Morgunblaðið - 01.06.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 01.06.2002, Síða 30
ERLENT 30 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍSKA dómsmálaráðuneytið hefur losað verulega um hömlur á njósnum í Bandaríkjunum með því að veita alríkislögreglunni, FBI, heimild til að fylgjast með vefsíðum á Netinu, bókasöfnum, trúfélögum og pólitískum samtökum til að leita að vísbendingum um hryðjuverkasamsæri. John Ashcroft dómsmálaráðherra og Robert Mueller, yfirmaður FBI, tilkynntu breytingarnar í fyrradag. Ashcroft sagði að skriffinnskufjötrar hefðu hindrað rannsóknir FBI á hryðjuverkastarf- semi og nýjar reglur myndu auðvelda alríkislög- reglunni að sinna því verkefni. „Hryðjuverkamenn höfðu hag af þessum takmörkunum,“ sagði hann. Dómsmálaráðherrann bætti við að samkvæmt gömlu reglunum gætu starfsmenn FBI ekki „vafr- að á Netinu eins og venjulegt fólk“ og ekki heldur farið á samkomur til að fylgjast með mönnum og starfsemi félaga. Nýju reglurnar veita starfsmönnum FBI meira frelsi til að rannsaka hugsanlega hryðjuverkastarf- semi þótt þeir séu ekki að grennslast fyrir um sér- stakt mál. George W. Bush Bandaríkjaforseti fagnaði breytingunum. „FBI þurfti að breytast. Í alríkislög- reglunni er margt gott fólk en hún reis ekki undir kröfum tímans.“ Mueller sagði að breytingarnar væru „sérlega gagnlegar“ fyrir FBI. „Breytingar okkar á FBI auka svigrúm okkar til koma í veg fyrir hryðjuverk í framtíðinni.“ Dregið úr skriffinnsku Bandarísk samtök, sem standa vörð um borg- araleg réttindi, gagnrýndu þá ákvörðun dómsmála- ráðuneytisins að losa um hömlur á njósnum í Bandaríkjunum, sögðu hana geta grafið undan per- sónuvernd og friðhelgi einkalífsins. Þau vöruðu við því að alríkislögreglan kynni að misnota heimildina. Samkvæmt gömlu reglunum geta starfsmenn FBI ekki hafið almennar rannsóknir á Netinu og bókasöfnum nema upplýsingarnar sem þeir leita að tengist beint sérstakri sakamálsrannsókn eða vís- bendingum sem verið er að kanna. Nýju reglurnar aflétta þessum hömlum og þing Bandaríkjanna þarf ekki að samþykkja þær. Breytingarnar eiga meðal annars að draga úr skriffinnsku og afskiptum höfuðstöðva alríkislög- reglunnar af rannsóknum útibúa hennar. „Þessar miklu breytingar gera FBI-mönnum í útibúunum kleift að rannsaka meinta hryðjuverkamenn af krafti án þess að bíða eftir fyrirmælum frá höf- uðstöðvunum,“ sagði Ashcroft. Breytingarnar eru liður í viðamikilli endurskipu- lagningu FBI, sem hefur sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki brugðist rétt við vísbendingum, sem fram komu fyrir 11. september, um að hryðjuverkamenn kynnu að vera að undirbúa árásir í Bandaríkjunum. Losað um hömlur á njósn- um í Bandaríkjunum Washington. AP. vistvænt og oft miklu auðveldara að komast leiðar sinnar á því en bíl. Ætlar hann að fjöldaframleiða hjólið fyrir innanlandsmarkaðinn og hyggja síðar á útflutning. TAÍLENSKI uppfinningamað- urinn Pravit Yongvanich kynnti í fyrradag nýjasta smíðisgripinn sinn, reiðhjól á vatnsskíðum. Seg- ir hann, að farartækið sé ódýrt og Reuters Hjólað á fljótinu EINN maður féll í gær þegar vopn- aðir stuðningsmenn Marcs Ravalom- anana, forseta Madagaskars, gerðu misheppnaða tilraun til að ná flug- velli í borginni Mahajanga í norð- vesturhluta landsins á sitt vald, en Mahajanga lýtur yfirráðum Didiers Ratsirakas, fráfarandi forseta lands- ins. Mættu stuðningsmenn Raval- omanana harðri mótspyrnu manna Ratsirakas, sem neitar að afsala sér völdum, þrátt fyrir að hafa borið lægri hlut í kosningum í desember sl. Hersveitir Ravalomanana höfðu ætlað sér að ná valdi á flugvellinum í Mahajanga svo þar mætti lenda flug- vél með það herlið og þann vopna- búnað sem þarf, til að tryggja yfirráð kjörins forseta í landinu öllu. Flug- vélin, sem um ræðir, lagði hins vegar aldrei af stað frá höfuðborginni Ant- ananarivo sökum þeirra bardaga sem stóðu í Mahajanga. Ravalomanana var svarinn í emb- ætti í Antananarivo í maí sl. og hefur tryggt stöðu sína í höfuðborginni. Ratsiraka kom sér hins vegar fyrir ásamt stuðningsmönnum sínum í hafnarborginni Toamasina í austur- hluta landsins. Ravalomanana nýtur stuðnings hers landsins en Ratsiraka hefur með yfirráðum sínum yfir ýmsum hafnarborgum getað kreppt mjög að stjórn Ravalomananas í Antanan- arivo, sem er inni í miðju landi. Fréttaskýrendur segja afar mik- ilvægt fyrir Ravalomanana að ná Mahajanga á sitt vald, eigi hann að geta sameinað landið að nýju, en átökin að undanförnu hafa haft slæm áhrif á efnahag Madagaskars. Stjórnarherinn í Madagaskar gerði atlögu að vígi uppreisnarmanna Mistókst að ná Mahajanga á sitt vald Antananarivo. AFP. ÍSRAELSKUR njósnahnöttur, sem skotið var á loft á þriðjudag, sendi frá sér fyrstu myndirnar í gær. Ísrael er þar með orðið eitt fárra ríkja í heiminum sem hafa komið sér upp njósnahnetti. „Allt hefur gengið frábærlega og jarðstöðin hefur fengið fyrstu mynd- irnar,“ sagði talsmaður ísraelska varnarmálaráðuneytisins í gær. Nota á gervihnöttinn til að fylgjast með óvinveittum ríkjum í grennd við Ísrael. Hann á að senda myndir af hugsanlegum liðsflutningum, eld- flaugaskotpöllum eða smíði kjarn- orkumannvirkja, að sögn hermála- sérfræðinga. Talið er að gervihnötturinn verði mjög mikilvægur fyrir leyniþjónustu Ísraelshers, einkum ef Bandaríkin gera árásir á Írak. Í Persaflóastyrj- öldinni árið 1991 skutu Írakar 39 Scud-flaugum á Ísrael. Tyrkir og Indverjar á meðal viðskiptavinanna? Ísraelska dagblaðið Haaretz sagði í gær að Ísraelar kynnu að selja vin- veittum þjóðum, svo sem Tyrkjum og Indverjum, myndir frá njósna- hnettinum. Viðræður um slík við- skipti hefðu þegar verið hafnar en niðurstaða þeirra réðist að miklu leyti af afstöðu ísraelska varnar- málaráðuneytisins og hersins. Ísrael og Tyrkland undirrituðu samning um hernaðarlegt samstarf árið 1996. Indverjar hafa einnig haft samstarf við Ísraela á sviði hermála og njósna og í baráttunni við skæru- liðahreyfingar. Ísraelar koma sér upp njósnahnetti Jerúsalem. AFP. EVRÓPUSAMBANDSRÍKIN fimmtán staðfestu í einu lagi í gær Kyoto-bókunina við rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslags- breytingar við hátíðlega athöfn sem haldin var í höfuðstöðvum SÞ í New York. Þykja þessi tíðindi marka mik- ilvæg þáttaskil í viðleitni manna til að draga úr útstreymi gróðurhúsa- lofttegunda. Bandaríkjamenn á móti Með staðfestingu ESB-ríkjanna fimmtán hefur fjöldi þeirra þjóða, sem staðfest hafa bókunina, náð til- skildum fjölda, sem þarf til að bók- unin gangi í gildi. Hins vegar er kveðið á um það einnig að þjóðir, sem árið 1990 báru ábyrgð á a.m.k. 55% útstreymis gróðurhúsaloftteg- unda, þurfi að hafa staðfest hana. Nú þegar ESB-ríkin hafa staðfest bókunina stökk þetta hlutfall úr 2,4% í 26,6% og vantar því nokkuð upp á ennþá. Munar þar mestu um, að Banda- ríkin hafa ekki í hyggju að staðfesta bókunina. Þeir eru einir og sér ábyrgir fyrir sem samsvarar 36,1% alls útstreymis gróðurhúsaloftteg- unda en telja, að staðfesting bókun- arinnar myndi kosta allt of mörg störf í Bandaríkjunum. Margot Wallström, fulltrúi framkvæmda- stjórnar ESB, hvatti Bandaríkin í gær til að endurskoða afstöðu sína. Kyoto-bókunin skyldar þær þjóð- ir, sem hafa staðfest hana, til að draga fyrir árið 2012 úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda í heiminum um 5% miðað við þá stöðu, sem var árið 1990. ESB-ríkin fimm- tán staðfesta Kyoto-bókunina Sameinuðu þjóðunum. AFP. BRAKIÐ af bíl er flutt á brott í Moskvu í gær en lögreglan hafði ekið harkalega á bílinn, með þeim afleiðingum að ökumaðurinn lést. Var lögreglan með ákeyrslunni að hreinsa leiðina fyrir bílaflotanum, sem ávallt fylgir Vladimír Pútín Rússlandsforseta, þegar hann fer um borgina. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lögreglan beitir því bragði, að aka vísvitandi á bíla sem eru í vegi forsetavarðarins. Reuters Ryðja Pútín leið með öll- um ráðum TESSA Jowell, menningar- málaráðherra Bretlands, gagn- rýndi í gær harðlega að breski Verkamannaflokkurinn skyldi taka við fjárframlögum frá út- gefanda tímarita sem fjalla um kynlíf, að sögn BBC. Er Jowell annar ráðherra Verkamanna- flokksins sem gagnrýnir þetta. Blaðaútgefandinn Richard Desmond lagði 100 þúsund pund í sjóði Verkamanna- flokksins snemma á þessu ári. Desmond er nú aðaleigandi Ex- press Group sem gefur út Daily Express, Sunday Express og Daily Star, en skömmu áður en kaupin gengu í gegn samþykkti Verkamannaflokkurinn að taka við fjárframlaginu. Desmond á einnig útgáfufyrirtækið Nort- hern & Shell sem gefur út tíma- ritið Hello en að auki tímarit á borð við Asian Babes og Nude Readerśs Wifes, sem gætu flokkast undir klámrit. „Mér þykir mjög óþægilegt að flokkurinn skuli taka við fé frá einhverjum sem aflar hluta tekna sinna með klámi. Heim- urinn verður að þróast. Annað- hvort er jafnrétti í orði eða á borði,“ hafði Financial Times eftir Tessu Jowell. Gagnrýna fjárframlög frá klám- útgefanda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.