Morgunblaðið - 28.06.2002, Page 40

Morgunblaðið - 28.06.2002, Page 40
MINNINGAR 40 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Helgi Sigfússonfæddist á Háfi í Djúpárhreppi 19. september 1922. Hann andaðist á heimili sínu 20. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Sigfús Ágúst Guðmundsson frá Skarði í Land- sveit, f. 1. ágúst 1895, d. 9. des. 1965 og Jóna Sigríður Jóns- dóttir frá Þverlæk í Holtahreppi, f. 21. ágúst 1897, d. 3. apríl 1998. Helgi var fjórði í röðinni af 11 systkinum: Guðný, f. 16.1. 1919, d. 10.12. 1998, Hörð- ur, f. 24.12. 1919, d. 24.1. 1974, Gerður, f. 29.6. 1921, Hjalti, f. 27.10. 1923, Hulda, f. 18.2. 1925, d. 4.5. 1932, Gyða, f. 26.8. 1926, d. 1.7. 1927, Guðni, f. 29.9 1928, Gyða Sigríður, f. 19.11. 1929, Ólöf Hulda, f. 11.12. 1932, og Halldór Þráinn, f. 12.9. 1937. Helgi kvæntist 10. ágúst 1946 eftirlifandi eiginkonu sinni Ragn- heiði Kristínu Þorkelsdóttur, f. 5.8. 1926. Hún er fædd og uppalin í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Þorkell V. Þórðarson, f. 4.9. 1897, d. 10.2. 1983, og Guðrún Kristjánsdóttir, f. 11.9. 1900, d. 6.4. 1989. Helgi og Ragnheiður eiga fimm börn: 1) Drengur, f. 20.2. 1947, d. 20.2. 1947. 2) Þorkell Gunnar, f. 11.12. 1950, maki Björg Ragnheiður Sigurðardóttir. Börn þeirra eru Sigurður Ragnar, Ragnheiður Kristín og Arnar Kristinn. Barna- börnin eru þrjú. 3) Hrafnhildur, f. 31.7. 1953, maki Eiríkur Óli Árnason. Börn þeirra eru: Sig- mundur Páll, Helga Guðrún og Haraldur Ási Lárusarbörn og Halla Rós Eiríks- dóttir. Barnabörnin eru fjögur. 4) Sigfús Jón, f. 30.4. 1958, maki Sól- rún Sigurðardóttir. Synir þeirra eru Sindri og Sævar, fyrir á Sig- fús soninn Hilmar Helga, móðir hans er Bjarney. 5) Helga, f. 29.12. 1965, maki Júlíus Jónasson. Sonur þeirra er Alexander Örn. Helgi ólst upp á Háfi til 12 ára aldurs, flutti þaðan í bæinn Blönduhlíð í Reykjavík, þar sem foreldrar hans stunduðu búskap. Helgi og Ragnheiður hófu búskap hjá foreldrum Ragnheiðar og voru þar í nokkur ár, síðan fluttu þau í Barðavog 26 og bjuggu þar í 7 ár, þaðan fluttu þau í Hörgshlíð 6 og hafa búið þar síðan. Helgi byrjaði ungur að vinna og stund- aði ýmis störf um ævina, lengst af var hann vélamaður og verkstjóri hjá Hegra hf. Útför Helga fer fram frá Há- teigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þegar ég fékk þær fréttir að Helgi tengdafaðir minn væri látinn brá mér í brún þrátt fyrir það að ég hefði getað búist við þessu þar sem hann var orðinn fullorðinn og heils- an ekki eins góð og áður. Ég kynnist Helga fyrir einum17 árum og ég gerði mér strax grein fyrir því, að ég var ekki bara hepp- inn að hafa kynnst dóttur hans heldur var það einnig mikið lán fyr- ir mig að fá að kynnast þessum öð- lingi sem átti eftir að verða tengda- faðir minn. Enda kom það í ljós að hann ásamt Ragnheiði átti eftir að reynast mér og minni fjölskyldu einkar vel. Það var alveg sama hvað var, hann var alltaf tilbúin að aðstoða og fórna sínum tíma í að gera alla ánægða í kring um sig. Fyrstu búskapar ár okkar Helgu bjuggum við víðsvegar í Evrópu en komum heim um hátíðir og yfir sumartímann. Kom þá ekki annað til greina enn að búa á heimili þeirra hjóna og var það okkar ann- að heimili í mörg ár. Þau hjónin kepptust þau við að stjana við okk- ur og að hugsa um Alexander Örn sem náði strax mjög góðu sam- bandi við afa sinn. Helgi var lag- hentur maður og kom það einkum fram við vinnu hans í sumarbú- staðnum sem þau hjónin dvöldu svo oft í. Hann var einkar snyrtilegur hvort sem hann var í vinnufötum eða uppáklæddur. Það kom að því að við fluttum heim og kæmum okkur fyrir og þurfti þá að lagfæra húsnæðið. Þá var Helgi strax mættur með verk- færin en það var þá orðið ljóst að hann var ekki eins heilsuhraustur eins og áður og átti því ekki eins auðvelt með að nýta sína krafta sem fyrr. Ef eitthvað var þá urðu hann og Alexander Örn enn meiri vinir og gátu eytt drjúgum tíma í að tala saman eða sitja yfir spilum. Það eru margar góðar samveru- stundirnar sem við áttum öll saman í sumarbústaðnum þeirra í Lands- veitinni. Það var gaman og lær- dómsríkt fyrir Alexander Örn að fylgjast með afa sínum og fá að taka þátt í hinum daglegu störfum í sveitinni og er það ljóst að hann á eftir að sakna hans mikið. Það var einnig mjög gaman að fá þau hjónin í heimsókn til okkar, bæði til Frakklands og Sviss á meðan við bjuggum þar. Ekki má gleyma ferðinni sem við fórum núna í maí síðastliðnum til Spánar með þeim Habbý og Eiríki en þar naut hann sín og hafði mjög gaman af eins og við öll. Ég held að þessi ferð hafi verið mjög dýrmæt fyrir okkur fyrst kallið þurfti endi- lega að koma núna. Elsku tengdafaðir, með þessum fátæklegu orðum kveð ég þig að sinni um leið og ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og ég tala nú ekki um það sem að þú hefur gert og fært syni okkar, en það er dýrmæt reynsla fyrir hann að hafa fengið að kynnast þér og njóta þessa tíma með þér. Elsku Ragnheiður, ég veit að söknuður þinn er mikill og votta ég þér og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð. Eftir dimma nótt kemur bjartur dagur. Júlíus. Elsku afi minn. Einhvers staðar las ég að dauðinn væri fegursta æv- intýri lífsins og ég er sannfærð um að svo sé. Þú ert farinn í þína hinstu ævintýraför á stað þar sem allt er gott og öllum líður vel. Þú mátt trúa því að þín er sárt saknað og þá einkum af Ronju og Birki, langafabörnunum þínum, sem héldu svo mikið uppá þig. Þeim varstu besti langafi sem hægt er að hugsa sér. Alltaf varstu tilbúinn til að sýna þeim dótið í sjónvarpsher- berginu, ljónið á ganginum og verk- færin í kompunni þinni. Þegar þú svo fylgdir þeim niður rauðu tröpp- urnar áttir þú helst að halda á þeim báðum. Góðvildin skein úr augum þínum enda vildir þú allt fyrir alla gera. Við fjölskyldan vorum svo lán- söm að fá að búa í húsinu þínu síð- asta árið þitt og mikið var þér annt um að okkur liði öllum vel. Vart leið sá dagur að þú spurðir okkur ekki hvernig okkur líkaði vistin, hvort það væri nægilega hlýtt í íbúðinni og hvort við sæjum Perluna eins vel og þið amma. Verst fannst þér að við höfðum ekki sama útsýnið og þið á efstu hæðinni. Allt þetta fal- lega útsýni sem þú hafðir var þér kært enda sastu gjarnan við stofu- gluggann, last blaðið og gjóaðir augunum öðru hvoru á skógi vaxna Öskjuhlíðina og Perluna sem þér fannst svo tilkomumikil. Margs er að minnast, elsku afi minn. Ég get seint þakkað þér alla hugulsemina sem þú sýndir mér og litlu fjölskyldunni minni. Öll skiptin sem þú leist eftir Ronju og Birki, fórst í sendiferðir fyrir okkur og stundirnar í stofunni þar sem við ræddum um daginn og veginn. Þú vildir alltaf moka snjóinn frá úti- dyrunum hjá okkur, sagðist ekki geta hugsað þér að sjá okkur fljúga niður tröppurnar í ófærðinni. Það var alveg sama hversu oft ég bað þig um að hætta mokstrinum, þú tókst það ekki til greina. ,,Ég er eins og nýsleginn hundur,“ sagð- irðu glaðbeittur og mundaðir skófl- una enda kom aldrei til þess að við flygjum niður tröppurnar. Elsku afi minn, njóttu ævintýr- anna í ævintýralandinu þínu. Minn- ingin um yndislegan afa og langafa mun lifa í hjarta okkar um ókomna tíð. Þín Ragnheiður Kristín. Þegar ég hugsa um afa minn minnist ég hans sem langbesta manns sem maður getur þekkt. Hann var blíður og góður, alltaf til í að hjálpa manni með hvað sem er. Ég á mínar fyrstu minningar um hann þegar ég var alltaf hjá þeim ömmu og afa sem ég var hjá fyrstu árin. Minnist ég þess að vilja aldrei fara frá þeim og þurfti mamma að draga mig út spriklandi og æpandi til að ná mér heim. Mér leið nefni- lega alltaf svo vel hjá þeim hvort sem það var í Hlíðunum, í sveitinni eða niðri á billjardstofu, því alltaf vorum við að bralla eitthvað saman, laga og breyta. Ég man sérstaklega eftir því þegar ég var sumar eftir sumar í sveitinni hjá þeim að slá grasið, mála og færandi trén til og frá okkur til skemmtunar, þar dröslaði hann mér í hjólbörnum fullum af grasi og virtist þolinmæði hans aldrei vera á þrotum, því allt- af gerði hann allt sem hann gat til að gleðja alla sama hver átti í hlut. Á ég margar góðar minningar um hann og mun sakna hans gífurlega mikið. Vertu sæll afi minn, heyrumst og sjáumst síðar. Þinn dóttursonur, Sigmundur. Elsku afi. Mig langar til að þakka þér fyrir þann tíma sem við áttum saman hér í þessu lífi. Við sjáumst aftur seinna, þegar þar að kemur. Ég man þegar við Eva eignuð- umst okkar fyrstu íbúð fyrir rúm- um þrem árum. Þá komst þú og hjálpaðir okkur að mála og smíða, það eru núna góðar minningar. Amma kom svo áður en við fluttum inn og þreif eldavélina hátt og lágt, en hún hafði ekki verið þrifin í langan tíma. HELGI SIGFÚSSON 2  !&& & ,! ,!  ! "( )4<< /2   ( *  " ) (0<13/< !     ,        6  "7$$ % ! !  %,8 9! !:   "$$              +%"$ )4  2  !  !     !    .   8 )2)%)=>  '%(2        7  .  !   ,(!  , !   6  ""$$ '$$ '$  8 .  '$  0 %(  %"& + .+4& .  '$   3( + 2).  +  4+%  '$   % .  + /1 '$  ) .  + / 4(1* '$  "'/ .  '$   %0%%)5 + 1'/ .  '$  $3( %.  '$  (%  21 + 4 4 +%4 4 4  & '         (   5#6 5 . 5#7* *  ,8. (,4          )  *     + !      ,,)  ,.    ,#,  2 , '  $  ,#, '  9  #,  #, .     . : '6 '    & %       9 ;-  +)'' <,"(     -   .+-   *   )*     /  "  ,,) $ #9   9 ,9  '  , ,9#, ,'     '', 2  !  !     !     ;!  ? ( @  %  2)* !    7   !     2   '    "7$$ $3( %241 '$   ;$( A$ '$  ( /  + !")( A$ + 1"  %41 '$    % ( A$ +  3( %) '$  2 ( ( A$ +   (" '$  % &  ( A$ +  * '$  4 4 +%4 4 4  0   "     "    $     *  *                !      6 $<55-*##= 65 $ , ,,>?  ! "     "     -  !  1 22     /) ,$ '    %):/)      %)'  $ ' /) @  ,  '  +)9 /)  ./%&%&'    %)9(  "   %)'    &4 (    ) ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.