Morgunblaðið - 27.06.2002, Page 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KRISTINN Magnússon og Björn
Ásgeir Guðmundsson þreyttu Eng-
eyjarsund á þriðjudagskvöld.
Sundið tók þá rúma klukkustund,
en sjóhiti var um 10 gráður og
skilyrði til sunds góð.
Engeyjarsundið, sem var 2,2 km
langt, var fyrsta sjósundið af sjö
sem Kristinn hyggst þreyja í sum-
ar, en hann hyggst auk þess synda
Viðeyjarsund, Drangeyjarsund, í
Hvalfirði og Þingvallavatni, frá
Kjalarnesi til Reykjavíkur og við
Vestmannaeyjar.
Siglingaklúbburinn Þytur útveg-
aði bát til fylgdar á þriðjudag en
annars mun Björgunarsveit Hafn-
arfjarðar sjá um að fylgja Kristni.
Sundfélag Hafnarfjarðar sér að
mestu um framkvæmd sundsins.
Engeyjar-
sund fyrsta
sjósundið
af sjö
TUTTUGU umsækjendur voru um
stöðu bæjarstjóra Austur-Héraðs,
en umsóknarfrestur rann út 20. júní
síðastliðinn. Björn Hafþór Guð-
mundsson, núverandi bæjarstjóri,
segir að unnið sé með það að mark-
miði að ákvörðun liggi fyrir sem
fyrst eftir helgina. Búið sé að
þrengja hópinn niður í nokkur nöfn
og nú sé verið að boða þá einstak-
linga í viðtöl.
Eftirtaldir einstaklingar sóttu um:
Ágústa Björnsdóttir, Árni Múli Jón-
asson, Ásmundur Helgi Steindórs-
son, Bjarki Már Karlsson, Björn
Helgason, Daðey Þóra Ólafsdóttir,
Eiríkur Bj. Björgvinsson, Guðjón
Viðar Valdimarsson, Hilmar Þór
Hafsteinsson, Jóhann F. Kristjáns-
son, Jón Kr. Arnarson, Jónas Eg-
ilsson, Magnús Kristján Hávarðar-
son, Óskar J. Sandholt, Pétur
Björnsson, Reynir Þorsteinsson,
Stefán Arngrímsson, Steinn Kára-
son, Theodór Blöndal og Ævar Ein-
arsson.
Birni Hafþóri var boðið að gegna
stöðunni áfram, en hann ákvað að
gefa ekki kost á sér af persónulegum
ástæðum. Ákvörðunin hafi ekkert
með úrslit nýafstaðinna sveitar-
stjórnarkosninga eða myndun nýs
meirihluta að gera.
Björn Hafþór mun taka við starfi
sveitarstjóra Djúpavogshrepps.
Hann segist hætta mjög sáttur og að
hann hlakki til að takast á við nýja
starfið. Hann muni þó sakna margs
frá Austur-Héraði. „Ég er frá Stöðv-
arfirði sjálfur, þau eru sterk í mér
Fjarðargenin. Helst vildi ég borða
siginn fisk einu sinni í viku!“ segir
Björn Hafþór.
Hann segir að nýr bæjarstjóri
muni líklega taka við stjórnartaum-
unum í Austur-Héraði í ágúst, í allra
síðasta lagi í byrjun september.
Hann segir það ráðast af því hver
ræðst til starfans og hve fljótt við-
komandi getur losnað. Björn Hafþór
er skuldbundinn til að gegna stöðu
bæjarstjóra í allt að þrjá mánuði frá
því að kjörtímabilinu lauk, eða til 10.
september. Þó er miðað við að hann
gæti hætt um miðjan ágústmánuð og
segir hann góðan skilning á því.
Nýr bæjarstjóri Austur-
Héraðs í næstu viku
Bæjarstjóri Aust-
ur-Héraðs tekur
við sem sveitar-
stjóri á Djúpavogi
Á FUNDI dómsmálaráðherra
Norðurlanda sem lauk á Svalbarða
í gær var samþykkt að setja á fót
sérstakan samstarfshóp til þess að
endurskoða reglur um framsal
sakamanna og manna grunaðra um
alvarleg afbrot, milli Norðurlanda-
ríkjanna og í því sambandi taka til-
lit til þeirrar þróunar sem er að
verða á reglum Evrópusambands-
ríkjanna í þessum málum.
Á fundinum, sem stóð dagana
24.–26. júní, var rætt um ýmis mál
sem efst eru á baugi í einstökum
Norðurlandaríkjum og í samstarfi
þeirra.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra lagði í umræðum áherslu
á aukna aðild Noregs og Íslands í
viðræðum um ýmis mál sem upp
hafa komið í Schengen-samstarf-
inu. Einnig var rætt um vitnavernd
og samvinnu Norðurlandanna á því
sviði. Um er að ræða úrræði sem
auðvelda uppljóstrun á starfsemi
skipulagðra glæpasamtaka með því
að auðvelda vitnum að komast hjá
hefndum þeirra glæpasamtaka sem
þau eiga að vitna gegn.
Dómar fyrir kynferðisafbrot
hafa verið að þyngjast
Þá ræddi Sólveig um kynferð-
islegt ofbeldi gegn börnum og þró-
un refsinga fyrir slík brot og
skýrði frá því að innan íslenska
dómsmálaráðuneytisins væri verið
að skoða refsirammann á því sviði.
Í umræðum kom fram að dómar
fyrir kynferðisafbrot hafa almennt
verið að þyngjast á Norðurlöndum.
Rætt var hvort nægilegt tillit væri
tekið til sálrænna og félagslegra
afleiðinga slíkra brota. Þá var rætt
sérstaklega um ofbeldi gegn kon-
um innan veggja heimilisins og
rætt um framkvæmd nálgunar-
banns sem sérstaks úrræðis í því
sambandi.
Konur neyddar
til hjónabands
Ennfremur var á fundinum
fjallað um vanda, sem komið hefur
upp meðal innflytjenda til Norð-
urlanda og snýr að því að konur
eru neyddar til hjónabands. Höfðu
fundarmenn áhyggjur af þessu
máli og hvöttu til alþjóðlegrar
samvinnu á því sviði, segir í frétt
frá dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu.
Loks var til umræðu á fundinum
skipulag dómstóla og leiðir til þess
að stytta meðferðartíma mála hjá
lögreglu og í dómskerfinu.
Dómsmálaráðherrar Norðurlanda funduðu á Svalbarða
Sérstakur starfshópur
um framsal sakamanna
UNNIÐ hefur verið að því að und-
anförnu að taka niður vinnupalla
sem hafa hulið nýja Barnaspítala
Hringsins við Hringbraut und-
anfarið. Vegfarendur hafa því
fengið að sjá hvernig sjúkrahúsið
lítur út og er nú verið að fullklæða
húsið að utan. Stefnt er að því að
byggingin verði tekin í notkun í
haust. Arkitektar eru þau Sigríð-
ur Magnúsdóttir og Hans-Olav
Andersen hjá Teiknistofunni Tröð.
Nýi barnaspítalinn er alls um
6.800 fermetrar að stærð á fjórum
hæðum, auk kjallara og tæknirým-
is í þaki. Þá er sérstakur fyrir-
lestrasalur áætlaður í garðinum
milli barnaspítalans og núverandi
kvennadeildar. Á spítalanum
verða fjórar legudeildir, dagdeild
og göngudeild.
Spítalinn tekur á sig mynd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SKIPULAGSSTOFNUN hóf í
vikunni athugun á mati á umhverf-
isáhrifum vegna rannsóknarbor-
ana Landsvirkjunar á vestursvæði
við Kröflu í Skútastaðahreppi.
Markmið framkvæmdar Lands-
virkjunar er að afla upplýsinga um
eiginleika jarðhitasvæðis í Kröflu,
til að athuga hvort vinnanlegan
jarðhita sé að finna á vestursvæði.
Í frétt frá Skipulagsstofnun seg-
ir að samkvæmt matsskýrslu telji
Landsvirkjun að framkvæmdin
muni hafa nokkur áhrif á jarð-
myndanir og landslag, en lítil áhrif
á gróður, fugla, grunnvatn, hljóð-
vist, ferðamennsku og útivist. Auk
þess er hún talin munu hafa nokk-
ur sjónræn áhrif.
Þrír áfangar
Samkvæmt matsskýrslu Lands-
virkjunar er gert ráð fyrir að fram-
kvæmdin verði áfangaskipt. Fyrsti
áfangi framkvæmdarinnar felur í
sér 36.200 rúmmetra efnistöku í
námu við Grænagilsjökul sunnan
Kröflustöðvar, lagningu vegslóða
frá Kröfluvegi í Hlíðardal inn á
vestursvæði Kröflu í Leirhnjúks-
hrauni, gerð tveggja borteiga á
vestursvæði, lagningu borvatns-
veitu, borun tveggja rannsóknar-
hola og prófun holanna. Í öðrum og
þriðja áfanga er gert ráð fyrir
stækkun beggja borteiga á vestur-
svæði, 6.600 og 6.800 rúmmetra
efnistöku, borun tveggja rann-
sóknarhola og prófun holanna.
Landsvirkjun sendi skýrsluna til
Skipulagsstofnunar hinn 7. júní og
stofnunin auglýsti hana og hóf at-
hugun á henni 21. júní. Skýrslan
liggur frammi til kynningar til 2.
ágúst næstkomandi á skrifstofu
Skútustaðahrepps, í íþróttahúsi
Skútastaðahrepps og í versluninni
Seli á Skútustöðum. Einnig liggur
hún frammi í Þjóðarbókhlöðunni
og hjá Skipulagsstofnun í Reykja-
vík, auk þess sem hún er tiltæk á
heimasíðu Landsvirkjunar, www.-
landsvirkjun.is.
Allir geta sett fram
athugasemdir
„Allir hafa rétt til að kynna sér
framkvæmdina og leggja fram at-
hugasemdir. Athugasemdir skulu
vera skriflegar og berast eigi síðar
en 2. ágúst 2002 til Skipulagsstofn-
unar, Laugavegi 166, 150 Reykja-
vík. Þar fást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfis-
áhrifum,“ segir í frétt Skipulags-
stofnunar.
Umhverfismat vegna rannsóknar-
borana við Kröflu
Skýrsla Lands-
virkjunar kynnt
ATHUGUN Skipulagsstofnunar á
mati á umhverfisáhrifum vegna vik-
urnáms á Mýrdalssandi, Mýrdals-
hreppi hófst 12. júní, en í tilkynn-
ingu frá stofnuninni segir að
markmið framkvæmdarinnar, sem
unnin er af Kötluvikri ehf, sé tví-
þætt. Í fyrsta lagi sé ætlunin að
nema vikur á Mýrdalssandi sem not-
aður verður í hráefni í verksmiðju til
þenslu og flokkunar vikurs sem
reisa á í Vík í Mýrdal og þar með
nýta áður ónýtta náttúruauðlind,
sem Kötluvikurinn er, til iðnaðar-
framleiðslu. Í öðru lagi sé markmið-
ið að efla mannlíf í héraðinu með því
að skapa á fjórða tug nýrra starfa.
Í tilkynningunni kemur fram að
samkvæmt matsskýrslu sé sótt um
leyfi fyrir allt að 200.000 m³ efn-
isnámi á ári á námusvæði við Haf-
ursey á Mýrdalssandi og magn efn-
istöku hækki í samræmi við aukna
verksmiðjuframleiðslu sem yrði
þrepaskipt frá 6.000 tonnum til
50.000 tonna ársframleiðslu að
nokkrum árum liðnum. Vegalengdin
frá námu að verksmiðju er um17
km, þar af 10 km á gömlum þjóðvegi
upp að Hafursey og þyrfti að styrkja
efra burðarlag þess vegar til þess að
hann yrði hæfur fyrir þungaflutn-
inga.
Í tilkynningunni kemur einnig
fram að framkvæmdaraðili telur að
á heildina litið hafi opnun og rekstur
vikurnámu á Mýrdalssandi óveruleg
umhverfisáhrif í för með sér, þar
sem gróður raskist lítið sem ekkert,
jarðvegur sé lítill og jarðfræði svæð-
isins hafi lítið verndargildi. Ekki er
talin þörf á sértækum mótvægisað-
gerðum vegna vikurnámsins en í
undirbúningi verksins hafi verið tek-
ið mið af gróðurathugunum varð-
andi nánari staðsetningu námu.
Fyrirhuguð framkvæmd fellur
innan tveggja sveitarfélaga; Mýr-
dalshrepps og Skaftárhrepps.
Vikurnám
á Mýrdalssandi
Hefur
óveruleg
umhverfis-
áhrif