Morgunblaðið - 27.06.2002, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 29
SÆNSKA djasshljómsveitin Jazzin
Dukes er komin hingað til lands og
mun halda ferna tónleika á Norður-
landi á næstu dögum. Einn af fé-
lögum hljómsveitarinnar er íslenski
kontrabassaleikarinn Hjörleifur
Björnsson, sem ættaður er frá Ak-
ureyri, og hefur leikið með hljóm-
sveitinni frá stofnun hennar. Mun
hljómsveitin halda sína fyrstu tón-
leika í Deiglunni á Akureyri í
kvöld, á svokölluðum Heitum
fimmtudegi, sem eru orðnir þekktir
í djasslífi landans fyrir metn-
aðarfulla tónleika íslenskra og er-
lendra flytjenda.
Hljómsveitina skipa ásamt Hjör-
leifi, eða Hödda, eins og hann er
jafnan nefndur, þeir Ronny Far-
sund á trompet og flygelhorn, Rune
Falk á klarinett og tenór- eða barí-
tónsaxófón, Christer Langborn á
gítar, Rolf Leidestad á píanó, og
Erling Torkelsson á básúnu. Allir
meðlimir hljómsveitarinnar eru
þekktir úr sænsku djasslífi og hafa
öðlast þar mikla reynslu og við-
urkenningu.
Kirkjulegur
Ellington-djass
Jazzin Dukes var stofnuð árið
1994 og hefur fengið lofsamlega
dóma gagnrýnenda í blöðum fyrir
fjölbreyttan flutningsmáta. Fjöl-
breytnin felst í því, að sveitin leikur
djass jöfnum höndum á veit-
ingastöðum, á tónleikum og við
guðsþjónustur í kirkjum. Erling
Torkelsson, básúnuleikari og jafn-
framt stofnandi Jazzin Dukes, er
starfandi prestur og hefur hann
leitast við að gera djass að þætti í
guðsþjónustum, bæði í Svíþjóð sem
og í öðrum löndum sem hljóm-
sveitin hefur heimsótt. Norðlend-
ingum gefst tækifæri til að reyna
það, þar sem Jazzin Dukes munu
leika við guðsþjónustu í Akureyr-
arkirkju á sunnudag. Útsetningar á
sálmalögum skipa veglegan sess í
fastri efnisskrá hljómsveitarinnar,
en eins og nafn hljómsveitarinnar
ber með sér er Duke Ellington einn
helsti áhrifavaldurinn í tónlist
þeirra.
Jazzin Dukes hafa einnig lagt
áherslu á að vinna með kórum á
þeim stöðum sem þeir heimsækja,
og syngja þá kórarnir með á tón-
leikum og messum í heimabyggð
sinni. Þannig verður því einnig far-
ið hér, þar sem félagar úr kór Dal-
víkurkirkju munu syngja við tón-
leika sveitarinnar í kirkjum
Norðurlands, sem Hlín Torfadóttir
hefur æft og stjórnað, og félagar úr
kór Neskirkju, sem Reynir Jón-
asson stjórnar, munu taka þátt í
tónleikum Jazzin Dukes í Neskirkju
í Reykjavík.
Dagskrá Jazzin Dukes á Íslandi
er á þessa leið:
Í kvöld kl. 21.30: Deiglan á Ak-
ureyri
Föstudagur kl. 20.30: Dalvík-
urkirkja
Laugardagur kl. 20.30: Húsavík-
urkirkja
Sunnudagur kl. 11: Guðsþjónusta
í Akureyrarkirkju
Sunnudagur kl. 17: Akureyr-
arkirkja
Þriðjudagur kl. 20: Neskirkja.
Kirkjulegur Ellington-
djass leikinn nyrðra
Sænska djasshljómsveitin Jazzin Dukes.
ÚT ER komin bókin Dulin veröld –
smádýr á Íslandi eftir Guðmund
Halldórsson skordýrafræðing, Er-
ling Ólafsson dýrafræðing og Odd
Sigurðsson jarðfræðing. Bókin er
gefin út af Mál og mynd í samvinnu
við Orkuveitu Reykjavíkur.
Í bókinni birtist í fyrsta sinn heild-
stætt yfirlit yfir helstu smádýr í ís-
lenskri náttúru. Í stuttum og grein-
argóðum texta er fjallað um hvert
dýr og gerð grein fyrir lífsferli þess,
en alls er fjallað um á annað hundrað
smádýr í bókinni.
Dulin veröld – smádýr á Íslandi
var kynnt fjölmiðlum í Minjasafni
Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdal
á þriðjudag. Guðjón Magnússon,
skrifstofustjóri hjá Orkuveitunni,
óskaði höfundum og útgefendum til
hamingju og þakkaði samstarfið,
sem byggðist ekki síst á tenglsum
fyrirtækisins við náttúrulíf og það
umhverfi sem gert er sýnilegt í bók-
inni. Þá þökkuðu höfundar bókarinn-
ar Orkuveitu Reykjavíkur stuðning
við útgáfuna, sem hefði gert þetta
metnaðarfulla verkefni að veruleika.
Bókin Dulin veröld – Smádýr á Ís-
landi er sviðsett í Elliðaárdal. Kaflar
bókarinnar eru sniðnir að ólíkum
sviðum í náttúrunni og smádýralífi á
hverju svæði lýst. Kaflarnir fjalla um
smádýralíf við ár, í skóglendi, við
bæi, á vallendi og túnum, í úthögum
og votlendi. Þá er í bókinni fjallað
um flokkun og söfnun smádýra, auk
tegunda- og heimildaskrár.
Höfundar texta bókarinnar, þeir
Guðmundur Halldórsson, skordýra-
fræðingur hjá Skógrækt ríksins á
Mógilsá, og Erling Ólafsson, dýra-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofnun,
hafa báðir fengist við rannsóknir á
smádýralífi Íslands um áratuga
skeið. Báðir hafa þeir ritað fjölda
greina um sitt fag í innlend og erlend
vísindarit, auk blaða og tímarita.
Höfundur mynda, Oddur Sigurðs-
son, er jarðfræðingur og hefur starf-
að á Orkustofnun um árabil. Ljós-
myndun hefur lengi verið eitt af hans
áhugamálum og undanfarna tvo ára-
tugi hefur hann tekið hundruð, ef
ekki þúsundir, mynda af íslenskum
skordýrum og skyldum smádýrum.
Morgunblaðið/Golli
Útgefendur og höfundar bókarinnar Dulin veröld.
Nýtt rit um smádýr
í íslenskri náttúru