Morgunblaðið - 27.06.2002, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 17
Komdu á Landsmót!
Allir bestu hestarnir á einum sta›
Icelandair töltkeppni • Gæ›ingakeppni • Kapprei›ar • Ræktunarbú • Kynbótas‡ningar
Landsmót hestamanna á Vindheimamelum í Skagafir›i 2. - 7. júl í
2002
Stuðmenn • Papar • KK og Magnús • Karlakórinn Heimir • Álftagerðisbræður • Fjöldasöngur • Leikvöllur • Barnapössun • Næg tjaldstæði
EKKERT verður af áformum um
tívolírekstur í Laugardalnum í sum-
ar. Hafa breskir aðilar, sem hugðust
standa að tívolíinu, gert samkomulag
við Jörund Guðmundsson, sem feng-
ið hefur leyfi fyrir tívolíi á Hafnar-
bakkanum í júlí, um að starfa saman
að rekstrinum þar.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá óskuðu bresku aðilarnir
eftir því að reka tívolí við hliðina á
Laugardalshöll á sama tíma og Jör-
undur yrði með tívolírekstur á hafn-
arbakkanum, en hann hefur fengið
leyfi borgaryfirvalda fyrir þeirri
starfsemi. Íþrótta- og tómstundaráð
lýsti sig fylgjandi rekstri tívolísins í
Laugardal en borgarráð óskaði hins
vegar eftir því að framkvæmdastjóri
ÍTR ræddi við málsaðila. Þær við-
ræður hafa farið fram.
Í bréfi framkvæmdastjórans, sem
lagt var fram í borgarráði á þriðju-
dag, segir að náðst hafi samkomulag
milli aðila um að standa saman að
rekstri tívolís á Hafnarbakkanum og
hafi þeir skrifað undir yfirlýsingu
þar að lútandi.
Áður hafði forstöðumaður Hús-
dýragarðsins lýst sig andvígan því að
tívolí yrði sett upp við hlið Laugar-
dalshallar og kemur fram í bréfinu
að Dýraverndunarfélag Reykjavíkur
hafi einnig mótmælt þeirri staðsetn-
ingu tívolís.
Þá segir að taka hefði þurft tillit til
tónleika hljómsveitarinnar Travis
sem fyrirhugaðir eru í Laugardals-
höll 4. júlí, en uppsetning breska tív-
olísins átti að hefjast 2. júlí sam-
kvæmt áætlunum.
Ekkert
tívolí við
Laugar-
dalshöll
í sumar
Laugardalur
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050