Morgunblaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 46
UMRÆÐAN 46 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi, Austurvegi 3, 800 Selfossi, sími 482 2849 - fax 482 2801- fasteignir@log.is Í sölu gullfallegur 55 m² sumarbústaður á Kóngsvegi 4 í Skyggnisskógi, Úthlíð. Bústaðurinn telur 3 svefnherbergi, 1 baðherbergi og stofu. Bústaðurinn er vel innréttaður með panil og góðri eldhúsinnréttingu. Nýr heitur pottur, góð og stór ver- önd, frábært útsýni. Verð 8,9 m. Nánari uppl. á skrifstofu. Sumarbústaður í Úthlíð Í UNDANGENGINNI kosninga- baráttu bar Orkuveituna æði oft á góma, ef hún var ekki þungamiðjan á stundum. Mér blöskrar hvað mál- flutningur var á stundum óvandaður, ófaglegur og misleið- andi hálfsannleikur. Aðilar flétta orð sín þannig að þau mynda gaffal eins og í skák, og andmælandinn getur ekki svarað fyrir sig nema að girða niður um sig að hluta. Niðurstað- an er að mínu mati skrumskæling á starf- semi OR og hinn al- menni borgari er einatt með ranghugmyndir um hvað gert er hérna og hvernig vinnu er háttað. Orkuveita Reykja- víkur er ópólitískur vinnustaður sem lýtur pólitískri stjórn. Við starfsmennirnir pössuð- um okkur á að blanda okkur ekki í undangengið moldviðri. Kosninga- barátta er ekki okkar starf heldur rekstur á stóru veitukerfi. Nokkur atriði bar hátt í umræðunni, nýja húsið, Línu.Net, skuldsetningina og einkavæðinguna. Mig langar til að viðra mína sýn á þessum málum. Nýja húsið er bara að hluta til skrifstofubygging. Að stórum hluta er það arkitektúr, hönnun, sem valin var úr nokkrum tillögum. Ein tillag- an, sem ekki var valin, fól í sér þyrlu- pall á 5. hæð sem var inndreginn og á 4. hæð var útisundlaug. Ef þeirri til- lögu hefði verið tekið, þá væri húsið með þyrlupalli og sundlaug á 4. hæð. Það hefur orðið hlutskipti opinberra aðila að passa að umhverfi okkar verði ekki grátt sovjet. Þetta kostar, en augað staldrar við hús eins og Perluna, Þjóðarbókhlöðuna, Seðla- bankann, Rafmagnsveituhúsið við Suðurlandsbraut o.fl. Þetta er gömul saga og ný – Stjórnarráðið og Viðeyj- arstofa hafa kostað eitthvað á sínum tíma. Ég er heldur hlynntur þessu. Lína.Net er ákaflega djörf hug- mynd að mínu mati. Fyrirtækið var stofnsett í því augnamiði að nýta raf- lagnir í húsum sem gagnaflutnings- leið, menn fá tölvusamband í raf- magnsinnstungunni í veggnum. OR greip þessa hugmynd snemma og var í samvinnu við breskt-kanadískt fyr- irtæki um þróun þessarar tækni. Bretarnir gáfust upp af óútskýrðum ástæðum fyrir um tveimur árum. Það olli nokkrum vonbrigðum og aftur- kipp í framvindu málsins. Komið var vel á veg að leggja ljósleiðarakerfi sem grunn að þessu gagnaflutnings- kerfi. Það kerfi er sjálfbært og því mikilvægt að ljúka því. Það þurfti svo sem ekki að örvænta, nokkur önnur fyrirtæki eru að vinna að svipaðri tækni. OR er nú í samstarfi við sviss- neska aðila. Þetta lofar góðu og er nú þegar nettenging í gegnum raf- magnskerfið á nokkur hundruð heim- ilum á höfuðborgarsvæðinu. Ég er heldur hlyntur þessu. Skuldsetningin er í svo stórum töl- um að ég get ekki sett þær í sam- hengi við neitt sem ég skil og þekki. Ég starfa í verklega geira OR, og hef takmarkaðan áhuga á bókhaldinu. Við höfum mjög frambærilegt fólk sem sinnir því. Ég er þess fullviss að þau stíga hressilega á bremsuna löngu áður en borgarstjórn, vinstri – hægri, setur OR á hausinn. Ársreikn- ingur Reykjavíkur er uppá 270 bls. og þar á OR nokkra tugi blaðsíðna. Mér sýnist hafa farið fyrir fleirum eins og Skugga-Sveini og meðferð hans á Biblíunni forðum, „át ég hana alla í einu, ekki kom að gagni neinu“. Orkuveitan er talin vera 57 milljarða virði. Lífeyrisskuldbindingar eru 2,7 milljarðar og langtímaskuldir eru 17 milljarðar. Skuldaaukning síðasta kjörtímabil var 12,5 milljarðar. Virkj- unarframkvæmdir á Nesjavöllum og á Hellisheiði kostuðu tæpa 10 millj- arða. Þetta er auðskilið – ef gott hús á veitusvæðinu kostar 25 milljónir, þá er OR 2.400 húsa virði. Skuldaaukn- ingin nemur þá 500 húsum. Eruð þið nokkru nær? Ég hef enga skoðun á þessu. Einkavæðing OR er afar athyglisverð um- ræða. OR, sem og aðrar raf-, vatns- og hitaveit- ur um heim allan eru í eðli sínu einokunarfyr- irtæki og verða það í næstu framtíð. Sam- keppni verður að vísu, lögum samkvæmt, frjáls á þessum mark- aði innan skamms. Hitaveitu Suðurnesja verður heimilt að selja rafmagn til Reykvík- inga. Ég sé ekki fyrir mér að Suðurnesja- menn eða aðrir leggi mörg hundruð kílómetra af nýju dreifikerfi um höf- uðborgarsvæðið. OR verður skylt að taka við orku frá Suðurnesjum og dreifa til þeirra sem það vilja gegn sanngjörnu gjaldi. Sá sem ræður dreifikerfinu er í raun einokandi. Ég held að svo verði einnig um RARIK og Landsvirkjun hvað varðar há- spennunet þeirra. Einkavæðing á svona einhæfri opinberri þjónustu hefur sums staðar farið illa. Efst í huga er rafkerfið í Kaliforníu, vatns- veitan og járnbrautirnar í Englandi og hálfsmánaðar rafmagnsleysi í Aukland á Nýja Sjálandi 1998 vegna ónógs viðhalds dreifingaraðilans þar. Aukland uppákoman olli því að 60.000 manns voru frá vinnu og rík- isstjórnin setti neyðarlög á svæðinu. – Við aðstæður í dag er ég á móti einkavæðingu Orkuveitunnar sökum fákeppnisaðstæðna. Einkavæðing OR er líka afar at- hyglisverð umræða svona í framhaldi af sölu Landssímans. Mín tilfinning er sú, að þeirri umræðu stjórni að stórum hluta menn með hagfræði- kenningar sem trúarbrögð. Það er einatt erfitt að koma sanntrúuðum, hvar svo sem í flokki þeir standa, til að sjá að hugsanlega séu fleiri leiðir færar en þeirra ein. Hverjir kaupa svo orkufyrirtæki upp á 57 milljarða. Baugur? Bankarnir? Eimskip? Landssíminn? Tæpast litli maðurinn og ekki Enron heitinn. Jónas Krist- jánsson fjallaði um fjármálamarkað- inn í grein í Fréttablaðinu í vetur. Hann áleit að menn hefðu glæpst til að hlusta á kokhraustu stóru strák- ana í heitapottinum, án þess að gera sér grein fyrir að strákarnir eru bara illa upplýst peð, því öllu er stjórnað af hákörlum í djúpu lauginni. Ekki vil ég sjá OR eða nokkurt annað orku- veitufyrirtæki lenda í hákarlskjafti í djúpu lauginni. Ég held að ekki skipti máli hverjir stýra borginni hvað OR varðar, henni verður ekki svo auðveldlega snar- beygt til hægri eða vinstri. Lína.Net eða ekki Lína.Net, það er spurning, svo og skuldsetningin. Pólitíkusar mega mín vegna munnhöggvast um Línu.Net og skuldsetninguna, en greyin, reynið að halda daglegum rekstri frá umræðunni. Ég held að undangengið moldviðri hafi bara ruglað samborgarana og ergt okkur starfsmennina. Orkuveitan að kosningum loknum Benjamín Hansson Höfundur er vélfræðingur. OR Orkuveita Reykjavíkur er ópólitískur vinnu- staður, segir Benjamín Hansson, og lýtur póli- tískri stjórn. NÚ AÐ loknum kosningum er á Sel- tjarnarnesi í fyrsta sinn í áratugi komin upp sú staða að Sjálfstæðis- flokkurinn hefur ekki öll spil á hendi sinni. Í fyrsta lagi er munurinn á Neslista og D-lista að- eins einn maður í bæj- arstjórn og í öðru lagi er komin upp sú staða að D-listi mun í fyrsta sinn búa við strangt aðhald frá Neslistanum og það ekki vegna aflsmunar heldur vegna möguleika í vali á bæjarstjóra. Fyrir kosningar hafði Sjálfstæðis- flokkurinn á Seltjarnarnesi ákveðið að velja júngkæra einn mikinn, Jón- mund að nafni, til setu í bæjarstjóra- stól. Ég hitti hann síð- ast að afliðinni óttu og kvað honum vísuhelm- ing. Hann er að mínu mati á þeirri góðu og ánægjulegu braut sem ungir menn verða að feta til að ná áræði og einurð sem einkennir góða leiðtoga. Tel ég að hann eigi góða mögu- leika á því að ná þeim áfanga en að slíkir eig- inleikar hafi ekki enn lagst að fullu að hans bryggju en að þeir muni koma með vetrarsól- stöðum í fyllingu tím- ans. Magálar og pungar bæta geð og flýta slíkum framförum. Morgun- stund gefur gull í mund fyrir Jón- mund! Ásgerður Halldórsdóttir situr með téðum Jónmundi í sama flokki. Hefur hún lagt að velli hrifgjarna menn eins og mig og sett mig í flokk aðdáenda rétt eins og tónlistar-Mammon gerir við unglingsstúlkur. Afrek hennar í bæjarmálum Seltirninga eru einlæg og full atorku. Ásgerður er spök að viti, hávelborin og réttlát. Henni býðst nú merkilegur kostur: að taka við bæjarstjóraembætti á Seltjarnar- nesi fyrir það eitt að kveðja júngkær- ann og ganga braut hugsjóna sinna í mörgum veigamiklum málum Seltirn- inga. Með þessu gæti hún markað djúp gæfuspor á braut Seltirninga og tekist á við veigamikið hlutverk sem blómstra mun í hennar höndum. Er hér með skorað á hana að taka pálm- ann og geysast fram með það sem býr í henni. Þó að silfurspesíum hafi á sín- um tíma verið kastað úr keltu Valhall- ar til að tryggja val júngkærans í prófkjöri má ekki túlka að vera hans í fyrsta sæti sé einlægur vilji fólksins á svæðinu. Né að það sé endilega ákjós- anlegasti kosturinn í stöðunni. Til voru þeir menn sem þótti sér ekki fullborguð reisan á kosningastað nema að þeir sæju keppinauta for- ingja sinna hýdda. Þess konar örviln- an getur aðeins uppáfallið hund. Sem betur fer er sú tíð liðin en kröfur nú- tímamanna eru að hæfasti maðurinn skipi hvert sæti. Nægir ekki lengur að vitna í lýðræðið því menn hafa á síðustu árum séð dimma dali lýðræð- isins í litlu þjóðfélagi þar sem mörg mál hafa verið sett á oddinn án þess að fyrir þeim sé þjóðarvilji. Ásgerði í bæjarstjórastól Sigurður Jónsson Seltjarnarnes Kröfur nútímamanna, segir Sigurður Jónsson, eru að hæfasti maðurinn skipi hvert sæti. Höfundur er verkfræðingur. AÐ nýafstöðnum sveitarstjórnakosning- um er vert að íhuga hversu langt lýðræði okkar þjóðfélagsþegn- anna nær. Síðastu stóru hindruninni fyrir ræði lýðsins var rutt úr vegi árið 1915 þegar konur fengu kosningarétt. Nú, árið 2002, ætti því ekkert að standa í vegi fyrir að lýðræði ríki að fullu í stjórnmálum landsmanna. En er það svo? Við búum við svokall- að fulltrúa(lýð)ræði, þar sem kjörnum fulltrúum stjórn- málaflokka er falið að ákvarða fyrir okkur, frjálsa og fullvalda þegnana, hvernig samfélaginu skuli stýrt. Ein- staklingarnir sjálfir hafa nánast ekk- ert um samfélagsmálin að segja nema að því marki að fá náðarsam- legast að setja kross við uppáhalds- stjórnmálaflokkinn á nokkurra ára fresti. Bein áhrif einstaklinga á þró- un samfélagsins verða því að teljast minniháttar á meðan áhrifavald stjórnmálaflokka og manna þeirra er feiknamikið. Segja má að stjórnmál snúist um þau margvíslegu málefni heildarinn- ar sem stýra þarf með lögum og reglugerðum og/eða peningaútlátum úr sameiginlegum sjóðum fólksins. Stjórnmálamenn veljast til forystu af flokkssystkinum þótt umboð þeirra til að stjórna komi frá almenningi. Margir eru kallaðir en fáir útvaldir til gegna framvarðarstöðum á vegum flokkanna. Bæði óflokksbundnir og flokksbundnir einstaklingar myndu því eflaust fagna aukn- um tækifærum til að verða málsmetandi í mótun samfélagsins. Hvernig mætti slíkt verða? Fulltrúaræðið hefur á sér forsjárhyggjublæ. Það má gera því skóna að með flokkskosning- um til sveitarstjórna og Alþingis séu einstak- lingarnir að afsala sér frelsi til eigin skoðana og sannfæringar í hendur flokkunum og framvarða þeirra. Í stað núverandi fyrir- komulags ætti að fá einstaklingunum sjálfum ákvörðunarvaldið að stærstu leyti. Til dæmis með beinum kosn- ingum (rafrænum, póstrænum eða staðrænum) um mikilvæg sameigin- leg málefni. Þannig myndi meirihluti kosningabærra manna stýra málum samfélagsins en ekki meirihluti stjórnmálamanna. Úrskurður fólksins um stýrimálin í samfélaginu myndi leiða til þess að hlutverk stjórnmálamannsins breyttist úr umboði eða valdi til að ákvarða fyrir einstaklingana yfir í til- lögu- upplýsinga- og kynningarhlut- verk í þágu samfélagsþegnanna. Hver stjórnmálamaður yrði þá fyrst og fremst útvalinn til forystu vegna áhuga, frumkvæðis, hugsjóna og hæfni til að kynna sér mál frá ólíkum hliðum en ekki vegna þess hversu valdamikill og sterkur hann hefði möguleika á að verða. Flokkakosningar yrðu eftir sem áður á fjögurra ára fresti. Vegna þess að frambjóðendur flokkanna þyrftu að vinna með borgurunum eft- ir kosningar ættu allir kosningabær- ir einstaklingar að fá að velja í opnu forvali þá einstaklinga sem færu í framboð fyrir flokkana. Síðan yrði flokkakjör og hlyti sigursælasti flokkurinn völd, ekki til að stýra landsmönnum, heldur til að stjórna vinnu stjórnmálahópsins sem al- menningur valdi í prófkjörinu fyrir kosningarnar. Sumir talsmenn fulltrúaræðisins myndu mótmæla þeim breytingum á lýðræðisfyrirkomulaginu sem ýjað er að hér að ofan, meðal annars vegna efasemda um að almenningi væri treystandi til að taka nógu upplýstar ákvarðanir. Því er til að svara að hver einstaklingur í samfélaginu tæki af- stöðu til málanna að sínu viti eftir rækilega kynningu frá stjórnmála- mönnum. Ef meirihluti fólksins kæmist þrátt fyrir það að miður góðri niðurstöðu væri það auðvitað hvorki í fyrsta né síðasta sinn sem slíkt gerð- ist. Niðurstaðan yrði til marks um þekkingarstig þjóðarinnar og vís- bending um hvað hún ætti ólært. Það er löngu tímabært að huga að stórfelldum breytingum á þátttöku lýðsins í stýringu samfélagsins. Með auknum áhrifum fólksins um einstök mál, almenningsforvali á frambjóð- endum flokkanna og vel upplýstum röksemdum frá hendi hæfra en for- sjárlausra stjórnmálamanna hefðum við allt að vinna og engu að tapa í uppbyggingu samfélagsins á nýrri öld. Aukið lýðræði í stjórnmálum Guðrún Einarsdóttir Kosningar Fulltrúaræðið, segir Guðrún Einarsdóttir, hefur á sér forsjár- hyggjublæ. Höfundur starfar sem sálfræðingur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.