Morgunblaðið - 01.06.2002, Qupperneq 65
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 65
JÓGA hjá Guðjóni Bergmann, Ár-
múla 38, 3. hæð, verður með jóga-
námskeið fyrir barnshafandi konur.
Námskeiðin hefjast 11. júní og verða
haldin á mánaðarfresti. Kennt verð-
ur á þriðjudögum og fimmtudögum
kl. 17.10.–18.10. Kennari er Jóhanna
Bóel.
Á námskeiðunum verður m.a. far-
ið í styrkingar- og teygjuæfingar,
öndunar-, slökunar-, grindarbotns-
og mjaðmaæfingar og hugleiðslur.
Verð fyrir hvern mánuð er kr.
7.900. Skráning á netfangið gberg-
mann@strik.is, á vefsíðunni
www.gbergmann.is eða í síma.
Meðgöngujóga
Á FUNDUM samstarfsnefndar há-
skólastigsins 8. mars og 10. maí sl.
var fjallað um mögulega styttingu
náms til stúdentsprófs um eitt ár, úr
fjórum árum í þrjú, og um inntöku-
skilyrði í háskóla og æskilegan und-
irbúning nemenda.
Í ályktun sem Morgublaðinu hefur
borist segir m.a.: „Samstarfsnefndin
er meðmælt því að nám til stúdents-
prófs verði stytt um eitt ár, enda
verði ekki dregið úr þeim undirbún-
ingi sem stúdentsprófi er ætlað að
fela í sér. Með styttingu námsins um
eitt ár kæmu nemendur inn á há-
skólastig á svipuðum aldri hér á
landi og gengur og gerist í ná-
grannalöndum okkar …
Það hlýtur að vera eitt meginhlut-
verk framhaldsskólans að veita nem-
endum almennan og góðan undir-
búning þannig að þeir séu vel í stakk
búnir til þess að takast á við krefj-
andi nám á sérsviði á háskólastigi.
Nefndin leggur áherslu á að stúd-
entar framhaldsskóla hafi haldgóða
menntun í íslensku, ensku og stærð-
fræði og breiðan almennan grunn.
Reynslan sýnir einfaldlega að þetta
eru þær námsgreinar sem mestu
skipta sem undirbúningur fyrir há-
skólanám. Auk þess telur nefndin að
auka þurfi kunnáttu stúdenta í
stærðfræði frá því sem nú er.“
Um styttingu náms til
stúdentsprófs og inntöku-
skilyrði í háskóla
ENN HEFUR ekki frést af stærri
stangarveiddum urriða úr Þingvalla-
vatni en 7 punda og hafa fáeinir slíkir
veiðst. Risarnir eru þarna þó sem
fyrr og fyrir fáum dögum veiddi t.d.
Örn bóndi í Nesjum 14 punda bolta í
net fyrir sinni jörð, en einhver bestu
urriðamið vatnsins eru einmitt fyrir
landi Nesja.
60 bleikjur
Leigutakar Lónsár í Þistilfirði
skruppu að ánni fyrir fáum dögum,
rétt til að „sjá hvernig hún kæmi
undan vetri,“ eins og Pálmi Gunn-
arsson komst að orði. Þeir félagar
gerðu sér lítið fyrir og lentu í moki,
veiddu um 60 vænar bleikjur neðst í
ánni. Allt að 4 punda og allt á flugu.
Því er oft fleygt að veiða megi á ósa-
svæðum margra sjóbleikjuáa í maí
og snemma í júní, bleikjan er ekki að
ganga í ána, en er við árósana og
kemur stundum inn á aðfallinu þegar
straumur er stór. Hopar svo út aftur.
Hins vegar er veiði ekki leyfð á þeim
tíma í flestum þessara áa.
100 urriðar
Veiðimenn sem voru í Vestmanns-
vatni fyrir skömmu veiddu um 100
urriða, flesta 1-2 pund og nokkra upp
í 3 pund. Straumflugur gengu best,
sérstaklega Flæðarmúsin sem hefur
oftast verið talin sjóbirtingsbani.
Þá eru menn enn að fá góðan afla í
Litluá í Kelduhverfi. Þar er fiskur
enn ekki genginn til sjávar og vert að
minna á, að allt til vorsins 2001 hófst
veiði aldrei í ánni fyrr en 1.júní. Gekk
hún jafnan vel fram í viku af júní.
14 pundari úr
Þingvallavatni
Engilbert Jensen með 4 punda
bleikjuhæng úr Lónsá.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
SALASKÓLI, nýjasti skólinn í
Kópavogi, hlaut á miðvikudag við-
urkenningu fyrir að hafa stofnað
sérstaka vísindamiðstöð fyrir nem-
endur. Hagsmunafélag um eflingu
verk- og tæknimenntunar stendur
að viðurkenningunni. Guðbjörg
Sigurðardóttir, aðstoðarmaður
Tómasar Inga Olrich mennta-
málaráðherra, afhenti Hafsteini
Karlssyni, skólastjóra, viðurkenn-
inguna í viðurvist nemenda, kenn-
ara, vísindamanna og prófessora í
raungreinum.
Salaskóli hlýtur
viðurkenningu
Morgunblaðið/Sverrir
FULLTRÚAR Símans og Félags
heyrnarlausra undirrituðu nýlega
samstarfssamning, en Síminn verð-
ur aðalstyrktaraðili félagsins
næstu tvö árin. Síminn er einn
helsti þjónustuaðili heyrnarlausra í
fjarskiptum.
Félag heyrnarlausra og Síminn
hafa um árabil átt samstarf sem
hefur stuðlað að því að auka að-
gengi heyrnarlausra að fjarskipt-
um. Samstarfið hófst árið 1995
þegar Síminn afhenti Félagi heyrn-
arlausra fyrsta textasímaforritið
sem kom út hér á landi. Með til-
komu nýs textasíma hóf Landssím-
inn að veita textasímaþjónustu fyr-
ir heyrnarlausa sem felst í því að
túlka samtal milli heyrnarlausra
sem hafa textasíma og heyrandi
sem hafa venjulegan síma. Þremur
árum síðar var svo textasímafor-
ritið Skjámi tekið í notkun en
Landssíminn bar kostnaðinn af
þýðingu þess.
Með tilkomu myndsíma gátu
heyrnarlausir í fyrsta sinn talað á
móðurmáli sínu, íslensku táknmáli,
og afhenti Síminn Félagi heyrn-
arlausra tvo myndsíma að gjöf í til-
efni að 40 ára afmæli félagsins.
Með tilkomu SMS-skilaboða
varð algjör bylting í fjarskipta-
möguleikum heyrnarlausra. Nú er
í raun svo litið á að farsímar séu
orðnir eitthvert mikilvægasta ör-
yggistæki heyrnarlausra.
Styrkur Símans til Félags
heyrnarlausra mun á þessu ári fara
í gerð verkefnabókar í táknmáli
fyrir nemendur í 1. bekk grunn-
skóla. Markmiðið með gerð bók-
arinnar er að kynna íslenska tákn-
málið og hvetja til aukinna
samskipta á milli heyrnarlausra og
heyrandi á Íslandi.
Síminn
styrkir Fé-
lag heyrn-
arlausra
Hafdís Gísladóttir, fram-
kvæmdastjóri Félags heyrnar-
lausra, og Heiðrún Jónsdóttir,
forstöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála hjá Símanum,
undirrituðu samninginn.
BJÖRN Dagbjartsson sendiherra
hefur afhent dr. Bakili Muluzi, for-
seta Malawi, trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra Íslands í Malawi með að-
setur í Maputo, segir í frétt frá utan-
ríkisráðuneytinu.
Afhenti
trúnaðarbréf
Mörkinni 6, sími 588 5518
Fyrir
sjómannadaginn
Fallegar yfirhafnir í úrvali
20—50%
Opnum kl. 9
virka daga
laugardaga
frá kl. 10-15
afsláttur í dag
♦ ♦ ♦