Morgunblaðið - 01.06.2002, Side 66

Morgunblaðið - 01.06.2002, Side 66
DAGBÓK 66 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Ak- ureyrin, Þerney, Vigri og Víðir koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sissimut kom og fór í gær, Sléttbakur og Kleifarberg koma í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Ferð á Langjökul: Miðvikud. 10. júlí verður ekið um Kaldadal upp á Geit- landsjökul á Langjökli þar sem snæddur verður hádegisverður, á heim- leið verður ekið um Húsafell, Skorradal, Svínadal og Hvalfjörð. Farið verður í Grens- árskirkju miðvikud. 5. júní, kl 13.30. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Sönghópur leiðir söng undir stjórn Árna Ar- inbjarnarsonar org- anista. Kaffiveitingar í boði sóknarnefndar. Miðvikud. 5. júní verður farið verður í Hagkaup Skeifunni. Lagt af stað kl. 10. Kaffiveitingar í boði Hagkaups. Skrán- ing í ferðirnar í af- greiðsu s. 562 2571. Bólstaðarhlíð 43 Ekið um borgina þriðjud. 11. júní og nýju hverfin skoðuð. Lagt af stað kl. 13. Skráning í s. 568 5052 fyrir kl. 12, föstud. 10. júní. Félagsstarf eldri borg- ara í Grafarvogi. Korp- úlfarnir. Heilsdagsferð verður í Mýrdalinn fimmtud. 6. júní. Brott- för frá Miðgarði, kl. 9. Áætluð heimkoma kl. 19. Skráning hjá Þráni í Miðgarði í síðasta lagi mánud. 3. júní. S. 5454 500. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Morg- unganga kl. 10. Á mánu- dag félagsvist kl. 13. 30, brids á þriðjudag kl. 13.30. Pútt á Hrafn- istuvelli þriðju- og föstu- dögum kl 14–16 Dags- ferð að Skógum miðvikud. 19. júní. Lagt af stað frá Hraunseli kl. 10. Uppl. i Hraunseli s. 555 0142. Vestmanneyjaferð 2. til 4. júlí. Greiða skal far- miðana í ferðina 10., 11. eða 12. júní n.k. kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Fjöl- skylduhátíð í Laug- ardalshöllinni í dag 1.júní skemmtiatriði fyr- ir unga sem aldna. Sun- nud: Dansleikur kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánud: Brids kl. 13. Danskennsla fram- hald kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. Miðvikud: Göngu- Hrólfar fara í göngu frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. Dagsferð í Krísuvík, Þorlákshöfn, Eyr- arbakka, Stokkseyri 6. júní. Vestmannaeyjar 11.-13.júní 3 dagar nokk- ur sæti laus, vegna for- falla. Söguferð í Dali 25. júní dagsferð, leið- sögumaður Sigurður Kristinsson, skráning hafin. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum frá kl. 10–12 í s. 588 2111. Skrifstofa félagsins er flutt í Faxa- fen 12, sama símanúmer og áður. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Uppl. á skrif- stofu FEB. Félagsstarfið Furugerði 1. Handavinnu- og list- munasýning eldri borg- ara, verður í Furugerði 1 í dag frá kl. 13.30 til kl. 17. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Gerðuberg, félagsstarf, sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug (úti- laug) mánu-, miðviku- og föstudaga kl. 9.30. Um- sjón Brynjólfur Björns- son íþróttakennari. Myndlistasýning Huga Jóhannessonar opin virka daga frá kl. 9–17. Veitingar í Kaffi Berg. Uppl. um starfssemina á staðnum og í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun kl. 9.30. gler- og postulínsmálun, kl. 11 hæg leikvfimi, kl. 13 lomber og skák. Mánud. 3. júní og þriðjud. 4. júní frá kl. 10.30 til kl. 12 verður tekið við stað- festingargjaldi fyrir ferðalag á Langanes dagana 1. til 5. júní. Staðfestið sem fyrst í Gjábakka, s. 554 3400. Vesturgata 7. Lands- banki Íslands verður með almenna banka- þjónustu mánud. 3. júní kl.13.30–14. Mósaik- námskeið hefst mið- vikud. 5.júní kl. 9.15–12 leiðbeinandi Hafdís Benediktsdóttir, skrán- ing í s. 562 7077. Félag eldri borgara Kópavogi. Púttað verður á Listatúni í dag, laug- ardag, kl. 10.30. Mætum öll og reynum með okk- ur. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 frá Gjábakka í Kópavogi laugardagsmorgna. Krummakaffi kl. 9. Allir velkomnir. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur í kvöld kl. 21 í Konnakoti Hverfisgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Mun- ið gönguna mánu- og fimmtudaga. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA Síðumúla 3-5 og í Kirkju Óháða safn- aðarins við Háteigsveg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Kvenfélag Óháða safn- aðarins. Vorferðalagið verður mánudagskvöldið 3. júní kl. 20. Farið frá Kirkjubæ og ekið á Sel- foss. Þátttaka tilkynnist til Esterar í s. 557 7409 eða Halldóru í s. 566 6549. Bandalag kvenna í Reykjavík. Þann 30. maí varð Bandalagið 85 ára. Af því tilefni verður opn- uð sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur, á ljós- myndum og munum er varpa ljósi á þróun og sögu aðildarfélaga Bandalagsins. Sýningin verður opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur, í dag kl. 14 og verður opin frá 2. til 6. júní kl. 10–19. Kvenfélag Bústað- arkirkju. Sumarferðin verður farin laugardag- inn 15. júní. Miðar seldir í kirkjunni mánudaginn 3. júní kl. 17–18. Uppl. í s. 861 6049 Sigurlín eða 568 0075 Sigríður. Aglow Reykjavík, fund- ur verður mánud 3. júní kl. 20 í Templarasalnum að Stangarhyl 4. Krist- jana Sigmundsdóttir tal- ar um föðurhjarta Guðs og Edda Swan segir frá ferð sinni til Ísrael. Mirjam Óskarsdóttir sér um lofgjörðina. Allar konur velkomnar. Orlofsnefnd húsmæðra í Kópavogi. Á vegum nefndarinnar verða farnar tvær ferðir á þessu sumri: að Kirkju- bæjarklaustri 13.-15. júní, eitt sæti laust í Skagafjörð 22.-24. ágúst, hvíldar- og hressing- ardvöl að Laugarvatni 24.-30. júní. örfá sæti laus. Skráning í s. 554 0388, Ólöf, s. 554 2199, Birna. Ellimálaráð Reykjavík- urprófastsdæma. Boðið er upp á orlofsdvöl í Skálholti í sumar. Í boði eru þrír hópar sem rað- ast þannig: 10. - 14. júní, 18. - 21. júní og 1.-5. júlí. Skráning á skrifstofu f.h. virka daga í s. 557 1666. Minningarkort Samúðar- og heilla- óskakort Gídeonfélags- ins er að finna í anddyr- um eða safnaðar- heimilum flestra kirkna á landinu, í Kirkjuhús- inu, á skrifstofu KFUM&K og víðar. Þau eru einnig afgreidd á skrifstofu Gídeonfélags- ins, Vesturgötu 40, alla virka daga frá kl. 14–16 eða í síma 562 1870. All- ur ágóði fer til kaupa á Nýja testamentum sem gefin verða 10 ára skóla- börnum eða komið fyrir á sjúkrahúsum, hjúkr- unarheimilum, hótelum, fangelsum og víðar. Minningarspjöld Kristniboðssambands- ins frást á skrifstofunni, Holtavegi 28 (hús KFUM og K gegnt Langholtsskóla) sími 588-8899. Í dag er laugardagur 1. júní, 152. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Svo miskunnar hann þá þeim, sem hann vill, en forherðir þann, sem hann vill. (Rómv. 9, 18.) 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 greftra, 4 margnugga, 7 fetill, 8 heilsufar, 9 tók, 11 sleit, 13 brumhnappur, 14 rýma, 15 sögn, 17 eyja, 20 herbergi, 22 búa til, 23 raka, 24 sér eftir, 25 standa gegn. LÓÐRÉTT: 1 hittir, 2 náði í, 3 lengd- areining, 4 vers, 5 rugla, 6 hófdýr, 10 örlög, 12 hugsvölun, 13 hryggur, 15 skartgripur, 16 fugl, 18 rödd, 19 bik, 20 skítur, 21 lestarop. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 fjölmenni, 8 túlki, 9 mýkja, 10 tíu, 11 losti, 13 reiða, 15 stóll, 18 saggi, 21 auk, 22 flagg, 23 ósinn, 24 maurapúki. Lóðrétt: 2 jálks, 3 leiti, 4 eimur, 5 nakti, 6 stál, 7 fata, 12 tel, 14 efa, 15 sefa, 16 óraga, 17 lagar, 18 skólp, 19 grikk, 20 inni. Víkverji skrifar... VÍKVERJI fylgist með Formúl-unni. Eitt sunnudagshádegið, er bíll Häkkinen brunaði í gegnum sjónarflötinn hjá honum í – að hon- um fannst – þúsundasta skipti, þá kveikti hann á íþróttinni. Hann er meira að segja búinn að koma á litlum og meðfærilegum klúbbi sem hittist aðra hverja viku yfir kaffi, bakkelsi og drynjandi vélargný. Skrifari viðurkennir fúslega að hann hefur ekkert vit á bílum og inn- viðum þeirra. Bein innspýting? Hvað er það? Er það kannski í Formúlubíl- unum? Heddpakkning, bremsu- klossar, drifsköft. Víkverji hefur ekki grænan grun. Aukinheldur er Víkverji það brenglaður íþróttaáhugamaður að hann hefur ekki enn tengst ein- hverju einu liði tilfinningaböndum fremur en öðru. Látum okkur sjá. Það er auðvitað alveg glatað að styðja liðið sem vinnur alltaf, það er Ferrari með þá Schumacher og Barrichello innanborðs. Þá er það annað hvort McLaren (með Skotann Coulthard og Finnan Räikkönen inn- anborðs) eða Williams (sem skipað er yngri bróður Michaels Schu- macher, Ralf og hinum blóðheita Kólumbíumanni Juan Pablo Mont- oya). Hér er erfitt að gera upp á milli. Kannski bara Arrows eða Jaguar? Nei, fjandakornið. x x x ÁSTÆÐAN fyrir þessum skrif-um er ákveðið atvik sem átti sér stað í þarsíðustu keppni sem fram fór í Austurríki, nánar tiltekið á A1 Ring brautinni. Þar kom upp sú staða að þegar nokkur hundruð metrar voru eftir í mark var Barric- hello í forystu en Schumacher var rétt á eftir honum, í öðru sæti. Þá kom tilskipun frá Ferrari-liðinu til Barrichello um að víkja fyrir Schu- macher, því með því móti myndi liðið sem slíkt standa betur að vígi í stiga- keppni Formúlunnar. Við þetta urðu áhorfendur, á staðnum sem heima í stofu, æfir. Skipti engu þó að Schu- macher ýtti raunverulegum sigur- vegara, þ.e. Barrichello, upp á efsta þrep vinningspallsins. Víkverji styð- ur hins vegar þessa ákvörðun liðsins heils hugar og furðar sig um leið á þessum sterku viðbrögðum. Athug- um að það eru lið sem keppa í Form- úlunni og tefla fram bílum sínum í þeim tilgangi. Síðan ráða þau til sín ökumenn. Ákvörðun Ferrari-liðsins var ísköld, útreiknuð en fullkomlega skynsamleg. Líkt og í skákinni verð- ur að fórna mönnum til að ná loka- takmarkinu. x x x EINHVER mótmælir þessu lík-lega með því að ökumenn séu ekki líflausir trékarlar heldur mann- eskjur af holdi og blóði með öllu sem því fylgir; tilfinningum, metnaði og sigurvilja. Þegar Liverpool var að gera allt vitlaust hér í upphafi níunda áratugarins var var Víkverji fremur maður Dalglish en Rush. En hann var fullkomlega sáttur ef Dalglish gaf tuðruna frá sér til Rush ef sá sami var í betra markfæri (sem var nú venjulegast raunin). Hollusta Víkverja var við Liverpool fyrst, síð- an leyfði hann sér að hylla einstaka leikmenn. Og líkt er farið með Formúluna. Annað hvort standa menn með sínu liði eða ekki. Eða eins og Kaninn segir: Ef það er of heitt í eldhúsinu, farðu þá út úr því! Laugardalslaugin vanrækt LAUGARDALSLAUGIN er farin að láta á sjá. Þess- ari stærstu laug landsins sem er ein okkar mesta landkynning er lítið sinnt því miður. Fastagestur sem hér skrifar ætlar ekki að lýsa þreyttum baðklef- um eða öðru því sem þarna blasir við. Hér skulu bara nefnd þrjú dæmi um það hirðuleysi og væntanlega fjársvelti sem Laugardals- laugin býr við. Við stærsta pott laugar- innar var fremur lítil klukka sem nýttist afar vel pottverjum. Um nokkurt skeið hefur þar blasað við klukkustæðið eitt. Ekkert gert í málinu. Handhár- þurrka hefur blásið köldu lofti að undanförnu. Ekk- ert gert í málinu. Nýverið hækkuðu vörur í verslun- arhorni laugarinnar um 10% sem er önnur hækkun á þessu ári. Er ekki kominn tími til að láta verkin tala og hefja þessa stærstu laug lands- ins til vegs og virðingar? Svona sinnuleysi er til vansa. Fastagestur. Ef Gísli Marteinn… ÉG VIL koma eftirfarandi á framfæri vegna borgar- stjórnarkosninganna: Ég tel að sjálfstæðismenn hefðu unnið borgina í kosningunum ef Gísli Mar- teinn hefði verið í 1. sæti listans sem borgarstjóra- efni. Hann hefur slíka per- sónutöfra og glaðlegt yfir- bragð og slíka útgeislun sem ég tel að mundi nýtast honum mjög vel í starfi. Guðrún. Orkuveitan til fyrirmyndar? ÞETTA fyrirmyndar- súperfyrirtæki lætur sig samt hafa það að betla af ellilífeyrisþegum um auka- gjald fyrir að fá að greiða rukkunarseðilinn, ja, hví- lík fyrirmynd. Samkeppn- isstofnun var með þetta mál á dagskrá á sl. ári en þeir hefðu nú mátt gera at- hugasemd við sitthvað fleira t.d. það að í síma- skránni hjá Orkuveitunni eru 56 karlmenn skráðir með síma á móti 5 konum. Ef þarna er ekki sjúkleg karlremba þá veit ég ekki hvar hún er. Rukkun er virk og ábatasöm í þjóð- félaginu en er hún ef til vill að verða keimlík hand- rukkun? Margrét Hansen, 240222-3029. Tapað/fundið Jakki tekinn í misgripum FÖSTUDAGINN 17. maí tók ég fyrir slysni jakka í misgripum fyrir minn. Þetta átti sér stað í Kiw- anis-húsinu við Engjateig þar sem verkfræðinemar komu saman. Jakkinn er úr svörtu leðurlíki og af stærðinni 10. Upplýsingar gefur Berglind í síma 849 7009. Kvenúr týndist KVENÚR, kringlótt með gylltum stöfum og svartri ól, týndist í húsdýragarð- inum eða í nágrenni. Úrið hefur mikið tilfinningagildi fyrir eiganda. Skilvís finn- andi hafi samband við Kristínu í síma 552 0184. Dýrahald Snúlli er týndur SNÚLLI týndist frá Eski- hlíð. Hann er með fjólubláa ól og er eyrnar- merktur: R1H023. Ef ein- hver hefur orðið hans var þá vinsamlegast hafið samband í síma 867 3201 eða 865 6405. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Be7 5. Bf4 O-O 6. e3 Rbd7 7. c5 c6 8. b4 b6 9. Bd3 a5 10. a3 Ba6 11. Bxa6 Hxa6 Staðan kom upp á fyrsta bikarmóti FIDE sem haldið var í Dubai. Gamla brýnið Anatoly Karpov (2693) hafði hvítt gegn Kiril Georgiev (2655) . 12. b5! cxb5 13. c6 Dc8 14. c7 b4 15. Rb5 Re4 16. O-O bxa3 17. Da4 Jafnvel þótt hvítur sé tveim peðum undir þá vegur frípeðið á c-línunni þyngra á metunum og reyndist það svörtum ofviða í framhald- inu. 17...g5 18. Bg3 g4 19. Re1 Rd2 20. Dd1 Rxf1 21. Dxg4+ Kh8 22. Kxf1 Ha8 23. Rc2 Da6 24. De2 Hg8 25. Rcxa3 Hac8 26. Bf4 f6 27. Hc1 Rc5 28. dxc5 bxc5 29. e4 dxe4 30. Rd6 Dxe2+ 31. Kxe2 Hxc7 32. Rf7+ Kg7 33. Bxc7 Kxf7 34. g3 a4 35. Rc4 Hc8 36. Ba5 h5 37. Ha1 h4 38. Hxa4 hxg3 39. hxg3 Ha8 40. Ha1 Bd8 41. Bc3 Hxa1 42. Bxa1 f5 43. Be5 Ke8 44. Bd6 Be7 45. Bxe7 Kxe7 46. Ke3 Kf7 47. Kf4 Kf6 48. Re5 Ke7 49. g4 Kd6 50. Rc4+ og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.