Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STEFNT er að því
að ljúka vinnu við
deiliskipulag
Laugavegarins í
árslok en sam-
kvæmt fyrirliggj-
andi tillögum er
gert ráð fyrir upp-
byggingu um 60
þúsund fermetra
við götuna. Helm-
ingur þessara ný-
bygginga gæti orðið
verslunarhúsnæði.
Þetta er meðal
þess sem kemur
fram í nýútkomnum
bæklingi um upp-
byggingu og vernd-
un við Laugaveg sem Skipu-
lags- og byggingasvið
Reykjavíkurborgar gefur út.
Bæklingurinn tekur til Lauga-
vegsreita, Bankastrætis og
neðstu Skólavörðustígsreit-
anna og í honum eru sýnd þau
svæði sem hafa uppbyggingar-
möguleika. Að auki er sett
fram á grafískan hátt hugsan-
legt útlit nýbygginganna í
þekktri götumynd Laugaveg-
arins eins og Hans-Olav And-
ersen arkitekt sér það fyrir
sér.
Nýstárleg aðferð
við stefnumörkun
Skipulagsvinnan við Lauga-
veginn er mislangt komin en á
það þó sameiginlegt að vera
hluti af heildarendurskoðun
skipulags miðborgarinnar,
segir Jóhannes S. Kjarval, sem
er arkitekt hjá Skipulags- og
byggingasviði Reykjavíkur-
borgar og hefur haft umsjón
með deiliskipulagsvinnu mið-
borgarinnar. Deiliskipulagið
er síðasti áfangi í vinnu að þró-
unaráætlun miðborgarinnar
sem unnið hefur við allt frá
árinu 1997. Jóhannes segir
þessa áætlun vera nýstárlega
aðferð við að vinna að heild-
stæðri stefnumörkun fyrir
deiliskipulag og tekur til allra
þátta byggðar, starfsemi og
framkvæmdar skipulags. „Það
er mikilvægt að menn skynji
heildina og að mínu mati eru
dálítið miklar fréttir í því fyrir
íslenska skipulagssögu að
menn gera svona djúpstæða,
stefnumarkandi vinnu áður en
byrjað er á eiginlegu skipulagi
og áður enn ákvæðum skipu-
lagslaga um gerð deiliskipu-
lags er fullnægt. Það er bæði
nýtt og tilraunakennt af því að
það reynir á alla þætti málsins
eftir því sem við fetum okkur
áfram. Við verðum alltaf að
horfa til baka og endurskoða
það sem við lögðum upp með.“
Að sögn Nikulásar Úlfars
Mássonar, ritstjóra bæklings-
ins, var ákveðið að ráðast í
gerð hans vegna misskilnings
varðandi stefnu borgaryfir-
valda í uppbyggingar- og
verndunarmálum við þessa
þekktustu verslunargötu
borgarinnar. „Það tóku að
heyrast háværar raddir um að
það væri verið að ofvernda hús
við Laugaveginn. Þess vegna
þurftum við að sýna fram á
með þessum hætti að í þessari
deiliskipulagsvinnu er verið að
gefa færi á mikilli uppbygg-
ingu. Hérna er verið að gefa
kost á uppbyggingu 30 þúsund
fermetra verslunarrýmis sem
er nær því jafnmikið verslun-
arrými og er í Smáralind og
það kemur til viðbótar því sem
er fyrir á Laugaveginum.“
Einn flóknasti hluti skipu-
lags miðborgarinnar
Undir þetta tekur Jóhannes
og bendir á að auk þessa sé
Laugavegurinn einn flóknasti
hluti deiliskipulags í miðborg-
inni. „Þarna eru margar at-
vinnugreinar, sambland at-
vinnustarfsemi og íbúða og
þetta er mjög flókin samsetn-
ing.“ Hann segir Laugaveginn
vera það svæði í miðborginni, á
eftir Kvosinni, sem segja megi
að komi öllum mest við. „Þar af
leiðandi einblínum við alltaf í
umræðu og okkar faglegu hug-
myndum á þetta svæði.“
Nikulás er sammála þessu:
„Þarna erum við að vinna í
sögulegu umhverfi og þá
stangast svolítið á þarfir fyrir
þróun og nýtískulegra hús-
næði annars vegar og verndun
húsa hins vegar.“ Á þetta er
minnst í bæklingnum því þar
kemur fram að sérstaða
Laugavegarins felist í því að
þar megi finna að minnsta
kosti einn fulltrúa hvers bygg-
ingarstíls í byggingarsögu
Reykjavíkur. Nikulás segir að
þetta geri Laugaveginn ein-
stakan, jafnvel í stærra sam-
hengi en bara innanlands.
„Þarna er steinbær, þarna er
danski stíllinn og við erum með
íslenska brotaþaksstílinn og
svo mætti lengi telja. Þannig
er hægt að rekja sig í gegnum
söguna eftir Laugaveginum
frá upphafi timburhúsagerðar
í Reykjavík til fulltrúa dagsins
í gær sem er Laugavegur 99.
Og það er þetta sem gerir
þessa deiliskipulagsvinnu svo
flókna því við þurfum að
ákveða hverju við eigum að
fórna fyrir nútímaverslun.“
Jóhannes segir þá hjá
Skipulagssviði, sem komið
hafa að þessari vinnu, sam-
mála um að húsverndun standi
höllum fæti. „Það kemur okk-
ur dálítið mikið að óvörum því
árið 1995 var mjög skýr
stefnumótun varðandi vernd-
un afgreidd af borgaryfirvöld-
um í fullkominni pólítískri
samstöðu og sú stefna hefur
verið forsenda þessarar vinnu.
Hins vegar verðum við glögg-
lega vör við að hún stendur
höllum fæti og það er miður
vegna þess að þetta er hrein-
lega fjöreggið í sögu okkar,
annars erum við ekkert.“
Þeir félagar eru hins vegar
sammála um að deiliskipulag-
ið, sem kynnt er í bæklingnum,
sýni að hægt sé að gera mjög
mikið við Laugaveginn án þess
að tefla sögunni í tvísýnu. Í
tölulegum upplýsingum, sem
settar eru fram í bæklingnum,
kemur fram að núverandi
heildarbyggingamagn götunn-
ar sé 190 þúsund fermetrar en
þar af séu 27 þúsund fermetr-
ar verslunarhúsnæði. Í tillög-
unum er lagt til niðurrif um 13
þúsund fermetra húsnæðis en
þar af eru um 4 þúsund fer-
metrar verslunarhúsnæði. Á
hinn bóginn er lagt til að byggt
verði um 60 þúsund fermetrar
nýs húsnæðis og gæti helming-
ur þess, eða um 30 þúsund fer-
metrar, orðið verslunarrými.
Heildarverslunarrými við
Laugaveginn verður því sam-
kvæmt deiliskipulaginu um 53
þúsund fermetrar.
„Þessi uppbygging er nátt-
úrlega háð ýmsu sem við-
skiptalífið verður að taka
ákvörðun um og vinna að,“
segir Jóhannes. „Við svörum
alls ekkert öllum spurningum
og við gerum ekki forskrift að
öllu en það má segja að við
bendum á tækifæri. Það er
kjarni málsins.“
Áhersla lögð
á viðhald húsa
Nikulás segir að með þessu
skipulagi sé einnig verið að
beina sjónum manna að al-
mennu viðhaldi húsa á Lauga-
veginum sem hafi verið mjög
ábótavant. Því sé umræðan um
gömul hús á Íslandi oft á nei-
kvæðum nótum. Hann bendir
á að viðhaldsvinna við gömul
hús í miðborginni sýni að þau
séu þess virði að halda upp á
og nefnir sérstaklega húsin við
Kirkjustræti og gamla
Kvennaskólann við Austurvöll
í því sambandi. „Þetta eru hús
sem enginn myndi vilja rífa í
dag en voru óneitanlega gam-
alt skúradrasl fyrir fimm ár-
um. Þetta þarf að fara að ger-
ast við Laugaveginn og þess
vegna einbeitir Húsverndar-
sjóður Reykjavíkurborgar sér
að Laugaveginum til að
styrkja fólk í því að gera upp
sín hús og halda þeim við.“
En hvenær má búast við því
að uppbyggingu við Lauga-
veginn verði lokið? Jóhannes
segir erfitt að segja til um það.
„Það er alveg ljóst að það er
dálítill kraftur úr mönnum
vegna þess að viðskiptalífið
hefur fjárfest í kannski of
mörgum fermetrum af versl-
unarhúsnæði. Það er einfald-
lega þannig að það eru
ákveðnar ytri aðstæður og
efnahagskerfið er þannig nú
að ég persónulega trúi ekki á á
að það gerist neitt með snögg-
um hætti á svæðinu heldur að
það séus kannski þrjú ár í að
eitthvað fari að gerast. En það
er mjög einlæg sannfæring
allra þeirra sem hafa verið að
fást við þetta að allir spádómar
um að Laugavegurinn sé á far-
aldsfæti eru bara bölsýni sem
á ekkert skylt við raunveru-
leikann.“
Bæklingur um uppbyggingu og verndun við Laugaveg kominn út hjá borginni
Vinna í sögu-
legu umhverfi
Gert er ráð fyrir uppbyggingu
verslunarrýmis við Laugaveg sem
er nálægt því jafnstórt og Smára-
lindin. Bergþóra Njála Guðmunds-
dóttir ræddi við fulltrúa hjá Skipu-
lagssviði borgarinnar og komst m.a.
að því að við Laugaveginn standa
hús frá öllum byggingarstílum í
sögu byggingarlistar í borginni.
Miðborg
Teikningar/Hans-Olav Andersen
Samkvæmt tillögunum stendur húsið að
Laugavegi 43 áfram, en gert ráð fyrir
mikilli uppbyggingu á lóðunum í kring.
Töluverð viðbrögð hafa orðið við þessari
teikningu en hér er aðeins um hugmynd
og einn möguleika af mörgum að ræða.
Hugmynd að nýbyggingu við Klapparstíg
30, sem sett er fram í bæklingnum, en
húsið að Laugavegi 21 stendur áfram.
Þannig myndast lítið sólríkt torg við
Laugaveg, fyrir framan nýbygginguna,
við vesturgafl gamla hússins.
Húsin að Laugavegi 65 og 71 standa
áfram samkvæmt tillögunum en gert er
ráð fyrir mikilli uppbyggingu á baklóðum
og þriggja hæða byggingum með inn-
dreginni þakhæð á lóðunum númer 67, 69
og 73. Að auki yrði nýbygging á horni
Laugavegs og Vitastígs.
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Kristinn
Nikulás Úlfar Másson og Jóhannes
S. Kjarval segja tillöguna sýna að
mikil uppbygging sé möguleg án
þess að tefla sögunni í tvísýnu.
Morgunblaðið/Ásdís