Morgunblaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 42
LISTIR 42 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í DAG efna lúðrasveitir á höfuð- borgarsvæðinu til Dags lúðrasveit- anna. Um átján lúðrasveitir munu safnast saman við Hljómskálann í Reykjavík og ganga í skrúðgöngu eftir Fríkirkjuvegi og Austurstræti að Ingólfstorgi. Þar safnast sveit- irnar saman og leika saman nokkur lög. Um 500 manns á öllum aldri skipa þessar átján sveitir. Tilgang- urinn með Degi lúðrasveitanna er að vekja athygli á þeim mikla fjölda barna og fullorðinna sem tekur þátt í hljómsveitarstarfi af þessu tagi. Gangan hefst kl. 15.00 við Hljóm- skálann, en kynnir á Ingólfstorgi verður Stefán Karl Stefánsson leik- ari. Össur Geirsson stjórnandi Skóla- hljómsveitar Kópavogs er einn skipuleggjenda dagsins. „Þetta er nýbreytni sem Samtök íslenskra skólalúðrasveita og Samtök ís- lenskra lúðrasveita standa fyrir. Hugmyndin að þessu fæddist í haust og þá var ákveðið að prófa þetta þennan dag. Ef vel tekst til hjá okkur ætlum við að reyna að gera það að föstum árlegum við- burði að fara út í vetrarlok og láta heyra í okkur. Við höfum beint því til lúðrasveita um allt land að þær gerðu eitthvað líka, hver í sínu hér- aði. Lúðrasveit verkalýðsins er til dæmis að fara út á land, og spilar austur á fjörðum á morgun í tilefni dagsins, og Ísfirðingar voru með lúðrasveitadag hjá sér um síðustu helgi. Við höfum hins vegar hóað í lúðrasveitir frá Akranesi, Selfossi, Reykjanesi, Mosfellsbæ og öðrum byggðum kringum Reykjavík til að taka þátt í deginum hér. Við hitt- umst í Hljómskálanum og æfum fyrst saman nokkur lög áður en við leggjum af stað í skrúðgönguna klukkan þrjú, og á Ingólfstorgi spil- um við saman fimm, sex lög um hálf fjögurleytið. Þetta verða bæði skólalúðrasveitir og lúðrasveitir fullorðinna. Þetta er allt frá níu ára gömlum krökkum upp í rígfullorðið fólk.“ Össur segir að um 1500–2000 börn í landinu taki þátt í starfi skólalúðrasveita, flest á höfuðborg- arsvæðinu, en eilítið færri starfa í fullorðinssveitunum. Dagur lúðra- sveitanna Morgunblaðið/Jim Smart Ungir sem aldnir taka þátt í starfi lúðrasveita um allt land. BRAKRADDIR er 15 mínútna langt dansmyndbandsverk eftir Helenu Jónsdóttur. Það er hluti af listahátíð og unnið í samvinnu við Íslenska dansflokkinn. Í myndinni er fylgst með stórsöngvara sem Ell- ert Ingimundarsson leikur og þrjár bakraddir dansaðar af þeim Ástu Sighvats Ólafsdóttur, Guðmundi Elíasi Knudsen og Katrínu Á. John- son. Stórsöngvarinn lætur ljós sitt skína á stórtónleikum meðan bak- raddir hans bíða óþreyjufullar eftir að að þeim komi. Fljótlega missa bakraddirnar einbeitinguna en í stað þess að sofna úr leiðindum hefjast þær handa við að skapa sitt eigið listaverk í óþökk stórsöngv- arans. Bakraddirnar fara úr hefð- bundnum jökkunum en undir þeim koma litríkir búningar í ljós. Stór- söngvarinn reynir að hafa hemil á bakröddunum sem fá uppreisn æru í lok verksins. Verkið er vel uppbyggt frá byrjun til enda. Tökustíllinn er lifandi en Helena notar oft þröngan mynd- ramma og súmmar gjarnan inn á einn líkamshluta í einu. Dans og hreyfingar koma vel út í daufri lýs- ingunni og samspil ljóss og skugga gefur myndinni hrátt yfirbragð. Búningarnir eru fjörugir undir hefðbundnum jökkunum og litir og stíll eiga vel við það sem á sér stað í myndinni. Það er dans í trommu- taktinum og kórsöngurinn hæfir yf- irborðskenndum stórsöngvaranum vel. Klipping Elísabetar Ronalds- dóttur er þannig úr garði gerð að aldei verður dauður kafli í verkinu. Myndin heldur athygli áhorfandans allt til enda. Möguleikar í samspili dansara og tökuvélar á hreyfingu er óþrjótandi og spennandi viðfangs- efni. Þetta dansvideóverk er gott dæmi um það. Brakraddir er sýnt til loka maí- mánaðar í Listasafni Reykjavíkur. Brakraddir láta frá sér heyra KVIKMYND Listahátíð Listasafn Reykjavíkur Handrit, dansgerð og leikstjórn: Helena Jónsdóttir. Tónlist: Greg Ellis. Klipping: Elisabet Ronaldsdóttir. Leik- endur og dansarar: Ellert Ingimundarson, Katrín Á. Johnson, Ásta Sighvats Ólafs- dóttir, Guðmundur Elías Knudsen. Myndataka: Magni Ágústsson. Lýsing: Jóhann Pálmason. Búningar: Kristín Að- alsteinsdóttir. DANSMYNDBAND Lilja Ívarsdóttir SUMARSTARFSEMI Árbæjarsafns hefst í dag en þá verður safnið opið frá kl. 10–18. Klukkan 13 verður opnuð ný sýning í húsinu Garða- stræti, einu húsanna við Torgið. Sýningin nefnist Á harða kani – sýning í hesthúsi. Þar er á ferðinni sýning á sleða Geirs Zoëga, kaupmanns og út- gerðarmanns, frá síðari hluta 19. aldar. Sleðar voru stundum nefndir kanar. Sú gerð sem er til sýnis nú var fágæt hérlendis og einungis efnamenn áttu slíka sleða, enda voru þeir dregnir af hesti. Sýningin er í hesthúsi sem upphaflega stóð við Garðastræti 9 og þar eru einnig ýmsir munir og myndir sem tengj- ast hestaferðum og útreiðum í Reykjavík um aldamótin 1900. Kl. 14 býður Þorlákur Ó. Johnson upp á skemmtidagskrána Spek- úlerað á stórum skala, í húsi sínu Lækjargötu 4. Sérstök leikja- dagskrá verður fyrir börn við Kornhús og teymt verður undir börnum við Árbæinn. Húsfreyjan í Árbæ bakar lummur í tilefni dags- ins og handverksfólk verður á bað- stofulofti við tóvinnu. Í Dillonshúsi er veitingasala. Á sunnudag verður harm- óníkudagur í safninu. Fjöldi harm- óníkuspilara á öllum aldri, bæði einstaklingar og hljómsveitir, heimsækja safnið og spila fyrir gesti. Samfelld harmóníkuveisla verður á Kornhúsloftinu frá kl. 13– 16. Meðal flytjenda þar eru danska sveitin Tesco Value, sem mun spila á Hróarskelduhátíðinni síðar í sum- ar. Einnig spilar Strákabandið frá Húsavík, hressir karlar á besta aldri, sem og Karl Adolfs og fé- lagar. Auk þess munu einstaklingar spila í húsunum og úti á safnsvæð- inu ef veður leyfir. Auk þess verður hefðbundin dagskrá og handverks- fólk verður í húsunum. Safnið verð- ur opið alla virka daga nema mánu- daga frá kl. 9–17 og um helgar frá kl. 10–18. Á mánudögum verður Árbærinn og kirkjan opin frá kl. 11–16. Sumardagskrá Árbæjarsafns Morgunblaðið/Einar Falur Laugardagur 1. júní Kl. 9-11.15 Oddi 101: Ritmenn- ing, lestur og samfélag 1830- 1930. Oddi 206: Íslensk skjalasöfn: Aðfangastefna og aðgangur sagnfræðinga. Oddi 201: Verður sagan sögð í sýningum? Oddi 106: Undirstaða sagn- fræðirannsókna: Heimildaút- gáfur. Oddi 206: Hagrænar forsendur trúariðkunar í íslensku bænda- samfélagi. Oddi 201: „Ways to the past: Ten years of change in the hi- story curriculum, examinata- ions and textbooks.“ Málstofa Sue Bennetts. 13.30-17 Oddi 206: Landshag- ir, menning og mannfjöldi: Hreyfanleiki í kyrrstæðu sam- félagi 1650-1850. Oddi 201: Sögukennsla í skól- um. Oddi 101: Minni og vald. Oddi 206: Sjálfsmynd and- spænis framandleika. Oddi 201: Þorskastríð og kalt stríð. Oddi 101: Listin í nýju ljósi: Tónlist, leiklist, myndlist og dans sem hluti af íslenskum menningararfi. Kl. 17 Oddi: Þingslit. Íslenska söguþingið F ótbolti er í ótrúlega miklum metum hjá öllum almenningi allra landa virðist vera. Þeir sem leyfa sér að lýsa yfir áhugaleysi á þessari íþróttagrein mega mæta skilningsleysi og mikilli undrun áhangendanna. Nú er heims- meistaramótið hafið einhvers staðar í Asíu. Mig langar alveg eins að prófa að horfa á einn, tvo leiki en hef víst ekki borgað fyrir áskrift að réttu sjónvarps- stöðinni til þess. Svo skilst mér reyndar að maður þurfi að vakna fyrir allar aldir til að fylgjast með. Þá held ég að ég vilji frekar vakna til að hreyfa sjálfa mig heldur en að horfa á aðra hreyfa sig. En þetta snýst orðið um eitthvað allt annað en hreyfingu. Það er eins og allir karl- kyns Íslend- ingar hafi áhuga á fótbolta. Ef undirrituð væri karlmaður fengi hann kannski sterk viðbrögð við þess- um skrifum, en þar sem ég er kona get ég einhverra hluta vegna leyft mér að lýsa yfir áhugaleysi á fótbolta. Ég hef lesið tvær skemmtilegar greinar nýlega eftir tvo karlkyns anti- fótboltista, annan ítalskan, hinn breskan. England og Ítalía eru eins og allir vita mikil boltalönd og orðasambandið „enska knatt- spyrnan“ var með þeim fyrstu sem mín kynslóð lærði í bernsku. Sá breski, Andy Miller, segir m.a. í lauslegri þýðingu úr grein hans sem Guardian birtir: „Það er engin hefð fyrir því að hata íþróttir í Bretlandi. Annaðhvort elskar maður þær – og það er betra fyrir mann – eða maður reynir að láta sem maður sjái þær ekki. Það þýðir ekki að það sé alslæmt að láta sem maður sjái þær ekki, á virkan hátt. Langar þig að gera leigubíl- stjóra kjaftstopp þegar hann spyr þig hvort þú hafir séð leik- inn? Það þarf bara fimm orð: „Nei“, „ég“, „þoli“, „ekki“ og „fótbolta“. Svona já. Vertu hug- rakkur. Prófaðu það.“ Sá ítalski, Umberto Eco, segir m.a. að það sé umhugsunarefni að umræða um fótbolta sé al- gengari en umræða um pólitík. „Til að vera umræðuhæfur um fótbolta þarf ekki að standast miklar kröfur og þegar öllu er á botninn hvolft er lítil hætta á að verða útskúfaður. Maður fær leyfi til að setja sig í stellingar, segja skoðanir sínar, koma með lausnir án þess að eiga það á hættu að vera handtekinn, sett- ur í flokk öfgahópa af einhverju tagi eða fá aðdróttanir í þá átt. Og maður þarf ekki að taka sig of alvarlega í umræðunum þar sem maður hefur hvort sem er engin áhrif á gang mála. Og að lokum leyfir þetta okkur að taka þátt í almennri umræðu án þjáninganna og krafnanna og efasemdanna sem fylgja póli- tískri umræðu,“ segir m.a. í grein hans sem birtist í þýðingu Hólmfríðar Ólafar Ólafsdóttur í TMM fyrir tæpu ári. Báðum hefur þeim Miller og Eco, eins og títt er um anti- sportista, gengið illa í íþróttum á æskuárum sínum, voru ekki valdir í fótboltaliðið í frímín- útunum eða gerðu kannski sjálfsmark eða gáfu á andstæð- inginn í þau fáu skipti sem þeir snertu boltann, eins og Eco nefnir. Þegar fótbolti er svona stór hluti af daglegu lífi og fé- lagsmótun er nú ekkert skrýtið að svoleiðis hafi áhrif á menn. Að stunda fótbolta er einhver hluti af félagsþroska stráka. Já ég segi stráka, þar sem fótbolti er miklu mikilvægari hluti af þeirra lífi en lífi stelpnanna. Fótbolti og frímínútur er órjúf- anlegt samband í huga flestra stráka. Að vera góður í fótbolta er stór þáttur í því að vera tek- inn í sátt, en að vera lélegur í fótbolta getur verið ávísun á höfnun jafnaldra. „Já, þið hafið rétt fyrir ykk- ur,“ segir Miller. „Ellefu æsku- ár full af niðurlægingu og op- inberri höfnun jafnaldranna,“ kallar hann þetta. Stelpur sem ekki eru góðar í fótbolta þurfa ekki að þola slíkt. En hvers eiga börn að gjalda, þ.e. strákar, eins og málum er háttað, sem ekki hafa áhuga á fótbolta? Auðvitað á fótbolti sínar já- kvæðu hliðar. Þetta er góð hreyfing og stunduð í hópi þar sem oft myndast vinátta. Með því að æfa fótbolta eykst metn- aður krakka, þeir læra að bera virðingu fyrir andstæðingnum og umhyggju fyrir samherjum. Segja a.m.k. þeir sem til þekkja. Ég fer kannski að kynnast þessu sem óð mamma á vell- inum, hver veit. Fótbolti er eitthvað svo miklu meira en íþrótt. Auk þess sem íþróttin er komin langt frá upp- runa sínum, þ.e. frá því að vera leikur og hreyfing og orðin at- vinnugrein sem veltir miklum fjármunum, er þetta eitt helsta umræðuefni fólks frá degi til dags og þessi stóri hluti af dag- legu lífi. Í greinaflokki í nýjasta hefti The Economist er fjallað um knattspyrnu í tilefni af heimsmeistaramótinu. Í einni greininni kemur fram sú ágisk- un hagfræðings í London að fót- boltaiðnaður heimsins sé 150 milljarða punda virði um þessar mundir. Þetta samsvarar um 20 þúsund milljörðum íslenskra króna og er eiginlega ofar skiln- ingi manns. Í þessari sömu grein segir að peningar séu ekki aðalmálið varðandi alþjóðlegan fótbolta, heldur fremur ástríðan og þjóðarstoltið sem honum fylgja. Mörgum fótboltaáhangendum finnst það t.d. helgispjöll að tengja fótboltaleik við markaðs- öflin. Economist greinir t.d. frá því að Barcelona-fótboltaliðið hafi hafnað samningi upp á sem samsvarar 840 milljónum ís- lenskra króna á ári fyrir að hafa auglýsingu á treyjum leikmann- anna. Forsvarsmenn liðsins út- skýra þetta þannig að liðið sé tákn Katalóníu og treyjurnar verði að vera hreinar. Flott hjá Senegal að vinna Frakkland í gær! Fótbolti og frímínútur Í einni greininni kemur fram sú ágisk- un hagfræðings í London að fótboltaiðn- aður heimsins sé 150 milljarða punda virði um þessar mundir. VIÐHORF Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur- @mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.