Morgunblaðið - 28.06.2002, Side 24

Morgunblaðið - 28.06.2002, Side 24
ERLENT 24 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þú getur keypt boli, sundpoka, töskur, golfvörur, geisladiskahulstur, klukkur, reiknivél o.fl. á einstöku verði beint af Netinu með öruggum hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og færð þær sendar heim til þín eða á vinnustað. Þú getur líka komið við hjá okkur í Morgunblaðshúsinu, Kringlunni 1, og skoðað vörurnar þar. Líttu inn hjá okkur fyrir ferðalagið! mbl.is Nýjar vörur KÚBVERSKA þjóðþingið sam- þykkti samhljóða á miðvikudag breytingar á stjórnarskrá landsins, sem er ætlað að gera sósíalíska stjórnarhætti óafturkallanlega um alla framtíð. Telur Felipe Perez Roque, utanríkisráðherra Kúbu, að innlimun sósíalískra stjórnarhátta í stjórnarskrána geti reynst gagnleg til að viðhalda núverandi kerfi eftir fráfall Fidels Castro, leiðtoga Kúbu, og bróður hans, Raul, sem gegnir embætti varnarmálaráherra. Hing- að til hefur lítið veri rætt um hver þróunin verður á Kúbu eftir fráfall Castro-bræðra og annarra upphafs- manna kúbversku byltingarinnar. Castro segir sjálfur um breyting- arnar að með þeim tryggi Kúba framtíð sína og þær móti einnig hug- myndafræðilegan grunn sem þjóðin muni aldrei snúa frá aftur. Umræður um stjórnarskrárbreytinguna stóðu yfir í þrjá daga á kúbverska þinginu og tóku hundruð fulltrúa, auk sér- stakra gesta sem boðið var til um- ræðnanna, til máls og lýstu yfir stuðningi við tillöguna. Umræðunum um stjórnarskrár- breytinguna var sjónvarpað beint í kúbverska ríkissjónvarpinu og lok- uðu stjórnvöld í tilefni þeirra bönk- um, skólum og flestum skrifstofum og verksmiðjum svo að almenningur gæti fylgst með þeim. Andstæðingar stjórnarinnar á eyjunni gagnrýndu lokanirnar og sögðu ákvörðun stjórnvalda geðþóttafulla, hún lam- aði atvinnulíf eyjanna og sökum fá- tæktar mætti Kúba ekki við slíku. Enginn vafi lék á því að stjórnar- skrárbreytingin yrði samþykkt á kúbverska þinginu en þar situr 601 fulltrúi og eru 535 þeirra meðlimir í Kommúnistaflokki Kúbu. Auk þess hafði Castro fyrirskipað að stjórn- arskrárbreytingin yrði rædd „svo lengi sem þörf krefði“. Í síðustu viku söfnuðu stjórnvöld undirskriftum 99% kúbverskra kjósenda á bæna- skjal þess efnis að ekki yrðu gerðar breytingar á sósíalískum stjórnar- háttum á eyjunni. Breytingunni einnig beint gegn stjórnarandstæðingum Stjórnvöld á Kúbu segja stjórnar- skrárbreytinguna nú svar við stefnu George W. Bush Bandaríkjaforseta, sem neitaði í maí að aflétta viðskipta- og ferðahindrunum á Kúbu þar til þar yrðu gerðar endurbætur sem fælu meðal annars í sér frjálsar kosningar. Þá hótaði stjórn Bush því að herinn myndi hugsanlega grípa til forvarnaraðgerða gegn þjóðum sem styðja hryðjuverk, en Kúba er að mati Bandaríkjanna ein þeirra. „Al- þjóðalög, sem stjórn Bush virðist ákveðin í að virða að vettugi, veita Kúbu rétt til að ákveða hvaða stjórn- arhættir eru viðhafðir hér,“ sagði Roque, utanríkisráðherra Kúbu. Stjórnarskrárbreytingunni nú virðist þó einnig vera beint gegn stjórnarandstæðingum, sem standa fyrir svonefndri Varela-áætlun, en þeir söfnuðu 11.000 undirskriftum meðal almennings í síðastliðnum mánuði. Þar var þess krafist að hald- in yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um endurbætur, meðal annars hvað varðar mál- og fundafrelsi, rétt til að reka fyrirtæki og kosningaumbætur. Ætlað að tryggja sósíalisma eftir fráfall Castro Havana. AP, AFP. TEIKNING af nýju japönsku til- raunaverkefni með hljóðfráa þotu sem vonast er til að hægt verði að prófa í næsta mánuði. Frumgerðin, sem reyna á í eyðimörkum Ástralíu, verður smækkuð eftirmynd hinnar eiginlegu vélar, sem á að geta flogið á tvöföldum hljóðhraða, hafa tvöfalt meira flugþol en Concorde, taka þrisvar sinnum fleiri farþega og mengunin frá henni á að verða að- eins 25% af því sem er frá Concorde. Þótt þetta hljómi ef til vill eins og vísindaskáldskapur segjast jap- anskir vísindamenn vera tilbúnir að sýna fram á að svo sé ekki. Flugvís- indastofnun Japans, sem er rekin af hinu opinbera, hefur hannað þessa nýju flugvél, er nefnist NEXST, og ef tilraunir ganga að óskum er von- ast til að hún verði tilbúin til al- mennrar notkunar 2012. Frum- gerðin, sem flogið verður í Ástralíu 11. júlí nk., verður án hreyfla og verður borin upp af rakettu með svipuðum hætti og bandarísku geimskutlurnar eru fluttar út í geiminn. NEXST verður síðan flog- ið á tæplega 2.500 km hraða í 14 mínútur og síðan á hún að svífa til jarðar í fallhlífum. Tilgangurinn með þessari tilraun er að ganga úr skugga um að lögun vélarinnar virki eins og skyldi, en hugmyndin er, að lögunin dragi úr hávaðanum sem fylgir hljóðfráu flugi um helming. Ætlunin er að gera fleiri tilraunir með NEXST á næstu tveim árum og verða þá not- aðir bandarískir hreyflar til að knýja hana áfram. Ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti þessara fyrirætlana, og hefur verið bent á, að lítil þekking sé fyrir hendi í Japan varðandi flugtækni, og Japanir hafi ekki lagt neitt mik- ilsvert af mörkum til flugs síðan í síðari heimsstyrjöld. Og jafnvel þótt verkfræðikunnátta sé fyrir hendi sé ekki tryggt að hljóðfrá vél sem þessi verði fullkomlega öruggur farkostur en slíkt sé algert skilyrði þess að vélin geti orðið meira en til- raun. Engu skipti hversu hagkvæm vélin verði í rekstri, sé hún ekki fyllilega öruggur farkostur verði aldrei neitt úr neinu. Engu að síður fylgjast önnur fyr- irtæki í flugvélaiðnaðinum, eins og t.d. Boeing, grannt með framvindu mála. Boeing kynnti fyrir nokkru hugmyndir sínar um smíði hljóð- frárrar þotu. Wade Cornelius, að- stoðarframkvæmdastjóri hjá Bo- eing, sagði að þar á bæ hefðu menn vökult auga með því sem Japanirnir eru að gera. „Ég held að væntingar þeirra séu raunhæfar. Þeir eru í fremstu röð í þróun þessarar tækni.“ AP Tilraun með nýja hljóðfráa þotu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.