Morgunblaðið - 27.06.2002, Side 28

Morgunblaðið - 27.06.2002, Side 28
áhugamenn frá Ísafirði og víðar um matreiðslu saltfisks munu bera rétti sína á borð. Sýning í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað „Sýningin sem opnuð verður á morgun hér í Tjöruhúsinu er þungamiðjan í þessari afmæl- ishátíð sem við höfum skipulagt,“ segir Jóna Símonía, þegar for- svarsmennirnir setjast niður með blaðamanni. „Með opnun hennar höldum við upp á að 150 ár eru lið- in frá stofnun Ásgeirsverslunar, en hún var stofnuð 26. júní árið 1852, af Ásgeiri Ásgeirssyni og síðar rekin af syni hans, Ásgeiri G. Ásgeirssyni, og tengdasyni hans, Árna Jónssyni.“ Uppistaðan í sýningunni eru veggspjöld með textum og ljós- myndum af helstu atriðum úr sögu Ásgeirsverslunar ásamt frum- skjölum og þeim fáu gripum sem til eru sem tengjast starfsemi hennar. „Það má segja að tímabilið sem Ásgeirsverslun starfaði hér á Ísafirði, 1852-1918, sé rakið hér á sýningunni í einskonar frétta- skotastíl, auk þess sem þar er gerð grein fyrir einstökum atrið- um úr sögu verslunarinnar,“ segir Jón og bætir við að vegna þess hve gríðarlega umfangsmikil saga verslunarinnar er sé einungis hægt að stikla á stóru á sýning- unni. „Auk sýningarinnar í Tjöruhúsi höfum við skipulagt fjórar uppá- komur sem tengjast sögu Ásgeirs- verslunar,“ segir Heimir. „Á föstu- dagskvöld verður sú fyrsta af þeim, en það er saltfiskveisla. Í dagskrá hennar er sjónum fyrst og fremst að beint að stofnanda Ás- geirsverslunar, Ásgeiri Ásgeirs- syni eldri, eða Ásgeiri skipherra eins og hann var oftast kallaður.“ Í saltfiskveislunni munu valdir leikmenn elda sínar útgáfur af ýmsum saltfiskréttum, auk þess sem tónlistarmennirnir Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari, sem bæði eldar og leikur á hljóðfæri og Vilberg Vilbergsson á harmonikku og Páll Torfi Önundason gítarleik- ari munu leika suðræna tónlist. „Saltfiskurinn frá Ásgeirsverslun var náttúrulega mest seldur til Miðjarðarhafslanda. Tónlistin verður því að nokkru leyti í þeim anda,“ segir Heimir. Áframhaldandi hátíðahöld í sumar og haust Seinni hluta júlí verður önnur dagskrá haldin sem liður í hátíða- höldunum. Þá verður eitt kvöld til- einkað öðrum mikilvægum manni úr sögu verslunarinnar, Árna Jónssyni faktor, sem var versl- unarstjóri Ásgeirsverslunar á Ísa- firði. „Hann er mjög áberandi í sögu bæjarins, vegna þess að ólíkt Ásgeirunum tveimur hafði hann ætíð vetursetu hér á Ísafirði. Feðgarnir komu einungis hingað á sumrin, en dvöldu þess á milli í Danmörku, þar sem þeir tryggðu viðskiptasambönd,“ útskýrir Jón. „Dagskránni um Árna verður skeytt saman við svokölluð Sum- arkvöld í Neðstakaupstað, en þau eru haldin á hverjum fimmtudegi í júlímánuði ár hvert. Eitt af þeim verður sem sagt helgað honum í ár og er önnur dagskráin sem við höfum skipulagt í tengslum við sýninguna.“ Um miðjan ágúst verður þriðja uppákoman haldin, en þá er dag- skráin tileinkuð Ásgeiri G. Ás- geirssyni yngri, sem þá á 90 ára dánarafmæli. „Ásgeir yngri var merkilegur maður sem tók við rekstri Ásgeirsverslunar á unga aldri. Hann vann mikið frum- kvöðlastarf hér í bænum og kom meðal annars upp fyrsta símanum milli húsa hérlendis,“ segir Jóna Símonía. Fjórða og síðasta uppá- koman verður haldin í nóvember. „Við tökum sýninguna formlega niður 30. nóvember, sem var síð- asti dagur starfsemi Ásgeirsversl- unar árið 1918,“ segir Heimir. „Þá munum við jafnframt hafa dagskrá um tengsl verslunarinnar við þjóð- frelsisbaráttuna og Jón Sigurðs- son. Ásgeiri eldri og Jóni var vel til vina. Jón hvatti Ásgeir áfram í stofnun verslunarinnar og Ásgeir aðstoðaði Jón síðar fjárhagslega. Það er táknrænt á ákveðinn hátt, að verslunin hætti daginn áður en Ísland varð fullvalda.“ Það er ekkert vafamál að Ás- geirsverslun er mikilvægur hluti af sögu Ísafjarðarbæjar og ís- lensks efnahagslífs, þar sem fyr- irtækið átti eftir að verða stærsta verslunarfyrirtæki Íslands á sín- um tíma. Það gerði út fjölda fiski- skipa af ýmsum stærðum, rak útibú verslunar og fiskmóttöku víða um Vestfirði og flutti út um tíunda hluta alls saltfisks er búinn var til útflutnings á Íslandi, þegar mest var. „Ásgeirarnir tveir, feðg- arnir, voru báðir brautryðjendur á sinn hátt,“ segir Jón. „Hjá Ásgeiri eldri fólst það í því að brjótast út, hann var bóndasonurinn sem braust til auðlegðar og breytti einnig að mörgu leyti starfsemi fiskveiða, til dæmis með sjó- mannafræðslu og vátryggingu báta. Hjá Ásgeiri yngri fólst það hins vegar í því að koma með nýj- ungarnar, eins og dæmið með sím- ann sannar. Hann var líka fyrsti Íslendingurinn sem keypti gufuknúið millilandaskip.“ Vonandi bara upphafið Jóna Símonía bætir við að þau vonist til að sýningin geti orðið upphafið að frekari vinnu með sögu Ásgeirsverslunar. „Ég vona að hægt verði að gera þessum mönnum hærra undir höfði en gert hefur verið hingað til,“ segir hún að síðustu. Sýningin verður opnuð á morg- un, föstudag, kl. 16, en salt- fiskveislan mun hefjast sama kvöld kl. 20. Allir eru velkomnir. Þ OKA hvílir yfir Ísafirði þegar blaðamaður rennir í bæinn. Sólin á þó brátt eftir að láta sjá sig, eins og svo víða annars staðar um land þennan dag, og skína á hin gömlu 18. aldar hús í Neðstakaupstað í Ísafjarð- arbæ. Góða veðrið er vel þegið, því nákvæmlega 150 ár eru liðin frá því að Ásgeirsverslun, stærsta verslunar- og útgerðarfyrirtæki landsins á sínum tíma, var þar stofnuð og eru menn og konur í óðaönn að breiða saltfisk til sól- þurrkunar fyrir utan Turnhúsið, sem nú hýsir sjóminjadeild Byggðasafns Vestfjarða. Fólkið reynist vera forsvars- menn Byggðasafnsis og Héraðs- skjalasafnsins, sem undirbýr sýn- ingu og önnur hátíðahöld í tilefni hinna 150 ára sem liðin eru frá stofnun Ásgeirsverslunar og eru þau Jón Sigurpálsson, for- stöðumaður Byggðasafns Vest- fjarða, Heimir G. Hansson, safn- vörður Byggðasafnsins, og Jóna Símonía Bjarnadóttir, skjalavörð- ur á Héraðsskjalasafninu. Sýn- ingin, sem ber heitið Ásgeirs- verslun – 150 ára minning, er haldin í hinu gamla Tjöruhúsi, sem nú hýsir veitingastað, og verður hún formlega opnuð á morgun. Annaðkvöld fer einnig fram fyrsta uppákoman af fjórum, sem skipu- lagðar eru í tengslum við afmæl- ishátíðina, en þá verður haldin suðræn saltfiskveisla þar sem Minnast starfsemi mikilvægra frumkvöðla Hinn 26. júní árið 1852 hóf Ásgeirsverslun á Ísafirði starfsemi sína, en hún var á sínum tíma stærsta verslunar- og útgerðarfyrir- tæki landsins. Inga María Leifsdóttir flaug vestur til Ísafjarðar og kynnti sér undirbún- ing hátíðahaldanna sem skipulögð eru í tengslum við hin 150 ár sem liðin eru frá stofnun verslunarinnar og hefjast á morgun. Aðstandendur hátíðahaldanna, Jón Sigurpálsson,Heimir G. Hansson og Jóna Símonía Bjarnadóttir. Horft til suðurs yfir fiskreit Ásgeirsverslunar í Neðstakaupstað á Ísa- firði. Myndin er líklega tekin í kringum aldamótin 1900. Stofnandi Ásgeirsverslunar, Ás- geir Ásgeirsson skipherra. ingamaria@mbl.is Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Saltfiskur breiddur út til þerris uppi við Turnhúsið, þar sem hluti af starfsemi Ásgeirsverslunar fór fram. Saltfiskurinn sem eldaður verður í saltfiskveislunni annað kvöld. Áhugamenn um matreiðslu saltfisks munu bera rétti sína á borð. LISTIR 28 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Kíktu inn á bílaland.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.