Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 26
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
26 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Austurstræti 5, 155 Reykjavík, kt. 490169-1219.
Bankastjórn Búnaðarbanka Íslands hf. samþykkti þann 30. maí 2002 að heimila
stækkun skuldabréfaflokksins BUN 001A um 6.000.000.000,- sex þúsund milljónir
króna að nafnverði og mun að lokinni stækkun nema allt að 10.000.000.000,- tíu
þúsund milljónir króna.
Skráningarlýsingu og þau gögn sem vitnað er til í henni ásamt viðauka er hægt að
nálgast hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum.
Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Sími: 525-6060. Fax: 525-6099.
Aðili að Verðbréfaþingi Íslands.
Viðauki við skráningarlýsingu verðtryggðra
skuldabréfa Búnaðarbanka Íslands hf.
1. flokkur 2000.
Samkomulag um starfsmenntamál sjómanna
Treystir stöðu sjó-
manna á vinnumarkaði
Morgunblaðið/Golli
Frá undirritun samkomulags um starfsmenntamál sjómanna. Samtals verð-
ur 45 milljónum króna varið til verkefnisins á næstu þremur árum.
leita eftir viðræðum við stjórnvöld
um fyrirkomulag fullorðinsfræðslu.
Þá skal verkefnissjórnin styrkja
nýjungar í námsefnisgerð og endur-
skoðun námsefnis, styrkja rekstur
námskeiða og veita einstaklingum
og útgerðum styrki vegna starfs-
menntunar samkvæmt nánari
reglum verkefnisstjórnarinnar.
Verkefnisstjórnin skal einnig leit-
ast við að eiga samstarf við hina
ýmsu aðila sem að starfsmenntun
koma með það að markmiði að sam-
ræma sjónarmið og skapa þannig
breiðan stuðning við verkefnið.
Þess er getið í samkomulaginu að
samningsaðilar skuli haustið 2003
fá óháðan aðila til að leggja mat á
árangur verkefnisins og hvaða
ávinningi það hefur skilað fyrir
sjávarútveginn. Með hliðsjón af
þeirri niðurstöðu skal taka ákvörð-
un um hvort af áframhaldandi sam-
starfi verður.
FORSVARSMENN Sjómannasam-
bands Íslands, Samtaka atvinnulífs-
ins og Landssambands íslenskra út-
vegsmanna skrifuðu í gær ásamt
Páli Péturssyni, félagsmálaráð-
herra, undir samkomulag um
starfsmenntamál. Markmið sam-
komulagsins er að treysta stöðu sjó-
manna á vinnumarkaði með því að
gefa þeim kost á að efla og end-
urnýja þekkingu sína og gera þá
hæfari til að takast á við ný og
breytt verkefni. Með starfsmennt-
un er í samkomulaginu einkum átt
við eftir- og endurmenntun sjó-
manna.
Verkefninu verða tryggðar 45
milljónir króna úr Atvinnuleysis-
tryggingastjóði á næstu tæpum
þremur árum, eða til 15. maí 2004.
Er þetta með sambærilegum hætti
og staðið er að starfsmenntaverk-
efnunum Starfsafli og Landsmennt,
sem eru átak í starfsfræðslumálum
ófaglærðra er urðu til í framhaldi af
síðustu kjarasamningum.
Páll Pétursson sagði á blaða-
mannafundi, sem boðað var til í til-
efni af undirritun samkomulagsins,
að það væri mjög ánægjulegt að að-
ilar vinnumarkaðarins hefðu komið
sér saman um að verja peningum á
þann hátt og efla starfsmenntun.
Það sé af hinu góða og eitt dæmið
enn um góða samvinnu aðila vinnu-
markaðarins og stjórnvalda.
Starfsmenntun mikilvæg
fyrir atvinnulífið
Fram kemur í samkomulaginu að
samningsaðilar séu sammála um
mikilvægi starfsmenntunar fyrir ís-
lenskt atvinnulíf. Aukin hæfni og
starfstengd menntun félagsmanna
aðildarfélaga Sjómannasambands
Íslands séu nauðsynlegir þættir í
meiri framleiðni og bættri sam-
keppnisstöðu útgerða íslenskra
fiskiskipa. Útgerðin þarfnist vel
menntaðra sjómanna sem geti mætt
nýjum þörfum og breyttum kröfum
og mikilvægt sé að framboð á námi
og námsefni svari þörfum útgerð-
arinnar á hverjum tíma.
Skipuð verður sérstök verkefnis-
sjórn sem í munu eiga sæti þrír
fulltrúar stéttarfélaganna, tveir
fulltrúar frá Samtökum atvinnulífs-
ins og einn fulltrúi félagsmálaráðu-
neytisins. Hlutverk verkefnis-
stjórnarinnar verður að sinna
stuðningsverkefnum og þróunar- og
hvatningaraðgerðum í starfsmennt-
un fyrir sjómenn.
Í samkomulaginu kemur fram að
verkefnissjórnin skuli hafa frum-
kvæði að þróunarverkefnum í
starfsmenntun, kanna þörf útgerða
fyrir starfsmenntun sjómanna og
VÖRUSKIPTIN í apríl voru hag-
stæð um 2,7 milljarða króna. Flutt-
ar voru út vörur fyrir 20,8 milljarða
króna og inn fyrir 18,1 milljarð, fob.
Í sama mánuði í fyrra voru vöru-
skiptin hagstæð um 2,2 milljarða á
sama gengi. Þetta kemur fram í
frétt frá Hagstofu Íslands.
Fyrstu fjóra mánuðina í ár voru
fluttar út vörur fyrir 73,9 milljarða
króna en inn fyrir 65,9 milljarða,
fob. Afgangur var því á vöruskipt-
unum við útlönd sem nam 8,0 millj-
örðum króna en á sama tíma árið
áður voru þau óhagstæð um rúma
5,6 milljarða á sama gengi. Fyrstu
fjóra mánuði ársins var því vöru-
skiptajöfnuðurinn tæpum 13,7 millj-
örðum króna skárri en á sama tíma
í fyrra.
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu
fjóra mánuði ársins var 6 milljörð-
um eða 9% meira á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Miðað er við
meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á
þann mælikvarða er meðalverð er-
lends gjaldeyris 11% hærra mán-
uðina janúar–apríl 2002 en sömu
mánuði fyrra árs.
Sjávarafurðir voru 63% alls út-
flutnings og var verðmæti þeirra
12% meira en á sama tíma árið áð-
ur. Í frétt Hagstofunnar segir að
aukningu vöruútflutnings megi
einna helst rekja til aukins útflutn-
ings á sjávarafurðum, aðallega fiski-
mjöli og frystum flökum. Einnig
hafi útflutningur iðnaðarvöru auk-
ist, að stórum hluta á lyfjavörum og
lækningatækjum. Á móti komi að
verðmæti álútflutnings hafi dregist
saman og skipaútflutningur hafi
verið minni.
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu
fjóra mánuði ársins var 7,7 millj-
örðum eða 11% minna á föstu gengi
en á sama tíma árið áður. Fram
kemur í tölum Hagstofan að það má
að stærstum hluta rekja til minni
innflutnings á fjárfestingarvörum,
flutningatækjum og neysluvörum,
öðrum en mat- og drykkjarvörum.
!"
#
!
"!#
! " # !
$
$!
%
$%
"
$
&
'
$
&! ' (
() *+)*
( ,-)(
( -.*)
/*)/
(/ ,.+0
()/1
-)*0
) 1(,0
0 /+.)
( .).-
( ((()
/ +++,
() -(()
( --,-
)+-(
( (./(
(* .+*1
(11.
*0--
) *-.+
0 ...-
/*+(
0 ,,,1
+ --.)
!"
21+3
4(,+3
2,-/3
2-0(3
#"
4,-.3
2/)3
4)(.3
20(/3
2().3
2)0.3
2,(.3
5 2(103
$%&'(
)*
+
,
*-$+.
Vöruskipti í
apríl jákvæð
ÖLDURÓT, blað Sjómannadags-
ráðs Akureyrar, er komið út og
hefur verið dreift endurgjalds-
laust í hús á öllum þéttbýlis-
stöðum við Eyjafjörð í dag. Blaðið,
sem Athygli ehf. á Akureyri hefur
unnið fyrir Sjómannadagsráð Ak-
ureyrar, er 48 blaðsíður og kennir
þar ýmissa grasa. Meðal annars
birtast viðtöl við Jakob Kárason,
vélstjóra á Árbaki, rætt er við þá
Auðunsbræður, Þorstein og Gunn-
ar, sem verða heiðraðir á sjó-
mannadaginn og einnig er viðtal
við Trausta Gestsson, skipstjóra á
Akureyri, sem sömuleiðis verður
heiðraður á sjómannadaginn. Þá
eru viðtöl við Hörð Blöndal, hafn-
arstjóra á Akureyri, Víði Bene-
diktsson, stýrimann á Kaldbaki
EA, Gunnar Georg Gunnarsson,
háseta á Vilhelm Þorsteinssyni EA
og Maron Björnsson, skipstjóra á
Guðmundi Ólafi ÓF. Blaðið er
prentað í átta þúsund eintökum.
Öldurót
komið út
SJÓMANNADAGURINN er á
morgun og samkvæmt kjarasamn-
ingum við sjómenn eiga öll fiskiskip
að liggja í höfn á sjómannadag og
hafa komið til hafnar eigi síðar en
kl. 12.00 á hádegi í dag fyrir sjó-
mannadag og láta ekki úr höfn fyrr
en kl. 12.00 á hádegi mánudag.
Töluverðrar óánægju hefur gætt
meðal útgerðarmanna á undanförn-
um árum vegna sjómannadagsins,
sem segja að hann beri upp á tíma
þegar veiði stendur sem hæst, svo
sem úthafskarfaveiðar á Reykjanes-
hrygg og veiðar úr norsk-íslenska
síldarstofninum. Síðdegis í gær
voru sex íslensk skip að síldveiðum
í Síldarsmugunni. Þangað er ríflega
sólarhrings sigling og því útlit fyrir
að skipin verði á sjó á sjómanna-
daginn. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er ætlun þeirra að
landa afla í Noregi eftir helgi en
ákvæði um frí um sjómannadags-
helgina eru frávíkjanleg ef um er að
ræða skip sem ætlað er að sigla
með afla sinn á erlendan markað,
enda sé skipshöfn kunnugt um það
áður en veiðiferð hefst.
Útgerðir verða kærðar
Hólmgeir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sjómannadagsins, segir að
árlega komi fram sögusagnir um að
einstök skip ætli að vera á sjó á sjó-
mannadaginn en sem betur fer hafi
það ekki orðið raunin. „Það verður
fylgst með því hvort skip brjóta
kjarasamninga með þessum hætti
og gengið hart fram í því að kæra
þær útgerðir sem gerast brotleg-
ar.“
Á undanförnum árum hafa þær
raddir sífellt gerst háværari sem
vilja flytja sjómannadaginn til.
Hólmgeir segist hafa orðið var við
þessa umræðu en gefur lítið fyrir
slíkar hugmyndir. „Ég get ekki séð
að þetta sé vandamál, útgerðirnar
eiga að geta skipulagt sína sókn
þannig að skip þeirra verði í landi á
sjómannadag. Skipin eru öll með
kvóta og fiskurinn fer ekkert frá
þeim. Ef sjómannadagurinn yrði
færður til myndi það einungis koma
niður á einhverjum öðrum,“ segir
Hólmgeir.
Sex skip í síldarsmugunni
Hyggjast landa
í Noregi eftir
sjómannadag
GREININGARDEILD Búnaðar-
bankans-Verðbréfa spáir 0,4%
hækkun á vísitölu neysluverðs á
milli maí og júní en SPRON spáir
0,3% hækkun.
Bensín hefur mest áhrif til
hækkunar en Olíufélagið og Skelj-
ungur tilkynntu í gær 5% hækkun
á bensínverði eða 4,8 krónur á
bensínlítrann. Verð á olíu verður
óbreytt. Miðað við 0,4% hækkun á
vísitölu neysluverðs í júní verður
verðbólga síðustu 12 mánaða 4,8%
en 0,3% hækkun samsvarar 3,5%
verðhækkun á ársgrundvelli. Hag-
stofa Íslands birtir vísitöluna 12.
júní nk.
Spá 0,3–0,4%
hækkun
á vísitölu
neysluverðs