Morgunblaðið - 28.06.2002, Síða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 23
BERNARD J. Ebbers virtist
ekki vera líklegur til að verða
frumkvöðull í heimi fjarskiptahá-
tækni. Þótt hann hafi breytt
WorldCom úr hugmynd á munn-
þurrku á kaffihúsi í næststærsta
fyrirtæki Bandaríkjanna í lang-
línufjarskiptum vildi hann ekki
sjálfur nota farsíma,
símboða og tölvu-
póst.
Honum tókst þó
að gera fyrirtæki
sitt að stórveldi með
meira en 70 samn-
ingum um samruna
eða kaup á fjar-
skiptafyrirtækjum
og þeir urðu til þess
að gengi hlutabréfa í
WorldCom stór-
hækkaði. Fjármála-
hugvitið á bak við
þessa samninga kom
frá helsta samstarfs-
manni hans, aðal-
fjármálastjóranum
Scott D. Sullivan.
Ebbers og Sullivan þóttu und-
arlegt tvíeyki. Ebbers, sem var
körfuboltaþjálfari þar til hann
haslaði sér völl í viðskiptum,
mætti í vinnuna á kúrekastígvél-
um og í upplituðum gallabuxum.
Sullivan, fertugur og tuttugu ár-
um yngri en Ebbers, var álitinn
bókhaldssnillingur. Þeir voru tíð-
ir gestir bankastjóra og sérfræð-
inga í fjárfestingum á Wall Street
og fengu þá á sitt band með
skyggnum sem sýndu síhækkandi
gengi hlutabréfa í WorldCom.
Hlutabréfin eru nú orðin nær
verðlaus vegna efasemda um að
stórfyrirtækið geti greitt skuld-
irnar sem hlóðust upp vegna fyr-
irtækjakaupanna. Talið er að
skuldirnar séu rúmlega 2.800
milljarðar króna.
Í ljós hefur komið að World-
Com vantaldi útgjöldin um rúma
334 milljarða króna á 14 mánuð-
um með því að bókfæra venjuleg
útgjöld sem fjárfestingarútgjöld.
Ekki er vitað hvað fyrir þeim
vakti og ekki er ljóst hvort Ebb-
ers vissi af þessari bókhaldsað-
ferð, þótt margir sérfræðingar á
Wall Street telji að það hljóti að
vera.
Greip gæsina
meðan hún gafst
Báðir hafa þeir farið frá fyr-
irtækinu með skömm. Ebbers var
neyddur til að segja af sér í apríl
og Sullivan var rekinn í vikunni
eftir að bókhaldsbrellurnar komu
í ljós.
Ebbers fæddist í Edmonton í
Alberta-fylki í Vestur-Kanada og
starfaði þar um hríð sem mjólk-
urpóstur eftir að hafa lokið námi í
framhaldsskóla. Hann fékk styrk
til að nema við lítinn háskóla í
Clinton í Mississippi og leika með
körfuboltaliði skólans. Hann út-
skrifaðist 1967 með gráðu í lík-
amsmennt og gerðist framhalds-
skólakennari og
körfuboltaþjálfari.
Ebbers fékk
smám saman áhuga
á viðskiptum. Hann
rak fyrst fataversl-
un og keypti síðan
vegahótel. Umsvif
hans jukust jafnt og
þétt og hann eign-
aðist alls níu vega-
hótel.
Ebbers og fleiri
fjárfestar áttuðu sig
á því árið 1983 að
vegna afnáms síma-
einokunar AT&T
gæfist nýjum fyrir-
tækjum tækifæri til
að hasla sér völl í
langlínufjarskiptum. Þeir gerðu
uppkast að viðskiptaáætlun sinni
á munnþurrku á kaffihúsi.
Fyrirtæki þeirra, LDDS, færði
fljótt út kvíarnar með kaupum á
öðrum fjarskiptafyrirtækjum og
nafni þess var breytt í WorldCom
sem endurspeglaði áform þeirra
um að byggja upp alþjóðlegan
fjarskiptarisa. Fyrirtækið starfar
nú í 65 löndum og er með 85.000
starfsmenn.
„Einn af greindustu
fjármálastjórunum“
Scott D. Sullivan var aðalfjár-
málastjóri fjarskiptafyrirtækis-
ins Advanced Telecommunicat-
ions, sem WorldCom keypti árið
1992. Hann gat sér orð fyrir að
vera viðskiptasnillingur meðal
bandarískra fjárfesta og var tal-
inn driffjöðrin í útþenslu fyrir-
tækisins. „Hann er einn af
greindustu fjármálastjórunum
sem ég hef hitt,“ sagði Tony
Ferrugia, fjármálasérfræðingur
sem fylgdist með uppgangi
WorldCom.
Sullivan ávann sér þessa virð-
ingu með því að ná nokkrum
stórum kaupsamningum í einu.
Honum var umbunað ríkulega
fyrir að seðja hungur Ebbers sem
var staðráðinn í að gera World-
Com að stærsta fjarskiptafyrir-
tæki heims. Sullivan var hæst-
launaði fjármálastjóri Banda-
ríkjanna árið 1998, fékk andvirði
360 milljóna króna í grunnlaun,
auk 1,3 milljarða ágóða af hluta-
bréfum sem hann fékk í launa-
uppbót.
Hugmynd á
munnþurrku
varð að fjar-
skiptarisa
Bernard
J. Ebbers
AP
Scott Sullivan, fyrrverandi aðalfjármálastjóri WorldCom.
Los Angeles Times.
SAGAN segir að fyrir 250 árum, í
þessum mánuði, hafi Bandaríkja-
maðurinn Benjamin Franklin sett á
loft flugdreka sem við var festur
lykill um óveðursnótt í Fíladelfíu og
gert uppgötvun: Eldingar eru raf-
magnaðar.
Tilraun Franklins kallaði yfir
hann gagnrýni frá prestum sem ótt-
uðust að hann væri að bjóða Guði
birginn, en Franklin hlaut aftur á
móti lof bæði austan hafs og vestan
sem einn mesti hugsuður síns tíma.
En sumir fræðamenn nú á dögum
eru ekki vissir um, að Franklin hafi
í rauninni gert þessa merku tilraun,
svo sem ótölulegum fjölda kynslóða
skólabarna hefur verið kennt.
„Þegar ég er að kenna um
Franklin reyni ég að koma inn hjá
nemendum nokkrum efa um til-
raunina með flugdrekann og lyk-
ilinn,“ sagði Richard Rosen, vís-
indasagnfræðingur og yfirmaður
lista- og vísindadeildar Drexel-
háskóla. „Jafnvel þótt hann hafi ef
til vill í rauninni gert tilraunina vit-
um við ekki nákvæmlega hvenær
eða hvar, sem líka er hluti vand-
ans.“
En aðrir sagnfræðingar segja
aftur á móti, að nógar vísbendingar
séu um að Franklin – sem var bæði
fræða- og vísindamaður auk þess að
vera stjórnmálamaður – hafi gert
hina frægu tilraun, jafnvel þótt
ekki séu til neinar beinar frásagnir.
Engir sjónarvottar voru að tilraun-
inni nema sonur Franklins, og það
var kollegi Franklins, Joseph
Priestley, sem greindi nákvæmlega
frá tilrauninni 15 árum eftir að hún
var gerð.
„Þetta gerðist í raun og veru,“
sagði Roy E. Goodman, sagnfræð-
ingur og safnvörður hjá Banda-
ríska heimspekifélaginu í Fíladelf-
íu. „Við vitum ekki hvar en við
vitum að [tilraunin] var gerð ein-
hvers staðar í útjaðri miðborg-
arinnar og við höfum frásögn
Priestleys og upplýsingar sem hann
fékk frá Franklin.“
Samkvæmt þeirri frásögn hélt
Franklin, sem var 46 ára, ásamt 21
árs syni sínum af stað dag einn í
júní 1752 til þess að sanna kenningu
Franklins um eðli eldinga. Þeir
fóru út á akur og biðu þess að
þrumuveður skylli á og óveðursský
sem gekk yfir – ekki elding – hlóð
drekann, línuna og lykilinn, nei-
kvæðri rafhleðslu. Franklin fékk
ekki í sig rafmagn vegna þess að
hann hafði í hendinni þurran silki-
klút sem einangraði hann frá raf-
straumnum. En þegar hann snerti
lykilinn hljóp elding í höndina á
honum. Þessi uppgötvun varðaði
veginn að síðari tíma uppfinn-
ingum, allt frá rafhlöðunni til raf-
alsins.
„Franklin sýndi fram á, að til-
raunirnar sem gerðar höfðu verið
með stöðurafmagn á tilrauna-
stofum voru ekki bara dægradvöl,
heldur tengdust hinum miklu nátt-
úruöflum,“ sagði I. Bernard Cohen,
sagnfræðingur og höfundur bók-
arinnar Vísindi Benjamins Frankl-
ins.
Franklin var ekki sá fyrsti sem
kom auga á líkindin milli stöðuraf-
magns á jörðu niðri og eldinga, en
hann varð fyrstur til að hanna próf
sem gæti staðfest hugmyndina,
sagði David Rhees, framkvæmda-
stjóri Bakkaen-bókasafnsins í
Minneapolis. Á safninu hefur verið
sett upp sýning um Franklin og eld-
inguna í tilefni af afmæli tilraunar-
innar. Mun sýningin standa út þetta
ár.
Og jafnvel þótt eitthvað reynist
vera til í þeirri tilgátu sumra sagn-
fræðinga að vísindamaður í Marly í
Frakklandi kunni að hafa gert hina
svokölluðu „Fíladelfíutilraun“ áður
en Franklin gerði hana sjálfur, eru
engu að síður margar ástæður til að
halda upp á afrek Franklins, sagði
Rhees.
„Franklin var ekki sá eini sem
setti þessar hugmyndir fram, og
sumir sagnfræðingar kunna að
reyna að nota það til að gera minna
úr arfleifð hans, en hrein snilligáfa
mannsins skín í gegn,“ sagði Rhees.
„Það getur verið að tilraunin í
Marly hafi verið gerð áður en hann
gerði sína tilraun, en franska til-
raunin var byggð á hugmyndum
sem Franklin setti fram fyrst.“
Efasemdir um arfleifð
Benjamins Franklins
AP
Benjamin Franklin
Fíladelfíu. AP.
HOMAIRA Shah, eiginkona fyrr-
verandi konungs Afganistans, lést á
miðvikudag í Róm, 84 ára að aldri en
að sögn barnabarns hennar var
banameinið hjartaáfall.
Homaira Shah hafði búið með
manni sínum, Mohammad Zaher
Shah, í Róm frá árinu 1973 þegar
honum var bolað frá völdum í Afgan-
istan af frænda sínum. Hún sneri
ekki til baka til Afganistans ásamt
manni sínum í apríl síðastliðnum
vegna hrakandi heilsu. Hún mun þó
hafa ráðgert að snúa aftur til Afgan-
istans, en þar í landi líta margir á
endurkomu konungsfjölskyldunnar
fyrrverandi sem tákn fyrir endalok
þeirrar tveggja ára styrjaldar sem
ríkti í landinu eftir brotthvarf Zah-
ers Shah.
Eiginkona fyrrverandi
konungs Afganistans látin
Róm. AP