Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 60
MESSUR Á MORGUN
60 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór
Áskirkju syngur. Organisti Hrönn Helga-
dóttir. Athugið! Síðasta guðsþjónusta fyrir
sumarleyfi starfsfólks Áskirkju.
HRAFNISTA: Guðsþjónusta kl. 13:30.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Sjómannadagurinn.
Guðsþjónusta kl. 11:00. Ræðumaður Árni
Bjarnason, form. Farmanna- og fiski-
mannasambandsins. Félagar úr Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg annast ritning-
arlestra. Karl Jónatansson
harmonikkuleikari tekur á móti kirkjugest-
um með sjómannalögum. Einsöngur
Hanna Björk Guðjónsdóttir. Organisti Jón-
as Þórir. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Hátíðarmessa á sjó-
mannadaginn kl. 11:00. Herra Karl Sig-
urbjörnsson, biskup Íslands, predikar og
sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur
þjónar fyrir altari. Sjómenn taka þátt í
messunni undir forystu starfsmanna
Landhelgisgæslunnar sem standa heið-
ursvörð. Þá munu sjávarútvegsráðherrar
Íslands og Noregs, Árni M. Mathiesen og
Svein Ludviksen, lesa ritningarorð. Dóm-
kórinn syngur undir stjórn Marteins H.
Friðrikssonar dómorganista og Bergþór
Pálsson syngur einsöng.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Alt-
arisganga. Kirkjukór Grensáskirkju syng-
ur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Ólaf-
ur Jóhannsson.
GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 10:15. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Aðalframkvæmdastjóri Gideons
International, Jerry D. Burden, prédikar í
guðsþjónustunni en Gídeonfélagar annast
ritningarlestra. Sr. Sigurður Pálsson og sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson þjóna fyrir altari.
Félagar úr Mótettukór leiða safn-
aðarsöng. Organisti Hörður Áskelsson.
Sr. Sigurður Pálsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas
Sveinsson.
LANDSPÍTALI Hringbraut: Guðsþjónusta
kl. 10:30.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11:00. Bænir og
sálmar taka m.a. mið af sjómannadegi.
Regína Unnur Ólafsdóttir syngur einsöng.
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Org-
anisti Jón Stefánsson. Félagar úr Kór
Langholtskirkju syngja. Kaffisopi eftir
messu.
LAUGARNESKIRKJA: Fermingarmessa kl.
11:00. Kór Laugarneskirkju syngur undir
stjórn Bjarna Jónatanssonar. Sr. Bjarni
Karlsson þjónar ásamt Eygló Bjarnadóttur
meðhjálpara og Sólveigu Kristjánsdóttur
fermingarfræðara.
NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór Nes-
kirkju syngur. Organisti Reynir Jónasson.
Prestur sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:. Guðsþjónusta
kl. 11:00. Kór Seltjarnarneskirkju syngur.
Organisti Viera Manasek. Prestur sr. Sig-
urður Grétar Helgason.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Safnaðarferð í
Hraungerði kl. 11:00. Farið með langreið
frá Óháðu kirkjunni. Matur í Básnum síð-
degis á heimleiðinni. Allir velkomnir.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Sjómanna-
messa klukkan 11. Börn borin til skírnar.
Allir velkomnir. Safnaðarstarf Fríkirkjunnar
í Reykjavík, sr. Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Kirkjukórinn syngur undir stjórn
Pavel Manásek. Prestur sr. Þór Hauks-
son.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11:00.
Ferming. Fermdur verður: Pétur Bjarni Pét-
ursson, Víkurbakka 40. Organisti: Sigrún
Þórsteinsdóttir. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20.30. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson.
Organisti. Kjartan Sigurjónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 20:00. Ath. breyttan tíma. Prestur: Sr.
Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti:
Lenka Mátéová. Kór Fella- og Hólakirkju
syngur.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Organisti: Hörður Bragason.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Barn borið til skírnar. Sr. Íris Kristjáns-
dóttir þjónar ásamt Sigurði Árna Þórð-
arsyni. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og
leiða safnaðarsöng. Hildur B. Sigurð-
ardóttir syngur einsöng. Organisti Jón
Ólafur Sigurðsson. Við minnum á bæna-
og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prest-
arnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Hátíðisdagur sjó-
manna. Sjómannaguðsþjónusta kl.
11:00. Sr. Svavar Stefánsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju
syngur og leiðir safnaðarsöng. Sr. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Sjómannadagur. Guðs-
þjónusta kl. 20.00. (Ath. breyttan tíma.)
Sr. Valgeir Ástráðsson þjónar fyrir altari.
Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Alt-
arisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Samkoma
su. kl. 20:00. Edda M. Swan predikar og
segir líka frá nýafstaðinni ferð sinni til Ísr-
ael. Heilög kvöldmáltíð. Sjónvarpsþátt-
urinn „Um trúna og tilveruna“ er sýndur á
Omega þri. kl. 11:00, sunnud. kl. 13:30
og mánud. kl. 20:00. Heimasíða kirkj-
unnar: www.kristur.is.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Bænastund kl.
19:30. Samkoma kl. 20:00, Ben Good-
man predikar, brauðsbrotning, lofgjörð,
fyrirbænir og samfélag. Allir hjartanlega
velkomnir. Skráning á lækningadag er haf-
in.
FÍLADELFÍA: Sunnudagur. Brauðsbrotn-
ing kl. 11:00. Almenn samkoma kl.
20:00, lofgjörðarhópur Fíladelfíu syngur.
Ræðumaður Vörður L. Traustason. Allir
hjartanlega velkomnir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma
sunnudag kl. 14.00. Sigrún Einarsdóttir
talar. Bænastund fyrir samkomu kl.
13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Vetrarstarfi
barnastarfs lýkur í dag. Barnagæsla fyrir
1-7 ára börn. Þriðjud.: Bænastund og
brauðsbrotning kl. 20.30. Miðvikud.:
Samverustund unga fólksins kl. 20.30.
Mikil lofgjörð og Orð Guðs rætt. Allir vel-
komnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
fellur niður vegna guðsþjónustu og kaffi-
sölu í Vindáshlíð. Félagsfólk og aðrir vel-
unnarar hvattir til að fjölmenna þangað,
guðsþjónustan hefst kl. 14. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti:
Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30. Messa á
ensku kl. 18.00. Alla virka daga: Messa
kl. 18.00. Sunnudaginn 2. júní: Dýridagur
– stórhátíð. Að hámessu lokinni er helgi-
ganga innan kirkjunnar með alt-
arissakramentið.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug-
ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Alla
mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga í
júní messa kl. 18.30. Sunnudaginn 2.
júní: Dýridagur – stórhátíð. Messa og
helgiganga.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16.00.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Miðvikudaga: Skriftir kl.
17.30. Messa kl. 18.30. Sunnudaginn 2.
júní: Dýridagur – stórhátíð.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga kl. 8.00.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Fimmtu-
daga: skriftir kl. 19.30. Bænastund kl.
20.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Sunnu-
daga: Messa kl. 10. Alla virka daga:
Messa kl. 18.30.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 16.00 á
ensku og kl. 18.00 á pólsku.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
13.00. Sjómannamessa á breyttum tíma.
Sjómannshjón lesa ritningarlestra, Flautu-
kór Vestmannaeyja leikur forspil og eft-
irspil, Margrét Bjarnadóttir syngur einsöng
og Kór Landakirkju syngur og leiðir sálma-
sönginn. Organisti er Michell R. Gaskell
og stjórnar hún báðum kórunum. Sr. Krist-
ján Björnsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Gengið verður með blómakrans frá alt-
ari að minnisvarða hrapaðra og
drukknaðra fyrir framan Landakirkju, þar
sem Snorri Óskarsson leiðir bæn. Sjó-
mannamessan er hluti af dagskrá Sjó-
mannadagsráðs sem auglýst er á öðrum
stað í blaðinu. Allir Eyjamenn eru hvattir til
að mæta svo þakka megi Guði fyrir far-
sæla sjósókn, mannbjörg í háska og góð-
an sjávarafla.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Kári Þormar. Kenn-
arar sunnudagaskólans leika á hljóðfæri.
Prestar sr. Þórhildur Ólafs og sr. Gunnþór
Þ. Ingason. Fermd verða: Ása Björk Valdi-
marsdóttir, Vesturgötu 18, og Sigurbörn
Viðar Karlsson, Ölduslóð 28. 20 ára ferm-
ingarbörn heimsækja kirkjuna með fjöl-
skyldum sínum og hittast eftir messuna í
léttum hádegisverði í Strandbergi.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Sjó-
mannamessa sunnudaginn 2. júní kl.
11:00. Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Kirkjukór Víðistaðasóknar syngur undir
stjórn Úlriks Ólasonar. Eiríkur Örn Pálsson
leikur á trompet. Allir velkomnir. Sókn-
arprestur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Kvöldvaka
sunnudagskvöld kl. 20. Örn Arnarson og
hljómsveit leiða tónlist og söng ásamt kór
kirkjunnar. Sungin verða létt og falleg lög
sem tengjast vorinu en vorið og hin hækk-
andi sól er einmitt umfjöllunarefni kvöld-
vökunnar. Að lokinni kvöldvöku verður svo
aðalfundur Fríkirkjusafnaðarins haldinn í
safnaðarheimili kirkjunnar. Safn-
aðarstjórn og starfsfólk Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði.
GARÐASÓKN: Guðsþjónusta í Vídal-
ínskirkju á sjómannadaginn, sunnudaginn
2, júní, kl. 11:00. Kór kirkjunnar leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Organisti: Jóhann
Baldvinsson. Við athöfnina þjóna sr. Hans
Markús Hafsteinsson og Nanna Guðrún
Zoëga djákni. Prestarnir.
KÁLFATJARNARSÓKN: Bryggjuguðsþjón-
usta við höfnina í Vogum, á sjómannadag-
inn 2.júní, kl. 14:00. Kór Kálfatjarn-
arkirkju leiðir almennan safnaðarsöng.
Organisti: Frank Herlufsen. Guðsþjón-
ustan er hluti af hátíðahöldum sjó-
mannadagsins í Vogunum. Við athöfnina
þjónar sr. Hans Markús Hafsteinsson.
Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sjómannadag-
urinn. Guðsþjónusta kl. 13. Sjómenn taka
þátt í guðsþjónustunni. Harmonikku-
hljómsveit spilar. Stjórnandi er Örn Falk-
ner. Prestur sr. Hjörtur Hjartarson. Org-
anisti Örn Falkner. Kór Grindavíkurkirkju
leiðir safnaðarsöng. Sóknarnefnd.
HVALSNESKIRKJA: Sunnudagurinn 2.
júní. Sjómannadagurinn. Guðsþjónusta
kl. 11. Kór Hvalsneskirkju syngur. Org-
anisti Pálína Fanney Skúladóttir. Sókn-
arprestur Björn Sveinn Björnsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Sunnudagurinn 2. júní.
Sjómannadagurinn. Guðsþjónusta kl.
13:30. Kór Útskálakirkju syngur. Organisti
Pálína Fanney Skúladóttir. Sóknarprestur
Björn Sveinn Björnsson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudaginn 2. júní kl. 11. Sjó-
mannadagurinn og því mun blómakrans
verða helgaður til minningar um sjómenn.
Sjómenn og ættingjar þeirra eru hvattir til
að mæta. Organisti kirkjunnar, Natalía
Chow, leiðir almennan söng. Sókn-
arprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sjómannadagurinn.
Sameiginleg sjómannamessa verður í
Njarðvíkurkirkju kl. 11. Prestur: sr Baldur
Rafn Sigurðsson. Kór Njarðvíkurkirkju
syngur. Sjá sumaráætlun í vefriti Keflavík-
urkirkju: keflavikurkirkja.is.
SELFOSSKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Léttur hádegisverður
að athöfn lokinni. Morguntíð með fyrirbæn
sungin þriðjudaga til föstudaga kl. 10.
Kaffisopi að henni lokinni. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl. 11.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sjómannadagsmessa
kl. 11. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Fjöl-
skyldumessa sunnudag kl. 11. Barna- og
kammerkór Biskupstungna syngur. Allir
velkomnir.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa: Messa
sunnudag kl. 13.30. Kór Óháða safnaðar-
ins í Reykjavík ásamt organista, Peter
Maté, og presti, sr. Pétri Þorsteinssyni,
koma í heimsókn og flytja messu. Kristinn
Á. Friðfinnsson.
HNÍFSDALSKAPELLA: Gengið frá kapell-
unni kl. 10 að minnismerki sjómanna og
höfð þar bænastund.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Sjómannadags-
messa sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Sjómannamessa
kl. 11. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Sjó-
maður og sjómannskona lesa ritning-
arlestra. Þórunn Halldórsdóttir, sjómanns-
kona og fyrrverandi sjómaður, predikar.
Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Org-
anisti: Eyþór Ingi Jónsson. Eftir messur í
kirkjum bæjarins verður sameiginleg
stund við minnisvarða um drukknaða sjó-
menn.
GLERÁRKIRKJA: Sjómannadagsmessa
kl. 11. Þórólfur Ingvarsson, vélstjóri, flytur
hugleiðingu. Sjómenn flytja ritningalestra.
Ath. athöfn verður við minnisvarðann að
messu lokinni.
LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA: Ferming-
armessa kl. 11.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu-
dagur: Kl. 19.30 bænastund. Kl. 20 al-
menn samkoma. Allir velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: Laug-
ardagur: Bænastund kl. 20. Sunnudagur:
Samkoma kl. 20. Dögg Harðardóttir pré-
dikar, einnig verður barnablessun. Fjöl-
breytt lofgjörðartónlist og fyrirbænaþjón-
usta. Allir hjartanlega velkomnir.
ÁSSÓKN Í FELLUM: Fermingarmessa
sunnudaginn 2. júní kl. 14:00. Fermd
verða Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir, Ás-
brún 6, Fellabæ, og Stefán Smári Jóns-
son, Háafelli 3, Fellabæ. Organisti er
Kristján Gissurarson, kór Ássóknar syng-
ur. Sóknarpresturinn, sr. Lára G. Odds-
dóttir, prédikar og þjónar fyrir altari.
BAKKAGERÐISKIRKJA á Borgarfirði
eystra: Guðsþjónusta á sjómannadegi 2.
júní kl. 11. Organisti Rosemary Hewlett.
Allir velkomnir. Sóknarprestur.
Guðspjall dagsins:
Ríki maðurinn og
Lasarus.
(Lúk. 16.)
Morgunblaðið/Sverrir
Hafnarfjarðarkirkja.
SJÓMANNAMESSA verður í
Landakirkju á sjómannadaginn, 2.
júní, og er hún á óvenjulegum
messutíma, klukkan eitt, sem hluti
af dagskrá sjómannadagsráðs.
Sjómaður og sjómannskona lesa
ritningarlestra, Flautukór Vest-
mannaeyja leikur forspil og eft-
irspil, Margrét Bjarnadóttir syngur
einsöng og Kór Landakirkju syng-
ur og leiðir almennan sálmasöng.
Það er organistinn Michell R. Gask-
ell sem stýrir allri þessari tónlist að
þessu sinni. Sóknarpresturinn, sr.
Kristján Björnsson, prédikar og
þjónar fyrir altari. Beðið verður
sérstaklega fyrir sjómönnum, fjöl-
skyldum þeirra og minningu lát-
inna.
Í lok messunnar bera sjómenn
blómakrans frá altari til að leggja
að minnisvarða hrapaðra og
drukknaðra fyrir framan Landa-
kirkju. Þar flytur Snorri Óskarsson
hugvekju, minnist drukknaðra og
leiðir bæn.
Allir Vestmannaeyingar eru
hvattir til að mæta enda tengjast
allir þeirri lífsbjörg og gæðum
hafsins sem sjómönnum tekst að
koma að landi með Guðs hjálp.
Sjómenn eru sérstaklega hvattir
til að halda upp á daginn með því að
byrja dagskrána á því að koma til
kirkju með fjölskyldum sínum.
Forseti í sjómanna-
messu í Bústaðakirkju
Á SJÓMANNADAGINN verður sjó-
mannamessa í Bústaðakirkju kl. 11
árdegis.
Ræðumaður verður Árni Bjarna-
son, forseti Farmanna- og fiski-
mannasambandsins. Félagar úr
Slysavarnafélaginu Landsbjörgu
annast bæna- og ritningarlestra.
Karl Jónatansson harmónikuleik-
ari tekur á móti kirkjugestum með
sjómannalögum og leikur einnig í
messunni.
Organisti verður Bjarni Jón-
atansson og Kór Bústaðakirkju
syngur við messuna. Einsöngvari
verður Hanna Björk Guðjónsdóttir.
Á undanförnum árum hefur mik-
ill fjöldi fólks sótt sjómannamessur
í Bústaðakirkju og sjómenn og aðr-
ir í störfum tengdum sjómennsku
og útgerð flutt stólræðu dagsins.
Það er mikið gleðiefni að fá nú í
prédikunarstól á sjómannadegi
einn af forystumönnum sjómanna,
mann sem um langt árabil hefur
stundað sjómennsku og á til sjó-
manna að telja.
Bústaðakirkja og söfnuður henn-
ar árna íslenskum sjómönnum og
fjölskyldum þeirra heilla og bless-
unar Guðs og bjóða þau velkomin
til sjómannamessunnar.
Pálmi Matthíasson
sóknarprestur.
20 ára fermingarbörn
í Hafnarfjarðarkirkju
TUTTUGU ára fermingarbörn
heimsækja Hafnarfjarðarkirkju
með fjölskyldum sínum á sjó-
mannadag, sunnudaginn 2. júní.
Þau taka þátt í fjölskyldumessu
kl. 11 og hittast síðan í Safn-
aðarheimilinu Strandbergi eftir
messu í léttum hádegisverði þar
sem þau munu rifja upp fyrri kynni
og gera sitthvað skemmtilegt fyrir
börnin. Hátíðarhöld sjómannadags-
ins í Hafnarfirði fara fram við hafn-
arsvæðið í miðbænum fyrir framan
Hafnarfjarðarkirkju. Tuttugu ára
fermingarbörnin voru fermd þar
vorið 1982 og margt hefur breyst
frá þeim tíma. Þau hafa haslað sér
völl í lífinu og leggja nú sitt af
mörkum til samfélagsins. Flest
þeirra hafa eignast börn og fjöl-
skyldur og sum hver fært börn sín
til skírnar og fermingar í Hafn-
arfjarðarkirkju. Umgjörð kirkj-
unnar er líka önnur en fyrr eftir að
veglegt safnaðarheimili er risið við
hana.
Tvö börn verða fermd í messunni
svo eldri fermingarbörnin sem í
kirkju verða munu auðveldlega
geta séð sig fyrr í þeirra sporum og
minnst með þökk fermingar sinnar.
Eitt þeirra, Kári Þormar, leikur á
orgel við messuna.
Prestar verða sr. Þórhildur Ólafs
og sr. Gunnþór Ingason.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Gídeonmenn í
Hallgrímskirkju
UM þessa helgi halda Gídeon-
félagar á Íslandi landsmót sitt, en
þeir eru löngu kunnir fyrir að gefa
skólabörnum Nýja testamenti og
fyrir að dreifa ritningunni á sjúkra-
hús, hótel og í fangelsi. Að þessu
sinni þinga Gídeonfélagar í Bláa
lóninu, en fjölmenna síðan til guðs-
þjónustu í Hallgrímskirkju á sunnu-
dagsmorguninn kl. 11 f.h. Aðal-
frmkvæmdastjóri Gideons
International, Jerry D. Burden,
prédikar í guðsþjónustunni en Gíd-
eonfélagar annast ritningarlestra.
Prestar kirkjunnar, þeir séra Jón
Dalbú Hróbjartsson og séra Sig-
urður Pálsson þjóna fyrir altari.
Félagar úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju leiða safnaðarsöng undir
stjórn Harðar Áskelssonar kantors.
Leikjanámskeið í
Neskirkju
UNDANFARIN ár hefur Neskirkja
staðið fyrir leikjanámskeiðum á
Sjómannamessa
í Landakirkju
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Ferming í Laugarneskirkju sunnudaginn
2. júní kl. 11. Prestur sr. Bjarni Karlsson.
Fermd verða:
Alexander Þór Harðarson,
Rauðalæk 8.
Andri Már Eyþórsson,
Miðtúni 13.
Birkir Örvarsson,
Hlíðarvegi 63, Kóp.
Dagur Radmanesh,
Vallarhúsum 45.
Guðmundur Hrannar Eiríksson,
Hofteigi 21.
Herborg Sörensen,
Kirkjuteigi 18.
Hrafnhildur Ágústsdóttir,
Laugarnesvegi 34.
Sigurrós Jónsdóttir,
Sundlaugavegi 24.
Snædís Björt Agnarsdóttir,
Laugarnesvegi 92.
Stefanía Ösp Guðmundsdóttir,
Skúlagötu 61a.
Ferming í Hafnarfjarðarkirkju sunnudag-
inn 2. júní kl. 11. Prestar sr. Þórhildur
Ólafs og sr. Gunnþór Þ. Ingason. Fermd
verða:
Ása Björk Valdimarsdóttir,
Vesturgötu 18.
Sigurbörn Viðar Karlsson,
Ölduslóð 28.
Ferming í Lögmannshlíðarkirkju, Glerár-
prestakalli, laugardaginn 1. júní kl. 11.
Prestur sr. Gunnlaugur Garðarsson.
Fermdar verða.
Hafdís Alma Einarsdóttir,
Sunnuhlíð 15, Ak.
Sigrún Sigmundsdóttir,
Vesturgili 12, Ak.
Silja Hlín Magnúsdóttir,
Snægili 3b, Ak.
Ferming í Áskirkju í Fellum sunnudaginn
2. júní kl. 14. Prestur sr. Lára G. Odds-
dóttir. Fermd verða:
Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir,
Ásbrún 6, Fellabæ.
Stefán Smári Jónsson,
Háafelli 3, Fellabæ.
FERMINGAR
KIRKJUSTARF