Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 64
64 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
"# "
"
$ # BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
REYKJAVÍKURBRÉF Morgun-
blaðsins á sl. sunnudag – ritað deg-
inum áður, á nýliðnum kosningadegi,
hinn 25. maí – verður vart lesið öðru-
vísi á milli línanna, en að þar hilli enn
undir ljúfsáran draum blaðsins um að
fá að ráða sér sjálft og jafnvel að fá að
taka raunverulegan þátt í almennri
umræðu um þjóðmálin og öll heims-
málin, að ekki sé nú talað um öll hin
eilífðarmálin. Blaðið er augljóslega
orðið þreytt á allskyns lágkúru og
ullabjakki sem það hefur mátt láta yf-
ir sig ganga og það svo dæmt sjálft sig
til að láta yfir þjóðina ganga.
Öll hin almennari umræða, sem
maður skyldi ætla að ætti að vera í
brennidepli á hverjum tíma á síðum
dagblaðs, kemur sjaldnast upp á yf-
irborðið fyrr en eftir dúk og disk og
þá líkara því að laumað væri að sem
ofurlitlu smá kryddi fróðleiksfúsum
smaladreng, nú eða smalastúlku, ein-
hvers staðar fram í fyrri alda heið-
anna ró, þess á milli þau litu upp úr
nýjasta Skírni með ylvolgri þjóðmála-
og heimsmálaumræðu þeirra tíma –
og það beint af pönnunni. Rakleiðis
frá þeirrar aldar brennidepli heims,
sjálfri kóngsins Kaupinhöfn.
Í kompaníi við allífið?
Grein Ólafs Mixa, Gyðingar gyð-
inganna, sem birtist í Morgunblaðinu
í dag, 28. maí, kann að hafa beðið all-
lengi birtingar, eftir niðurlagsorðum
Ólafs að dæma, þar sem hann skorar
á íslensk stjórnvöldað virða ekki að
vettugi áskorun yfir 200 manns, sem
birst hafi 24. apríl sl. í Morgun-
blaðinu. Áskorunin varðar reyndar
hvort um líf eða dauða sé að tefla fyrir
svo sem eins og milljón manns.
Ólafur má áreiðanlega kallast lukk-
unnar pamfíll að hafa ekki þurft að
bíða snöggtum lengur – þeir varla
staðnir upp úr brjáluðum kosninga-
flóru-austrinum, þeir Styrmir & Co.
Kompaníið það virðist nú stundum
vera í helst til litlum tengslum við al-
lífið, sama hvort er hér á hólmanum
eða úti í hinum stóra heimi, ef marka
má kveinstafi félagsskaparins í
Reykjavíkurbréfinu núna á sunnu-
daginn var, út af öllum þessum him-
ingnæfandi 269 aðsendu kosninga-
greinum, sem það þegjandi og
hljóðalaust mátti láta yfir alþjóð á síð-
um blaðsins ganga síðustu fimm daga
kosningabaráttunnar, þar af heilar
115 greinar á einum litlum 32 síðum á
föstudeginum langa einum! Er þá
ótalinn allur flórmoksturinn frá fyrri
vikum kosningabaráttunnar.
Kompaníið spyr sig reyndar sjálft í
bréfinu, hvort flest það bitastæðasta
hafi ekki týnst í öllum þessum orða-
flaumi og íhugar í framhaldi af því,
hvort stjórnmálaflokkarnir hljóti ekki
að velta því vandlega fyrir sér hvort
önnur vinnubrögð væru ekki væn-
legri til árangurs, vildu einhverjir á
þeim bæjum koma boðskap sínum til
skila til kjósenda í aðsendum grein-
um.
Gegnum nálaraugað víða
Sannleikurinn er nefnilega sá, og
verður þetta ekki öðruvísi skilið, en að
Morgunblaðinu sé varla ritstýrt nema
þá að nafninu til, a.m.k. varla í þessum
efnum og þá raunar fjarstýrt. Þannig
hafi t.d. „stjórnmálaflokkarnir“ aug-
ljóslega, samkvæmt Reykjavíkur-
bréfinu, ráðið því og ritstýrt – en ekki
ritstjórn Morgunblaðsins – hvað birt-
ist á síðum blaðsins þessar umliðnar
vikur síðan „Gyðingar gyðinganna“
voru settir í salt með öðru þess háttar
undir fjallháum greinabunkanum í
úlfaldans hnúð undirstefnuföstum
kompanísins rassi.
Niðurgangur íslenskra stjórnmála-
flokka – og það þrátt fyrir að hann
væri kominn „út í algjörar öfgar“, að
vitnað sé í eigin orð blaðsins í bréfinu
– skyldi skipta alþjóð öllu meira máli,
en t.d. umfjöllun um dauðastríð millj-
ónaþjóðar. Það stríð mætti þegja í hel
á meðan flokkarnir heima bærust á
banaspjót og þó að varla fengi nokkur
lesandi, hvað þá kjósandi, séð út úr
augum fyrir allri rit- og auglýsinga-
ræpunni.
Að því frátöldu, að kvóti magns
skuli ráða, hvað sleppi gegnum nál-
arauga Morgunblaðsins, að máti við
rúmfræðilega mælistiku ritstjóra
blaðsins – svo og svo margir dálk-
sentimetrar per skríbent, óháð efni,
efnistökum og ritunartíma og yfirleitt
óháð því hvort eitthvert erindi eigi inn
í umræðuna á hverjum tíma, einungis
að „almenns velsæmis“ skuli gætt og
þar fram eftir einhverjum hátíðlegum
götum – verður ekki betur séð en hið
ægivíða nálarauga þeirra er að baki
búa og löngum hafa fjarstýrt Morg-
unblaðinu ráði þar á bæ í raun flestu
um hvað teljast megi bitastætt og
boðlegt lesendum, þótt kannski ekki
sleppi hvaðeina í gegnum það.
Ritstjórar ritstjóranna skuli fá að
ráða, ráða a.m.k. því er þeir ráða vilji?
Er sú stefna þá virkilega Morgun-
blaðsins?
Æ, Þyrnirós, Þyrnirós, bara að
vakni þú nú!
ÁRNI B. HELGASON,
Háteigsvegi 14,
105 Reykjavík.
Ritstjórar
ritstjóranna
Frá Árna B. Helgasyni:
EINS og kunnugt er af fréttum varð
hörmulegt banaslys á Kanaríeyjum í
byrjun þessa árs er íslensk kona féll
fram af svölum á hóteli sínu. Við rann-
sókn slyssins var sambýlismaður kon-
unnar, Bæringur Guðvarðsson,
hnepptur í varðhald um nokkurra
vikna skeið en síðan sleppt um miðjan
febrúar. Er hann þó í farbanni meðan
beðið er ákvörðunar yfirvalda um
hvort ákæra verður lögð fram á hend-
ur honum og enn óvissa um fram-
vindu málsins.
Aðstæður Bærings eru mjög örð-
ugar og margvíslegur kostnaður
hleðst upp. Ýmsum vinum hans og
velunnurum leikur hugur á að reyna
að létta byrðar hans. Til þess að auð-
velda að koma því við hefur verið
stofnaður reikningur á nafni Bærings
Guðvarðssonar, kt. 090628-3059, í
Þarabakkaútibúi Íslandsbanka,
reikningsnúmer 0537-14-604576, og
geta þeir sem vilja leggja honum lið
lagt framlög sín á þann reikning.
SR. ÁRNI BERGUR
SIGURBJÖRNSSON,
BJÖRN HERMANNSSON,
lögfræðingur,
Álftamýri 39.
Kanaríeyjar
Frá Árna Bergi Sigurbjörnssyni og
Birni Hermannssyni: