Morgunblaðið - 28.06.2002, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 25
Sambóin Álfabakka, Kringlunni, Kefla-
vík og Akureyri og Háskólabíó frumsýna
Bad Company með Anthony Hopkins,
Chris Rock, Matthew Marsh, Gabriel
Macht og Kerry Washington í aðal-
hlutverkum.
NJÓSNAMYNDIN Bad Comp-
any er nýjasta kvikmyndin frá fram-
leiðandanum Jerry Bruckheimer,
sem framleitt hefur myndir á borð
við „Armageddon“, „Con Air“, „The
Rock“ og „Pearl Harbor“. Myndin
hefst í Prag þar sem maður lætur líf-
ið í CIA-njósnaaðgerð en svo vill til
að hinn látni njósnari er tvíburi að
nafni Kevin Pope og lifandi er hinn
tvíburabróðirinn sem er að heita má
eins í útliti. CIA ákveður því að hafa
uppi á hinum tvíburabróðurnum til
þess að fá hann til að ljúka njósnaað-
gerðinni en rússneska mafían hefur
yfir að ráða kjarnorkusprengju sem
marga langar í og hefst nú kapp-
hlaup upp á líf og dauða.
Það er enginn annar en óskars-
verðlaunahafinn Anthony Hopkins
sem fer með aðalhlutverkið í mynd-
inni en hann leikur Gaylord Oakes,
fyrrverandi CIA-njósnara, sem fær
það hlutverk að fylgja ónytjungnum
Jake Hayes, sem er hinn eftirlifandi
tvíburabróðir, inn í njósnaheiminn
þar sem honum er falið að ljúka
verkefnum bróður síns. Oakes hefur
hinsvegar aðeins níu daga til stefnu
til að fullklára ætlunarverkið áður en
hann þarf að hafa milligöngu með
hættuleg kjarnorkuviðskipti.
Handritshöfundar myndarinnar,
sem kemur frá Touchstone Pictures,
eru Jason Richman og Michael
Browning, en þeir byggðu handrit
sitt á sögu eftir Gary Goodman og
David Himmelstein. Leikstjórinn
Joel Schumacher hefur átt velgengni
að fagna, en hann leikstýrði hinni
geysivinsælu mynd „Batman For-
ever“ árið 1995 og síðan „Batman
and Robin“ með George Clooney í
hlutverki Batmans og Arnold
Schwarzenegger í hlutverki herra
Freeze. Meðal annarra mynda Schu-
macher má nefna „The Client“ með
Susan Sarandon og Tommy Lee Jon-
es; „A Time to Kill“ með Matthew
McConaughey, Samuel L. Jackson,
Söndru Bullock og Kevin Spacey;
„St. Elmo’s Fire“; „The Lost Boys“;
„Cousins“; og „Flatliners“.
Leikarar: Anthony Hopkins (The Silence
of the Lambs, The Remains of the Day,
Hannibal); Chris Rock (Down to Earth,
Nurse Betty, Pootietang); Matthew
Marsh (Spy Game, Quicksand, Mir-
anda); Gabriel Macht (Behind Enemy
Lines, American Outlaws, The Recruit);
Kerry Washington (Lift, Save the Last
Dance, Our Song). Leikstjóri: Joel Schu-
macher.
Í vondum félagsskap
Anthony Hopkins og Chris Rock veita hvor öðrum félagsskap.
Laugarásbíó, Regnboginn og Borgarbíó
Akureyri frumsýna Van Wilder: Party
Liaison með Ryan Reynolds, Kal Penn,
Töru Reid og Tim Matheson í aðal-
hlutverkum.
GAMANMYNDIN Van Wilder:
Party Liaison fjallar á ærslafullan
hátt um bandarísk ungmenni og til-
vistarkreppu þeirra. Ryan Reynolds
fer með hlutverk Van Wilder, sem
er letingi af guðs náð sem langar
síður en svo að takast á við alvöru
lífsins strax. Hann er búinn að eyða
sex árum í menntaskóla og hefur
ekki í hyggju að útskrifast á næst-
unni. Hann elskar nefnilega hið
áhyggjulausa skemmtanalíf mennt-
skælinga. Það verða Van Wilder því
mikil vonbrigði þegar faðir hans set-
ur hnefann í borðið og neitar að
borga fyrir hann sjöunda skólaárið í
röð og gefur honum þannig tvo af-
arkosti. Annaðhvort verður Wilder
að útskrifast eða safna sjálfur fyrir
skólagjöldunum og sjá þannig til
þess að partýið haldi áfram.
Myndin er framleidd af kvik-
myndagerðarfyrirtæki sem kallar
sig Myriad Pictures og eru handrits-
höfundarnir þeir David Wagner og
Brent Goldberg, en sá síðarnefndi
skrifaði sömuleiðis handritið að
„The Girl Next Door“ (2001) sem
fjallar um líf og störf klámmynda-
stjörnunnar Stacy Valentine. Leik-
stjóri myndarinnar, Walt Becker, er
hálfgerður nýgræðingur í faginu, en
hann útskrifaðist frá USC School of
Cinema árið 1995 og er Van Wilder:
Party Liaison hans önnur mynd.
Fyrri mynd hans var „Buying the
Cow“, sem einnig kom út á árinu, en
þar var hann bæði handritshöfundur
og leikstjóri.
Leikarar: Ryan Reynolds (Sabrina the
Teenage Witch, Dick, Finder’s Fee, We
All Fall Down); Kal Penn (Hector,
Badger, Freshmen); Tara Reid
(American Pie 1 og 2, The Big
Lebowski, Just Visiting); Tim Matheson
(Chump Change, The Story of Us, She’s
All That). Leikstjóri: Walt Becker.
Það er ljúft letilífið hjá Ryan Reynolds í hlutverki Van Wilders.
Letingi í vanda
Smárabíó og Sambíóin Snorrabraut
frumsýna Black Knight með Martin
Lawrence, Tom Wilkinson, Marsha
Thomason og Vincent Regan.
ÞEIR FÉLAGAR Martin Law-
rence, leikari og meðframleiðandi,
og handritshöfundurinn Darryl
Quarles sameina öðru sinni krafta
sína í kvikmyndinni „Black Knight“
sem frumsýnd verður í dag en þeir
unnu síðast saman að gamanmynd-
inni „Big Momma’s House“ árið
2000. Lawrence leikur Jamal Walk-
er, starfsmann á minigolfvelli sem
settur hefur verið upp í miðaldastíl.
Eftir högg á höfuðið vaknar Jamal
upp og er af einhverjum undarlegum
ástæðum staddur í Englandi á fimm-
tándu öld þar sem riddarar og kon-
ungar ráða ríkjum.
Fljótlega er hann kominn í banda-
lag með sveitastelpu úr nágrenninu
og niðurbrotnum uppgjafariddara,
sem má muna sinn fífil fegurri. Sam-
an hyggjast þau leggja að velli hinn
illa konung Leo og skósvein hans Sir
Knolte. Í leiðinni tekur Jamal nokk-
ur nýtískuleg dansspor á hirðdans-
leik og rekst á þekktar persónur
miðaldatímabilsins, svo sem svika-
hrappa, bóndadurga, bogaskyttur,
burtreiðariddara, fagrar meyjar,
prinsessu og meira að segja risa.
Upphaflega ætluðu leikstjórinn F.
Gary Grant og háðfuglinn Chris
Tucker að vinna saman þessa mynd
en urðu frá að hverfa vegna anna.
Leikstjórinn Gil Junger hefur leik-
stýrt fjölda sjónvarpsþátta undan-
farinn aldarfjórðung og hlotið ýmsar
viðurkenningar fyrir. Nefna má
Dharma & Greg, Ellen, According to
Jim, Soap, Benson, The Golden Girls
og Empty Nest. Black Knight er
hinsvegar önnur kvikmynd kappans,
en sú fyrsta var „10 Things I Hate
About You“, sem frumsýnd var árið
1999 með Heath Ledger og Juliu Sti-
les í aðalhlutverkum. Junger hóf fer-
il sinn sem leikstjóri aðeins tveimur
vikum eftir að hafa útskrifast með
sæmd úr kvikmynda- og fjölmiðla-
deild Austin-háskóla í Texas en við-
urkennir að vinnan hafi verið sinn
skóli ef frá er talin örlítil klippikunn-
átta.
Leikarar: Martin Lawrence (Blue
Streak, Life, Boomerang); Tom Wilk-
inson (In the Bedroom, The Patriot,
Shakespeare in Love); Marsha Thom-
ason (Long Time Dead, The Priest,
Safe); Vincent Regan (Hard Men, Black
Beauty, The Messenger: The Story of Jo-
an of Arc). Leikstjóri: Gil Junger.
Ævintýri í miðaldastíl
Martin Lawrence í hlutverki sínu sem hinn málglaði Jamal.
ÚT ER komin ljóðabók Þórarins Guð-
mundssonar, Fjólublátt húm.
Í tilkynningu segir að bókin, sem
er áttunda bók höfundar, skiptist í
þrjá meginhluta: Fyrsta hlutann,
Straum, þar sem aðalinntakið er
margbreytni mynda og atburða og
áhrif þeirra, annan hlutann, Fylgd,
þar sem meginstefið er vináttan,
gildi hennar og gjafir og loks þriðja
kaflann, Hug-
ana, þar
sem hugað
er að leit
mannsins að
skilningi á
verðmætlum
lífsins.
Bókin er
gefin út af
höfundi og er
62 blaðsíður.
Ljóð
M O N S O O N
M A K E U P
litir sem lífga
STÓRA THAILANDSFERÐ
Frábær ferð 16. okt. Lægsta verð.
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA