Morgunblaðið - 27.06.2002, Page 19

Morgunblaðið - 27.06.2002, Page 19
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 19 FULLTRÚI V-listans í hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps greiddi atkvæði á móti ráðningarsamningi við sveitarstjóra og taldi launin of há. Ráðningarsamningur sem Jón Gunnarsson, oddviti Vatnsleysu- strandarhrepps, gerði við Jóhönnu Reynisdóttur sveitarstjóra, sem búið var að samþykkja að endurráða í starfið, var samþykktur í hrepps- nefnd með atkvæðum fulltrúa H- listans sem hafa hreinan meirihluta. Annar fulltrúi minnihlutans sat hjá en fulltrúi V-listans greiddi atkvæði á móti. Fram kemur í bókun Halldóru Baldursdóttur, fulltrúa V-listans, að hún telur launakjör sveitarstjóra ekki í takt við það sem almennt gerist í sveitarfélögum af sambærilegri stærð og umfangi og ekki í takt við fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Tveir fulltrúar meirihlutans bók- uðu á móti að á fundinum hefði verið lagður fram samanburður á launum sveitarstjóra við aðra bæjar- og sveit- arstjóra á Suðurnesjum og sýndi hann að laun sveitarstjórans í Vogum væru sambærileg eða lægri en í hin- um sveitarfélögunum. Jafnframt tóku þeir fram að launakjör væru þau sömu og í þeim ráðningarsamingi Jó- hönnu sem gilti á síðasta kjörtímabili. Laun nefnda endurskoðuð Samþykkt var að tillögu fulltrúa minnihlutans að farið yrði yfir stjórn- kerfi hreppsins og leitað leiða til að einfalda það og gera skilvirkara og unnið að því að gera það aðgengilegra hreppsbúum með tilliti til réttar þeirra til upplýsinga, þátttöku og sanngjarnrar málsmeðferðar. Einnig að laun nefndarmanna yrðu metin á sambærilegan hátt og laun sveitar- stjóra og í framhaldi af því gerð krafa um skilvirkari vinnu nefndanna. Fulltrúar meirihlutans féllust á þessa tillögu minnihlutans. Gerir athuga- semdir við laun sveit- arstjóra Vatnsleysustrandarhreppur GÖNGUBRÚIN á Haukavörðugjá ofan Stóru-Sandvíkur við veginn út á Reykjanesvita, svokölluð Brú milli heimsálfa, verður tilbúin að mestu um helgina. Hún verður síð- an formlega afhent og vígð að við- stöddum ráðherrum næstkomandi miðvikudag. Flutningaþyrla Bandaríkjahers flutti handrið brú- arinnar á sinn stað í fyrradag og í fyrrakvöld byrjuðu starfsmenn Ís- lenskra aðalverktaka að setja brúna saman og eru nú langt komn- ir með verkið. Ýmis frágangur við brúna og svæðið er þó eftir. Morgunblaðið/Þorkell Göngubrúin sett saman Reykjanes VATNSLEYSUSTRANDAR- HREPPUR mun leita eftir sam- starfi við Reykjanesbæ í barna- verndarmálum en hefur hafnað ósk Gerðahrepps um viðræður um mál- efnið. Sandgerði óskar eftir undan- þágu til að reka eigin barnavernd- arnefnd. Þau nýmæli eru í barnaverndar- lögum sem samþykkt voru fyrr á árinu að minnst 1.500 íbúar þurfa að vera að baki hverri barnaverndar- nefnd. Ráðuneytið hefur vakið at- hygli nýkjörinna sveitarstjórna á breytingunni. Á Suðurnesjum ná Sandgerðisbær, Gerðahreppur og Vatnsleysustrandarhreppur ekki þessari lágmarksstærð og þurfa því að leita samstarfs við önnur sveit- arfélög eða sækja um undanþágu. Barnaverndarnefnd Gerðahrepps mælti með viðræðum við Vatns- leysustrandarhrepp og óskaði sveit- arstjóri eftir þeim með formlegum hætti. Á fundi hreppsnefndar Vatns- leysustrandarhrepps í vikunni var viðræðum hafnað vegna þess að meiri áhugi var á samstarfi við stærra sveitarfélag enda ákvað hreppsnefndin að óska eftir sam- starfi við Reykjanesbæ. Sandgerðingar fara fram á undanþágu Bæjarráð Sandgerðis hefur á hinn bóginn ákveðið að óska eftir undan- þágu frá þessu ákvæði á grundvelli þess að íbúar eru orðnir 1400 og fer fjölgandi og að vel hafi verið staðið að þessum málum í bæjarfélaginu. Hreppsnefndir leita eftir samstarfi um barnavernd Vogar/Garður/Sandgerði Hjólaútsala Fjöldi gíra: 24 • Teg. gíra: Shimano ST-EF33 shift Bremsur: Tektro 833A • Gaffall: RST m/dempara Stell: Y gerð úr áli m/stillanlegum dempurum Fylgihlutir: Glitaugu að aftan, framan og einnig á pedölum, standari og bjalla. ProStyle Jaguar 26" 14.924kr. Verð áður 19.899 kr . Fjöldi gíra: 15 • Teg. gíra: Shimano RD-TY15 grip shift • Bremsur: Tektro 833A • Gaffall: 26" Unicrown Stell: MTB argon • Fylgihlutir: Keðjuhlíf, glitaugu að aftan, framan og einnig á pedölum, gírahlíf. ProStyle Boxer 26" Teg. Verð áður Verð nú ProStyle 12" Dingo 2002 8.899 kr. 6.674 kr. ProStyle 12" Bobcat 2002 12.999 kr. 9.749 kr. ProStyle 12" Girl 2002 12.999 kr. 9.749 kr. ProStyle 16" Fox 2002 9.899 kr. 7.424 kr. ProStyle 16" Lynx 2002 14.999 kr. 11.249 kr. ProStyle 24" Cougar 2002 24.999 kr. 18.749 kr. ProStyle 24" Pallas 2002 24.999 kr. 18.749 kr. ProStyle 26" Oncilla 2002 19.899 kr. 14.924 kr. ProStyle 26" Boxer 2002 19.899 kr. 14.924 kr. ProStyle 26" Puma 2002 29.999 kr. 22.499 kr. ProStyle 26" Jaguar 2002 44.999 kr. 33.749 kr. ProStyle Freestyle 2002 29.999 kr. 22.499 kr. 6.675kr. Verð áður 8.899 kr. Hágæða JD Bug hlaupahjól m/dempara 2.999 kr. Verð áður 9.999 kr. Fjöldi gíra: 1 • Bremsur: Fótbremsa að aftan 1020SF/ og handbremsa að framan • Gaffall: 12" Unicrown CO2 • Stell: H-type • Fylgihlutir: Hjálpardekk, glitaugu að framan og aftan, í gjörðum og pedölum, bretti bæði að framan og aftan, keðjuhlíf. ProStyle Dingo 12" 33.749kr. Verð áður 44.999 kr . Útsalan stendur frá 27. júní –1. júlí. 25% afsláttur af öllum ProStyle-hjól um 70% afsláttur af öllum hlaupahjólum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.