Morgunblaðið - 01.06.2002, Qupperneq 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 57
17 KONUR af Brautargengi út-
skrifuðust 21. maí sl. Þetta er tí-
undi hópurinn sem útskrifast frá
því að námskeiðinu var hleypt af
stokkunum haustið 1996. Rúm-
lega 200 konur hafa tekið þátt í
námskeiðinu frá upphafi.
Brautargengi er haldið til þess
að hvetja konur til framgangs í
íslensku viðskiptalífi og stuðla að
jafnvægi í fyrirtækjarekstri milli
karla og kvenna.
Í lok námskeiðsins hafa þátt-
takendur skrifað viðskiptaáætlun
og kynnst því hve áætlanagerð er
mikilvæg við undirbúning að
stofnun fyrirtækis og rekstur
þess.
Impra, þjónustumiðstöð frum-
kvöðla og fyrirtækja, stendur fyr-
ir námskeiðinu með stuðningi
sveitarfélaganna á höfuðborg-
arsvæðinu, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Útskrift hjá Brautargengi
ÚTHLUTUNARNEFND fræði-
mannsíbúðar samkvæmt reglum um
Hús Jóns Sigurðssonar í Kaup-
mannahöfn hefur lokið störfum og út-
hlutað íbúðinni frá 1. september 2002
til 31. ágúst 2003. Í úthlutunarnefnd-
inni eiga sæti Halldór Blöndal forseti
Alþingis, Helgi Ágústsson sendiherra
Íslands í Kaupmannahöfn og Jakob
Yngvason prófessor. Ritari nefndar-
innar er Helgi Bernódusson aðstoð-
arskrifstofustjóri Alþingis.
Alls bárust nefndinni 21 umsókn að
þessu sini. Sjö fræðimenn fá afnot af
íbúðinni, sem hér segir: Árni Hjart-
arson, Gliðnun og rekhraði jarðskorp-
unnar á Íslandi og í næsta nágrenni
þess, og Hallgerður Gísladóttir,
Tengsl danskra og íslenskra matar-
rétta. Hannes H. Gissurarson, Rann-
sókn á danskri og norrænni sögu og
bókmenntum fyrir tilvitnasafn. Hösk-
uldur Þráinsson, Samtímaleg norræn
samanburðarmálfræði. Kristjana
Kristinsdóttir, Skjalasafn á Bessa-
stöðum 1541 – 1683. Ólafur Ragnars-
son, Forn Íslandskort í dönskum
söfnum. Þorsteinn Gunnarsson, Dóm-
kirkjan í Reykjavík og húsameistarar
hennar.
Fræðimannsíbúðin í Kaupmanna-
höfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar,
er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls
Gade 70. Fræðimaður hefur enn
fremur vinnustofu í Jónshúsi, segir í
fréttatilkynningu.
Fræðimannsíbúð í Kaupmannahöfn
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Heilbrigðisstofnunin Selfossi
Geislafræðingur
óskast!
Geislafræðingur óskast til afleysingastarfa í sum-
ar á Heilbrigðisstofnunina Selfossi í 2—3 vikur.
Upplýsingar gefur Guðrún eða Sigríður á
röntgendeild Heilbrigðisstofnunarinnar
í síma 482 1300.
Heilbrigðisstofnunin Selfossi.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Basar og kaffisala
Basar og kaffisala verður á sjómannadaginn
2. júní á Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði.
Handavinnusýning og basar kl. 13.00 til 17.00.
Glæsilegt kaffihlaðborð kl. 14.00 til 17.00.
Ágóðinn af kaffisölunni rennur til velferðar-
mála heimilisfólksins.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Aðalstræti
12, 415 Bolungarvík, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Hafnargata 7, 0101, þingl. eig. Sigríður Þórarinsdóttir, gerðarbeiðend-
ur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn í Bolungarvík, miðvikudaginn
5. júní 2002 kl. 15.00.
Völusteinsstræti 30, þingl. eig. Þorgils Gunnarsson og Sigrún Elva
Ingvarsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn
í Bolungarvík, miðvikudaginn 5. júní 2002 kl. 15.00.
Þjóðólfsvegur 16, 0101, þingl. eig. Hans Vilberg Guðmundsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 5. júní 2002 kl.
15.00.
Þuríðarbraut 5, þingl. eig. Brynja Ásta Haraldsdóttir, gerðarbeiðandi
sýslumaðurinn í Bolungarvík, miðvikudaginn 5. júní 2002 kl. 15.00.
Sýslumaðurinn í Bolungarvík,
31. maí 2002,
Jónas Guðmundsson.
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Nauðungarsala
lausafjármuna
Eftirtalin ökutæki og annað lausafé verður boðið upp við lögreglu-
stöðina við Þórunnarstræti, Akureyri, laugardaginn 8. júní
2002 kl. 14:00 eða á öðrum stað eftir ákvörðun uppboðshaldara,
sem verður kynnt á staðnum:
1. Bifreiðar, dráttarvélar og önnur ökutæki:
AD-587 AD-707 AD-769 AD-1611 AD-11763
A-13085 AR-478 AR-859 BI-026 BJ-460
BN-819 BMW Z3 DB-458 DZ-190 DZ-615
GB-599 GN-282 GO-778 HB-994 HG-865
HG-898 HP-878 HZ-816 I-2507 IL-393
IP-520 IR-436 IV-569 JE-958 JG-854
JI-565 JP-641 JÖ-352 KD-583 KF-743
KT-392 KT-755 KT-775 KT-778 KT-834
KV-061 LE-110 LE-262 LL-693 LM-738
LN-764 LN-774 LP-340 LT-797 MN-076
MP-207 N-288 N-903 NK-249 NM-578
NR-761 O-7 OA-013 OD-289 OG-530
OP-176 OZ-403 PE-794 PG-377 PR-658
PX-315 R-1331 R-3467 RA-964 RG-389
RL-483 RO-802 RY-036 RX-068 SK-176
SU-117 TG-032 TH-276 TI-197 TJ-319
TN-683 TN-912 TR-120 TR-750 UA-818
UE-499 UG-253 UJ-444 UR-179 UU-309
UY-360 VD-254 VO-681 VP-585 VS-118
VT-037 VU-849 VX-648 XH-266 XJ-017
XM-081 Y-18697 YD-228 YG-601 YJ-815
YY-189 YY-421 YY-733 Z-884 ZO-652
Þ-1272 Ö-494
2. Annað lausafé:
Case 580 G, Volvo BM Veghefill, kjarnaborunarvél DD-250-E, skilta-
gerðartæki, tölvur og skjáir, GREENLAND 120 rúllubindivél, Wexiö-
diskuppþvottavél ásamt vaskaborði, diskóljós, róbót matarar, diskó-
róbótkúla, geislaspilari, hljóðblandari, hátalarar, magnari og reykvél,
Universal 880 malarbrjótur ásamt rafstöð og færibandi, Packo mjólk-
urtankur o.fl.
3. Óskilamunir úr vörslu lögreglu; m.a. reiðhjól.
4. Að kröfu tollstjóra: Bifreið, ljósaskilti, rafmagnsvarahlutir, plastgólf-
listar.
Krafist verður greiðslu við hamarshögg og verða ávísanir ekki teknar
gildar nema með samþykki gjaldkera.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis á skrifstofu embættisins og þar verða
einnig veittar frekari upplýsingar ef óskað er.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
30. maí 2002.
Harpa Ævarrsdóttir, fulltrúi.
TIL SÖLU
Víkurverk ehf.
Tangarhöfða 1, sími 893 9957
Case-Poclan 1488 beltagrafa 40t 1999
3100 VT, 3 skóflur, vökvafleygur og tilter.
Case-Poclan 788 hjólavél 15t 1997
4800 VT. 3 skóflur og tilter
Volvo fl 12, 420 1998 4.ás:
BOBCAT X320 1996 1200 vt.
Vinnuskúrar, vatnstankur og ýmis smærri
verkfæri.
Lagerútsala — bílskúrssala
Í dag, laugardaginn 1. júní, frá kl. 11—15 seljum
við allt af lagernum.
Seldir verða borðar frá Sopp, 60 mm, 40 mm
og 25 mm á 20 m—25 m rúllum.
Tilbúnar slaufur. Krullubönd 5 mm og 10 mm.
Viðarbönd 10 mm. Umbúðapappír 200 m.
Pappírspokar m. haldi.
Silkivörur: Peysur, bolir, toppar, slæður, nátt-
föt, náttkjólar og náttsloppar.
Nú er um að gera að koma og gera góð kaup
— allt á að seljast.
Tilvalið fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Staðgreiðslusala.
Toja,
Skógarhjalla 19, 200 Kópavogi,
sími 898 5111.
TILKYNNINGAR
Hrófbjargastaðaættin
Ættarmót verður haldið helgina 14.—16.
júní í Laugargerðisskóla, Snæfellsnesi.
Dagskrá:
Laugardag kl. 11.00, söguslóðir, kl. 18 kvöld-
dagskrá hefst, matur, söngur, glens og
gaman. Hrókur alls fagnaðar sér um dans-
leik. Þátttaka tilkynnist: Hrönn, s. 557 6811/
690 3486, Guðbjörg, s. 865 3316/421 2723,
Sólveig, s. 424 6770/660 5176 og Hulda s.
587 9310/862 3310. this.is/eldborg .
Þing Neytenda-
samtakanna
27.—28. september 2002 — verum með
í að móta stefnuna
Þing Neytendasamtakanna 2002 verður haldið
dagana 27.—28. september nk. Þing Neytenda-
samtakanna er æðsta vald í málefnum samtak-
anna. Þingið verður haldið í Borgartúni 6 (Rúg-
brauðsgerðinni) og hefst það föstudaginn
27. september kl. 13.30.
Samkvæmt lögum Neytendasamtakanna geta
allir skuldlausir félagar Neytendasamtakanna
verið þingfulltrúar á þinginu, enda tilkynni þeir
um þátttöku með a.m.k. viku fyrirvara. Stjórn
Neytendasamtakanna hvetur áhugasama fé-
lagsmenn að tilkynna um þátttöku sem fyrst
í síma 545 1200 eða skriflega til Neytendasam-
takanna, Síðumúla 13, pósthólf 8160, 128
Reykjavík.
F.h. stjórnar Neytendasamtakanna,
Jóhannes Gunnarsson, formaður.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF Skíðadeild
Ármanns
Aðalfundur
deildarinnar verður haldinn í Ár-
mannsheimilinu við Sóltún
þriðjudaginn 11. júní kl. 20.00.
Stjórnin.
Sunnud. 2. júní: Tvær ferðir
með Ferðafélagi Íslands:
A) Ekið upp að Þverárkoti á Kjal-
arnesi og gengið að Vindáshlíð.
Um 3—4 klst. ganga. Fararstjóri
Leifur Þorsteinsson.
B) Ekið að Fossá í Hvalfirði og
gengið að Vindáshlíð. Um 2 klst.
ganga. Fararstjóri Vigfús Páls-
son. Brottför í báðar ferðir frá
BSÍ kl 10.30 með viðkomu í
Mörkinni 6. Báðir hópar þiggja
kaffiveitingar (innifalið) hjá
Hlíðarmeyjum í Vindáshlíð í
göngulok. Verð 2.200/2.500.
Nokkur sæti laus í sumarleyfis-
ferð til Grænlands 10. ágúst
og í ferð um Hornstrandir 20.
júlí.
www.fi.is, textavarp RUV bls. 619.
Fimmvörðuhálsbókin komin
út! Útivist hefur gefið út glæsi-
legt rit um Fimmvörðuháls.
Bókin er 56 blaðsíður og er
skrifuð af Sigurði Sigurðarsyni.
Hún er til sölu á skrifstofu Úti-
vistar og í öllum helstu bóka-
búðum landsins.
2. júní
Reykjavegur (R-4). Djúpavatn
– Vatnsskarð.
Fjórði áfangi Reykjavegarins.
Fararstjóri: Margrét Björnsdóttir.
Verð kr. 1.500/1.700.
5. júní.
Skálafell sunnan Hellisheið-
ar. (Útivistarræktin).
Brottför á eigin bílum kl. 18.30
frá skrifstofu Útivistar. Ekkert
þátttökugjald.
7.—9. júní
Mýrdalur (Heiðardalur, Höfða-
brekkuafréttur og Kerlinga-
dalur).
Gengið inn á Höfðabrekkuafrétt
og gist í tjöldum. Brottför kl.
17.00 frá BSÍ. Verð 11.900/
13.500.
7.—9. júní.
Sunnan Langjökuls.
Gengið að Skjaldbreið og Hlöðu-
felli. Síðasta daginn er gengið
um Brúarskörð niður í Út-
hlíð. Fararstjóri: Gunnar Hólm
Hjálmarsson. Brottför kl. 17.00
frá BSÍ. Verð 8.300/9.400.
7.—9. júní.
Básar á Goðalandi.
Helgarferð í Bása. Brottför frá
BSÍ kl. 20.00. Verð 7.100/8.300 (í
skála), 6.300/7.300 (í tjaldi).
7.—9. júní.
Hveragerði — Þingvellir
(unglingadeild Útivistar).
Gengið frá Hveragerði yfir á
Þingvelli. Gist í tjöldum. Brottför
frá BSÍ kl. 19.00. Fararstjóri:
Helga Harðardóttir. Verð kr.
1.800. ATH! EINGÖNGU UNGL-
INGADEILD ÚTIVISTAR.
7.—9. júní.
Fimmvörðuháls (næturganga).
Brottför frá BSÍ kl. 17:00. Farar-
stjóri: Ingibjörg Eiríksdóttir. Verð
8.700/10.200 (í skála í Básum),
8.200/9.700 (í tjaldi í Básum).
mbl.is
ATVINNA