Morgunblaðið - 27.06.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.06.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Mosfet 4x50W •2 RCA útgangur • tónjafnari • FM/MW/LW •18 stö›va minniKr.35.900.- Mosfet 4x50W • 3 RCA útgangur • tónjafnari• 24 stö›va minni• MP3/OEL skjár • FM/MW/LWKr.74.900.- Þórdísarlundur í Vatnsdal fimmtíu ára Hér mun ek eiga dvöl nokkra Húnvetningafélagið íReykjavík heldurhátíðlegt fimmtíu ára afmæli Þórdísarlund- ar í Vatnsdal um helgina, nánar tiltekið næstkom- andi laugardag, 29. júní. Lundurinn er nálægt Vatnsdalsárbrú á gatna- mótum Vatnsdalsvegar, Þingeyravegar og hring- vegar. Rætt var við Ingi- mund Benediktsson, for- mann skógræktarnefndar félagsins, af því tilefni. Hver er saga Þórdísar- lundar? „Snemma kom fram hugmynd um að félagið ræktaði trjálund af þessu tagi fyrir norðan, og árið 1945 mátti sjá grein í fé- lagsblaðinu um gildi þess fyrir Húnvetninga að hafa vina- legan lund til skógarferða og skemmtunar, sem verður að telj- ast veruleg framsýni í þessum efnum, á þeim tíma þegar ferðin suður tók allan daginn. Árið 1947 var hugmyndin rædd á aðalfundi, en þá stóð félagið fyrir stórfram- kvæmdum við Borgarvirki, og sumarið 1950 var haldin stórhátíð með 2000 gestum þegar endur- gerð Borgarvirkis lauk. Tekjur af veitingasölu á hátíðinni voru stofnfé sérstaks skógræktar- sjóðs. Bárust hugmyndir í þessa veru Kristjáni Vigfússyni, bónda í Vatnsdalshólum, til eyrna, og gaf hann Húnvetningafélaginu í Reykjavík landsvæði fyrir lund- inn árið 1950.“ Þetta hefur verið rausnarleg gjöf hjá Kristjáni. „Já, og ég tel að hugmynd Kristjáns hafi meðal annars verið að halda á lofti minningu Ingi- mundar gamla og ættar hans, en lundurinn er nefndur eftir dóttur hans Þórdísi, sem eiginkona Ingi- mundar, Vigdís, ól á þessum stað. Segir svo frá í fimmtánda kafla Vatnsdæla sögu, að þegar þau hafi verið á leið að framtíðarbú- stað sínum að Hofi í Vatnsdal, og komið að Vatnsdalsá, hafi Vigdís sagt: „Hér mun ek eiga dvöl nokkra, því at ek kenni mér sótt- ar,“ og hafi Ingimundur svarað að bragði: „Verði þat at góðu“ og nefnt staðinn eftir dóttur sinni nýfæddri. Þórdís er því fyrsti inn- fæddi Vatnsdælingurinn.“ Lundurinn hefur ávallt verið mikilvægur í starfi Húnvetninga- félagsins. „Já, allt frá því að vinna hófst við að girða hann og síðan að gróðursetja árið 1952 hefur skóg- ræktarnefnd félagsins haft um- sjón með lundinum og stjórnað starfi þar. Ein vinnuferð er farin á hverju ári og hátíðarsamkomur hafa verið haldnar í lundinum, til dæmis á 10 ára afmæli hans 1962, þegar settur var minnisvarði um Þórdísi Ingimundardóttur og ætt hennar, og á 40 ára afmælinu 1992.“ Hvernig verður dagskráin í til- efni afmælisins? „Um klukkan tvö hefst dagskráin með helgistund í lundinum, sem séra Sveinbjörn Einarsson á Blönduósi sér um, og munu kirkjukórar af svæðinu syngja við helgistundina. Að henni lokinni verður afhjúp- aður skjöldur um tilurð lundar- ins. Flutt verður hátíðarræða og hátíðarljóð eftir Rúnar Kristjáns- son á Skagaströnd sem samið var í tilefni afmælisins. Kvennakór- inn Lillukórinn frá Hvamms- tanga tekur einnig lagið. Heima- maður frá svæðinu mun einnig segja nokkur orð. Áhersla er lögð á að hafa atriðin stutt svo að fólk nái að ræða saman og gera sér glaðan dag í lundinum. Eiríkur Grímsson frá Ljótshólum mun einnig stjórna fjöldasöng og menn frá Blönduósi taka upp harmónikkur að lokinni athöfn- inni. Við munum líka bjóða grill- aðar pylsur af nýju útigrilli sem við vorum að setja upp nú í vor.“ Vinnan við lundinn hefur verið talsverð, ekki satt? „Jú, til þess að lundurinn verði öllum til sældar og sóma hefur að sjálfsögðu þurft að gróðursetja, grisja og fegra á hverju ári. Skóg- ræktin hefur staðið samfleytt í fimmtíu ár og í tilefni dagsins verða gróðursett fimm tré. Í vinnuferð á vorin vinna fé- lagsmenn að fegrun og endurbót- um. Sem dæmi má nefna að sett hafa verið upp nestisborð og fyrir tíu árum var lagt vatn í lundinn, sem gerði okkur kleift að setja upp vatnssalerni og vaska. Hafa einhverjar framkvæmdir staðið yfir nýlega? „Já, fyrir utan nýja grillið var byggð bogabrú sem fullbýr stíg frá Þrístöpum, þar sem síðasta aftaka á Íslandi fór fram árið 1830, þegar þau Friðrik og Agnes voru hálshöggvin, yfir í Þórdís- arlund. Stígurinn gefur ferða- mönnum færi á að ganga stutta leið inn á milli Vatns- dalshólanna, sem eru vissulega eitt af undr- um íslenskrar nátt- úru.“ Það væri tilvalin laugardagsferð að heimsækja lundinn, ekki satt? „Jú, sérstaklega þar sem ferðin tekur aðeins tæpa þrjá tíma frá Reykjavík norður í Vatnsdal eftir hringveginum, og lundurinn skartar sínu fegursta um þessar mundir, er tilvalið fyrir alla Hún- vetninga og félaga þeirra að heimsækja okkur á laugardag- inn.“ Ingimundur Benediktsson  Ingimundur Benediktsson fæddist á Staðarbakka í Miðfirði árið 1948. Hann stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík og lauk meistararéttindum í húsa- smíði. Að námi loknu hóf Ingi- mundur störf í Trésmiðju Magn- úsar F. Jónssonar. Hann tók yfir rekstur trésmiðjunnar árið 1974 og hefur starfað þar síðan. Ingi- mundur hefur einnig tekið virk- an þátt í starfi Húnvetninga- félagsins í Reykjavík og er formaður skógræktarnefndar fé- lagsins. Hann er kvæntur Matt- hildi Guðbjörgu Sverrisdóttur og eiga þau þrjú börn, Magnús Frí- mann, Sverri Stein og Þórdísi Hlín. Húnvetnsk dagskrá í Þórdísarlundi Mikið var að þessir fræðingar eru farnir að fatta, að hér voru fleiri stéttir til að monta sig af, en þessir heilagsanda-kvakarar, bróðir. HÁSKÓLI Íslands og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hafa samið um að stofnuð verði ný staða lektors í félagsráðgjöf á sviði öldr- unarfræða og öldrunarþjónustu við Háskóla Íslands og undirrituðu Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Páll Skúlason háskólarektor samn- ing þessa efnis á þriðjudag. Fram- kvæmdasjóður aldraðra mun leggja til 18,5 milljónir króna vegna samn- ingsins til að greiða laun og launa- tengd gjöld vegna stöðunnar, en samningurinn er til fimm ára. Mark- mið samningsins er að efla rann- sóknir, stefnumörkun og kennslu á sviði öldrunarfræða og -þjónustu en sérsvið lektorsins skal snerta vel- ferðarmál aldraðra, greiningu og ráðgjöf til einstaklinga ásamt stefnumörkun, skipulagi, fram- kvæmd og þróun öldrunarþjónustu. Málefni aldraðra sífellt mikilvægari Heilbrigðisráðherra lýsti ánægju með samninginn og sagðist vera bjartsýnn á framhaldið og að sam- starfið yrði gott. „Þessi málaflokkur er vandasamur og verður æ fyrir- ferðarmeiri hér á landi eins og ann- ars staðar og því tel ég mikils virði að unnið sé að því að efla sérþekk- ingu á þessu sviði.“ Háskólarektor sagði samnings- gerð af þessu tagi vera mjög í anda þeirrar þróunar sem væri í háskól- anum. „Í þjóðfélaginu eru æ fleiri svið sem kalla á fræðastarf, bæði rannsóknir og menntun. Hér fær háskólinn tækifæri til að auka rann- sóknir og skapa þekkingu sem mun koma strax að notum í samfélag- inu.“ Hann sagði ekki ólíklegt að fleiri slíkir samningar yrðu gerðir þar sem háskólinn vildi gjarnan vinna með opinberum stofnunum. „Ég tel gífurlega mikilvægt að há- skólinn byggi upp á sviðum er tengjast velferðarmálum, og þar er fjölgun aldraðra eitt af þeim verk- efnum sem okkur ber að takast á við.“ Málefni aldraðra framar í forgangsröðina Ólafur Þ. Harðarson, forseti fé- lagsvísindadeildar, benti á að hér væri verið að setja málefni aldraðra ofar í forgangsröðina en áður. „Við erum að sigla inn í gjörbreytt þjóð- félag þar sem málefni aldraðra verða sífellt mikilvægari í samfélag- inu.“ Staða lektorsins verður auglýst á næstunni og verður ráðið í hana frá 1. janúar 2003. Samningur á milli heilbrigðisráðuneytis og HÍ Lektorsstaða á sviði öldr- unarfræða sett á stofn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.