Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 16

Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 16
AKUREYRI 16 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ www. .is ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ KÍKTU Á NETIÐ Aðalfundur Skógræktarfélags Eyfirðinga verður haldinn fimmtudaginn 6. júní kl. 20.00 í Gróðrarstöðinni í Kjarna. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. FJARSKIPTAFÉLAGIÐ Tengir hf. var stofnað á Akureyri í gær, en tilgangur þess er fjarskiptarekstur og annar rekstur því tengdur. Stofn- endur félagsins eru Fjarski, Íslands- sími, Lína.Net og Norðurorka. Hlutafé er 40 milljónir króna og eiga Norðurorka og Fjarski rúmlega 38% hlutafjár, Lína.Net 22,5% og Ís- landssími 1%. Páll Tómasson, stjórnarformaður Tengis, sagði að Fjarski hefði lagt ljósleiðara yfir hálendi Íslands síð- asta sumar og Norðurorka hefði átt lagnir á Akureyri, sem lagt hefði ver- ið inn í fyrirtækið. „Markmiðið með stofnun þessa fyrirtækis er að efla stöðu Akureyrar á sviði fjarskipta,“ sagði Páll. Hlutverk Tengis verður að byggja upp öflugt grunnfjarskiptakerfi sem verður öllum opið. Meðal þeirra sem þegar nýta sér þjónustu þess eru Háskólinn á Akureyri, Verkmennta- skólinn á Akureyri, Landsvirkjun og Norðurorka og þá bíða nokkur fyr- irtæki og stofnanir eftir tengingu. Auk þess sem Tengir mun vinna að uppbyggingu á ljósleiðaraneti er stefnt að því að nýta alla þá mögu- leika sem tiltækir eru fyrir grunn- fjarskipti, hvort sem þau fara eftir símalínum, raflínum eða í lofti, allt eftir því hvað hagstæðast er hverju sinni. Sú aðstaða sem þegar er fyrir hendi verður nýtt sem kostur er svo og nýframkvæmdir og viðhaldsverk annarra, s.s. Norðurorku, til að koma fyrir nýjum fjarskiptalögnum. Félagið mun fyrst um sinn verða vistað hjá Norðurorku, en gert er ráð fyrir að framkvæmdastjóri verði ráðinn innan tíðar. Fjarskiptafélagið Tengir stofnað á Akureyri Markmiðið að efla stöðu bæjarins á sviði fjarskipta Morgunblaðið/Kristján Frá stofnfundi Tengis. Frá vinstri Örn Orrason, Íslandssími hf., Eiríkur Bragason, Lína.net hf., Magnús Hauksson, Fjarski hf., Franz Árnason, Norðurorka, Hákon Stefánsson lögmaður, Páll Tómasson, Norðurorka, Guðmundur Ingi Ásmundsson, Fjarski hf., Kristján Gunnarsson, Fjarski hf. UMFANGSMIKLAR breytingar hafa verið gerðar á frystiskipinu Mánabergi frá Ólafsfirði, en það er í eigu Þormóðs ramma-Sæbergs. Þær voru gerðar hjá Slippstöðinni á Akureyri og var skipið afhent eig- endum eftir hinar gagngeru end- urbætur í gær. Samningur um endurbæturnar var gerður í nóvember síðast- liðnum. Helstu verkþættir voru endurnýj- un á togdekki og fullvinnslulínu á millidekki en á verktímanum bætt- ust tveir stórir verkþættir við; skipti á ljósavél og nýr andveltitankur. Baldvin Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar, sagði að forsmíði stálhluta og vinnslubúnaður hefði hafist í des- ember, en skipið kom svo til Ak- ureyrar um miðjan mars. Allt tog- dekk skipsin var fjarlægt og allur vinnslubúnaður á millidekki, en einnig var hluti af millidekkinu sjálfu endurnýjaður um leið og ljósavélaskipti fóru fram. Nýtt for- smíðað togdekk í þremur hlutum var þá tilbúið og því komið fyrir sem og einnig nýjum andveltitanki. Að lokum var svo ný vinnslulína sett niður. Baldvin sagði þetta verkefni eitt það stærsta sem unnið hefði verið að í Slippstöðinni á síðari árum. All- ur framgangur verksins hefði geng- ið samkvæmt áætlun og allar tíma- setningar staðist. Breytingarnar voru hannaðar af Teiknistofu KGÞ á Akureyri og tæknimönnum Slippstöðvarinnar, en búnaður í nýja vinnslulínu er frá Slippstöðinni og Marel. Morgunblaðið/Kristján Frystitogarinn Mánaberg ÓF við bryggju í Slippstöðinni. Eitt stærsta verkefni síðari ára Slippstöðin afhendir Mánabergið eftir gagngerar endurbætur SUMARSTARF Minjasafnsins á Akureyri hefst í dag, 1. júní kl. 14, með því að opnuð verður í safninu afmælissýningin „Sem mér var gef- ið…“ Á sýningunni er fjöldi muna sem safninu hafa borist síðastliðin tíu ár. Þykir við hæfi á fertugasta starfsári þess að sýna gestum hluta af því sem velunnarar safnsins hafa fært því til varðveislu. Á sýning- unni mætast gamlir og nýir tímar. Fulltrúar gamla tímans eru t.d. út- skorin rúmfjöl, lampi frá Möðru- völlum og ofn úr Hólakirkju svo eitthvað sé nefnt. Fulltrúar nýja tímans eru þó fleiri á sýningunni og kennir margra grasa. Tækninýj- ungum eru gerð góð skil og til sýnis eru margir persónulegir munir full- orðinna og barna, allt frá hvers- dagslegum nytjahlutum til list- muna. Einnig eru á sýningunni munir sem varða sérstaklega sögu Akureyrar og Eyjafjarðar. Gefend- ur eru tæplega eitt hundrað og flestir ættaðir úr byggðarlaginu. Fjörutíu ára afmælis safnsins verð- ur síðan aftur minnst um miðjan júlí með garðveislu í Minjasafns- garðinum, en þar er nú að ljúka víð- tækum endurbótum. Sumarstarfið verður með hefð- bundnum hætti. Sýningarnar Eyja- fjörður frá öndverðu og Akureyri – bærinn við Pollinn verða opnar alla daga í sumar. Þær segja sögu bæj- ar og héraðs allt frá landnámi fram á tuttugustu öld. Veitt er leiðsögn um sýningarnar sé þess óskað. Fimm sögugöngur í sumar Í boði verða fimm sögugöngur um hverfi bæjarins í sumar. Að auki verður ein ferð um Kjarnaskóg og önnur í fótspor Jóns Sveinsson- ar, Nonna. Sex söngvökur verða í Minjasafnskirkjunni í sumar þar sem rakin verður íslensk tónlistar- saga í tali og tónum og í júní koma skólabörn á námskeiðið „Sumar- lestur – gamlir leikir og gömul hús“. Auk þess verður veitt leið- sögn um miðaldakaupstaðinn á Gásum. Samstarfsaðilar Minja- safnsins á þessu sumri eru Amts- bókasafnið, Listasumar, Nonnahús, Norræna félagið og Leikhópurinn Saga. Minjasafnið er opið alla daga frá klukkan 11–17. Minjasafnið á Akureyri Sumarstarf með nýrri sýningu DAGSKRÁ Sjómannadagsins á Akureyri hefst í dag, laugardag, með árlegu golfmóti sjómanna á Jaðarsvelli kl. 13.30 Á sama tíma hefst knattspyrnumót sjómanna verður einnig haldið á morgun í KA-heimilinu.. Hætta varð við róðrarkeppni á Pollinum að þessu sinni vegna ónógrar þátttöku. Hátíðarsamkoma sjómanna verður í Íþróttahöllinni og hefst kl. 19. Veislustjóri er Birgir Svein- björnsson og verða fjölbreytt skemmtiatriði í boði, s.s. Rögn- valdur gáfaði, dægurlagapönk- hljómsveitin Húfa og Borgarkvart- ettinn, sem þeir Atli Guðlaugsson, Þorvaldur Halldórsson, Þorvaldur Þorvaldsson og Ásgeir Páll Ágústsson skipa, kemur fram en undirleikari er Agnar Már Magn- ússon. Sjómannamessur verða í kirkjum bæjarins kl. 11 á sjó- mannadaginn og minningarathöfn við Glerárkirkju kl. 12.10 þar sem lagður verður blómsveigur að minnisvarða um týnda og drukkn- aða sjómenn. Fjölskylduhátíð hefst kl. 13.30 við Oddeyrartanga. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og við- skiptaráðherra flytur hátíðarræðu og sr. Gylfi Jónsson á Möðruvöll- um flytur hugvekju. Sjómenn verða heiðraðir. Meðal skemmtiat- riða má nefna Gunna og Felix, mæðginin Inga Eydal og Ingimar Davíðsson syngja við undirleik Daníels Þorsteinssonar og þá verð- ur létt íþróttakeppni auk þess sem Circus Atlantis verður á svæðinu. Grillveisla verður á hafnarsvæðinu í boði ýmissa fyrirtækja. Fjölbreytt dagskrá á sjómannadaginn TÓNLISTARFÓLK frá Vest- mannaeyjum heldur tónleika í Laugarborg, Eyjafjarðarsveit, á sunnudagskvöld, 2. júní og hefjast þeir kl. 20. Þetta eru þau Anna Alexandra Cwalinska sópransöngkona, Védís Guðmundsdóttir þverflautuleikari og Guðmundur H. Guðjónsson sem leikur á píanó á tónleikunum, en hann er organisti Landakirkju. Á efnisskránni eru fimmtán lög eftir ellefu tónskáld: G.F. Händel, Bach-Gounod, W.A. Mozart, E. Grieg, Marin Marais, Wilhelm Popp, F. Chopin. S. Moniuszko, Mikis Theodorakis, F. Lehár og G. Rossini. Tónleikar í Laugarborg SVAVA Kristín Egilson opnar sýn- ingu í Deiglunni í dag, laugardaginn 1. júlí, kl. 16. Hún stundaði nám við Myndlista- skólann á Akureyri og heillaðist þar af textíl. Hún fæst við myndlist af ýmsum toga; vatnsliti, olíu, mósaík og textíl. Svava Kristín er búsett í Eyjafjarðarsveit og er þar með vinnustofu. „Ég veit ekki á hvaða leið ég er, eins og þessi sýning sýnir, en ég reyni að fylgja hjartanu og læt það ráða hvert stefnir. Stundum verður útskurður að málverki og málverk að mósaík eða öfugt,“ segir Svava í frétt um sýninguna. Svava sýnir FYRSTA söngvaka sumarsins á vegum Minjasafnsins á Akureyri verður í Minjasafnskirkjunni á mánudag, 3. júní kl. 20.30. Söng- vökur eru hefðbundinn þáttur í sumarstarfi Minjasafnsins og hafa notið mikilla vinsælda á liðnum ár- um. Að þessu sinni verður það tón- listarfólkið Þuríður Vilhjálmsdóttir og Þórarinn Hjartarson sem flytur tónleikagestum sýnishorn íslenskr- ar tónlistarsögu í tali og tónum frá miðöldum til okkar daga. Söngvökurnar verða sex talsins í sumar. Önnur söngvaka sumarsins verður mánudaginn 10. júní kl. 20.30. Söngvökur í Minjasafnskirkju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.