Morgunblaðið - 01.06.2002, Side 76

Morgunblaðið - 01.06.2002, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Skeifan 17 • Sími 5504000 •www.atv.is OLÍUFÉLÖGIN ákvaðu í gær að hækka bensínlítrann um 4 krónur og 80 aura frá og með deginum í dag. Í tilkynningu frá olíufélögunum er ástæða verðhækkana sögð umtals- verð hækkun á heimsmarkaðsverði undanfarið misseri. Olíufélagið hf. reið á vaðið og til- kynnti um hækkun upp úr miðjum degi í gær. Skömmu síðar tilkynntu Skeljungur og Olís að þau myndu hækka bensínlítrann um 4,80 kr. Hækkunin tók gildi á miðnætti. Eftir hækkun kostar lítrinn af 95 oktana bensíni með fullri þjónustu hjá Olíufélaginu, Olís og Skeljungi 96 krónur og 100 krónur og 70 aura af 98 oktana bensíni. Í tilkynningu frá Olís segir að mánaðarlegt meðaltal á heimsmark- aðsverði á bensíni hafi hækkað um tæp 38% frá febrúar til maí og í til- kynningu frá Olíufélaginu er hækk- unin sögð 50% frá því í desember í fyrra. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Olíufélagsins, segir að á sama tíma- bili hafi félagið lækkað bensínlítrann um eina krónu og því sé um verulega uppsafnaða hækkunarþörf á bensíni að ræða. Í sama streng taka tals- menn Skeljungs og Olís. Í fréttatilkynningu frá Olís segir enn fremur að félagið hafi ákveðið að leggja sitt af mörkum til að stuðla að verðstöðugleika og að rauðu strikin myndu halda. Félagið hafi því haldið bensínverði óbreyttu frá því í mars. Bensínlítrinn hækkar um 4,80 krónur í dag HVÍTIR kollar eru ekki óalgeng sjón um þessar mundir, enda er vorið tími útskrifta. Mennta- skólanum í Reykjavík var slitið í 156. sinn í gær, við hátíðlega at- höfn í Háskólabíói. 133 nýstúd- entar voru brautskráðir og hlaut Martin Ingi Sigurðsson hæstu einkunn á stúdentsprófi þetta ár- ið, 9,34, og er hann því dúx ár- gangsins. Ekki er hægt að segja að veðr- ið hafi leikið við nýstúdentana, þar sem votviðrasamt var í höf- uðborginni í gær. Fátt getur samt skyggt á gleðina á þessum degi og létu þessar nýstúdínur rign- inguna ekki á sig fá, heldur spenntu upp regnhlífina og brostu þegar þær gerðu sig klára fyrir stúdentsmyndatökuna. Morgunblaðið/Ásdís Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 156. sinn HÆSTIRÉTTUR telur ekki ástæðu til að breyta þeirri dómvenju, að menn sem verða uppvísir að því að aka ölvaðir í fyrsta skipti og vínanda- magn í blóði er yfir 1,2‰ missi öku- réttindi í eitt ár, svo framarlega sem ákvæði annarra laga séu ekki brotin eða aðstæður að öðru leyti sérstak- lega alvarlegar. Þetta kemur fram í dómi Hæsta- réttar sem kveðinn var upp á fimmtudag í máli manns sem var stöðvaður við akstur og hafði 2,24‰ áfengismagn í blóði. Af hálfu ákæru- valds var manninum gefinn kostur á að ljúka málinu með viðurlaga- ákvörðun, samkvæmt fyrirmælum ríkissaksóknara til allra lögreglu- stjóra um sáttaboð ákærenda við við- urlagaákvarðanir í ölvunaraksturs- málum. Maðurinn hafnaði því boði og taldi viðurlög samkvæmt því of þung og í ósamræmi við langa dóm- venju um sviptingu ökuréttar vegna sambærilegra brota. Ekki talið að mat löggjafans hafi breyst Héraðsdómur dæmdi manninn til ökuleyfissviptingar í eitt ár, í sam- ræmi við dómvenju. Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu í því skyni að freista þess að fá þessari dómvenju breytt. Hæstiréttur taldi að ekki kæmi fram í lögum um breytingu á umferðarlög- um, eða lögskýringargögnum með þeim, að mat löggjafans varðandi sviptingu ökuréttar vegna ölvunar- akstursbrota hafi breyst. Dómstólar hafi miðað við lágmarks ökuréttar- sviptingu, eitt ár, í tilvikum sem þeim er um ræddi í málinu, þ.e. þeg- ar um sé að ræða fyrsta brot öku- manns, vínandamagn í blóði sé yfir 1,2‰ og ekki brotin önnur ákvæði laga eða aðstæður að öðru leyti sér- staklega alvarlegar. Hafi þá ekki skipt máli hversu mikið yfir mörk- unum vínandamagnið hafi verið. Löggjafinn hafi hins vegar tengt lengri sviptingu ökuréttar ítrekuð- um brotum og komið hafi til frekari ökuréttarsviptingar við endurtekin brot. Þótti ríkissaksóknari ekki hafa sýnt fram á að efni væru til þess að óbreyttum lögum að hverfa frá for- dæmum um ökuleyfissviptingu, sem farið hafi verið eftir frá setningu um- ferðarlaga 1987 og lengur. Var því niðurstaða héraðsdóms um eins árs ökuréttarsviptingu staðfest. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Hrafn Bragason, Garðar Gísla- son, Gunnlaugur Claessen, Haraldur Henrysson og Pétur Kr. Hafstein. Verjandi ákærða var Sigurður Jónsson hrl. Málið sótti Bogi Nilsson ríkissaksóknari. Dómvenju vegna ölv- unaraksturs ekki breytt EISTNESKA og lettneska lögregl- an telur sig hafa öruggar upplýs- ingar um að þarlendar nektardans- meyjar hafi stundað vændi hér á landi. Þetta byggir lögregla m.a. á viðtölum við dansmeyjar sem hafa snúið aftur til Eistlands að lokinni dvöl á Íslandi. Þær hafa sagt að vinnuveitendur þeirra á Íslandi hafi lagt að þeim að stunda vændi og hafi hótað þeim of- beldi ef þær segðu frá. Þessar upplýsingar fékk Tinna Víðisdóttir, lögfræðingur hjá sýslu- manninum á Keflavíkurflugvelli, en hún var meðal þeirra sem sátu ráð- stefnu Norðurlanda- og Eystra- saltsþjóðanna um baráttu gegn verslun með konur sem lauk í Tall- inn í Eistlandi í gær. Tinna segir að lögreglu hér á landi hafi grunað að vændi færi fram á nektarstöðum eða í tengslum við þá og þessar upplýsingar staðfesti þann grun. Tinna á von á nánari upplýsingum frá eistnesku og lettnesku lögregl- unni um þessi mál. Tinna segir að það hafi vakið mikla athygli að íslensk stjórnvöld skuli veita nektardansmeyjum at- vinnuleyfi. „Þetta er hvergi annars staðar gert á Norðurlöndunum og þetta hefur í raun valdið hneykslun á ráðstefnunni,“ segir Tinna. Þeir sem gagnrýna þetta segja að með því að veita dansmeyjunum at- vinnuleyfi séu stjórnvöld að búa í haginn fyrir menn og samtök sem hagnast á verslun með konur. Vitað sé að konurnar stundi vændi og hef- ur því verið haldið fram á ráðstefn- unni að með útgáfu atvinnuleyfa til þeirra séu „íslensk stjórnvöld í hlut- verki melludólgs“. Á ráðstefnunni kom einnig fram að stúlkurnar eru beittar blekking- um til að fá þær til að stunda vændi. Aðeins þær nektardansmeyjar sem koma frá löndum utan Evr- ópska efnahagssvæðisins þurfa at- vinnuleyfi hér á landi og skv. upp- lýsinum frá Vinnumálastofnun eru þær um 20 um þessar mundir. Dansmeyjar sem koma frá löndum innan EES þurfa engin atvinnuleyfi og ekki liggja fyrir nákvæmar upp- lýsingar um fjölda þeirra. Frá ára- mótum hefur Vinnumálastofnun synjað næstum öllum nektarstöðum um útgáfu nýrra atvinnuleyfa til nektardansmeyja. Þeir staðir sem hafa fengið atvinnuleyfi eru Óðal og fyrirtækið Baltic sem rekur Max- ims og Goldfinger. Heiða Gestsdótt- ir, lögfræðingur hjá Vinnumála- stofnun, segir að ástæðurnar fyrir synjununum séu af ýmsum toga. Í nokkrum tilfellum hafi komið í ljós að tveir samningar voru í gildi við dansmeyjarnar. Annar var lagður fram hjá Vinnumálastofnun en hinn kom hvergi fram. Í aukasamningn- um, sem ekki var framvísað, hafi verið ýmis ákvæði sem standist ekki íslenska vinnulöggjöf og því hafi stöðunum verið synjað um at- vinnuleyfi. Í öðrum tilfellum hafi t.d. skort nauðsynleg gögn. Í aukasamningunum hefur t.d. verið kveðið á um háar sektir ef nektardansmærin mætir ekki til vinnu eða brýtur að öðru leyti regl- ur nektarstaðarins. Eistneskar nektardansmeyjar sem snúa heim eftir dvöl hér á landi Segjast hafa stundað vændi hér á landi ÞRENNT var flutt með sjúkrabif- reið á slysadeild Landspítala Foss- vogi eftir bílveltu við Esjugrund á Vesturlandsvegi í gærkvöld. Þrír farþegar auk bílstjóra voru í bifreið- inni sem ekið var út af veginum og fór nokkrar veltur. Að sögn lögregl- unnar í Reykjavík var einn hinna slösuðu viðbeinsbrotinn og aðrir fundu fyrir eymslum í baki. Enginn þeirra var talinn alvarlega slasaður Þrennt á slysadeild eftir bílveltu HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær þrjá menn í 4–8 mánaða skilorðsbundið fangelsi í þrjú ár fyr- ir þjófnaði og innbrot. Þeir voru 18 og 19 ára þegar þeir frömdu brotin. Allir eiga þeir talsverðan sakaferil að baki og hafa allir hlotið dóma fyrir þjófnað, umferðarlagabrot, grip- deildir og nytjastuldi. Verðmæti þýf- isins í þeim brotum sem þeir voru dæmdir fyrir nú nam samtals um einni milljón króna. Hluta af skaða- bótakröfum var vísað frá dómi þar sem þær voru óljósar. Guðjón St. Marteinsson kvað upp dóminn. Þrír í skil- orðsbundið fangelsi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.