það mun veita þér mikla
gleði.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þetta er góður dagur fyrir
fiskana. Vegna afstöðu sólar
við Neptúnus hafa þeir löng-
un til að flýja á náðir dag-
drauma.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 1. júní,
er sjötug Auður Guð-
brandsdóttir, Fossvegi 6,
Selfossi. Hún tekur á móti
gestum í Básnum, Efsta-
landi, frá kl. 14–16 á afmæl-
isdaginn.
70ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 3. júní,
verður sjötugur Haraldur
Haraldsson, Vallarbraut 1,
Hafnarfirði. Eiginkona
hans er Sigríður Jóhannes-
dóttir. Þau taka á móti gest-
um í Hraunseli, Flatahrauni
3, milli kl. 15 og 18 á morg-
un, sunnudaginn 2. júní.
90ÁRA afmæli. Nk.þriðjudag, 4. júní,
verður níræður Jón Krist-
insson, Eystra-Íragerði,
Stokkseyri. Af því tilefni
tekur hann á móti gestum í
dag, laugardaginn 1. júní,
hjá syni sínum og tengda-
dóttur á Hásteinsvegi 16
milli kl. 15 og 18.
50ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 3. júní,
verður fimmtug Kolbrún
Kristinsdóttir. Í tilefni af af-
mælinu ætla hún og eigin-
maður hennar, Einar
Sveinsson, að taka á móti
gestum sunnudaginn 2. júní
frá kl. 16 á heimili þeirra á
Hólagötu 6, Sandgerði.
80ÁRA afmæli. Á morg-un, sunnudaginn 2.
júní, verður áttræður Krist-
inn G. Magnússon skáld,
Keilugranda 2, Reykjavík.
Eiginkona hans er Ingi-
björg Stefánsdóttir frá
Flateyri. Mörg ljóða hans
hafa birst í Lesbók Morgun-
blaðsins. Hann verður fjar-
staddur.
50 og 55 ÁRA afmæli. Nk. mánudag, 3. júní, verðurfimmtug Valborg Davíðsdóttir. Eiginmaður hennar,
Ragnar Breiðfjörð Ragnarsson, er 55 ára í dag, laugardag-
inn 1. júní. Af þessu tilefni bjóða þau hjónin ættingjum og
vinum til veislu í Oddfellowhúsinu á Sjafnarstíg 1, Akureyri,
í dag frá kl. 17.
LJÓÐABROT
VIÐ SKÁL
Brennivín er bezti matur,
bragðið góða svíkur eigi.
Eins og hundur fell ég flatur
fyrir því á hverjum degi.
Af tilhlökkun titrar minn barmur,
ég trúi að sálinni hlýni,
er hátt lyftir hægri armur
heilflösku af brennivíni.
Þótt ég beri vín að vör,
verði stundum þéttur,
fæ ég sjaldan á mig ör
eða drulluslettur.
Undarlega í mig leggst,
að illa reynist vinir,
en ef gamli Bakkus bregzt,
þá bregðast allir hinir.
Haraldur er á því enn,
þó enginn geti séð það.
Það eru frekar fáir menn,
sem fara betur með það.
Haraldur Hjálmarsson
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu.
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík