Morgunblaðið - 27.06.2002, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 27.06.2002, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 55 DAGBÓK Stökktu til Costa del Sol 10. júlí frá kr. 39.865 Verð kr. 49.950 M.v. 2 í íbúð, 10. júlí, vikuferð. Flug og gisting, skattar. Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.450. Verð kr. 49.865 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára. Flug, gisting, skattar, 10. júlí, 2 vikur. Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.360. Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol þann 10. júlí í eina eða tvær vikur. Hér getur þú notið hins besta í sumarfríinu á þessum einstaka áfangastað. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin, og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Síðustu sætin Verð kr. 39.865 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára. Flug, gisting, skattar, 10. júlí, vikuferð. Staðgreitt. Alm. verð kr. 41.860. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is FIMMTUDAGSTILBOÐ KVENSANDALAR Suðurlandsbraut Sími 533 3109 Opið mán.-fös. kl. 12-18 laugardaga kl. 10-16 Teg. SAB6236 Litur: Svartur Stærðir: 37-41 Verð áður: 4.995 Verð nú 1.995 STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake KRABBI Afmælisbörn dagsins: Allt frá barnæsku hefurðu fundið fyrir þörf að hjálpa öðrum. Þrátt fyrir blíðlega framkomu ertu metn- aðargjarn, ákveðinn og sannfærandi. Þú stendur sí- fellt vörð um heimili þitt og fjölskyldu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Skapandi og listræn vinna heppnast vel hjá þér í dag. Notaðu hvert tækifæri til að tjá þig í orðum, tónlist eða hreyfingu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú vilt láta umhverfi þitt verða meira aðlaðandi. Endi- lega láttu verða af því þrátt fyrir að þú getir ekki eytt miklu fé í endurbætur. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Við notum sjaldnast tækifær- ið til að tjá okkur við fólk er við hittum á förnum vegi. Láttu aðra vita að þér þyki vænt um þá. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þig langar að kaupa eitthvað sem getur breytt ímynd þinni. Farðu eftir hugboðinu því sterkari sjálfsmynd hjálp- ar þér á öllum sviðum lífsins. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Samband sem hefst í dag verður líklega mjög tilfinn- ingaþrungið. Þú dregst að einhverjum á allt að því yf- irnáttúrulegan hátt. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Gerðu líf þitt auðveldara með því að taka tíu hluti úr lyfja- eða eldhússkápnum og henda þeim. Þú verður hissa á hverju þú áorkar með þess- um hætti. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þér finnst vináttubönd yfir- leitt sjálfsögð. Í dag gerist hins vegar eitthvað sérstakt og þú verður þakklátur fyrir að eiga góðan vin að. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Reyndu að sjá heiminn í já- kvæðara ljósi og láttu þér líða vel. Þú gætir verið beðinn um að aðstoða við einhvers konar listræn störf í dag. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Fegurðarskyn þitt er í há- marki í dag. Reyndu því að heimsækja safn, listasýning- ar, almenningsgarð eða ann- an stað er hreyft gæti við þér. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú býrð yfir mikilli kynferð- islegri orku í dag. Sambönd og leynileg ástarsambönd sem þróast nú verða minnis- stæð og eiga eftir að hafa mikil áhrif. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn kann að meta vináttubönd. Í dag á vinur eftir að gera eitthvað fyrir þig sem lætur þér finnast þú skuldbundinn honum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Einhver í vinnunni hefur góða hugmynd varðandi betr- umbætur. Ekki útiloka hug- myndina heldur veltu henni fyrir þér með opnum huga. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Í GÆR sáum við dæmi um útspilsdobl á þremur gröndum þar sem doblið var beiðni til makkers um að spila út í lit blinds. Þessi regla Lightners um slemmudobl er auðveld- lega yfirfæranleg á dobl á þremur gröndum. En þar með er samsvör- uninni lokið, því dobl á þremur gröndum til út- spils lýtur almennt öðrum lögmálum. Oft ganga sagnir ein- faldlega eitt grand–þrjú grönd og þá hefur enginn litur verið nefndur til sög- unnar. Um hvaða útspil biður doblið þá? Suður gefur; AV á hættu. Norður ♠ 105 ♥ D7 ♦ Á10852 ♣K1096 Vestur Austur ♠ 32 ♠ KDG984 ♥ G9653 ♥ Á2 ♦ DG6 ♦ 43 ♣G84 ♣732 Suður ♠ Á76 ♥ K1084 ♦ K97 ♣ÁD5 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 grand Pass 3 grönd Dobl Pass Pass Pass Þetta er enn eitt dæmið úr bók Lawrence. Sam- kvæmt hans fræðum biður dobl austurs í þessari stöðu um útspil í stysta lit makkers. Sem er ekki mjög útbreidd regla, en virkar augljóslega vel í þessu spili. Sú regla sem flestir fylgja eftir slíkar sagnir er sú að makker eigi að koma út í styttri hálit. Hún svín- virkar hér líka. Samkvæmt þriðja skól- anum biður dobl eftir þess- ar sagnir um einhvern til- tekinn lit út. Í sjálfu sér skiptir litlu máli hvað lit menn velja til viðmiðunar – aðalatriðið er það að makker viti fyrir víst til hvers er ætlast. Þeir sem fylgja þessari reglu (eins og dálkahöf- undur gerir til dæmis) vilja ekki þurfa að bíða í svitabaði eftir útspilinu á meðan makker klórar sér í hausnum. Árnað heilla 80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 27. júní, er áttræð Anna Stein- unn Jónsdóttir, Þangbakka 8, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Halldór Guð- mundsson pípulagninga- meistari. 50 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn 28. júní, er fimmtugur Stef- án Hermanns, blómasali, Álfaskeiði 64 d3, Hafnar- firði. Hann býður vinum og velunnurum að gleðjast með sér í tilefni tímamótanna í Fjörukránni í Hafnarfirði milli kl. 17 og 20 að kvöldi föstudags 28. júní. Vinir Stefáns hafa stofnað ferða- sjóð í hans nafni og þeir sem vilja gleðja Stefán á afmæl- isdaginn geta lagt inn á reikning: 301-13-850233. Hlutavelta Þessir duglegu drengir söfnuðu 1.370 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þeir heita Jón Andri Guðmunds- son og Helgi Freyr Ásgeirsson. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. Rge2 Rc6 5. a3 Ba5 6. Be3 Rge7 7. e5 0-0 8. Rg3 f6 9. f4 fxe5 10. fxe5 Bd7 11. Dg4 Rf5 12. Rxf5 exf5 13. Df3 Be6 14. Bb5 Bxc3+ 15. bxc3 f4 16. Bf2 Dd7 17. 0-0 Staðan kom upp á Sigeman-mótinu sem lauk fyrir skemmstu í Málmey í Svíþjóð. Nigel Short (2.673) hafði svart gegn Emanuel Berg (2.514). 17. ...Rxd4! 18. cxd4 Dxb5 19. Hab1 Dc6 20. Db3 b6 21. Db5 Dxb5 22. Hxb5 h6 23. Be1 g5 24. Bd2 Kg7 25. Hb3 c5 26. h4 cxd4 27. hxg5 hxg5 28. g3 Hac8 29. gxf4 g4 30. Hd3 Hc4 31. Bb4 Hf7 32. Hf2 Kg6 33. Bd6 Kf5 34. Kg2 Hh7 35. Hfd2 Kxf4 36. Hxd4+ Hxd4 37. Hxd4+ Ke3 38. Hd3+ Ke4 39. a4 d4 40. a5 bxa5 41. Ha3 Hb7 42. Hxa5 Hb2 43. Kg3 Hxc2 44. Hxa7 Hc3+ 45. Kg2 d3 46. Ha1 d2 47. Hd1 Kd3 48. Bb4 Ke2 49. Hf1 Bd5+ og hvítur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 18. maí sl. af sr. Pálma Matthíassyni í Bú- staðakirkju Elín Þórðar- dóttir og Albert Jónsson. Ljósmyndaverið Skugginn STJÓRN Sambands ungra sjálf- stæðismanna samþykkti á síðasta fundi meðfylgjandi ályktun um sölu ríkisins á fimmtungshlut í Lands- bankanum: „Stjórn Sambands ungra sjálf- stæðismanna fagnar sölu ríkisins á fimmtungshlut í Landsbankanum. Með sölunni minnka tök ríkisins í viðskiptalífinu enn frekar. Sem kunnugt er gekk salan vel fyrir sig og seldust öll bréf á um stundar- fjórðungi. Samband ungra sjálfstæðismanna hvetur stjórnvöld til þess að halda tafarlaust áfram á sömu braut. Þannig hvetur SUS til þess að eign- arhlutur ríkisins í Búnaðarbankan- um verði seldur, sölu Landsbankans lokið og að haldið verði áfram þar sem frá var horfið við sölu Lands- símans. Sambandið leggur þunga áherslu á að þessi framfaraspor verði stigin fyrir lok yfirstandandi kjörtímabils. Í framhaldi ætti ríkisstjórnin að huga að einkavæðingu í orkugeiran- um og sölu Landsvirkjunar.“ SUS fagnar einkavæð- ingu Landsbankans FRÉTTIR LJÓÐABROT SÓLSKRÍKJAN Sú rödd var svo fögur, svo hugljúf og hrein, sem hljómaði til mín úr dálitlum runni. Hún sat þar um nætur og söng þar á grein svo sólfögur ljóð um svo margt, sem ég unni, og kvöld eftir kvöld hóf hún ástarljóð ein. – Ó, ef að þú vissir, hvað mikið hún kunni. Hún kvað um sitt fjölbreytta fjalldala skraut, hve frítt er og rólegt að eiga þar heima, hve mjúkt er í júní í ljósgrænni laut, hve létt þar er vetrarins hörmum að gleyma og hvað þá er indælt við ættjarðarskaut um ástir og vonir að syngja og dreyma. – – – Þorsteinn Erlingsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.