Morgunblaðið - 28.06.2002, Síða 17

Morgunblaðið - 28.06.2002, Síða 17
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 17 SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK um náttúruvernd gangast um helgina fyrir vinnu og fræðslu um jarðvegs- vernd á Suðurnesjum. Á laugardag verður fræðsla og náttúruskoðun. Kannaðar upp- græðslutilraunir og jarðvegsrof við Voga og Njarðvík en þó einkum fimm ára gömul tilraun til að græða rofdíla nálægt Aðalgötu í Keflavík. Þátttakendur aðstoða við að meta niðurstöðurnar. Þá fá þátttakendur leiðsögn við að greina plöntur og meta jarðvegsrof hjá Ólafi Arnalds jarðvegsfræðingi. Á sunnudag verð- ur hafin ný rannsókn, reitir valdir, merktir og gróðurgreindir, borið í þá ýmist hey, skítur eða molta og sumir látnir óhreyfðir. Verður síðan fylgst með framvindunni næstu ár, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá samtökunum. Þátttakendur eiga að mæta klukk- an tíu báða dagana að Kirkjugerði 7 í Vogum. Þorvaldur Örn Árnason hef- ur umsjón með verkefninu, annast skráningu og veitir nánari upplýs- ingar. Fræðst um jarðvegs- rof og landgræðslu Suðurnes SEX starfsmenn hafa verið ráðnir til að uppfæra fyrirtækjaskrá Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar. Munu þeir leita eftir upplýsingum hjá forsvarsmönn- um fyrirtækja á næstunni. Markaðs-, atvinnu- og menningar- svið Reykjanesbæjar hefur í sam- vinnu við fleiri stofnanir bæjarins falið starfsmönnunum að hafa sam- band við öll fyrirtæki á Suðurnesjum til að uppfæra fyrirtækjaskrá MOA. Starfsmennirnir munu hafa sam- band símleiðis við fyrirtæki til að safna upplýsingum um starfsemi, fjölda starfsmanna, heimasíður, tengla, netföng o.þ.h. Er þessi upp- færsla liður í stefnumótun MOA í at- vinnumálum og framhald á könnun sem gerð var árið 1998 þegar skráð- ar voru í fyrsta sinn upplýsingar um öll fyrirtæki á svæðinu á vegum skrifstofunnar. Uppfæra fyrirtækja- skrá MOA Reykjanesbær FYRIRTÆKIÐ G. G. Sigurðsson ehf. átti lægstu tilboð í gerð gang- stétta og malbikun stíga í Grindavík á þessu ári. Bæjarráð hefur ákveðið að taka fyrra tilboðinu en frestað því að ganga frá hinu síðara. Þrjú tilboð bárust í bæði verkin. Ákveðið hefur verið að semja við G. G. Sigurðsson ehf. um að leggja gangstéttirnar fyrir tæpa 7,1 milljón en kostnaðaráætlun var tæpar 6,7 milljónir. Bæjarráð frestaði hins vegar að taka afstöðu til tilboða í malbikun stíga. Þar bauð G. G. Sig- urðsson ehf. tæpar 8,9 milljónir en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúm- ar 10 milljónir. Lægstir í gang- stéttir og stíga Grindavík ♦ ♦ ♦ ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.