Morgunblaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 43
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 43
TIL hinna svipmiklu náttúruskapa
Borgarfjarðar eystra, hafa nokkrir
drjúgir málarar sótt eitt og annað
gullkornið í sinn mal, þar á meðal
Kjarval. Þá er Elías B. Halldórsson
fæddur þar og uppalinn, en sótti
menntun sína í Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands á árunum 1956–58,
og var þar helst uppnuminn af leið-
sögn Sigurðar Sigurðssonar, er hann
alla tíð mat einna mest íslenzkra mál-
ara. Framhaldsnám stundaði hann
svo meira og minna í Stuttgart og
Kaupmannahöfn. Listamaðurinn bjó í
áratugi á Sauðárkróki, æskuslóðum
lærimeistarans, og var um skeið einn
af fáum málurum í dreifbýlinu sem
fylgst var með á höfuðborgarsvæðinu.
Elías hélt sína fyrstu sýningu í
Bogasal Þjóðminjasafnsins 1960, og
hefur síðan verið iðinn við kolann,
einkum eftir að hann helgaði sig alfar-
ið myndlistinni 1974. Hefur jöfnum
höndum unnið í olíu og grafík, jafn-
framt myndskreytt bækur, en sonur
hans Gyrðir er eitt nafnkenndasta og
jarðtengdasta núlifandi skáld Íslend-
inga.
Að vissu marki ónauðsynlegur for-
máli varðandi sýningu manns sem
hefur haldið jafnmargar og stórar
sýningar og sá er hér um ræðir, öðr-
um þræði alls ekki. Einfaldlega vegna
þess að maðurinn kominn nokkuð á
áttræðisaldur, hefur aldrei verið
kynntur í listsögulegu samhengi á
listasöfnum okkar né notið fræðilegr-
ar úttektar, er raunar svo um fleiri
jafnaldra hans og enn eldri málara.
Er líkast sem þeir séu ekki til á landa-
kortinu enda hafa íslenzkir listsögu-
fræðingar sótt alla menntun sína til
útlanda, svona líkt og arkitektar,
vizka þeirra og yfirsýn þannig af
framandi toga. Yfir þessu skal ekki
þagað, enda tími kominn til að hér
verði nokkur umskipti. Fræðin þann-
ig flutt inn í landið eins og húsagerð-
arlistin, sem heldur loks innreið sína í
Listaháskólann á hausti komanda, níu
áratugum eftir æskilegan þróunar-
tíma.
Það liggur nærri að myndir Elíasar
B. Halldórssonar á sýningunni í
Hafnarborg fylli hálft hundraðið, og
af þeim helmingur yfir meðalstærð,
málarinn ekkert að tvínóna við hlut-
ina er hann vill hugsa í stórum flötum
og ábúðarmiklum formum. Íslenzkur
veruleiki er honum hugstæður, þó
ekki helst þær kunnuglegu útlínur
landsins er að auganu snúa, heldur
þeim sem hræra við kenndum hans og
ýfa gárur í kviku sálarkirnunnar
Um er að ræða afrakstur tveggja
síðustu ára og í heildina litið verða
menn ekki varir við teljandi breyting-
ar á myndstíl listamannsins, sem
hann hefur verið að þróa með sér í
fjölda ára. Nema það felist í dýpri lit-
brigðum og þá helst bjartari hliðum
litrófsins. Þannig eru það tvímæla-
laust gulu málverkin sem draga at-
hyglina til sín; Sólskin ókunnra landa,
Dómsdagur fiðrildanna, Heitir storm-
ar og Naddaslóð í Sverrissal, svo og
Liðinn dagur á endavegg í gangi.
Þetta eru myndheildir gagnsærra og
sértækra formana, í þeim mikil hreyf-
ing og áleitin innri kvika. Hér engin
flottheit á ferð né vinsæll leikur með
áhrif, effekta, eins og það heitir á fag-
máli, heldur hrein og ósvikin hughrif
frá umhverfinu. Í kaffistofu er mikill
fjöldi hlutvakinna málverka af
smærri gerðinni og sum þeirra svo
sem; Hús fagna morgunsól, Í nýju
ljósi, Sumarhús og Vornótt með því
formhreinasta á sýningunni. Það er
einhver fágætur yndisþokki sem
streymir frá þeim og heldur athygl-
inni fastri. Eins og sambland af ein-
hverju úr löngu liðinni fortíð og andrá
augnabliksins er birtingarmynd
þeirra formaðist, að auk yfir þeim
meiri léttleiki og hamingja yfir ver-
und núsins. Segja má að stóru mynd-
irnar í Apotekinu sæki að nokkru
skyldleika til þeirra en yfir þeim eru
einhver óupplifuð vanavinnubrögð,
kunna þó að vera vísir að einhverju í
gerjun. Sumar bláu myndirnar höfða
til mín eins og; Óþekkt angan, Sam-
hljómur og Út í bláinn. Eru afar vel
málaðar, en hinar þungu umgerðir ut-
an um þær eins og takmarka frelsi
þeirra og hin opnu tjámögn..
„Heitir stormar“
Bragi Ásgeirsson
MYNDLIST
Hafnarborg/Sverrissalur/
Apotek/Kaffistofa/ gangur
Opið alla daga frá 11–17. Lokað
þriðjudaga. Til 3. júní. Aðgangur
300 krónur í allt húsið. Aldraðir
og öryrkjar 200 krónur.
MÁLVERK
ELÍAS B. HALLDÓRSSON
Eitt bláu verka Elíasar B. Halldórssonar í Hafnarborg.
SAGNAÞING og
sagnanámskeið verður
haldið í Héraðsskólan-
um í Reykholti nú um
helgina, að auki verða
tvö sagnakvöld sem
hefjst kl. 20, laugar-
dags- og sunnudags-
kvöld.
Á morgun stíga
sagnamenn af Vestur-
landi á svið og auk
þess munu þeir Hákon
Aðalsteinsson frá Eg-
ilsstöðum og David
Campbell sagnamaður
frá Skotlandi
skemmta gestum.
Sagnastjóri verður
Flosi Ólafsson, leikari. Á sunnu-
dagskvöld skemmta íslenskir og
skoskir sagnamenn. Sagnastjóri
verður Jósef H. Þorgeirsson frá
Akranesi.
Sagnaþingið hefst kl. 15 á
sunnudag og verður fjallað um
mikilvægi sagnaarfsins í nútíð og
framtíð. Aðalfyrirlesari Donald
Smith, frá Sagnamiðstöð Skot-
lands í Edinborg. Nefnir hann er-
indi sitt „Only Connect: Storytell-
ing in the 21st century“. Þá halda
erindi: Rósa Þorsteinsdóttir, Árna-
stofnun, Baldur Hafstað, Kenn-
araháskóla Íslands,
Bjarni Harðarson, Sel-
fossi, Hrefna Bryndís
Jónsdóttir, Samtökum
sveitarfélaga á Vestur-
landi, Bergur Þor-
geirsson, Snorrastofu,
Guðrún Halldórsdótt-
ir, grunnskólanum í
Búðardal, Ingi Hans
Jónsson, Grundarfirði,
Páll Guðbjartsson,
Borgarnesi og Rögn-
valdur Guðmundsson,
Hafnarfirði. Þingstjóri
verður Jónína Eiríks-
dóttir Kleppjárns-
reykjum.
Sagnanámskeiðið
verður haldið á sunnudag kl. 9.30
og mánudag kl. 10. Markmiðið er
að vekja athygli á sögum og þjálfa
fólk í að nota sögur í ferðaþjónustu,
skólum og víðar. Leiðbeinendur á
námskeiðinu verða David Camp-
bell og Claire Mulholland frá Skot-
landi og Baldur Hafstað frá Kenn-
araháskóla Íslands.
Sagnadagarnir er samvinnu-
verkefni Snorrastofu, Rannsókna
og ráðgjafar ferðaþjónustunnar,
Samtaka sveitarfélaga á Vestur-
landi, Símenntunarmiðstöðvar
Vesturlands auk stuðningsaðila.
Sagnadagar
í Reykholti
Hákon
Aðalsteinsson