Morgunblaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 36
LISTIR
36 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LOKATÓNLEIKAR Listahátíð-
ar 2002 voru samstarfsverkefni
ítalskra og íslenskra listamanna,
þar sem flutt var „nútímatónlist“
en þetta hugtak hefur nú orðið
nokkuð óljósa merkingu og á frekar
við tónlist sem samin var aðallega á
fyrri hluta nýliðinnar aldar, en ekki
þá tónlist sem samin er í dag. Þessi
þversögn kom vel fram í þeim verk-
um sem flutt voru í Háskólabíói í
gærkveldi en þar var elsta verkið,
samið 1921, af meistara Stravinskij,
í raun eina „nútímaverkið“, sem
flutt var á þessum tónleikum, eða
réttara sagt nýtískulegast.
Fyrsta viðfangsefni tónleikanna
voru sex sakleysisleg smálög, fyrir
„fjórar hendur“ eftir Germaine
Tailleferre. Dískantröddin var sér-
lega lagræn en undirleikurinn átti
víst að vera nútímalegur. Þessi
samsetningur var fallega leikinn af
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur og
Eddu Erlendsdóttur. Litla unaðs-
lestin heitir verk eftir Azio Corghi,
sem fer í gang með tilheyrandi
flauti og lestarhljóðum. Efni verks-
ins er sótt í tónlist Rossinis og er
að mestu samleikur á píanó með
millispilum á slagverk (lestin) og
verður að segja að verkið er í raun
þvaður, sem þó var ágætlega flutt.
Sama má segja um þriðja verkið
eftir Tailleferre og um hin tvö fyrri
verkin, að þetta er óttalega þunn
tónlist og langt frá því að vera
frumleg.
Dauði harðstjóra eftir Milhaud
er kraftmikið verk og er efni verks-
ins viðbrögð rómverskrar alþýðu
gegn miskunnarlausum harðstjóra.
Kór Langholtskirkju söng þetta
sérkennilega verk á sannfærandi
máta, með tilheyrandi ópum og
köllum.
Lokaverk tónleikanna var kant-
atan Brúðkaupið eftir Stravinskij.
Fyrsta gerð verksins er samin 1914
og er greinilegt að Orff (Carmina
Burana, 1936), hefur lært mikið af
Stravinskij, en heyra mátti ýmis-
legar tóntiltektir sem Orff hefur
notfært sér. Fyrir utan að vera ný-
stárlegt árið 1923, þegar það var
frumflutt, heldur það enn fersk-
leika sínum og er sannkallað „nú-
tímaverk“. Stjórnandinn Maurizio
Dini Ciacci lagði áherslu á hryn-
skerpuna en hefði mátt halda að-
eins aftur af hljóðfæraleikurunum í
styrk. Bældur hljómur, ef hann er
hrynskarpur, getur verið mun
áhrifameiri en ef „spilað er út í
styrk“, sem verður þreytandi til
lengdar.
Kór Langholtskirkju (kórstjóri
Jón Stefánsson) söng mjög vel
þetta verk, sem er ekki sérlega að-
gengilegt og töluvert flókið í hryn.
Einsöngvararnir voru Sonia Vis-
entin, sem söng brúðina af glæsi-
brag, Elisabetta Lombardi, Garðar
Thor Cortes og Bergþór Pálsson
sungu öll af öryggi en áttu oft
þungt fyrir að sækja sér hljóm-
rými, nema þá helst Bergþór, sem
endaði verkið með fallega sunginni
lokastrófu, nánast „accappella“.
Eins og fyrr segir lagði stjórnand-
inn áherslu á hrynskerpuna og
hljóðfæraleikarar og söngvarar
svöruðu kalli með eftirminnilegum
hætti, svo að flutningurinn í heild
var kraftmikill en svolítið keyrður
áfram, án þess að slakað væri
nokkurs staðar á í hraða eða styrk,
svo að búið var að „taka allt út“,
þegar veislugleðin hófst.
Hávaðasamt Brúðkaup
TÓNLIST
Háskólabíó
Íslenskir og ítalskir flytjendur.
Undir stjórn Maurizio Dini Ciacci. Föstu-
dagurinn 31. maí, 2002.
Tailleferre, Corghi,
Milhaud og Stravinskij.
Jón Ásgeirsson
Flytjendum Brúðkaupsins var fagnað innilega í lok tónleikanna.
Morgunblaðið/Kristinn
LISTDANSSKÓLI Íslands fagn-
ar hálfrar aldar afmæli sínu í ár. Af
því tilefni standa Tónskáldafélag Ís-
lands og Listdansskólinn að sameig-
inlegri hátíðarsýningu í Þjóðleikhús-
inu. Á sýningunni, sem er í samvinnu
við Listahátíð í Reykjavík, eru frum-
flutt þrjú dansverk við þrjú frumflutt
tónverk. Dansverkin eru sérstaklega
samin fyrir elstu nemendur List-
dansskólans en þeir eru á öðru ári í
framhaldsnámi í skólanum sem jafn-
gildir öðru ári í menntaskóla.
Ann ég, dýrust drósa er byggt á
fjórum vikivakakvæðum úr handrit-
um frá 17. og 18. öld. Lárus H.
Grímsson, stjórnandi lúðrasveitar
Reykjavíkur, og Steindór Andersen
kvæðamaður, röðuðu kvæðunum
saman og kölluðu þannig fram mynd
af manni sem er tryggur og trúr
sinni heittelskuðu þrátt fyrir ýmis-
konar hremmingar á ástarsviðinu. Í
verkinu spilaði hart nær fimmtíu
manna lúðrasveit Reykjavíkur undir
kvæðasöng Steindórs Andersen.
Fjórir dansarar, tvær stúlkur og
tveir drengir, dönsuðu í verkinu.
Gleði og glens er það sem verkið
snýst um.
Sirkushugmyndum var blandað
saman við fornkveðinn vikivakann.
Þetta var léttur gleðidans, áreynslu-
lítill og látlaus. Búningarnir litaglað-
ir og skrautlegir ýttu undir gleði-
stemninguna. Ekki hélst innihald
kveðskaparins og túlkun í dansi í
hendur og var dansinn mun fremur
myndskreyting við tónlistina og
kveðskapinn en sjálfstætt dansverk.
Það reyndi því ekki mikið á dans-
hæfni dansaranna í látlausum hreyf-
ingunum og pósunum. Nýútskrifað-
ur leikari úr leiklistarskóla Íslands
stal senunni ítrekað og naut sín vel á
sviðinu með dönsurunum. Dansar-
arnir sem eru komnir vel á veg á
dansbrautinni stóðu sig með ágæt-
um. Það verður spennandi að fylgj-
ast með þeim þroskast enn meir
næstu árin.
Verkið Saga gerist inni í skóla-
stofu þar sem strangur agi ríkir.
Nemendur í skólabúningum sitja
stífir við skrifborð sín og láta stjórn-
ast af taktföstum ritma. Þeir fara að
ókyrrast, hreyfa sig úr stað og áður
en langt um líður taka draumar
þeirra og þrár völdin. Verkið er sam-
ið við kórsöng félaganna í Hljómeyki.
Kórnum var jafnframt komið fyrir
efst á sviðinu. Því er skemmst frá að
segja að hér var á ferð ákaflega vel
unnið dansverk. Öll vinnubrögð voru
höfundi til mikils sóma. Dansgerðin
var af dramatískum toga. Höfundur
notar hreyfingar sem helst mætti
líkja við að toga og teygja en sleppa
síðan og láta hreyfinguna fara sína
leið. Í verkinu reynir mjög á dans-
arana og í því fá áhorfendur að sjá
hvað í þeim býr. Þessar fjórar stúlk-
ur og eini drengur stóðu sig feikilega
vel. Þetta eru mjög efnilegir dans-
arar sem fá gott tækifæri til að sýna
hvað í þeim býr og nota það til hins
ýtrasta. Hrífandi kórsöngurinn,
dansinn og túlkunin urðu eitt í þessu
verki Sveinbjargar.
Nýting á sviðsrýminu var vel til
fundin, uppröðun borðanna, hvar
dansað var og hvert dansarinn sneri í
dansinum. Lýsingin var látlaus og
fylgdi vel eftir því sem átti sér stað á
sviðinu. Meiri sjáanlegur agi í hreyf-
ingum í upphafi og enda verksins
hefði gert skilin milli aga, drauma og
þrár ennþá skarpari. Engu að síður
þá er þetta dansverk Sveinbjargar
Þórhallsdóttur vandað og minnistætt
og einstaklega vel dansað af nemend-
um sem þó eiga enn eftir tvö ár í út-
skrift.
Alfa gerist á mörkum draums og
veruleika, jafnvel í landi eilífðar.
Fimm kvendansarar og einn karl-
dansari líða um sviðið dágóða stund í
reykmettuðu dulúðlegu andrúms-
lofti.
Ævintýraleg, jafnvel englaleg tón-
list hljómaði undir. Dansararnir
svifu um sviðið með hárið laust, ber-
fættir í hvítum tjullpilsum. Hreyfing-
arnar í verkinu voru óformaðar og
það var verkið einnig. Í því var ekki
að finna neina uppbyggingu, það leið
einfaldlega hjá í blárri og hvítri lýs-
ingunni.
Tónlistin var hrífandi á köflum en
dansinn var af öðrum heimi og skipti
sér lítið af því. Það leit helst út fyrir
að verkið hefði verið hrist fram úr
erminni í flýti. Það átti sér ekkert
upphaf og engan endi og hafði lítinn
tilgang. Óhætt er að segja að dans-
ararnir hafi gert það úr verkinu sem
hægt var, en það er að ljá hreyfing-
unum tilfinningar sínar. Það á við þá
eins og aðra dansara í sýningunni að
með þeim verður gaman að fylgjast í
framtíðinni.
Næsta sýning er laugardaginn 1.
júní kl. 14.
Ljúfur
dans og lif-
andi tónlist
LISTDANS
Þjóðleikhúsið
Listahátíð í Reykjavík fimmtudagur 30.
maí 2002.
Höfundur: Ástrós Gunnarsdóttir. Dans-
arar: Hákon A. Halldórsson, Ívar Ö. Sverr-
isson, Tanja M. Friðjónsdóttir, Tinna
Ágústsdóttir. Tónlist: Lárus H. Grímsson.
Söngvari: Steindór Andersen. Hljóðfæra-
leikur: Lúðrasveit Reykjavíkur.
Höfundur: Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Tón-
list: Hildigunnur Rúnarsdóttir. Flytjendur:
Hljómeyki. Dansarar: Emelía B. Gísla-
dóttir, Guðrún I. Torfadóttir. Hannes Þor-
valdsson, Hjördís L. Örnólfsdóttir, Saga
Sigurðardóttir.
ANN ÉG, DÝRUST DRÓSA
SAGA
Höfundur: Lára Stefánsdóttir. Tónlist:
Kjartan Ólafsson. Dansarar: Andri Ö.
Jónsson, Emelía B. Gísladóttir, Guðrún
Óskarsdóttir, Hjördís L. Örnólfsdóttir,
Katrín D. Jónsdóttir, María L. Ámunda-
dóttir.
ALFA
Lilja Ívarsdóttir
Jómfrúin, Lækjargötu Tríó gít-
arleikarans Jóns Páls Bjarnasonar
leikur kl. 16.Tónleikarnir fara fram
utandyra á Jómfrúrtorginu ef veður
leyfir, en annars inni á Jómfrúnni.
Aðgangur er ókeypis.
Árbæjarkirkja Sumartónleikar
Landsvirkjunarkórsins verða kl. 16.
Einsöngvarar
með kórnum eru
þau Þuríður G.
Sigurðardóttir
sópran og Þor-
geir J. Andrésson
tenór.
Undirleikarar
eru Kolbrún Sæ-
mundsdóttir á pí-
anó og Guðni A.
Þorsteinsson á
harmoniku.
Stjórnandi kórsins er Páll Helgason.
Domus Vox, Skúlagötu 30 sýn-
ingin SírnÝr verður opnuð kl. 12. Á
sýningunni eru verk eftir Ýr og
Sírni og er á sýningunni myndir sem
þau hafa unnið á síðustu mánuðum.
Sýningin er opin alla daga til 14
júní, frá kl 17-20 og kl. 15-19 um
helgar.
Matstofa Kópavogs, Smiðjuvegi
6 María Svandís myndlistarkona
opnar sýningu á verkum sínum.
María hefur málað með olíulitum,
vatnslitum, pastellitum og gert ýms-
ar tilraunir til að mála með ýmsum
óhefðbundnum efnum og litum.
Maríu Svandís hefur áður haldið
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum.
Sýningin er opin frá kl. 9–15 og
stendur til 30. júní.
Listhúsið Laugardal María Kristín
Steinsson opnar sýningu á olíu-
málverkum sem hún hefur unnið á
þessu ári og því síðasta.
Sýningin stendur til 29. júní.
Lóuhreiður, Laugavegi 59 Ólafur
Sigurðsson opnar myndlistarsýn-
ingu kl. 13 og er þetta hans önnur
sýning. Ólafur vinnur bæði með olíu
og pastelliti.
Gallerí Hlemmur „Allt sem glitrar
er ekki illt“ er yfirskrift fyrstu
einkasýningar Heimis Björgúlfs-
sonar en hún verður opnuð í Gall-
eri@hlemmur.is, Þverholti 5, í dag,
laugardag, kl. 17. Sýningin stendur
til 23. júní.
Gallerí Sævars KarlsOlga S. Berg-
mann opnar myndlistarsýningu kl.
14.Sýningin kallast Án ábyrgðar og
er sú þriðja í röð sýninga sem fjalla
um Doktor B. og þá starfsemi sem
fram fer á rannsóknarstofu hans.
Nýlistasafnið. Liutauras Psibilskis
heldurfyrirlestur um listamenn og
listumhverfi Vilníusborgar kl. 17 og
er fyrirlesturinn á vegum Lista-
mannaspjalls {ndash} Artists’ Talk
{ndash} samræða um listir sem er
samstarfsverkefni á vegum NIFCA
(Nordic Institute for Contemporary
Art) Safnahúsið, Vestmannaeyjum
Ingibjörg Heiðarsdóttir (Íbba) opn-
ar sýningu á leirmyndum og skálum
í anddyri bókasafnsins. Mörg verk-
anna eru úr Eyjum fyrir gos, og þá
sérstaklega tengt sjómennsku.Sýn-
ingin er opin í dag og sunnudag frá
11-18.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Þorgeir J.
Andrésson
TVÖ tónverk eftir Charles Ross
verða frumflutt á tónleikum að
Skriðuklaustri í dag kl. 14.30 og eru
þeir endurteknir
á morgun á
sunnudag á sama
tíma. Flytjendur
eru tónlistarhóp-
urinn Stelkurinn,
sem skipaður er
Charles Ross,
Jóni Guðmunds-
syni, Suncönu
Slamnig, Páli Ív-
an og Annegret
Unger. Verkin eru hluti af masters-
námi Charles í tónsmíðum, en hann
er tónlistarkennari við Tónlistarskóla
Austur-Héraðs.
Fyrra verkið ber nafnið Lost in
sveit og er um 30 mínútna langt, sam-
ið undir áhrifum sveitalífsmynda
Jóns Guðmundssonar á Hallorms-
stað. Eru það 18 vatnslitamyndir sem
mynda 9 syrpur. Þegar Charles Ross
var inntur eftir nafni verksins, sagði
hann það í raun hafa sömu grunn-
merkingu og Lost in Space. „Mynd-
irnar sem ég valdi eftir Jón eru mjög
sérstæðar,“ segir Charles, „Í þessum
myndum býr einhver truflandi gáski
og jákvæð satíra. Ég reyndi að setja
þetta í tónlistarform.“
Síðara verkið á dagskránni heitir
Sjálfsmynd með Stelki og var samið í
Zagreb sl. sumar. Það skiptist í þrjá
þætti; Barking at the Bird, Dolphins
og Metz Ventilator.
„Ég skrifaði þetta verk án þess að
hafa sérstaka hugmynd eða áætlun
um framvindu þess, en slíkt er óal-
gengt í músíksmíðum þótt það þekk-
ist vel í öðrum listformum. Útkoman
er verk sem er fullkomlega huglægt
og byggt á innsæi. Við munum bjóða
fólki að ganga um og skoða myndir
Jóns meðan Sjálfsmyndin verður
flutt, þar sem við teljum væntanlega
gesti okkar ef til vill ekki hafa þol-
inmæði til að sitja undir því til við-
bótar hinu. Þessi músík á hins vegar
vel heima á Myrkum músíkdögum
þar sem við vonumst til að flytja það,“
sagði Charles að lokum.
Tónlist hins
truflandi gáska
Charles Ross
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
HUGINN Þór Arason opnar sýn-
ingu í rými undir stiganum í i8 kl.
16 í dag, laug-
ardag.
Huginn Þór, f.
1976, útskrifað-
ist í vor frá
Listaháskóla Ís-
lands. Útskrift-
arverk hans
heitir „Sjálfs-
mynd“ en verkið
sem hann sýnir
undir stiganum
ber heitið
„Njósnari“.i8 er
opið þriðjudaga
til laugardaga 13-17 og stendur
sýningin til 22. júní.
„Njósnari“ und-
ir stiganum