Morgunblaðið - 27.06.2002, Qupperneq 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Björn
RE, Fridtjof Nansen og
farþegaskipin Maxim
Gorkiy og Black Watch.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er Radvila vænt-
anlegt og út fer Ozher-
elye.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
13 vinnustofa og kl. 10
boccia. Miðvikudaginn 3.
júlí verður farið í heim-
sókn að Sólheimum í
Grímsnesi. Lagt af stað
frá Aflagranda 40 kl. 13.
Skráning í afgreiðslu og
í síma 562 2571. Haf-
kaup Skeifunni. Farið
frá Aflagranda 40 kl. 10.
Skráning í afgreiðslu og
í síma 562 2571.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, handa-
vinnustofan opin, bók-
band og öskjugerð, kl. 9
almenn leikfimi, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
11 boccia, kl. 13–16.30
smíðastofan og handa-
vinnustofan opin. Kl.
13.30 gönguhópur,
lengri ganga. Bingó er 2.
og 4. hvern föstudag.
Púttvöllurinn er opinn
kl. 10–16 alla daga. Allar
upplýsingar í s.
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 14–15
dans. Skoðunarferð um
Þingvöll fimmtudaginn
11. júlí. Lagt af stað frá
Bólstaðarhlíð kl. 13.
Kaffihlaðborð á Valhöll.
Vinsamlega greiðið ferð-
ina í síðasta lagi fyrir
hádegi þriðjudaginn 9.
júlí. Uppl. og skráning í
síma 568 5052.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Suð-
urnesjaferð. Fimmtu-
daginn 4. júlí verður far-
ið um norðanverðan
Reykjanesskaga, Voga,
Garð og Sandgerði. Söfn
og sögustaðir skoðaðir
með leiðsögumanni.
Farið frá Gjábakka kl.
13.15 og Gullsmára kl.
13.30. Nánar auglýst
síðar. Munið fé-
lagsskírteinin. Ferða-
nefndin.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við bað, kl. 9–16.45 er
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9–13 er handa-
vinnustofan opin, kl.
14.30 söngstund.
Félagsstarfið Lönguhlíð
3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaað-
gerð, kl. 10 hársnyrting,
kl. 11 leikfimi, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Sundleikfimin
hjá Lovísu í Sundlaug
Garðabæjar byrjar 25.
júní kl. 16 og verður á
þriðjud. og fimmtud í
þrjár vikur. Allir
velkomnir.
Golfnámskeiðið hjá
Sturlu verður á þriðjud.
og miðvikud. kl. 13
næstu þrjár vikur í GKG
í Vetrarmýrinni.
Fótaaðgerðarstofa:
Tímapantanir eftir sam-
komulagi, s. 899 4223.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag
bingó kl. 13.30. Á morg-
un, föstudag, brids og
frjáls spilamennska kl.
13.30. Pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Or-
lofsferð að Hrafnagili
við Eyjafjörð 19.–23.
ágúst, fjórar nætur.
Skoðunarferðir til Húsa-
víkur, Mývatns, Dalvík-
ur, Ólafsfjarðar og
Siglufjarðar. Skráning
og allar upplýsingar í
Hraunseli í síma
555 0142.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði í
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Kaffi – blöðin
og matur í hádegi.
Fimmtud.: Brids kl. 13.
Þórsmörk – Langidalur
4. júlí, kaffihlaðborð á
Hvolsvelli. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir.
Sala farmiða hafin.
Hálendisferð 8.–14. júlí,
sjö dagar. Ekið norður
Sprengisandsleið, fjöl-
margir áhugaverðir
staðir skoðaðir, t.d.
Herðubreiðarlindir,
Askja, Mývatn o.fl. Ekið
suður um um Kjöl. Leið-
sögn Sigurður Krist-
insson.
Ferð í Galtalæk á úti-
tónleika 14. júlí nk. með
Álftagerðisbræðrum og
Diddú. Örn Árna og
Karl Ágúst slá á létta
strengi. Lagt af stað kl.
15 frá Glæsibæ. Nánari
upplýsingar á skrifstof-
unni.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 f.h. í síma 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði í
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
er opin vinnustofa, m.a.
glerskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9–16
bað, kl. 10 leikfimi, kl. 14
myndlistarsýning.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag kl. 10.30 er helgi-
stund, umsjón Lilja G.
Hallgrímsdóttir, djákni í
Fella- og Hólakirkju.
Eftir hádegi er ferð um
Suðurnes. Mæting í
Gerðubergi kl. 12.30.
Lokað vegna sumarleyfa
mánudaginn 1. júlí. Opn-
að aftur þriðjudaginn
13. ágúst. Upplýsingar
um starfsemina á staðn-
um og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin.
Vegna forfalla eru fjög-
ur sæti laus í ferð um
Vestfirði 15.–19. júlí.
Þeir sem ekki hafa stað-
fest nú þegar eru beðnir
að gera það sem fyrst.
Uppl. í síma 554 3400.
Hraunbær 105. Kl. 9 er
opin vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 10
boccia, kl. 11 leikfimi, kl.
14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
bað, kl. 10 boccia, kl. 13
handavinna, kl. 14 fé-
lagsvist. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9 tré-
skurður og opin vinnu-
stofa, kl. 10–11 ganga,
kl. 10–15 leirmuna-
námskeið. Allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 aðstoð við
bað, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 10
boccia.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 morgunstund og
handmennt, kl. 10 leik-
fimi, boccia kl. 10.45, kl.
13 brids, frjálst.
Gjábakki. Kl. 20–21
gömlu dansarnir, kl. 21–
22 línudans.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum. Fjögurra
daga ferð verður farin á
Vestfirðina 22., 23., 24.
og 25. júlí. Vinsamlegast
látið vita fyrir 10. júlí.
Ferðanefndin. Nánar
auglýst í Suðurnesja-
fréttum.
Ný samtök áhugafólks
um byggðamál. Dagana
29.–30. júní hefur stjórn
hinna nýju samtaka
áhugafólks um byggða-
mál – Landsbyggðin lifi
(LBL) – skipulagt sam-
norræna ráðstefnu um
byggðamál í Hrísey í
Eyjafirði. Ráðstefnan,
sem jafnframt er fyrsti
aðalfundur LBL, hefst
kl. 10 hinn 29. júní. Ráð-
stefnunni lýkur kl. 13
hinn 30. júní með pall-
borðsumræðum þar sem
fulltrúar frá stjórn-
málaflokkunum sitja
fyrir svörum. Ráð-
stefnan er opin öllu
áhugafólki. Stjórn
Landsbyggðin lifi.
Húnvetningafélagið í
Reykjavík heldur hátíð-
legt 50 ára skógrækt-
arafmæli í Þórdísarlundi
í Vatnsdal, laugardaginn
29. júní kl. 14. Fjöl-
breytt dagskrá í tali og
tónum og óvæntar uppá-
komur. Veitingasala í
hléi. Allir velkomnir.
Minningarkort
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingadeildar Land-
spítalans í Kópavogi
(fyrrverandi Kópavogs-
hæli), síma 560 2700 og á
skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551 5941, gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565 5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560 1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16.
Utan dagvinnutíma er
tekið á móti minningar-
gjöfum á deild 11-E í
síma 560 1225.
Í dag er fimmtudagurinn 27. júní,
178. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
En marga hafði hann læknað, og því
þustu að honum allir þeir, sem ein-
hver mein höfðu, til að snerta hann.
(Mark. 3, 10.)
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI ekur næstum daglegaum Hringbrautina og hefur
hann því getað fylgst vel með fram-
kvæmdum við nýbyggingu Barna-
spítala Hringsins. Fram til þessa hef-
ur byggingin að mestu verið hulin
vinnupöllum og því illa hægt að gera
sér grein fyrir útliti hennar. Nú eru
vinnupallarnir óðum að hverfa og um
leið kemur spítalinn í ljós. Að mati
Víkverja hefur arkitektum spítalans
tekist afar vel til. Húsið er mjög fal-
legt og þrátt fyrir stærðina fellur það
ágætlega að umhverfi sínu. Er
ástæða til að hrósa arkitektunum fyr-
ir vel unnið verk.
x x x
ÁKVEÐIN útvarpsauglýsing hef-ur farið talsvert í taugarnar á
Víkverja síðustu daga. Auglýsingin
er leiklesin af kvenmanni sem virðist
vera meira en lítið bitur út í fyrrum
eiginmann sinn eða sambýlismann. Í
stuttu máli gengur auglýsingin út á
það að konan rifjar upp hversu mikið
húsgögnin í íbúðinni minntu á hann
og þeirra samvistir en hún þurfi ekki
að hafa áhyggjur af því lengur því
hún fór bara með allt saman til Góða
hirðsins og nú sé ekkert sem minni
lengur á hann í íbúðinni. Fyrir þá
sem ekki vita þá er Góði hirðirinn lítið
fyrirtæki sem byggir starfsemi sína á
því að gera upp gömul húsgögn, raf-
tæki o.fl. og selur fyrir sanngjarnt
verð. Á gámastöðvum Sorpu eru
gámar merktir Góða hirðinum og þar
getur fólk losað við ýmsa muni sem
enn eru nýtilegir. Verði hagnaður af
starfsmenni rennur hann allur til
líknarfélaga. Augljóslega hið besta
mál. Fyrrnefnd auglýsing er það á
hinn bóginn ekki og satt að segja skil-
ur Víkverji ekki hvað vakir fyrir Góða
hirðinum. Hafi þetta átt að vera fynd-
ið hefur tekist hrapallega til en Vík-
verja finnst tónninn í auglýsingunni
vera ákaflega neikvæður, sérstaklega
í garð karlmanna. Varla er slík aug-
lýsing til þess fallin að auka viðskipt-
in en Víkverji leyfir sér að fullyrða að
meirihluti þeirra sem koma á gáma-
stöðvar Sorpu séu einmitt karlmenn.
x x x
ÞETTA er reyndar alls ekki einadæmið um auglýsingar þar sem
Víkverja finnst lítið gert úr tæplega
helmingi landsmanna. Má t.d. nefna
sjónvarpsauglýsingu um Heimilislínu
Búnaðarbankans þar sem kona ýtir
karlmanni fram úr rúminu meðan
spilaður er lagstúfur með textanum:
„Láttu þér líða vel.“ Varla er þar átt
við karlinn sem er dottinn fram úr!
Hvaða skilaboðum er verið að koma á
framfæri? Á þeim heimilum sem aug-
lýsingin á að ná til, eru væntanlega
bæði karlar og konur en skv. auglýs-
ingunni líður bara konum vel í Heim-
ilisþjónustu Búnaðarbankans. Karl-
arnir fá að dúsa á köldu gólfinu. Þessi
auglýsing höfðaði aldeilis ekki til Vík-
verja enda er hann karlmaður eins og
flestir hafa væntanlega ráðið af skrif-
unum.
Víkverji hefur ekki gert vísinda-
lega könnun á þróun auglýsinga en
honum finnst sem auglýsingum þar
sem karlmenn eru látnir vera kjána-
legir, klaufalegir, leiðinlegir, vitlausir
eða þaðan af verra hafi fjölgað upp á
síðkastið. Sé það rétt er þetta óheilla-
þróun sem þarf að snúa við.
Rétt er þó að taka fram að auðvitað
má gera grín að karlmönnum og
margar auglýsingar sem ganga út á
það eru meinfyndnar, sbr. „Við tipp-
um“ frá Íslenskri getspá.
SONUR minn er að bera út
Fréttablaðið og hefur gert
það síðan í haust er leið.
Oft hefur það dregist að
hann fái launin útborguð, í
síðasta mánuði fékk hann
útborgað þann 15. maí og þá
vorum við hjónin bæði búin
að hringja og fara á skrif-
stofuna hjá Fréttablaðinu
og loksins fékk hann greitt.
Nú þann 22. júní er hann
ekki enn búinn að fá útborg-
að fyrir maímánuð.
Það hefur oft brunnið við
að erfitt er að ná í fjármála-
stjórann hjá Fréttablaðinu.
Við höfum ótal sinnum
hringt og beðið um skila-
boð, meira að segja mætt í
eigin persónu og límt sjálf
skilaboð á hurðina hjá hon-
um en hann hringir ekki til
baka.
Þegar sonur okkar fór
sjálfur niður eftir fékk hann
þau svör að það ætti að
reyna að borga út fyrir
þjóðhátíðardaginn þann 17.
júní, en það stóðst ekki. Þá
átti að borga út strax dag-
inn eftir en það gerðist ekki
heldur, og við erum orðin
þreytt á því að þurfa að
ganga á eftir jafn sjálfsögð-
um hlut og launum fyrir
unnin störf.
Nú hef ég tekið eftir að
fólk er að skrifa og kvarta
undan því að fá ekki blaðið,
ég skil það vel því maður er
orðinn vanur því að fá
Fréttablaðið, en ég vil
hvetja fólk til að skoða það
að yfirleitt eru ástæður fyr-
ir því að blaðið berst ekki,
til dæmis veikindi og að það
er lítið um afleysingarfólk,
nema fjölskylda blaðburð-
arbarnsins/persónunnar
taki það að sér. Sömuleiðis
er með sumarfrí. Launa-
seðlar berast ekki, höfum
aðeins fengið 1 stykki síðan
í október í fyrra.
Það tilkynnist hér með
þeim er málið varðar að
Fréttablaðið verður ekki
borið út af syni mínum né
neinum úr mínu heimilis-
haldi fyrr en laun hafa verið
greidd út, og vona ég að
fólkið í Vesturbænum verði
ekki fyrir of miklum óþæg-
indum.
Ég skora á blaðburðar-
fólk Fréttablaðsins að
knýja á um rétt sinn og bera
ekki út fyrr en launin fyrir
maí hafa verið greidd út !
Er enginn sem verka-
lýðsréttindi þessa fólks/
barna heyrir undir ?
Hvernig stendur á því að
þetta viðgengst í íslensku
þjóðfélagi að réttindi þeirra
sem minnst mega sín eru
fótum troðin ?
Mér finnst að þeir sem
telja sér málið skylt, og þeir
sem eiga að sjá um réttindi
barna, eigi að kynna sér
þetta.
Ein úr Vesturbænum.
Tapað/fundið
Svart seðlaveski
týndist
SVART seðlaveski, tau-
veski, týndist sl. föstudag í
nágrenni Baby Sam í Skeif-
unni. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 551 4001
eða 860 2992.
Rautt veski týndist
RAUTT veski með svörtum
útlínum og Coca Cola-
merkinu týndist við strætó-
skýlið við Þingás. Í veskinu
eru strætómiðar fyrir ung-
menni. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 568 6657,
899 6657 eða 848 3199.
Dýrahald
Páfagaukur
í óskilum
PÁFAGAUKUR, grár og
stór, fannst í Grafarvogi
laugardaginn 15. júní sl.
Upplýsingar í síma
567 1642.
Kettlingar fást gefins
KETTLINGAR, fallegir og
kassavanir, fást gefins.
Uppl. í síma 587 22957.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Réttindi
fótum troðin
Frá afmæli leikskólans Seljaborg.
Morgunblaðið/Einar Falur
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 ræfilslegt, 8 endar, 9
spjald, 10 þegar, 11 virki,
13 skynfærin, 15 hafa í
hávegum, 18 mjög gott,
21 gagn, 22 rengla, 23
landspildu, 24 mikill þjóf-
ur.
LÓÐRÉTT:
2 rækta, 3 málms, 4
ganga hægt, 5 tigin, 6
ókjör, 7 þráður, 12 tangi,
14 ótta, 15 veiti húsa-
skjól, 16 fisks, 17 lyktum,
18 spilið, 19 eðlinu, 20
fréttastofa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: - 1 stolt, 4 þylur, 7 offur, 8 rjúpu, 9 táp, 11 tonn,
13 ótta, 14 óláns, 15 falt, 17 auka, 20 ata, 22 ræpan, 23
gabba, 24 reisa, 25 arðan.
Lóðrétt: - 1 skolt, 2 orfin, 3 tært, 4 þorp, 5 ljúft, 6 rausa,
10 áfátt, 12 nót, 13 ósa, 15 firar, 16 Lappi, 18 umboð, 19
asann, 20 anga, 21 agga.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16