Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 39
erlendis en það er að nýta sjávar-
föllin til raforkuframleiðslu. Yrði
virkjun þá komið fyrir í görðunum
til að nýta straumana. Nýtingar-
tími slíkrar virkjunar er að vísu
takmarkaður en lausleg athugun
fór fram fyrir nokkrum árum á
vegum Orkubús Vestfjarða, m.a. í
tengslum við hugsanlega þverun
Mjóafjarðar í Ísafjarðardjúpi.
Kristján Haraldsson orkubússtjóri
segir að ítarlegri rannsóknir þurfi
til að kanna hagkvæmni þessa
virkjunarkosts.
Samgönguáætlun fyrir árin 2003
til 2014 er nú til umfjöllunar svo og
fjögurra ára áætlun fyrir árin 2003
til 2006. Í haust er ráðgert að lagð-
ar verði fram hugmyndir um nán-
ari skref innan þessara áætlana.
Ekki er því ljóst á þessari stundu
hversu hratt samgönguyfirvöld ná
að ljúka varanlegri vegagerð á
Vestfjörðum, þ.e. tengingu milli
norður- og suðurhluta Vestfjarða-
kjálkans og heilsárstengingu um
Barðastrandarsýslum. Ljóst er að
áhugi er fyrir því að hraða þessum
framkvæmdum en það tengist líka
því hvernig fer með framtíð Bald-
urs, þ.e. hvort nauðsynlegt kann að
vera að fá stærra skip til að þjóna
þar til uppbygging vega hefur þok-
ast lengra.
Unnið verður við að byggja upp
veginn yfir Klettsháls í sumar en
framkvæmdum lýkur ekki fyrr en
eftir hálft annað ár. Næsta vetur
verður þó e.t.v. reynt að halda vest-
urleiðinni opinni lengur fram eftir.
botn Vatnsdals í
Vatnsfirði myndu
leggja Dynjandis-
heiðina af og stytta
leið enn frekar. Önn-
ur stytting er með því
að fá tengingu milli
Skálaness og Reykja-
ness, vestast í Reyk-
hólasveit yst í
Þorskafirði. Með því
yrði unnt að sneiða
hjá því að aka um
Gufufjörð, Djúpa-
fjörð og Þorskafjörð
og ekki síst fjallveg-
ina Hjallaháls og
Ódrjúgsháls og styttist leiðin þá um
15,6 km. Önnur möguleg stytting á
þessum slóðum er þverun Gufu-
fjarðar og Djúpafjarðar yfir að
Hallsteinsnesi vestanvert við
Þorskafjörð. Lægi leiðin þá ekki um
Reykhólasveit heldur fyrir Þorska-
fjörð sem yrði hugsanlega þveraður
milli Þórisstaða (Hjalla) og Kinnar-
staða. Þessi leið styttir veginn um
22,2 km. Þveranir sem þessar yrðu
að fara í umhverfismat og má telja
þann möguleika sístan að þvera
Þorskafjörðinn utanverðan eða firð-
ina þrjá öllu heldur.
Með öðrum lagfæringum á Vest-
fjarðavegi er unnt að ná enn frekari
styttingu. Þar með yrði vesturleiðin
milli Reykjavíkur og Ísafjarðar
komin niður í 396 km úr 455 sem
hún er í dag.
Sjávarfallavirkjun möguleg?
Í sambandi við þveranir má nefna
þá hugmynd sem notuð hefur verið
kki vilja
rir Hval-
rt val að
sem það
bandi við
leiðin
p
nanverð-
r hverjir
turleiðin
nging við
eiðin um
og um
ðarheiði.
turleiðin
víkur sé í
júpið og
r á hann
arðar og
að menn
nseyrar-
6 km við
disvogi í
amgöngur spurningu um mannréttindi
E
8
A
8
F
$
>
D%!
@ 8
G
>
4 8
*2 42
@
4 &
5
5
5
9;;
2
:BB
2
:=:
2
:99
2
:99
2
:;B
2
;B=
2
H
9%
joto@mbl.is
Þórólfur
Halldórsson
Hann Baldvin er með genið,
sagði Magni kaupmaður
Magnússon, þegar ég bað hann
að benda mér á góðan viðmælanda úr hópi ís-
lenzkra safnara. Já, þetta er meðfætt, segir Bald-
vin Halldórsson. Ég held að allir hafi það í sér að
hirða og geyma, þótt ég viti um einn og einn, sem
hendir öllu. En ég á ennþá alls konar dót frá því ég
var strákur. Fjölskyldan er öll svona. Það er engu
hent. Ég er til dæmis með hluti frá langafa og
ömmu; hér er kollur, sem karlinn smíðaði og er
kominn langt á annað hundrað ár.
Ég byrjaði eins og allir í frímerkjunum, en svo
þandist þetta einhvern veginn út. Ég hirti eld-
spýtustokk, eignaðist annan, tvo, kannski þrjá. Og
þá varð ekki aftur snúið. Ég fór að safna eldspýtu-
stokkum. Svona féll ég fyrir öllum hlutum. Það er
sama hvað þú nefnir – ég safna öllu.
Kannski ekki alveg öllu. Ég hef reynt að forðast
að safna stórum hlutum!
En þetta er svo rík árátta að geta ekki séð nokk-
urn hlut í friði.
Það skemmtilega er, að hver hlutur á sína sögu,
sem tengist þjóðarsögunni með einhverjum
hætti. Það er með ólíkindum hvað má lesa mikið
út úr góðu safni. Í raun og veru erum við safn-
ararnir að bjarga sögunni. Hún yrði anzi götótt
án okkar!“
Orðum sínum til áherzlu tekur Baldvin fram
orðupening.
„Þetta er tíu karata gullorða, sem veitt var
ýmsum fyrirmennum við endurreisn lýðveld-
isins 1944. Hún var gefin út í 70 eintökum. Þeg-
ar til kom, varð uppi fótur og fit, því á pen-
ingnum stóð „Made in USA“. Orðan var
innkölluð og áletrunin afmáð, en einhverjum
fannst hún við hæfi, því vitað er um örfáar orð-
ur, þar sem áletrunin stendur.“
Orðupeningur Baldvins er hálfafmáður, því
hægt er að greina hluta áletrunarinnar, ef
grannt er skoðað.
En það eru ekki bara skemmtilegir skand-
alar, sem lesa má úr söfnum Baldvins. Þau
geyma líka minningu mikilla atburða og dót
daglegs lífs; alls konar peninga, barmmerki,
flöskumiða, vindlamiða, kveikjara, myndavélar,
kaffirjómalok, grammófónnálar, kaffibox, rak-
vélablöð, tímarit, myndir, bækur, kort og gamla
matseðla. Um borð í Gullfossi var 25. febrúar
1954 boðið upp á lambanýru Turbigo og kalt
borð. „Þetta kalda borð í Gullfossi var frægt.
Ég komst einu sinni í það og ég man ennþá
bragðið af réttunum!“
Fleiri hlutir vekja upp minningar hjá safn-
aranum. Þegar hann handleikur Poppy-eld-
spýtnastokk: „Ég man vel, þegar við strákarnir
vorum að kveikja í sinu hér í hrauninu með
Poppy-eldspýtum!“ Eða prinspólóið! „Ég
keypti smábirgðir af gamla prinspólóinu, þegar
þeir skiptu um. Það er ekkert varið í þetta nýja.
Og ég veit hvað ég syng, því ég lifði á kóki og
prinspólói öll mín iðnskólaár.“
Baldvin segir að frímerkjasöfnun hafi dalað,
gjaldmiðlasöfnunin sé orðin vinsælust og Mynt-
safnarafélagið langöflugasta safnarafélagið í land-
inu.
Gjaldmiðlarnir eru greinilega margs konar; ekki
bara hefðbundnir peningaseðlar og mynt, heldur
líka herstöðvargjaldmiðlar, ferðaávísanir, seðlar í
dagblaðssjóð, næturklúbbamiðar, vöruávísana-
hefti, skömmtunarseðlar og áfengisbækur; stærri
fyrir karla! gamlir matarmiðar, nýlegir bílastæða-
miðar og bíómiðar. „Ég hef aldrei fleygt aðgöngu-
miða, heldur hendi ég honum bara í kassa, þegar ég
kem heim.“
„Ég hef oft hugleitt það að einbeita mér að ein-
hverju einu, eða tvennu. En mig hefur alltaf skort
kjark til að framkvæma það. Það yrði mér líklega
ofraun að ganga fram hjá einhverjum freistandi
hlut.
Sumir segja að þetta sé eins og með brennivínið.
Ætli ég teljist þá ekki óforbetranlegur róni!
Annars er ég orðinn rólegri með aldrinum. Mað-
ur sjóast í þessu sem öðru. Áður var ég ekki í rónni,
gat ekki sofið, fyrr en ég var búinn að eignast
ákveðna hluti. Það fylgdu þessu kvalir skaltu vita!
Ég gat ekki andað rólega, ef ég vissi af einhverjum
hlut einhvers staðar. Ég bara varð að fá hann, gat
ekki verið kyrr.
Nú veit ég að þótt ég missi af einhverju þá kemur
það aftur. Ég er hættur að kaupa alla hluti eins og
skot. Samt er enn ríkjandi í mér að kaupa, ef ég sé
eitthvað sniðugt!
Eins er ég farinn að dala í sumu. Ég er hættur að
safna hljómplötum og frímerkjum! Reyndar er ég
enn áskrifandi að fyrstadagsumslögum. Og ég get
auðvitað ekki slegið hendinni á móti skemmtilegu
umslagi ef það dúkkar upp! En að öðru leyti er ég
alveg hættur!
Ég hef alltaf verið nízkur að láta eitthvað frá mér
en er aðeins farinn að losa um það núna. Satt að
segja væri ég alveg til í að láta sumt.
Ég var mjög harður að safna barmmerkjum en
nú get ég vel hugsað mér að skipta á þeim og ein-
hverju öðru. En ekki alveg öllum! Ég myndi til
dæmis vilja halda eftir Konúngsförinni 1907, barm-
merkjum, sem framleidd voru í sambandi við komu
Friðriks 8 1907.“
Söfn eins og Baldvins geyma náttúrlega mikil
verðmæti. Um þá hlið málanna vill hann segja sem
fæst. „Auðvitað eru peningar í þessu. Safnast þeg-
ar saman kemur!
Á þeirri vargöld, sem nú ríkir, er því nauðsynlegt
að grípa til sérstakra ráðstafana. Þess vegna
geyma flestir safnarar ekki djásnin sín heima við,
heldur annars staðar á öruggum stöðum, til dæmis
í bankahólfum.“
Þegar ég spyr Baldvin hvaða hlut hann haldi
mest upp á í söfnum sínum, verður honum svara-
fátt um stund. „Þetta er svo afstætt,“ segir hann
svo hikandi.
„Það eru hlutir í hverju safni, sem ég held sér-
staklega upp á. Ég yrði þá bara að ganga á röðina.
En í vöru- og brauðpeningasafninu á ég merki-
lega hluti. Það safn mitt er með þeim stærstu í
einkaeign.“
Hlutirnir leynast
víða. Það er ótrúlegt,
hvað talnakrukkurn-
ar í eldhússkápunum
geyma! Baldvin sýn-
ir mér vörupening;
tíeyring útgefinn af
PJ Thorsteinsson á
Bíldudal. „Þessi pen-
ingur kom fram, þeg-
ar safnað var er-
lendri mynt til
styrktar krabba-
meinssjúkum börn-
um. Þegar búið var
að flokka það, sem
inn kom, fékk Mynt-
safnarafélagið hratið; ógilda peninga og aðra sem
ekki var hægt að koma í verð. Við settum þennan
afgang í poka og seldum á uppboðum félagsins.
Þegar hratið var flokkað, kom þessi gamli vörupen-
ingur í ljós. Það hefur einhver tæmt talnakrukkuna
sína í söfnunina og í henni þá leynzt þessi aldar-
gamli peningur. Reyndar var það kunningi minn
sem fann hann. Ég keypti hann af honum.“
Baldvin segir það eiginlega einkennilegt hvað
hann hafi lítið fyrir þessari söfnun allri.
„Safnaraheimurinn er mjög skemmtilegur heim-
ur. Auðvitað getur hann verið harður og ósvífinn.
Menn eru nú einu sinni með verðmæti í höndunum.
En upp til hópa eru safnarar bara þægilegur þver-
skurður af þjóðfélaginu.
Menn verða að hafa augun og eyrun hjá sér. Ég
er mikið á fartinni og dett þá oft um hlutina. Ég fer
á hverjum degi inn á Netið; á Ebay, þar sem má fá
allt frá saumnálum upp í flugvélar.
Svo kíki ég reglulega við hjá Magna og fleiri slík-
um; ég held reglulegu sambandi við fjölda manns.
Og á laugardagsmorgnum fer ég í Kolaportið og
skanna svæðið.
Þegar ég er erlendis fer ég bara á söfn og mark-
aði. Ég fer aldrei á sólarströnd, safna ekki brúnku!
Ég er svo heppinn að fjölskyldunni finnst þetta
eðlilegt. Konan hefur gaman af þessu. Eldri son-
urinn hefur áhuga, hann hendir engu. Og ég sé að
sá yngri er kominn með skál niðri hjá sér sem hann
hendir í bíómiðum og öðru.“
Ég spyr Baldvin hvaða ráð hann vilji gefa nýjum
safnara.
„Að halda sig við eitthvað eitt eða tvennt. Alls
ekki gína yfir öllu, eins og ég hef gert. Ég bara ræð
ekki við þetta!
Ég veit hreint ekki hvað ég væri að gera ef líf
mitt snerist ekki um að safna öllum sköpuðum hlut-
um. Ég get ekki hugsað mér nokkurt annað líf!“
Sagan væri anzi götótt
án safnaranna
Eftir Freystein
Jóhannsson
SAFNIÐ. Í vöru- og brauðpeningasafninu á Baldvin
merkilega hluti, en safnið er með þeim stærstu í einkaeign.
freysteinn@mbl.is
SAFNARINN. Það yrði mér lík-
lega ofraun að ganga fram hjá
einhverjum freistandi hlut segir
Baldvin Halldórsson.
sé örugg með Baldri. Bendir hann
einnig á að betri vegum þurfi að
fylgja meiri vetrarþjónusta enda
muni vetrarveður ekki breytast.
Hvergi eins slæmir vegir
Helgi segir vegi hvergi á land-
inu vera eins slæma og undir það
tekur Snæbjörn Geir Viggósson
hjá Fiskmarkaðnum á Tálkna-
firði. Hann segir ekki marga
möguleika fyrir fiskverkendur og
útgerðarmenn á sunnan- og norð-
anverðum Vestfjörðum að eiga í
viðskiptum þar sem vega-
samgöngur á landi milli þessara
svæða séu ekki fyrir hendi marga
mánuði á ári. Meðan svo er ekki
verði Ísafjörður ekki sá þjón-
ustukjarni sem hugmyndir séu
uppi um. Þjónustukjarni í Stykk-
ishólmi sé í mun betra samgandi
við sunnanverða Vestfirði.
Ólafur M. Birgisson, sveit-
arstjóri á Tálknafirði, segir það
hafa komið nokkuð flatt upp á
menn vestra að samgöngu-
ráðherra hafi hug á nýrri Breið-
arfjarðarferju. Telur Ólafur það
munu tefja fyrir framtíð-
arvegagerð. Hann segir kröfu
heimamanna að fá heilsársveg því
það sé alltaf takmörkunum háð að
laga sig eftir ferðum Baldurs.
nn tel-
ftir
vega-
é það
ðaþjón-
meðan
ur
ksfirði
ar og
nlegan
omi til
ur ekki
n segir
því
ir bíla,
kyndi-
i strax í
eiðslan
l með
ngar
mám
kið
na ár-
lega í flutningsgjöld með Baldri
og um 29 milljónir króna í þunga-
skatt af bílunum.
Helgi er ekki beint ánægður
með vegakerfið og segir hann
Vestfjarðaveg yfirleitt það slæm-
an að eitthvað þurfi að laga í bíl-
um fyrirtækisins eftir hverja ferð.
Segir hann fulltrúa umboða
beggja tegunda sem hann notar í
akstrinum, Brimborgu og Kraft,
staðhæfa að meira viðhald sé á bíl-
um frá honum en öðrum flutn-
ingafyrirtækjum. Þá segir hann
oft verða skemmdir á bílum þegar
þeim er ekið að og frá Baldri þar
sem mjög bratt sé um borð á há-
fjöru.
Vegna þessara auknu flutninga
segir Helgi nauðsynlegt að ferjan
sigli tvær ferðir á dag því þrátt
fyrir aukaferðir stöku sinnum
dugi það oft ekki til. Helgi er samt
á því að framtíðarsamgöngumát-
inn sé vegirnir þrátt fyrir að leiðin
Vestfirði í umræðunni hjá Vestfirðingum
g
ferju