Morgunblaðið - 28.06.2002, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Kennarar
Grenivíkurskóla vantar kennara fyrir næsta
vetur.
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson, skólastjóri,
í síma 463 3118 eða 895 8131.
Biskup Íslands
auglýsir laust til umsóknar
embætti prests
í Vestmannaeyjaprestakalli Kjalarnes-
prófastsdæmi frá 1. september 2002
Biskup skipar í embætti presta til fimm ára.
Óskað er eftir því að umsækjendur geri í um-
sókn skriflega grein fyrir menntun sinni, starfs-
ferli og öðru því, sem þeir óska eftir að taka
fram.
Lögð er sérstök áhersla á reynslu og hæfni á
sviði barna- og æskulýðsstarfs.
Umsóknarfrestur rennur út 17. júlí 2002.
Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar um embættið er að
finna á vef Þjóðkirkjunnar http://www.kirkjan.is/
biskupsstofa og á Biskupsstofu.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TIL LEIGU
Til leigu
Suðurlandsbraut 50
Mjög gott ca 130 fm verslunarhúsnæði (í
bláu húsunum) þar sem GRACE tísku-
verslun er til húsa. Húsnæðið getur verið
laust til afhendingar 1. júlí nk.
Ársalir fasteignamiðlun,
sími 533 4200 eða arsalir@arsalir.is
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja þriðjudaginn 2. júlí 2002 kl. 11:00 í skrif-
stofu embættisins í Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, á eftirfarandi
eignum sem hér segir:
Skúlabraut 15, Blönduósi, þingl. eig. Hekla Birgisdóttir, gerðar-
beiðendur Blönduósbær og Íbúðalánasjóður.
Reykir, Laugabakka, Húnaþingi vestra, þingl. eig. Vilborg Valdi-
marsdóttir, gerðarbeiðandi VÍS h/f.
Aðalgata 11, Blönduósi, þingl. eig. Davíð Sigurðsson, gerðarbeið-
andi Kreditkort h/f.
Snæringsstaðir, Svínavatnshreppi, þingl. eig. Benedikt Stein-
grímsson, gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Blönduósi, Sigurður
Árnason og Iðunn ehf., bókaútgáfa.
Hólabraut 27, Skagaströnd, þingl. eig. Sæmundur Skarphéðinn
Gunnarsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi.
Skagavegur 15, efri hæð, Skagaströnd, þingl. eig. Einar Ólafur
Karlsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi.
Fellsbraut 5, Skagaströnd, þingl. eig. Herdís Þórunn Jakobsdóttir,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Bankastræti 14, Skagaströnd, þingl. eig. Eðvarð Ingvason, gerð-
arbeiðandi Íslandsbanki h/f.
Neðri-Þverá, Húnaþingi vestra, þingl. eig. Jarðasjóður ríkisins,
vegna ábúanda, Björns Viðars Unnsteinssonar, gerðarbeiðandi
Lánasjóður landbúnaðarins.
Skagavegur 16, Skagaströnd, þingl. eig. Kristín Björk Leifsdóttir
og Ragnar Haukur Högnason, gerðarbeiðendur Frjáls fjölmiðlun ehf.,
Íbúðalánasjóður og Leifur Árnason, hdl.
Skagavegur 2, Skagaströnd, þingl. eig. Agi ehf., gerðarbeiðandi
sýslumaðurinn á Blönduósi.
Valdarás-Ytri, Húnaþingi vestra, þingl. eig. Axel Rúnar Guð-
mundsson, gerðarbeiðendur Lánasjóður landbúnaðarins og Fóður-
blandan h/f.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
27. júní 2002.
Bjarni Stefánsson, sýslumaður.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Auglýsing
Deiliskipulag af Kvíanesi í landi Efri-Brú-
ar, Grímsness- og Grafningshreppi.
Samkvæmt 25. gr. laga nr. 73/1997, er hér með
lýst eftir athugasemdum við deiliskipulag af
Kvíanesi í landi Efri-Brúar í Grímsnesi. Skipu-
lagstillaga liggur frammi á skrifstofu Gríms-
ness- og Grafningshrepps frá 28. júní til 29.
júlí 2002. Skriflegum athugasemdum við skipu-
lagstillögurnar skal skila á skrifstofu sveitarfé-
lagsins fyrir 16. ágúst 2002. Þeir, sem ekki gera
athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkir tillögunni.
Sveitarstjóri Grímsness-
og Grafningshrepps.
Útboð HGV-01
Brú á Köldukvísl við Sveðjuhraun
Yfirbygging brúar
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
hönnun, smíði og uppsetningu brúar á Köldu-
kvísl við Sveðjuhraun. Um er að ræða bráða-
birgðabrú á lokuðum einkavegi. Brúarstæðið
er norðan Hágöngulóns og verður slóði að
brúarstæðinu gerður fær fyrir þungaflutninga.
Yfirbyggingin verður stálbitar (eða stálgrind)
með timburgólfi sem á að þola a.m.k. 41 tonna
álag. Haflengd er 36,0 m í einu hafi og brúar-
breidd, mæld milli bríka, skal minnst vera 3,8
m.
Verklok: Þriðjudaginn 24. september 2002.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, innkaupadeild, Háaleitisbraut 68,
103 Reykjavík, frá og með föstudeginum
28. júní nk. gegn óafturkræfu gjaldi kr. 2.000
fyrir hvert eintak.
Tilboðin verða opnuð mánudaginn 15. júlí 2002
kl. 11.00, á sama stað, að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
TILKYNNINGAR
Áskorun frá
Geymslusvæðinu ehf.
Skorað er á þá, sem eiga muni í vörslu
Geymslusvæðisins við Reykjanesbraut í Hafn-
arfirði og hafa ekki greitt geymslugjald undan-
farna 12 mánuði, að greiða eigi síðar en
15. júlí 2002.
Verði ekki greitt eða samið um greiðslu innan
framangreinds tíma, mega þeir er eiga muni
á svæðinu eiga von á á því að þeir, verði seldir
á uppboði til greiðslu áfallinna gjalda og
kostnaðar, eða þeim fargað á kostnað eigenda.
Auglýsing þessi á einnig við þá, sem eiga muni
á svæðinu, en hafa þá þar til geymslu sam-
kvæmt samkomulagi við sveitarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu.
27. júní 2002.
Geymslusvæðið ehf.,
Kapelluhrauni.
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
þorskeldi í kvíum í Norðfirði, Fjarðabyggð,
með allt að 2000 tonna ársframleiðslu,
skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á um-
hverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun-
ar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 26. júlí
2002.
Skipulagsstofnun.
Jarðhitanýting á Reykjanesi
Mat á umhverfisáhrifum —
athugun Skipulagsstofnunar
Hitaveita Suðurnesja hefur tilkynnt til athugun-
ar Skipulagsstofnunar matsskýrslu um
Jarðhitanýtingu á Reykjanesi.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 28. júní til 9. ágúst
2002 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Reykja-
nesbæjar og á bókasafni Reykjanesbæjar.
Einnig liggur skýrslan frammi í Þjóðarbókhlöð-
unni og hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík.
Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu VSÓ
ráðgjafar: www.vso.is.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
9. ágúst 2002 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi
166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum, nr. 106/2000.
Skipulagsstofnun.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Sunnudagur 30. júní.
Klóarvegur milli Grafnings
og Hveragerðis. Forn þjóð-
leið. Afmælisganga. Munið
stimpilinn. 12 km leið, 5—6
klst. ganga. Brottför frá BSÍ kl.
10.30, komið við í Mörkinni 6.
Fararstjóri Björn Pálsson héraðs-
skjalavörður í Hveragerði.
Verð kr. 1.700/2.000.
Miðvikudagur 3. júlí.
Kvöldganga á Keili/Höskuld-
arvellir — Spákonuvatn —
Lækjarvellir. Brottför frá BSÍ kl.
19.30, komið við í Mörkinni 6.
Nokkur sæti laus í sumar-
leyfisferð til Grænlands
g í Svarfaðardal.
Munið fjölskylduferð í Þórs-
mörk 5.—7. júlí. Leikir, grill,
gönguferðir o.fl. Ganga yfir
Fimmvörðuháls sömu helgi.
Skráið ykkur tímanlega.
www.fi.is og bls. 619 í textavarpi
RUV.
upplýsingar er að finna á mbl.is/upplýsingar
ATVINNU- OG RAÐAUGLÝSINGAR
FRÉTTIR
mbl.is
Dagskrá þjóðgarðsins á Þing-
völlum helgina 29.—30. júní.
Laugardagur 29. júní
Kl.13.00 — Kl.13.00 Lífríki Þing-
vallavatns.Gengið verður með-
fram vatninu frá brúnni yfir Öx-
ará við Valhöll og út á Lamb-
haga. Á leiðinni verður rætt um
jarðfræði, vatnasvið Þingvalla-
vatns og tengsl þess við lífríki
vatnsins. Gönguferðin hefst við
Öxarárbrú hjá Valhöll og tekur
um tvær og hálfa klst.
Kl. 13.00 Leikið og litað í
Hvannagjá. Dagskrá fyrir krakka
á öllum aldri í Hvannagjá. Tekur
um 1 klst. og farið frá þjónustu-
miðstöð.
Sunnudagur 30. júní
Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Þing-
vallakirkju.
Kl. 15.00 Þinghelgarganga.
Gengið um þingstaðinn forna og
hugað að sögu og náttúru.
Hefst við kirkju að lokinni guðs-
þjónustu og tekur um 1 klst.
Nánari upplýsingar eru veittar í
þjónustumiðstöð s. 482 2660 og
á heimasíðu þjóðgarðsins
www.thingvellir.is .
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins
á Þingvöllum er ókeypis og allir
eru velkomnir.