Morgunblaðið - 28.06.2002, Page 8

Morgunblaðið - 28.06.2002, Page 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Gildi næringar í forvörnum gegn sykursýki Kúamjólk og kjörþyngd SYKURSÝKI er al-varlegur sjúkdómursem sífellt hrjáir fleiri. Rannsóknir á sviði sykursýki eru gagnlegar í baráttunni við sjúkdóm- inn, og hinn 15. júní síðast- liðinn varði Bryndís Eva Birgisdóttir doktorsverk- efni sitt um gildi næringar í forvörnum gegn sykur- sýki. Segðu okkur frá efni doktorsverkefnisins. „Ég rannsakaði tengsl næringarfræðilegra þátta við báðar gerðir sykursýki, gerð 1 – sem oft er kölluð barnasykursýki, og gerð 2 – fullorðinssykursýki eða áunna sykursýki. Nýgengi og algengi þessara sjúk- dóma hefur aukist mjög hratt undanfarin ár í heiminum og er greinilegt að umhverfisþættir skipta verulegu máli varðandi þró- un sykursýkinnar. Hverjir þessir umhverfisþættir eru er að mörgu leyti enn óljóst, sérstaklega varð- andi gerð 1 af sykursýki, og þess vegna felst viss áskorun í þessum rannsóknum sem stundaðar eru á sviði sykursýki við að finna teng- ingu við umhverfi eða næringu.“ Hefur sykursýkistilfellum fjölg- að á Íslandi? „Nei, nýgengi gerðar 1 og al- gengi gerðar 2 af sykursýki er lægra hérlendis en á hinum Norð- urlöndunum. Í Svíþjóð og Finn- landi hefur tilfellum af gerð 1 fjölgað gríðarlega, en Noregur og Danmörk hafa færri tilfelli. Þann- ig má sjá mun milli landa, og þar með tengja sjúkdóminn við um- hverfið og mataræði þjóðanna.“ Hvað rannsakaðir þú í sam- bandi við barnasykursýki? „Í tengslum við gerð 1 af sykur- sýki rannsökuðum við kúamjólk. Hvati rannsóknarinnar var m.a. sá, að víða um lönd hafa fundist tengsl milli kúamjólkurneyslu og sykursýki af gerð 1, en þessi tengsl fundust ekki hér á landi. Mjólkin hlaut að vera mismun- andi, og kom það á daginn. Það er lægra magn af ákveðnum prótín- um, sem hafa verið talin hugsan- legir sykursýkisvaldar, í íslensku mjólkinni en í mjólk frá hinum Norðurlöndunum.“ Er íslenska kýrin einstök? „Já, hún er að sjálfsögðu mjög einangruð hér á landi á meðan kynbætur með öðrum kynjum hafa verið stundaðar erlendis sem hafa breytt samsetningunni. Samt sem áður verður að hafa í huga að mjólkin ein er ekki forsenda syk- ursýkinnar, og þarf mun meiri rannsóknir áður en þetta verður vopn í höndum vina íslensku kýr- innar.“ Eru bein tengsl á milli prótíns- ins og sykursýki? „Nei, en líklegt er að prótínið, eða efni fylgjandi því, tengist syk- ursýkinni á einhvern hátt. Þar er þörf meiri rannsókna og að skoða fleiri þætti. Að svo stöddu er ótímabært að draga of miklar ályktanir um mjólkina. Mjög líklegt er að nokkrir þættir spili saman, og aðstæð- ur hér heima eru kjörn- ar til frekari rannsókna vegna ís- lensku kýrinnar.“ En hvað með fullorðinssykur- sýki, sykursýki af gerð 2? „Þar hafa faraldsfræðilegar rannsóknir sýnt tengsl milli lítillar stærðar barns við fæðingu og ým- issa sjúkdóma síðar á ævinni. Kollega mín, Ingibjörg Gunnars- dóttir, sem einnig er í doktors- námi, hefur rannsakað áhrif fæð- ingarþyngdar á háþrýsting og hjartasjúkdóma, en ég skoðaði tengslin við skert sykurþol, syk- ursýki af gerð 2. Við sáum tengsl hér á landi milli skerts sykurþols og fæðingarþyngdar. Það átti þó aðallega við um þá sem áttu við of- fitu eða ofþyngd að stríða.“ Íslendingar fæðast nú margir stórir og þungir, ekki satt? „Jú, mikil fæðingarþyngd Ís- lendinga virðist vernda okkur gagnvart þessum sjúkdómi að vissu marki. Það ber ef til vill að þakka meðal annars neyslu á prót- ínum og Omega-3 fitusýrum sem við neytum úr fiskmeti og hefur áhrif á fæðingarstærð barnsins, en í raun vitum við ekki ástæður þessa.“ Má þá sjá fyrirfram hverjir geta orðið sykursjúkir? „Hér höfum við aðeins fundið einn áhættuþátt. Offita er hins vegar enn sterkasti áhættuþáttur gerðar 2 af sykursýki. Samt sem áður er mikilvægt að nýta sér þessar upplýsingar, til dæmis í sambandi við þyngdaraukningu kvenna á meðgöngu og fæðingar- þyngd. Rannsóknir okkar sýndu hve mikilvægt það er fyrir stærð barna að konan þyngist vel á með- göngutíma.“ Hvað tekur nú við hjá þér? „Ég vinn enn hér á rannsókna- stofu í næringarfræði hjá Land- spítala – háskólasjúkrahúsi og Háskóla Íslands, hjá prófessor Ingu Þórsdóttur, og hef mikinn hug á að stunda frekari rannsóknir. Næringarfræðin er þverfagleg, tengist læknisfræðinni, lífefna- fræðinni og öðrum líf- og raunvís- indum, og er þess vegna mjög fjöl- breytt. Hér heima má ljúka BS-gráðu í matvælafræði og fara svo í mastersnám eða doktorsnám í næringarfræði. Stéttin er enn fá- menn, en vonandi að úr rætist í framtíðinni. Öflug stétt næringar- fræðinga og -ráðgjafa er mikil- vægur hluti af þjóðfélagi er styður lýðheilsu.“ Bryndís Eva Birgisdóttir  Bryndís Eva Birgisdóttir fædd- ist í Reykjavík árið 1972. Hún lauk stúdentsprófi frá MA 1992, B.Sc.-gráðu í næringarfræði frá Stokkhólmsháskóla 1996, M.Sc.- gráðu í næringarráðgjöf frá Gautaborgarháskóla 1997, og varði nýlega doktorsverkefni sitt í næringarfræði frá raunvísinda- deild Háskóla Íslands. Hún hefur unnið að rannsóknum í næring- arfræði á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi og í Háskóla Íslands frá 1997. Bryndís er í sambúð með Tómasi Orra Ragnarssyni viðskiptafræðingi og eiga þau eina dóttur, Theodóru. Íslenska kýrin er alveg einstök Mamma okkar er sko gáfuðust í öllum heiminum, hún t.d. studdi ekki inngöngu okkar í EES, á sínum tíma, hún gaf skipaiðnaðinum dauðasprautuna 1983, og hún fann upp besta kvótakerfi í heimi, og sv.fr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.