Morgunblaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 24
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
24 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
PRÓFANIR á búnaði sem Stjörnu-
Oddi hefur hannað til neðansjávar-
merkinga á karfa, er lauk í síðustu
viku, sýna að aðferðin er bæði fram-
kvæmanleg og áreiðanleg. Næsta
skref Stjörnu-Odda er að semja við
Hafrannsóknastofnun um kaup á
búnaðinum. Þetta kom fram í máli
Sigmars Guðbjörnssonar, fram-
kvæmdastjóra Stjörnu-Odda, á
blaðamannafundi þar sem kynntur
var árangur af leiðangri hafrann-
sóknaskipsins Árna Friðrikssonar
RE með búnaðinn.
Sigmar sagðist ekki vita til þess að
gerðar hefðu verið tilraunir með
merkingar á fiski neðansjávar í lík-
ingu við það sem Stjörnu-Oddi er að
gera í samvinnu við Hafrannsókna-
stofnun og Granda, og að í raun væri
um vísindalegt afrek að ræða.
Þorsteinn Sigurðsson, fiskifræð-
ingur og verkefnisstjóri Hafrann-
sóknastofnunar, sagði að árangurinn
af prófununum á búnaði Stjörnu-
Odda væri ákaflega mikilvægur fyr-
ir fiskirannsóknir. Mjög lítið sé vitað
um hegðun karfans í sjónum þar
sem þær mælingaraðferðir sem
reyndar hafi verið til þessa hafi ekki
gengið.
Hann sagði að búnaðurinn frá
Stjörnu-Odda gæfi tækifæri til að
hægt yrði að vita meira um samsetn-
ingu karfastofna sem Íslendingar
hafa aðgang að. Það sé mikið hags-
munamál til að hægt verði að átta sig
betur á vexti karfa, farleiðum og
hvernig hann dreifir sér í sjónum. Þá
verði hægt að veita betri ráðgjöf í
þessum efnum.
Hugmyndin kviknaði 1997
Á annan tug fiska voru merktir
með búnaði Stjörnu-Odda í leiðangri
Árna Friðrikssonar dagana 21.–24.
maí síðastliðinn. Að merkingu lok-
inni voru fiskarnir veiddir og krufð-
ir. Niðurstaðan sýndi að sögn Sig-
mars að fiskarnir hefðu ekki orðið
fyrir skakkaföllum af völdum merk-
ingarinnar. Í framhaldi af því voru
nærri 50 fiskar merktir og þeim síð-
an sleppt.
Hugmyndin að neðansjávarmerki-
búnaði Stjörnu-Odda á karfa kvikn-
aði á árinu 1997. Á árinu 1999 veitti
Rannís styrk til verkefnisins og
hófst þá þróun á búnaðinum. Árið
eftir var fyrsti karfinn merktur neð-
ansjávar. Prófanir og þróun á bún-
aðinum héldu svo áfram á árinu 2001
og sagði Sigmar að í ljós hefði komið
að nauðsynlegt var að gera ákveðnar
tæknilegar breytingar á búnaðinum.
Afnot fengust af Árna Friðrikssyni á
árinu 2001 sem gaf fjölmargar upp-
lýsingar til að vinna úr og var grunn-
urinn að því að hægt var að hitta á
réttar breytingar á búnaðinum. Sig-
mar sagði að í leiðangri dagana 11.–
15. maí síðastliðinn hefði komið í ljós
að verkefnið væri langleiðina komið í
höfn og það hefði síðan verið klárað í
leiðangrinum 21.–24. maí.
Þróunarkostnaður
hátt í 100 milljónir
Sigmar sagði það skipta miklu
máli fyrir Stjörnu-Odda að neðan-
sjávarmerkingarbúnaðurinn yrði
tekinn í notkun hér á landi. Það auð-
veldaði að koma búnaðinum á fram-
færi annars staðar. Hann sagði að
þróunarkostnaður búnaðarins til
þessa væri kominn hátt í 100 millj-
ónir króna.
Þorsteinn sagði að tilraunir, sem
gerðar hefðu verið með merkingar á
karfa til þessa, hefðu ekki tekist. Það
hefði ekki verið fyrr en Sigmar hefði
komið með þá hugmynd að merkja
karfann ofan í sjónum þar sem hann
lifir, að menn sáu að mögulegt gæti
verið að ná fram meiri vitneskju um
hegðun karfans. Það sé ekki fram-
kvæmanlegt að draga fiskinn upp,
merkja hann og sleppa síðan. Hann
drepist við það.
Þó fyrsta markmiðið með búnaði
Stjörnu-Odda sé merkingar á karfa
þá sagði Þorsteinn að vel væri hugs-
anlegt að hægt yrði að nota búnað-
inn til merkingar á öðrum fiskteg-
undum. Þá verði væntanlega hægt
að spara mikið fé í merkingum því
þær gangi mun hraðar fyrir sig en
hefðbundnar merkingar.
Þorsteinn sagðist vilja koma því á
framfæri til þeirra sem hugsanlega
fá merkta karfa í veiðarfæri eða á
fiskvinnsluborð að hafa samband og
láta vita.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigmar Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri Stjörnu-Odda, með teikningu af
neðansjávarmerkingarbúnaði fyrirtækisins, og Þorsteinn Sigurðsson,
fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun.
Prófunum á neðansjávarmerkingarbúnaði Stjörnu-Odda er nú lokið
Framkvæman-
leg aðferð og
áreiðanleg LÁNSHÆFISMAT Búnaðar-banka Íslands og LandsbankaÍslands er óbreytt samkvæmt
nýju mati fyrirtækisins Mood-
y’s. Bankarnir eru með sömu
einkunn í öllum þeim þremur
flokkum sem einkunn er gefin
fyrir. Þeir fá A3 fyrir skuldbind-
ingar til langs tíma, P2 fyrir
skuldbindingar til skamms tíma
og C fyrir fjárhagslegan styrk-
leika. Horfur eru metnar já-
kvæðar hjá báðum bönkunum.
Búnaðarbanki
og Landsbanki
Óbreytt
lánshæf-
ismat
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111