Morgunblaðið - 01.06.2002, Síða 63
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 63
Vegna framkvæmda við mislæg gatnamót Víkurvegar og Vesturlandsvegar verður Víkurvegur
lokaður milli Gagnvegar og Vesturlandsvegar frá kl. 22.00 föstudagskvöld 31. maí til kl. 7.00
mánudagsmorgun 10. júní.
Þann tíma fer öll umferð til og frá Grafarvogshverfi um Gullinbrú.
Til að auðvelda leiðarval um Grafarvogshverfi verður komið fyrir merkingum á helstu gatna-
mótum innan hverfisins.
Umferð verður væntanlega hleypt á hin nýju gatnamót þann 10. júní og verður það nánar
auglýst síðar. Gatnamálastofa í Reykjavík
Víkurvegur
Lokaður 31. maí-10. júní
Vesturlandsvegur
Grafarvogur
Þúsöld
Grafarholt
Víkurvegur
Gatnamót við Vesturlandsveg
Tilkynning um lokun Víkurvegar
SÍÐASTA brautskráning frá Tækni-
skóla Íslands fer fram í dag, laug-
ardaginn 30. júní kl. 13 í Bústaða-
kirkju. Þann 30. apríl s.l. voru
samþykkt lög frá Alþingi um
Tækniháskóla Íslands og tekur hann
til starfa að lokinni brautskráningu.
Það eru því merk tímamót í sögu
Tækniskólans í dag sem starfað hef-
ur óslitið frá árinu 1964. Hann var
upphaflega settur á fót til að veita
iðnmenntuðu fólki frekari tækifæri
til náms að undirlagi þáverandi
menntamálaráðherra, Gylfa Þ.
Gíslasonar. Í tímans rás hefur náms-
leiðum fjölgað til muna og nemenda-
hópurinn, að sama skapi, orðið fjöl-
breyttari, segir í fréttatilkynningu.
Deildir skólans eru 7, byggingadeild,
rafmagnsdeild, iðnaðartæknifræði-
og véladeild, rekstrardeild, heil-
brigðisdeild og frumgreinadeild, og
námsbrautir alls 16 talsins.
Útskrift frá TÍ er að jafnaði fá-
menn að vori þar sem fleiri deildir
skólans útskrifa hópa sína í janúar. Í
dag verða útskrifaðir fyrstu geisla-
fræðingarnir frá heilbrigðisdeild
Tækniskólans eftir fjögurra ára
B.Sc. nám en starfsheiti þeirra var
áður röntgentæknar. Frumgreina-
deild TÍ útskrifar fjölmennasta hóp-
inn en þeir nemendur hafa öðlast
rétt til að hefja nám á háskólastigi.
Auk þess eru nemendur frá rekstr-
ardeild og tæknideildum skólans að
útskrifast.
Dagskrá athafnarinnar er í
stórum dráttum sú að eftir afhend-
ingu skírteina taka við ávörp og af-
hending styrkja. Tómas Ingi Olrich,
menntamálaráðherra, Sigríður Jó-
hannesdóttir, þingkona og Jónína
Gísladóttir, formaður Félags geisla-
fræðinga, flytja ávörp m.a. og veittir
verða námsstyrkir úr Námssjóði
sameinaðra verktaka við Tækniskóla
Íslands, en formaður þess sjóðs er
Sturla Böðvarsson, samgönguráð-
herra.
Rektor Tækniskóla Íslands er
Guðbrandur Steinþórsson.
Tækniskóli Ís-
lands brautskráir
í síðasta sinn
THORVALDSENSFÉLAGIÐ
stofnaði verslunina Thorvald-
senbazar, Austurstræti 4,
hinn 1. júní 1901 og hefur hún
verið þar frá upphafi. Fé-
lagskonur hafa alltaf unnið í
sjálfboðavinnu við afgreiðslu
en laun eru greidd til versl-
unarstjóra.
Allur ágóði rennur til líkn-
armála og þá helst til veikra
barna.
Í tilefni afmælisins bjóða
félagskonur viðskiptavinum
og gestum upp á kaffi og
pönnukökur frá kl. 10–16 í
dag. Allir eru velkomnir.
Thorvald-
sensbazar-
inn 101 árs
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, opnaði
á fimmtudag sýninguna Sum-
arhúsið og garðurinn í Mosfellsbæ.
Sýningin er haldin í Íþróttahúsinu
að Varmá í Mosfellsbæ. Yfir 90 fyr-
irtæki og stofnanir sýna allt það
nýjasta í vöru og þjónustu fyrir
sumarhúsa- og garðeigendur.
Fjölmargar uppákomur verða á
svæðinu, gestir geta virt fyrir sér
umhverfislist, boðið verður upp á
fræðslu, auk þess sem brugðið
verður á leik með börnum á íþrótta-
vellinum.
Þetta er í fyrsta sinn sem sýning
sem þessi er haldin hér á landi og
hefur hún vakið mikla eftirtekt hjá
fyrirtækjum sem þjóna þessum
markhópi, sumarhúsaeigendum og
garðeigendum, samkvæmt því sem
segir í fréttatilkynningu.
Morgunblaðið/Kristinn
Sumarhúsið og garðurinn
í Mosfellsbæ
FYRRI hluti Silfur-Jodel lendingar-
keppninnar verður haldinn á Tungu-
bökkum í Mosfellsbæ í dag, laugar-
daginn 1. júní, kl. 14, ef veður leyfir.
Annars frestast keppnin um viku.
Keppendur mæti kl. 13. Seinni
hluti keppninnar verður haldinn
fyrstu helgina í september og ræður
besti árangurinn úr annarri hvorri
keppninni úrslitum, segir í fréttatil-
kynningu frá Flugklúbbi Mosfells-
bæjar.
Lendingarkeppni
SIGLINGASTOFNUN gerir
samning við Myndbæ ehf. um
gerð ellefu nýrra stuttmynda
um neyðarráðstafanir og for-
varnir við slysum á sjó í
tengslum við langtímaáætl-
unina í öryggismálum sjófar-
enda.
Í lok maí 2002 undirrituðu
Jóhann Briem f.h. Myndbæjar
ehf. og Hermann Guðjónsson,
forstjóri Siglingastofnunar Ís-
lands, vegna langtímaáætlun-
ar í öryggismálum sjófarenda
fyrir árin 2001–2003, samning
um gerð ellefu stuttmynda um
öryggismál sjófarenda. Gerð
myndanna á að vera lokið 15.
júlí nk.
Fyrirhugað er að þessar
myndir verði aðgengilegar á
sérstakri vefsíðu um öryggis-
mál sjófarenda sem opnuð
verði seinna á þessu ári. Jafn-
framt er áformað að setja
myndirnar á DVD og dreifa
endurgjaldslaust um borð í ís-
lensk skip. Hver mynd verður
5–10 mín. að lengd og fjalla
þær um neyðarráðstafanir og
forvarnir við slysum á sjó.
Myndirnar fjalla m.a. um
frágang gúmmíbjörgunarbáta,
móttöku þyrlu, æfingar um
borð, öryggi við hífingar, frá-
gang varasamra efna og ör-
yggi á vinnsluþilfari og í lest,
segir í frétt frá Siglingastofn-
un.
Nýjar stutt-
myndir um
öryggismál
sjófarenda